Vísir - 19.08.1978, Blaðsíða 5
vism La ugardagur 19. ágúst 1978
5
O OO
œtfíMíTMíí* 1
Uggvcenleg þroun i kvikmyndagerð
Vændiskona og eiginkona á barnsaldri meOKeith Carradine I giftingar-
atriöinu
Barnastjörnurnar vita
sannleikann
Brooke Shields segir sjálf aö
hún væri eitthvað vangefin ef hún
gerði sér ekki grein fyrir þvl hvað
gerist i Pretty Baby.
„Auðvitaö vissi ég hvað var að
gerast í samfarasenunum eins og
I öðrum atriðum myndarinnar”,
segir Brooke sjálf. „Ég lét bara
vera að segja frá þvi. Ég þykist
stundum vera heimsk af því að
það kemur sér betur. Ég hafði
gaman af hlutverkinu I myndinni
þó að ég leiki fallegan krakka i
vændishúsi. Susan Sarandon leik-
ur móður mina i myndinni, hún er
þar sjálf vændiskona og gerir mig
að lokum aö einni slikri
Tatum O’Neal i Pappirstungli
Kvikmyndin lýsir þvi sem gerð-
ist 1917 þannig að ég þarf að vera i
háum svörtum nælonsokkum og
háum reimuðum stigvélum. Það
var gaman að þvi”, segir þessi
kornunga leikkona.
Pretty Baby er ekki fyrsta
mynd Brooke. Hún er hins vegar
sú mynd, sem kemur til með að
gera hana fræga, jafnvel þó að
endemum sé.
„Mamma og ég fáum send mik-
inn fjölda handrita og förum yfir
þau saman. Ég vildi til dæmis
ekki vera með i Jaws. Þar átti ég
að leika 15 ára stelpu sem hákarl
gleypir og mér leist ekkert á
það”.
Louis Malle leikstýrir Pretty
Baby og á sjálfur tvö börn. Hann
reynir eðlilega að verja sinar
gerðir.
„Ég ætla mér ekki aö leggjast
gegn barnavændi i myndinni. Ég
leggst yfirleitt ekki gegn neinu i
kvikmyndum minum. Ég ætla
mér að hrista upp i áhorfendum
og láta þá sjá að svona hlutir
gerðust 1917 og gerast enn, en að
sjálfsögðu er þaö vandlega hulið
almenningi. Ég vil að áhorfendur
skoði sjálfir hug sinn I sambandi
við kynferðislif og óra sina um
það”, segir leikstjórinn, sem sér
ekkert athugavert við slika
mynd. Menn hafa hins vegar á-
hyggjur af þeim ódýru eftirlik-
ingum sem kunna að fylgja þar
sem að likamar barna verða
„notaðir”. Og það er lika annað
sem virðist liggja ljóst fyrir, og
það er að mynd eins og Pretty
Baby hefði aldrei verið gerð ef
Taxi Driver hefði ekki orðið til. 1
þeirri mynd lék Jodie Foster 13
ára einnig vændiskonu.
Jodie hefur leikið I þó nokkrum
myndum þar sem hún hefur kom-
ið fram I hlutverki saklausra
barna. Taxi Driver gerði hana
hins vegar þekkta.
Brooke Shields sést hér meö „móöur” sinni i einu atriöi myndarinnar.
Sálfræðingar
áhyggjufullir
Tatum reið á vaðið
„Ég var treg að taka aö mér
hlutverk vændiskonunnar i
fyrstu, en siöan þótti mér þetta
vera ágæt andstæða við það, sem
ég hafði leikiö I Disney-myndun-
um.
Ákvörðunin var hins vegar að-
eins að hluta til min. Móðir min
átti siðasta orðiö. Henni fannst
ekkert vera sem hún gæti verið á
móti I minum atriðum. Ég kom
aldrei fram i raunverulegum
samförum og þess var ekki kraf-
ist af mér að ég væri nokkurn
tima nakin. Sálfræðingar fyrir-
tækisins höföu hins vegar áhyggj-
ur af þvi, að það gæti reynst mér
skaðlegt að kynnast vændiskon-
um þar sem við vorum aö kvik-
mynda og ekki sist mellu-
dólgunum. Að lokum samdist svo
um, að ef blygðunarkennd minni
yrði einhvers staðar misboðiö
myndi Connie systir min fara i
hlutverkiö sem staögengill”,
segir Jodie.
Sú fyrsta af þessum „nútima-
legu” barnastjörnum er eflaust
Tatum O’Neal i Pappírstungli.
Þar bölvaöi hún og ragnaði og
varð að reykja þótt hún væri tæp-
lega 10 ára gömul. „Ég hafði
aldrei reykt áður og þurfti að æfa
mig nokkrum sinnum og féll held-
ur illa þegar reykurinn fór upp i
augun”, segir Tatum.
Linda Blair fór á sínum tima
með hlutverk i Exorcist, þá 15 ára
gömul. 1 hlutverkinu þurfti hún að
hafa i frammi ósiðlegt athæfi.
Hún notaði hiö versta tungumál
og stundaði sjálfsfróun meö
heilögum krossi.
Siöar upplýstist aö staögengill-
inn, 26 ára gömul kona, hafði
komið fram i verstu atriðunum.
Linda heldur þvi fram, aö myndin
hafi engin áhrif haft á sig, nema
hún hafði öölast heimsfrægö.
„Mér þótti gaman að þvi aö vinna
við myndina. Það var erfitt og ég
á ekki von á að margar 15 ára
stelpur hafi séö, hvaö þá upplifað,
það sem var sýnt”.
Eitt er vist og það er sú stað-
reynd, að börn og unglingar i
kvikm. nú til dags eiga ekki
sjö dagana sæla. Quinn Cumm-
ings sem var boðið hlutverk
Brooke i Pretty Baby segir, aö
þetta sé hrein klámmynd. „Ég
gat ekki hugsaö mér að taka hlut-
verkinu, þar sem 90% af mynd-
inni eru samfarasenur”, segir
þessi 10 ára leikkona. Hún er lika
hneyksluð á þvi aö Tatum O’Neal
skyldi vilja leika i Pappirstungli.
„Ég sé ekkert sniöugt við það
að krakki keðjureyki og þó að
frægð sé aö veöi held ég aö sé
betra aö sleppa þessu”. Quinn
Cummings hefur öðlast mikla
frægð fyrir leik sinn i myndinni
„The Goodbye GirT’án þess aö
þurfa að hátta sig.
Þaö virðist hins vegar auöveld- I
ast fyrir krakka aö verða barna- j
stjörnur með þvi að koma fram i
hryllings- eða klámmyndum.
Spurningin er hins vegar sú hvort
þeir biöa varanlegt tjón á sálu
sinni við þessi hlutverk.