Vísir - 19.08.1978, Page 6

Vísir - 19.08.1978, Page 6
6 Laugardagur 19. ágúst 1978 VISIR Eitt stærsta nafnið i bresku popptónlistarlifi þessa dagana er hljómsveitin DARTS. ólikt obbanum af hljómsveitunum i hinu hrörnandi riki Betu engladrottningar eru viðfangsefni DARTS ekki af pólitiskum toga spunnin, heldur sótt til ,,do-wop”-timabilsins sem náði hápunkti sinum á árunum i kringum 1960 og fjallað er uin i hinni frægu kvikmynd „Ameri- can Graffiti”. DARTS var stofnuð i ágústmánuði 1976. Siðan þá hafa komið út með hljómsveitinni þrjár litlar plötur og tvær stórar, sem allar hafa náð inn á Top Ten i Bretlandi. En veldi DARTS er þó aðallega á sviðinu og þykir framkoma þeirra þar ein sú liflegasta sem sést hefur um langan tima. DARTS skipa þau Rita Ray, söngkona, Den Hegarty, söngvari, Bob Fish, söngvari, Griff Fender, söngvari, Hammy Howell, pianóleikari, Horatio Hornblower, saxófónleikari, George Currie, gitarleikari, Thump Thomson, bassaleikari og John Dummer, trommu- leikari. Og hér á eftir fer nánari kynning á hverju þeirra fyrir sig: Rita Ray, söngkona, fæddist I Afriku 11. desember 1954. Hún fluttist til Bandarikjanna fimm ára gömul og bjó fyrst I Wash- ingtonborg en siðan i New York. Þar gekk hún i barnaskóla en áriö 1967 flutti fjölskylda hennar aftur austur yfir Atlantsála og i þetta sinn til Brighton i Eng- landi. Einn dag i viku var hún I eðlisfræöitimum i kvöldskóla og þar hitti hún Den Hegarty i fyrsta sinn. Og stuttu eftir að Den hafði stofnað Rocky Sharpe bauö hann henni i hljóm- sveitina, — fyrst kom hún fram sem gestur, siðan var hún ráöin til að syngja bakraddir og áður en lagt um leið var hún komin i framlinuna sem sólósöngvari. Þegar Rocky Sharpe lagði svo upp laupana varð Rita einn stofnenda DARTS. Griff Fender, söngvari, fæddist 3. júni 1954. Hann er ein mesta flökkukind heimsins, — allt pabba hans að kenna, sem var mjög rótlaus maður og var alltaf aö skipta um atvinnu og dvalarstaö. Griff haföi framan af engan sérstakan áhuga á tónlist en ætlaði sér alltaf að veröa flugmaöur er yrði hann stór (hvaða drenghnokka dreymir ekki um það?) og var meira aö segja dæmdur laglaus i skóla fimmtán ára gamall. En Griff geröi meira en að láta sig dreyma um háloftin, — frá 13-21 árs aldurs var hann i svifflugs- skóla. Hann kynntist Den Hegarty á þessum flugárum sinum og þegar Rocky Sharpe DARTS: aftari röð frá vinstri Griff Fender, Thump Thomson, John Dummer, Bob Fish, George Currie. Fremri röð f.v. Hammy Howell, Den Hegarty, Rita Ray, Horatio Horblower. ólst þar upp til fimm ára aldurs. Hann eyddi æskuárum sinum á stöðugum flækingi milli Skot- lands og Englands með þeim afleiöingum aö skólaganga hans var vægast sagt slitrótt, — á aldrinum 13-16 sat hann nákvæmlega þrjá mánuði á skólabekk. Þrátt fyrir að tónlistaráhugi hans hafi i fyrstu beinst aðóperunni keypti hann sér gitar þegar hann var 12 ára og var farinn að lifa af spila- mennsku tveimur árum siöar Eftir nokkurra ára flakk meö gitarinn var hann kominn i góð sambönd og gerðist „session”- maður. 1 gegnum auglýsingu gekk hann i John Dummer Band og var siðan, vegna kunnings- skapar við Tump Thomson, sem hafði bæði spilað með John Dummer og Rockey Sharpe, boðið að ganga i DARTS. góðgerðarskemmtunum ásamt hljómsveit skólans. Eitt sinn var þó stórtap á einni slikri samkomu og til þess að vinna fyrir skuldunum ákvaö Den að setja á laggirnar sina eigin rokkhljómsveit. Sú hljómsveit vakti geysimikla athygli og varð til þess að Den hætti námi og sneri sér að tónlistinni ein- göngu, sem höfuðpaurinn i Rocky Sharpe and the Razors. Rocky Sharpe sendu frá sér eina litla plötu en hættu I máimánuði 1976. Innan þriggja mánaða var Den þó kominn aftur á stað og 17. ágúst léku DARTS I fyrsta skipti opin- berlega. Hammy Howell pianóleikari fæddist 24. október 1954 og hefur allt sitt lif alið manninn á sama staö, Wimbledon. Að ingur og starfaði sem félagsráö- gjafi er hann eignaðist kunn- ingja að nafni John Dummer trommuleikara og var boðiö i hljómsveit hans. Þegar John hætti svo i hljomsveitinni héldu hinir áfram og kölluðu sig Dogs. Þaðan gekk Thump yfir i hljóm- sveitina Joybombers, en spilaði um leið nokkrum sinnum með Rocky Sharpe og var með i aö stofna DARTS. John Dummer trommuleikari hóf snemma að sveifla kjuð- unum. Arið 1963 stofnaöi hann Lester Square and the G.T.s. og lék næstu tvö árin vitt og breitt um Bretland og Þýskaland. Siðan gerðist hann biaðamaður um tima, en setti siðan á lagg- irnar John Dummer Blues Band. Sú hljómsveit gerði þrjár breiðskifur, en svo kom upp sina eigin stofu. En hann sagði þó ekki skilið við tónlistina og stofnaði Rock’n’Roll Cadets. Þaðan gekk hann yfir i hljóm- veit Mickey Jupp. Eftir að hann hætti þar kynntist hann hljóm- sveitinni Rocky Sharpe and the Razors og var boðið aö taka þátt i stofnun DARTS, þegar þar að kom. Horatio Hornblower saxófón- leikari, er yngsti meðlimur Darts, fæddur 15. janúar 1957. Hann hóf að læra á klarinett 10 ára gamall og var farinn að leika með atvinnuhljómsveitum 14 ára. Hann sneri sér að saxó- fóninum þegar hann var 16, þar sem hann hafði ekki nóg aö gera með klarinettið og gekk i hljóm- sveitina Arb. Þaðan lá leiðin i Zoo og að lokum gekk hann i Rocky Sharpe. Den Hegarty.söngvari, fæddist 13. september 1953 I Dublin á Irlandi, en fluttist ungur að árum til Brighton. Den var gáfnaljós i skóla, — oftast hæstur i sinum bekk. I skólanum stóð hann oft fyrir skyldunaminu loknu lagði hann stund á arkitektúr, en komst brátt að þeirri niðurstöðu aö hann myndi ekki endast i þvi starfi ævilangt og sneri sér að tónlistinni. Hann haföi veriö i pianótimum frá niu ára aldri og siðan að frönskukennari hans spilaði eitt sinn fyrir hann jazzplötu átti „sveiflan” hug hans allan. Hann uppgötvaöi aö honum lét vel að leika þessa tónlist og gekk i Johnny Mars and the Sunflower Boogie Band eftir aö hafa gubbað á arki- tektúrinn. Den Hegarty heyröi i honum á hljómleikum og bauð honum að vera með I myndun DARTS. Thump Thomson bassaleikari fæddist i Aberdenn á Skotlandi. Hann er útlæröur félagsfræð- ágreiningur innan hennar og John ætlaði að hætta en skaut þvi á frest þar sem eitt lag af þriðju skifunni komst i fyrsta sæti franska vinsældarlistans og tvær plötur voru teknar upp til viðbótar. Hann yfirgaf svo hljómsveitina og gerðist upptökumeistari hjá MCA- hljómplötufyrirtækinu og var þar i þrjú ár, áður en hann gekk i DARTS. Bob Fish.söngvari, fór að læra teikningu i Southend Art School þegar gagnfræðaskólanámiö var að baki. Þar stofnaði hann þjóðlaga/rokkhljómsveit, Bronzelina Cottage, sem lifði I fjögur ár. Siðan hélt^ Bob til London og starfaði á þremur auglýsingastofum en sneri brátt aftur til Southend og setti upp Helgarblaðið kynnir meðlimi vantaði eitt sinn söngvara var hann ráðinn. George Currie, gitarleikari, fæddist i Dundee i Skotlandi og HESTALEIGAN LAXNESI s66179 ferdir daglega ad Tröllafossi.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.