Vísir - 19.08.1978, Síða 7
vtsm
I Laugardagur 19. ágdst 1978
APARNIR ANÆGDIR
AÐ FÁ HEIMSÓKN
Með leikskólabörnum i Sœdýrasafn
Það eru margir
krakkar, sem fara að
skoða hið svokallaða Sæ-
dýrasafn, sem er rétt hjá
Hafnarfirði. Dýragarður
væri eiginlega réttara
nafn á því, en þar eru
mörg fleiri dýr en þau,
sem i sæ lifa. Upphaf lega
munu þar þó bara hafa
verið sædýr og þaðan
mun nafnið komið. Ég
fylgdist með leikskólahóp
um Sædýrasafnið og
börnin kunnu vel að meta
það að sjá öll dýrin, þó að
sum hafi vafalaust haft
samúð með dýrunum eins
og t.d. rebba, sem var
einn í búrinu sínu.
Þarna eru bæði land-
selir og útselir og þegar
við vorum i heimsókn var
einmitt verið að gefa sel-
unum að borða. Þeir
fengu síld i matinn og
leikskólakrökkunum
fannst mikið til um að sjá
þessi stóru dýr gleypa
sildarnar.
Næst skoðuðu þau sæ-
dýrin, alls konar fiska,
Þarna eru krakkarnir aö skoöa selina. Gæsirnar litu upp og horfftu á
þá, sem fram hjá fóru.
sem eru í sérstöku húsi og
þaðan lá leiðin til mör-
gæsanna og svo til rebba
og snæuglunnar, sem sat
hátt uppi í einu horninu í
búrinu sínu.
Svo var farið til kind-
anna og geitanna. Krökk-
unum fannst gaman að
geta komið nærri þeim,
og sum voru svo djörf að
teygja sig og klappa kind-
unum. Á leiðinni til Ijón-
anna og apanna var farið
fram hjá gæsagirðing-
unni. Þar voru margar
gæsir og einn svanur.
Aparnir og Ijónin eru í
sérstöku húsi og eru
rammgerðar rimlagirð-
ingar fyrir framan þau.
Aparnir virtust vera í
besta skapi og höfðu auð-
sjáanlega gaman af því
að fá gesti. Eftirlitsmað-
urinngaf þeim banana og
appelsínur og þeir gerðu
matnum góð skil. Ekki
ÍW|
- A& tító. Sfe'
Þaft var ósköp gott aft setjast niftur og borfta nestift sitt, þegar bóift
var aft skofta öil dýrin.
var hægt að sjá á Ijón-
unum, hvað þeim fannst
um gestakomuna.
Frá apa- og Ijónshúsinu
var svo farið til ísbjarn-
anna, sem eru í mjög
stjórri gryfju, og var
verið að skipta um vatn í
gryfjunni, þegar við
komum. Það var gaman
að sjá þessi stóru dýr, en
gott var að hafa þau í
hæfilegri fjarlægð.
Þetta voru siðustu dýr-
in, sem skoðuð voru í
þetta skipti og krakkarnir
og fóstrurnar settust í
grasið þarna rétt hjá og
borðuðu hestið sitt. Svo
var haldið heim í stóru
rútunni og allir voru
ánægðir.
Myndir og toxti oftir Arnþór Hroinsson, 13 óra
Slemmi: ó, mér leiftist. Hvaft á ég afi
gera? Ég vil verfta mikill maftur.
Siemmi: Ég vil æfa fótbolta, þjálfari. Slemmi: Nú er ég lyftingamaftur og skal Slemmi: Þarna er ég orftinn lögreglu-
Þjálfari: Þú ert allt of feitur. Sérftu, spæla alla þjófa og ræningja. þjónn og búinn aft handtaka fyrstu bófana
þarna sprakk talan af fötunum þlnum
ER VERÐBÓLGAN
ÓLEYSANLEGT VANDAMÁL?
- NEI EKKI FYRIR OKKUR
SPARIÐ 20% -
NOTIÐ AGFACOLOR FILMU
— Austurstrœti 7
Sími 10966
Söluumboð:
Heildverslun Kr. Þorvaldssonar og Co.
Grettisgötu 6, Rvik. Simar 24478 og 24730 .
DUSCHOLUX
Baðklefar í sturtur og baðherbergi
Áuðhreinsað matt eða
reyklitað óbrothætt
efni, sem þolir hita.
Rammar fást gull-
eða silfurlitaðir úr áli,
sem ryðgar ekki.
Hægt er að fá sér-
byggðar einingar I ná-
kvæmu rnáli, allt að
3.20 metra breiðar og
2.20 metra háar.
Duscholux baðklef-
arnir eru byggðir fyr-
ir framtiðina.