Vísir - 01.09.1978, Blaðsíða 6
Köstudagur 1. september 1978 VISIR
[ Umsjón Guðmundur Pétursson
Þýsk skatta-
uppsiglingu
Þegar Staðamenn, fólk sem bjó fyrrum á þvi
svæði, þar sem Kilarskurður opnast út i Norður-
sjó i dag, neituðu árið 1252 að greiða tiund til hins
volduga biskups i Bremen, og kunngerðu honum,
að hans heilagleiki yrði að láta sér nægja fimm
prósent, var gerð út krossför á hendur þeim.
Spænskir málaliðar drekktu skattauppreisninni i
eigin blóði þeirra, sem neituðu að greiða skattinn.
Hermir sagan, að ekki hafi lifað þetta blóðbað af
aðrir en eitt gamalmenni og eitt stúlkubarn.
,,Ég er hrædd um, aö herra Körner sé ekki lengur á meöal vor.
llann var skattlagöur í hel."
Þá tókst ólikt betur til, þegar
franski pappirskaupmaöurinn
Pierre Poujade árið 1953 stofn-
aði sin „Samtök til varnar
handiðnaðarmönnum og versl-
unarfólki”. Stefna hans um
skattagrið og innleiöslu á ein-
faldara og sanngjarnara skatta-
kerfi færöu 52 poujadistum
þingsæti i franska þjóöþinginu
áriö 1956 með stuðning 2.5 millj-
óna Frakka aö baki sér.
Með árunum hafa aðrir
skattapostular risið upp meðal
fólksins. Glistrup i Danmörku,
Howard Jarvis i Kaliforniu, sem
notið hefur stuðnings Milton
F’riedmans. Friedman hefur
kvöld eftir kvöld varað skatt-
greiðendur við þvi i sjónvarpi
(að sjálfsögðu ekki rikisreknu
sjónvarpi): að „eftir þvi sem
við horfum lengur á það opin-
bera bruðla meö fjármagniö, án
þess að við höfumst nokkuð að,
þvi nær verða þeir þvi að kæfa
okkur undir lokin”.
Og Jarvis bætir viö: „bað
finnst aðeins ein leiö til aö skera
niður útgjöld þess opinbera.
Nefnilega að sjá til þess, að það
hafi minna fé handa i milli til
þess að eyða”.
Arangurinn þekkjum við af
fréttum. Glistrup hefur litlu
sem engu komiö áleiöis i Dan-
mörku. beir eru þar ennþá að
hækka skattana. Nú siðast nýja
meirihlutastjórnin, sem hefur i
málefnasamningi sinum ákveð-
ið að stefna aö hækkun virðis-
aukaskatts. t Kaliforniu tókst
Jarvis og fleirum að sporna
gegn hækkun fasteignaskatts og
knýja stjórnmálamenn til þess
að flýta sér aö taka undir slag-
orð skattaandstæöinga.
I Þýskalandi er nú i uppsigl-
ingu svipuö hreyfing. Sjálfur
formaður stéttarfélags starfs-
manna þýsku skattstofunnar,
tHerman Fredersdorf, hefur
sagt hinu óréttláta skattkerfi
Sambandslýðveldisins striö á
hendur. Og hann ætti þó að
‘ þekkja skattkerfið betur en
nokkur annar. Hann undirbýr
um þessar mundir skipulagn-
ingu skattmótmælahreyfingar,
sem hefjast skal handa 1979.
Ennfremur stofnun nýs stjórn-
málaflokks, FGP (der Freiheits
— und Gerechtigkeitspartei,
sem útleggja mætti á islensku
Frelsis- og réttlætisflokkurinn).
Á siðustu átta árum hafa
verið sett i Þýskalandi ekki
færri en 306 ný skattalög. Sam-
kvæmt þýska vikublaöinu Quick
spanna þau hvorki meira né
minna en 23.197 fullar siöur
prentaðs máls.
Samkvæmt sömu heimild
hækkaði framlag skattgreið-
enda til rikisteknanna á árunum
1960 til 1977 úr 8.1 milljarði
marka upp i 90.8 milljarða
marka. Meðalmánaðarlaun i
Þýskalandi árið 1960 voru i
kringum 512 mörk. Af þvi
greiddi skattþegninn (trygging-
argjöld innifalin) um 80 mörk.
Arið 1976 voru hlutföllin orðin
þannig, að meðallaun voru um
1999 mörk, en skattgjöld 590 '
mörk. En áriö 1976 var svo
komið fyrir tilstilli veröbólg-
unnar, að 1409 mörk höfðu ekki
nema hálfan kaupmátt á viö
það, sem 342 mörk höfðu árið
1960.
Þenslan i umsvifum þess
opinbera jókst úr 1.257 milljón-
um opinberra starfsmanna árið
1953 upp i 2.506 milljónir árið
1977. Launagreiðslur þess opin-
bera til þessarar einnar og
kvart milljónar starfsmanna
námu árið 1953 tiu milljörðum
og átta hundruð milljónum
marka. Ariö 1977 fengu tvær og
hálf milljón opinberra starfs-
manna greidda 127 milljarða
marka i laun.
Vikuritið Quick fékk Kehr-
manns-stofnunina i Hamburg til
þess að gera fyrir sig skoðana-
könnun. Niðurstöður hennar
bentu til þess, að 11.3% þýskra
kjósenda mundu ljá framboös-
listum skattaflokksins atkvæði
sin i næstu kosningum. Það gæti
orðið örlagarikt fyrir frjálsa
demókrata (FDP), sem ekki
náðu 5% i fylkisþingkosningum,
sem nýlega fóru fram i Ham-
burg og Neðra-Saxlandi.
bótt skoski sagnaritarinn,
Alexander Fraser Tytler (uppi
1747 til 1813), hefði eðlilega ekki
hugboð um velferðarþjóðfélög,
sem upp risu á okkar dögum,
spáði hann samt þvi, sem koma
varð: „Þegar kjósendur einn
góðan veðurdag uppgötva, að
þeir geta auðgast á kostnað *
rikiskassans, munu þeir við
hverjar einustu kosningar velja
þann frambjóðandann og þann
flokkinn, sem lofar þeim hvaö
mestum hlut úr rikiskassanum.
Og afleiðingin verður (orðrétt
eftir Tytler) hrun lýðræöisins”.
(Jan Sundberg hjá ,,Far-
mand”)
NÝTT
Kaupmannahöfn i innkaupaleið-
angur fyrir fikniefnadreifihring.
•
Játar íkveikjuna
í bíóinu
Yfirvöld i Irak hafa kyrrsett
Iranbúa, sem viðurkennir að
hafa átt þátt i íkveikjunni i kvik-
myndahusinu i Abadan i Iran (19.
ágúst) 430 manns létu lifið i þeim
bruna.
Maðurinn kom með ólöglegum
hætti yfir landamærin núna i vik-
unni, en hefur ekki óskaö hælis
sem pólitlskur flóttamaður.
Hefur Iraksstjórn ákveðiö að
framselja manninn.
Hryðjuverkamenn
á báti
Strandgæsla Israels tók á dög-
unum bát, sem var á siglingu til
Israels, en um borð I bátnum voru
tveir hryðjuverkamenn Pale-
stinuaraba. Fannst I fórum þeirra
útbúnaður til skemmdar- og
hryðjuverka.
Israels hefur eflt mjög flota
sinn og strandgæslu siöan hryðju-
verkamenn komust i mars I vor
sjóleiðina til Tel Aviv, þar sem
þeir náðu strætisvagni fullum af
fólki á sitt vald. Það kostaði 36
manns lifið.
Vorum að fá nokkrar gerðir af
mjög vönduðum sófasettum frá
belgiska fyrirtækinu VELDA
Mjög hagstætt verð
Veríð velkomin að skoða okkar fjölbreytta
húsgagnaúrval á 1200 fermetra gólffleti
(Allt á sömu hæð)
SMIDJUVEGI6 SÍMI44544
Konunglegur
hirðljósmyndari
Senn liður að fundi þeirra Be-
gins forsætisráöherra tsraels og
Sadats, forseta Egyptalands, i
boði Carters Bandarikjaforseta i
Camp David, sumarbústað
Bandarikjaforseta. — Margir
telja þennan fund siðustu örvænt-
ingartilraun til þess að koma i
veg fyrir að friöarferð Sadats til
Jerúsalem fyrir áramót i fyrra
renni ekki algerlega út i sandinn.
Þeim augum litur einnig teiknar-
inn Lurie á málið.
Hass-smyglarar
Einn Dani og tveir Alsirbú;
voru handteknir á dögunum
flugvellinum i Karachi með 67 I
af hassi i fórum sinum. Talið e
að mennirnir hafi verið sendir f:
uppreisn í