Vísir - 11.09.1978, Qupperneq 4
Mánudagur 11. september 1978
VÍSIR
Puch Pinzgauer
— of hverju er hann ekki fluttur til íslands?
Nú er rétti tíminn
aó endurryóverja
bílinn fyrir veturinn.
Verklýsing á endurryövörn.
ÞVOTTUR:
Óhreinindi á undirvagni og annarsstaðar eru
þvegin burt með upplausnarefni og heitu vatni (sem
hefur þrýsting allt að 130 kg/cm2). Kemur það í veg
fyrir að óhreinindi geti leynst í undirvagni eða hjól-
hlífum.
ÞURRKUN:
Eftir nákvæman þvott, er bifreiðinni ekið í lyftu inn í
þurrkskáp og þurrkuð með 60—70° heitum loft-
blæstri. Þetta er eitt af þeim grundvallaratriðum,
sem nauösynlegt er að framkvæma, til að ná sem
bestum árangri gegn ryði og tæringu, þ. e. að bif-
reiðin sé bæði hrein og þurr þegar ryðvarnarefni er
borið á.
BORUN:
Þegar bifreiðin er orðin þurr, er henni ekið úr
þurrkskápnum. Síðan eru boruð 8 mm göt til að
koma ryðvarnarefninu Tectyl í öll holrúm og á þá
staði, sem nauðsynlegt reynist með hliðsjón af þar
til gerðu plani, sem til er yfir flestar tegundir bif-
reiða. — öllum slíkum götum, sem boruö hafa
verið, verður lokað eftir sprautun á snyrtilegan hátt
með sérstökum plasttöppum.
1. SPRAUTUN:
Fyrst er þunnu ryðvarnarefni (Tectyl 153B) spraut-
að í öll samskeyti, brot og suður, en það hefur mjög
góða eiginleika til að smjúga inn í staði þar sem
mest hætta er á ryðskemmdum. Þetta efni er einnig
sett inn í hurðir, lokuð rúm, vélarhús o.fl.
2. SPRAUTUN:
Eftir að sprautun 1 er lokið, er sprautað þykkara
ryðvarnarefni (Tectyl 125) á staði, þar sem meira
mæðir á, svo sem allan undirvagn og bretti.
3. SPRAUTUN:
Að lokum er Sþrautað gúmmímassa innan í bretti og
á alla viðkvæma staði undir bílnum til frekari hlífðar
ryðvarnarefninu og til einangrunar.
ÞURRKUN:
Að sprautun lokinni heldur bifreiðin áfram á lyftunni
inn í þurrkskáp, en þar er ryðvarnarefnið á bif-
reiðinni þurrkað með heitum loftblæstri.
ÞVOTTUR:
Að lokum er bifreiðin þrifin að utan jafnt sem innan.
Fyrst er hún úðuð með hreinsiefni og síðan spraut-
uð með vatni, þannig að Tectyl og önnur óhreinindi
á lakki skolast burt.
Ryóvörn sem aöeins tekur um tvo daga.
Ryóvarnarskálinn
vióSigtún _
Simi 19400 - Pósthólf 220 |BCTyl
tslendingar eru án efa mesta
jeppaþjóð veraldar og við
fylgjumst svo vel með i þeim
efnum, að komi einhvers
staðar nýr jeppi fram á sjónar-
sviðiö.erekki linnt látum, fyrr en
hann er kominn til tslands, jafn-
vel á undan flestum öðrum lön-
dum. En þó er til undan-
tekning-austurrlski jeppinn
Pinzgauer.
Snilldarsmið.
Pinzgauer er ekki neinn venju-
legur jeppi, heldur snilldarsmið
að sögn bandariskra jeppablaða,
sem fengið hafa að reyna fyrstu
jeppana af þessari gerð, sem
fluttir hafa verið til Banda-
rikjanna.
Hann er hvortj tveggja i senn,
eitthvert besta torfærutæki, sem
hugsast getur, en þó lungamjúkur
og rúmgóður. 1 heimalandinu,
Austurriki, erPirezgauer rómaður
fyrir eiginleika sina, og þar hefur
hann verið á feröinni i sjö ár, eða
siðan byrjað var að framleiða
hann árið 1971.
Pinzgauer er óvenjulega upp-
byggður af jeppa að vera.
Burðarásinn er rörlaga, undir
miðjum bílnum, ekki ósvipað og i
gamla Skoda eða Volkswagen, og
i honum er drifskaftinu komið
fyrir og út úr honumdriföxlunum.
Vélin er loftkæld, 2,7 litrar og 100
hestöfl, og hún er undir, milli
framsætanna, og að miklu leyti
inni I rörinu góða.
Þrennt er það öðru fremur, sem
gerir Pinzgauer að sllkum af-
burða-torfærubil, sem hann er. 1
fyrsta lagi er girkassinn fimm
gira, þannig, að meö notkun
millikassa er um að velja tiu gira
áfram.
1 öðru lagi er hægt að læsa bæði
drifinu á milli fram- og afturöxla
og auk þess fram- og afturdrifi
hvoru fyrir sig , þannig , að öll
hjól bilsins eru harölæst saman.
í þriðja lagi er nær helmingi
hærra undir lægsta punkt á Pinz-
gauer en á venjulegum jeppum.
vegna þess, að svipað og á gömlu
VW-rúgbrauðunum, liggja
driföxlarnir ekki beint út i mið
hjól, heldur er girað niður i
hverjuhjóli. Hæð undir drifkúlur
er þvi hvorki meira né minna er
33 sentimetrar.Þegar við bætist
að Pinzgauer er hæfilega stuttur
milli hjóla og brattur aftan og
framan, má nærri geta, að það er
fátt, sem stendur fyrir honum,
mýktin er ótrúleg, og auk þess
segja bandarisku jeppablaða-
mennirnir, sem reynsluekið hafa
honum, að Pinzgauer hafi vakið
helmingi meiriathygli, hvar sem
hann kom, en aðrir bilar sem þeir
hafa ekið.
Hár, hávær, og verðið
hátt.
En er þá ekkert athugavert við
þettafrábæratorfærutæki?Jú,það
ku veramikill hávaði i honum, og
það er fleira sem er hátt, þvi
miður. Verðið er nær þrisvar
sinnum hærra en á öðrum jepp-
um, að minnsta kosti I Banda-
rikjunum. Og þar með er spurn-
ingunni i upphafi þessarar grein-
ar svarað.
Tromp Pinzgauers: óháð, mjúk gormafjöðrun, óvenju hátt undir drifkúlur.
NYR BMW 520 -
OG FLEIRI NÝIR
A dögunum var greint hér á þá dóma hjá bflasérfræðingum, fram með nýja gerð af 5-linunni
bflasiðunni frá nýjum skæðum að hann sé of frábær til að heita svonefndu, og verður þar boðið
keppinaut i Benz-klassanum, en Opel. Nú eru BMW-verksmiðj- upp á ýmsar nýjungar bæði hvað
þar er Opel Senator, bill, sem fær urnar i þann veginn að koma snertir útlit og tæknilega gerð.