Vísir - 11.09.1978, Qupperneq 7
7
SIÓKT FÉKK HÚN NAFN
OIUTRUTT
— Vísa um hino nýju ríkissfjóm
Blaðinu hefur borist
eftirfarandi visa um
rikisstjórnina eftir
Theodór Einarsson frá
Akranesi:
Lag: Það gefur á bátinn við
Grænland.
Nú er okkar rikisstjórn ráðin.
Rangeygð hún er þetta grey.
A rúmstokknum situr hún
reynslulaus enn
rétt eins og óspjölluð mey.
Það eru engir aumingja karlar
Arnalds og Hjörleifur Gutt,
Ólafur sterki og
SteingrimurH.
Stórt fékk hún nafn, Gillitrutt.
Einn og átta i hóp
æptu jólasveinsóp
er þeir óðu sinn kosningaelg.
Þetta er skammtima-stjórn,
þetta er skammdegis-stjórn.
Sem er sköpuð i tilraunabelg.
Við gaflhlað stóð
Benedikt Gröndal,
og glotti að Tómasi A.
En Mangi úr Eyjum var
andlegahress,
ekkert á Svavari sá.
Kjartan var allur á kafi
að kanna sitt smáfiskabú.
En Vilmundur Gylfason
hrópaðihátt
að hann hefði ei á
stjórninni trú.
Einn og átta i hóp
æptu jólasveinsóp,
er þeir óðu sinn
kosningaelg.
Þetta er skammtima-stjórn
Þetta er skammdegis-stjórn
sem er sköpuð i tilraunabelg.
VIÐ HÖFUM LIFAÐ
SEM ANDAR HJÁ GUÐI
Ásthildur Geirsdóttir,
Kárastig 6, Reykjavik,
sem er meðlimur i
Kirkju Jesú Krists af
siðar daga heilögum,
(Mormónar ) skrifar
eftirfarandi:
Hvaöan ? Af hver ju ? Hvert ?
Einn hinna fornu ritara segir...
„og moldin hverfur aftur til
jarðarinnar , þar sem hún áður
var og andinn til Guðs, sem gaf
hann.” (Pred. 12:7)
Við skulum spyrja sjálfa
okkur hvernig-hægt sé að hverfa
aftur til staða, bletts eða héraðs,
sem við höfum aldrei heimsótt
áður. Hvernig getum við snúið
aftur til Guðs, ef við höfum ekki
einu sinni verið i návist hans?
Hin rökrétta niðurstaða er óum-
flýjanleg:
Til að geta horft aftur til hans,
verðum við einu sinni að hafa
notið samvistar með honum,
sem hlýtur að hafa verið á for-
tilverustigi okkar, áður en við
vorum klædd þessum likama
holds og beina.
Og það er það sem við,
Mormónar, trúum að við höfum
lifað sem andar hjá Guði, föður
okkar. Og við vorum send til
jarðar i vissum tilgangi.
„Vitur skapari hlýtur að hafa
haft einhvern mikinn tiígang i
huga með sköpun jarðar og með
þvi að láta börn sin lifa þar.
Þekking á þessum tilgangi er
nauðsynleg til að gera mann-
kyninu fært að gegna hlutverki
sinu almennilega. Við skulum
þvi athuga hvað hann hefir i
huga.
Einn tilgangurinn með dvöl
mannsins á jörðinni er að öðlast
h'kama úr holdi og beinum, þvi
að án hans er ógerningur aö
komast áfram á hinum ýmsu
tilverustigum, sem hann á að
hrærast á i heimi eilifðarinnar.
Honum er lika nauðsynlegt að I
læra af reynslunni, að gera á I
milli góðs og ills. Eins og sagt |
var við okkur fyrstu foreldra:
Sjá, maðurinn er orðinn sem ■
einn af okkur, þarsem hann veit
skyn góðs og ills, (1. Mós. 3.22).
Það er nauðsynlegt að
maðurinn braðgi á hinu beiska, •
svo að hann kunni að meta hið I
sæta. ógerlegt er að öðlast rétt I
mat á gildi eilifs lif s, án þess að I
maðurinn hafi kynnst hinu 9
gagnstæða. ■
Maður verður fyrst að kynn- |
ast veikindum til að _
geta til fulls metið, hve heilsan
er mikils virði.
Hann verður að finna áhrif
sársauka, áður en hann getur I
notað þess að veraónæmur fyrir I
honum. Hann veröur að finna I
fyrir áhrifum og valdi dauð- ■
ans,áður en hann getur metið |
eilift líf. Hann verður að skilja ■
áhrif syndarinnar,áður en hann
getur notið „hvildar, sem er
fyrirbúin hinum tryggu.”
Um margvislega reynslu er að 1
ræða, sem hann getur öðlast i |
holdinu en ekki með öðru móti.
Fullnægja verður ýmsum I
reglum og fullnægja eilifum
samböndum sem hann verður i ■
hér á jörðu samkvæmt hinni |
hyggilegu áætlun Skaparans -
mikla. Skirn til að hljóta fyrir-
gefningu og hjúskapur til
eilifðar eru mikilvæg skylduat- I
riði, sem lögð eru manninum á ■
herðar á öðru tilverustigi hans I
eða með meðan hann dvelst á I
jörðinni. Það er ekki einungis |
skylda mannsins aö sjá sjálfum
sér farborða og leitast við að >
bæta hlut sinn. „Allt, sem þér
þvi viljið aðrir menn geri
yður, það skuluð þiö og þeim
gjöra,” (Mt. 7:12), kallast hin
gullna regla sem menn ættu að
láta lif sitt stjórnast af. Ég bið I
þess innilega að allir mættu |
finna sannleikann, þvi að við I
fáum laun fyrir verk okkar hér ■
á jörðu.
Tíl homingju
öryrkjar
R.S. hringdi:
Ég vilóska öryrkjum til ham-
ingju með þaö að geta orðið sér
úti um vinnu, og með þá vinnu
sem þeir fá.
Það er erfitt að meta sjúkling
til örorkustyrks og ég held aö
það sé ekki öllum greiði gerður
með þvi. Aðalástæðuna fyrir þvi
tel ég vera, að þá er tekin at
þeim þörfin fyrir starfið, og þá
eru qkki sömu hamingjumögu-
leikar fyrir hendi. Það er mikil-
vægt fyrir hvern öryrkja aö
vinna fyrir sér sjálfur.
Sjálfsagt er að veita örorku-
styrki en gæta verður þess
vandlega að þörfin og viljinn til
sjálfsbjargar sé ekki brotin á
bak aftur.
UMSJÓN: STEFÁN KRISTJÁNSSON SÍMI: 86611
SKYNDUHYNDIR
Vandaðar litmyndir
i öll skírteini.
barna&fjölsk/ldu-
Ijðsmyndír
AUSTURSTRÆTI 6 SIMI
12644
Þýsk kjólföt
allar stœrðir
^aoatKad
Laugavegi 5], 2. hœð