Vísir - 11.09.1978, Page 14

Vísir - 11.09.1978, Page 14
14 Mánudagur 11. september 1978 Nauðungaruppboð sem auglýst var I 17., 19. og 21. tbl. Lögbirtingabla&sins 1978 á fasteigninni Geröavegur 2 i Gar&i, Geröahreppi, þinglýst eign Gu&mundar Þórarinssonar, fer fram á eign- inni sjálfri og kröfu Magnúsar Sigur&ssonar hdi. og Landsbanka islands fimmtudaginn 14.9. 1978 kl. 16.30. SýslumaOurinn i Gullbringusýslu Nauðungaruppboð sem auglýst hefur veriö I Lögbirtingablaöinu á M.B. Þóröi Sigurössyni KE-16 (áöur Hólmsberg KE-16), þinglýstri eign Flös hf. Geröahreppi, fer fram viö bátinn sjálfan I Skipasmíöastöö Njarövlkur hf. I Njarövík fimmtudaginn 14. 9. 1978 kl. 15. Bæjarfógetinn i Njarövik. Nauðungaruppboð 2. og siöasta á fasteigninni Garöabraut 79, Geröahreppi, þinglýstri eign Gunnars Hasler Hámundarsonar, fer fram á eigninni sjálfri aö kröfu Garöar Garöarssonar hdl. og fl. fimmtudaginn 14.9. 1978 kl. 14. Sýslumaöurinn i Gullbringusýslu. Nauðungaruppboð 2. og siöasta á fasteigninni Birkiteigur 37 i Keflavik, þingl. eign Sigtryggs Mariussonar, fer fram aö kröfu Ólafs Axelssonar hdl. og fl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 14. 9. 1978 kl. 16. Bæjarfógetinn Keflavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var 166., 67. og 69. tölublaöi Lögbirtingablaös- ins 1976 á eigninni Þverholti viö Vesturlandsveg, Mosfells- hreppi, þingl. eign Hengils s.f., fer fram eftir k’röfu Inn- heimtu ríkissjóös og Framkvæmdasjóös islands. á eign- inni sjálfri fimmtudaginn 14. september 1978 kl. 4.00 e.h. Sýslumaöurinn I Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 101., 103. og 106 tölublaöi Lögbirtinga- blaösins 1977 á eigninni Varmadai II, Kjalarneshreppi, þingl. eign Jóns Sverris Jónssonar, fer fram eftir kröfu Einars I. Halldórssonar hdl., á eigninni sjálfri fimmtu- daginn 14. september 1978 kl. 5.00 e.h. Sýslumaöurinn I Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 90., 95. og 99. tbl. Lögbirtingablaösins 1977 á fasteigninni Kirkjuvegur 35 I Keflavik, þinglýstri eign Þóris Magnússonar, fer fram á eigninni sjálfri aö kröfu Vilhjálms Þórhallssonar hrl. og fl. fimmtudaginn 14. 9. 1978 kl. 14.30. Bæjarfógetinn I Keflavlk. I RITARI Starf ritara við sálfræðideild i Fellaskóla er laust til umsóknar. Upplýsingar gefur forstöðumaður i sima 74050. Umsóknum skal skila til fræðsluskrifstofu Reykjavikur fyrir 18. sept. n.k. AUGLÝSIÐ I VÍSi VÍSIR íslenskur fataiðnaður: Björn Guömundsson, framkvæmdastjóri: „Samningar viö erlenda aöila hafa ekki reynst mögulegir vegna óstöðugs gengis krónunnar”. Kvíðum ekki auk- inni samkeppni ef aðgerðir eru gerðar til þess að jafna aðstöðu okkar, — segir Björn Guðmundsson, framkvœmdastjóri Sportvers h.f. ,,Ég hef trú á aö stjórnvöld hafi vilja til aö viðhalda fullri atvinnu I landinu. Þaö verður varla gert nema meö þvl aö treysta stööu iönaöarfram- leiöslunnar, þannig aö hún standist samkeppni viö inn- flutning”, sagöi Björn Guömundsson, framkvæmda- stjóri Sportvers hf., er Visir hitti hann aö máli á Fatasýningunni i Laugardalshöll, sem lauk i gær. Sportver er nokkurs konar móöurski'p fjögurra fataverslana i Reykja- vík, sem bera nöfnin Adam og Herrahúsið. Björn tók viö rekstri fyrirtækisins áriö 1964, er hann keypti það i félagi viö fjóra aöra aðila. Hefur rekstur- inn vaxið jafnt og þétt slðan en þó mest siöustu tvö árin. 50 þúsund gallabuxur „Þaö er nærri lagi, aö umsvif- in hjá okkur hafi tvöfaldast eftir að við hófum framleiðslu á gallafatnaði. Viö framleiðum nú um 50 þúsund gallabuxur á ári, og u.þ.b. 8000 sett af herraföt- um. Gallabuxurnar eru hrein aukning frá þvi árið 1976, en sala á herrafötum hefur verið nokkuð jöfn um langt skeið.” Útf lutnings grundvöllur ótraustur Sportver hf. réðist i útflutning á karlmannafatnaði fyrir nokkrum árum siðan. Fyrirtæk- ið flutti þá út jakkaföt og smók- inga til Danmerkur um skeiö, en hætti þvi von bráðar. „Þetta var áriö 1973, sagði Björn „Við höfðum þá nokkra umframframleiöslugetu, sem þurfti að nýta, þannig aö ákveð- ið var að reyna fyrir sér I út- flutningi. Það kom þó fljótlega i ljós, að grundvöllur fyrir út- flutningi reyndist ekki nægilega traustur. Kom þar fyrst og fremst til of hátt framleiðslu- verð hér heima, auk hring- landaháttar í gjaldeyrismál- um.” — I hverju fólst einkum þetta háa framleiðsluverð? „Ef við tökum mið af markaðnum í Danmörku, þá er orkuverð lægra i Danmörku en hér. Framleiðslueiningar eru stærri og oft að sama skapi hag- kvæmari. Fjármagnskostnaður vegna dýrtiðarinnar hér er einnig þungur á metunum.” Þurfum að standa jafn- fætis samkeppnisaðil- um „Nú er það staðreynd að vinnulaun iðnverkafólks hér á landi eru hálfu lægri en sam- svarandi laun erlendis. Vegur það ekki talsvert upp á móti þessum kostnaðarliðum?” „Það er rétt. Hins vegar verð- ur að hafa í huga i þessu sam- bandi, að vinnuaflsskorturinn hér hefur orðið þess valdandi, að við þurfum sifellt aö vera að þjálfa upp nýtt starfsfólk. Slikt hefur geysilegan kostnað i för með sér og kemur niður á fram- leiðninni”. „Nú má búast við aukinni samkeppni innfluttrar fata- framleiðslu á næstu tveimur ár- um, vegna endanlegrar gildis- töku viðskiptasamninga okkar við EFTA og EBE. Telur þú að islenskum fataframleiðendum stafi hætta af aukinni sam- keppni? „Við gerum kröfu til þess að stjórnvöld jafni aðstöðu okkar, þannig að við megum standa jafnfætis i samkeppninni. Er- lend iðnaðarframleiðsla býr viða við margs konar beina og óbeina styrki. Þvi kemur fylli- lega til greina að fresta gildis- töku á tollaivilnunum til handa þessum þjóðum, eins og iðnrek- endur hafa gert kröfu til. Jafn- framt þurfum við að njóta jafn- stöðu við aðrar atvinnugreinar hér á landi, þannig að við séum samkeppnisfærir um vinnuafl og fleira. Má t.d. benda á að sjávarútvegurinn þarf ekki að greiða launaskatt, og gengi gjaldmiðils okkar er látið taka miöaf stöðuhans nær eingöngu. Fleiri atriði mætti nefna i þessa veru. Ef aðgerðir yrðu hins veg- ar gerðar til þess að jafna að- stöðu okkar held ég að við þyrft- um ekki að kviða aukinni sam- keppni.” Hliðarráðstafanir mik- ilvægar „Væri þá e.t.v. hugsanlegt, að þið hæfuð útflutning að nýju?” „Það er ekki útilokaö, þó svo að við litum okkur nær þessa dagana. Við höfum fengið fyrir- spurnir þar sem erlendir aðilar hafa leitað eftir samningum um kaup. Gengi krónunnar hefur bara reynst svo óstöðugt, að slikt hefur kafnað i fæðingu”. — Hefur 15% gengisfelling núverandi rikisstjórnar haft áhrif til bóta i þessum efnum. „Vonandi hefur það. Hins vegar veltur mest á hliðarráð- stöfunum. Án þeirra verður gengisfellingin ámóta áhrifarik og það að pissa i skóinn til að halda á sér hita”. —GBG.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.