Vísir - 11.09.1978, Síða 21
VISIB Mánudagur 11. september 1978
25
ÚTVARP KL. 16.20:
• •
STJORNUVCISLA
íPOPPHORNI
Þorgeir Astvaldsson er um-
sjónarmaður Popphornsins i dag
og hefst það kl. 16.20.
„Efnið vcrður nýtt og ferskt”,
segir Þorgeir.
,,Ég verð með mikið af
nýju efni í dag og það er
stefnan að reyna að koma
sem flestum lögum að og
hafa sem fæst orð um
þau," sagði Þorgeir Ást-
valdsson sem hefur um-
sjón með Popphorni í dag.
Þorgeir er gamalreyndur
poppari. Auk þess að hafa
lengi séð upp Popphornið
lék hann með hljómsveit-
inni Tempo og gerði garð-
inn frægan á sínum tíma.
„Ég hef hugsað mér að
kynna nýja hljómsveit sem
heitir City Boy. Ég hef trú
á að þetta sé mjög efnileg
hljómsveit og eigi í fram-
tíðinni eftir að slá í gegn,
allavega ef eitthvað er að
marka hljómplötur", sagði
Þorgeir.
Tvær góðar söngkonur, tón-
fagrar i meira lagi, syngja
nokkur lög, en það eru þær Rita
Coolidge og Elkie Brooks. Við
spurðum Þorgeir hvort eitthvaö
innlent efni væri i þættinum en
hann sagði svo ekki vera. „Ég
ætla að leyfa þessum nýju plötum
sem nú streyma á markaðinn að
þorna aðeins i verslunum áöur.”
Þá verða i þættinum leikin lög
af vinsældalistum viös vegar að
úr heiminum og sagöi Þorgeir að
öll væru þau i efstu sætum og flest
þeirra hefðu ekki heyrst hér áður.
Við fáum einnig að heyra fjöl-
mörg lög meö þekktum flytj-
endum, svona nokkurs konar
„Star Party”.
Þá spilar Þorgeir lummu dags-
ins,en þá velur hann eitthvaö lag
sem sló i gegn i óskalagaþáttum
Útvarpsins fyrir 10-20 árum.
Það er þvi greinilegt að þaö
verður sitt hvað um aö vera i
Popphorninu i dag. Efnið allt
verður með ferskara móti og ætti
að hæfa ýmsum aldurshópum.
„Ég hef reynt að leggja á það
áherslu að leika létt lög- Það er
mikið um það að fólk sé viö vinnu
á þessum tima og eins aö aka hér
og þar i bilum sinum og þá er gott
að hafa góða og skemmtilega
músik til að hlusta á”, sagði Þor-
geir Astvaldsson aö lokum.
Þorgeir vildi láta þess getiö aö
ef hann fyndi tima i þættinum
myndi hann leika lög af nýjustu
plötu hljómsveitarinnar Who,en
sú hljómsveit hefur veriö mikiö i
sviðsljósinu að undan förnu og
ekki sist eftir að trommuleikarinn
Keith Moon lést á fimmtudaginn
aðeins 31. árs að aldri.
Popphornið er á dagskrá eins
og áður segir kl. 16.20 og er
þátturinn klukkustundarlangur.
SK.
SJONVARP KL. 21.50:
STCFNA NÝRRAR RÍKISSTJÓRNAR
— til umrœðu í beinni útsendingu í kvöld
I kvöld kl. 21.50 er á dag-
skrá Sjónvarpsins þáttur í
umsjá Sigrúnar Stefáns-
dóttur fréttamanns og
verður rætt við ólaf
Jóhannesson forsætis-
ráðherra og tvo ráðherra
sem nýteknir eru við
embætti. Það eru þeir
Ragnar Arnalds mennta-
málaráðherra og Benedikt
Gröndal utanríkisráðherra
en þessir tveir síðast
nefndu hafa ekki gegnt
embætti ráðherra áður.
Auk Sigrúnar munu þrir blaöa-
menn spyrja ráöherrana, en er
hún var spurð nánar um það
hverjir það yrðu sagði hún það
ekki ákveðið. Þó væri vist að Þor-
steinn Pálsson ritstjóri Visis yrði
einn þremenninganna.
Þátturinn er sendur beint út og
hefst eins og áöur sagði i kvöld kl.
21.50 og stendur til 22.50 eða i eina
klukkustund.
SK
Mánudagur
11. september 1978.
20.00 Fréttir og veöur
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 tþróttir. Myndir frá
E vrópu meistaram óti i
frjálsum Iþróttum.
Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
21.00 Maöur og hestur i
kolanámu (L) Breskt sjón-
varpsleikrit eftir W.H.
Canaway. Leikstjóri David
Cobham. Aöalhlutverk
Dafydd Hywell og Artro
Morris. Ariö 1914 voru rúm-
lega 70.000 hestar notaöir til
erfiðisverka i breskum
kolanámum, en nú hafa
vélar leyst þá af hólmi.
Samt eru fáeinir
námahestar enn i notkun.
Leikritið lýsir sambandi
ungs námumanns og hests.
Þýðandi Jón O. Edwald.
21.50. Stefna nýrrar rikis-
stjórnar (L) Umræðuþáttur
i' beinni útsendingu. Ólafur
Jóhannesson forsætisráð-
herra, Benedikt Gröndal
utanrikisráðherra og
Ragnar Arnalds mennta-
málaráöherra svara
spurningum blaöamanna.
Stjórnandi Sigrún Stefáns-
dóttir.
22.50. Dagskrárlok.
(Smáauglýsingar — simi 86611
D
&
(Hreinga
rningar '
TEPPAHREINSUN
AR ANGURINN ER FYRIR
ÖLLU
og viöskiptavinir okkar eru sam-
dóma um að þjónusta okkar
standi langt framar þvi sem þeir
hafi áður kynnst. Háþrýstigufa og
létt burstun tryggir bestan árang-
ur. Notumeingöngu bestufáanleg
efni. Upplýsingar og pantanir i
simum: 1404 8, 25036 og 17263
Valþór sf.
Avallt fyrstir.
Hreinsum teppi og húsgögn meö
háþrýstitækni og sogkrafti. Þessi
nýja aöferö nær jafnvel ryöi,
tjöru, blóði o.sirv. úr teppum.
Nú, eins og alltaf áður, tryggjum
við fljóta og vandaða vinnu. Ath.
veitum 25% afslátt á tómt hús-
næði. Erna og Þorsteinn, simi
20888.
Gerum hreinar Ibúðir og stiga-
ganga.
Föst verðtilboð. Vanir og vand-
virkir menn. Simi 22668 og 22895.
Kennsla
Kenni ensku, frönsku,
itölsku, spönsku, þýsku, sænsku
ofl. Talmál, bréfaskriftir, þýðing-
ar. Bý undir dvöl erlendis og les
með skólafólki. Auöskilin hraðrit-
un á 7 tungumálum. Arnór
Hinriksson, slmi 20338.
Einkamál
Rororo
Mánudagsmynd. Hringdu strax.
Si'mi 14540 Maja og Guðmundur
Óli.
Þjónusta
Smáauglýsingar Visis.
Þær bera árangur. Þess vegna
auglýsum við Visi I smáaug-
lýsingunum. Þarft þú ekki að,
auglýsa? Smáauglýsingasiminn
er 86611. Visir.
Heimsækiö Vestmannaeyjar,
gistið ódýrt, Heimir, Heiðarvegi
1, simi 1515, býöur upp á svefn-
pokapláss I 1. flokks herbergjum,
1000 lcr. pr. mann, frítt fyrir 11
ára og yngri i fylgd með fullorðn-
um. Eldhúsaöstaöa. Heimir er
aöeins 100 metra frá Herjólfi.
Heimir, Heiðarvegi 1, simi 1515
Vestmannaeyjar.
Húsaieigusamningar 'ókeypis.
Þeir sem auglýsa I húsnæðisaug-
lýsingum Visis fá eyðublöð fyrir
húsaleigusamningana hjá aijg—
lýsingadeild Visis og. getS"þar
með sparaö sér verulegan 'kostn-
að viö samningsgerð.-. Skýrt
samningsform, auðvelt I'útfyll—
ingu og allt á hreinu. Visir, aug-
lýsingadeild, Siðumúla 8, simi'
8661í.
Ferðafólk athugið.
Gisting-svefnpokapláss. Góð
eldunar og hreinlætisaðstaða.
Sérstakur afsláttur ef um lengri
dvöl er að ræða. Bær, Reykhóla-
sveit, simstöð, Króksfjarðarnes.
Tek eftir gömlum myndum,
stækka og lita. Opiö 1-5 e.h.
Ljósmyndastofa Siguröar Guð-
mundssonar Birkigrund 40.
Kópavogi. Simi 44192.
Innrömmun^F
Val — Innrömmun.
Mikið úrval rammalista. Norskir
og finnskir listar I sérflokki. Inn-
ramma handavinnu sem aðrar
myndir. Val innrömmun. Strand-
götu 34, Hafnarfiröi, simi 52070.
Atvinnaíboói
Areiðanlegur unglingur
15-16 ára óskast til sendiferöa 2-3
tima á dag. Uppl. i sima 81444
milli kl. 4 og 5 i dag.
Vélritunarstúlka.
Óskum eftir stúlku til skrifstofu-
starfa. Góð vélritunarkunnátta
nauðsynleg. Söluumboö LIR
Hólatorg 2.
Mann vantar á dragnótabát
strax.
Uppl. f sfma 10344.
Ráðskona óskast i sveit.
Miðaldra kona óskast til að sjá
um rólegt og gott sveitaheimili á
Noröurlandi. Reglusemi áskilin.
Uppl. f sima 96-41643 eftir kl. 19.
Reglusamur maður óskast
til aðstoðar á húsgagnavinnu-
stofu. Framtföarvinna ef um
semst. Nývirki hf. Siðumúla 21
simar 33430 og 30909.
Atvinna óskast
Ég er 19 ára vélskóianemi
á l..ári og vantar vinnu seinni
part dags og um helgar. Hef bil til
umráöa, allt mögulegt kemur til
greina. Ef þig vantar laghentan
mann og þessi vinnutimi kemur
til greina, þá vinsamlega haföu
samband við mig I sima 36084.
Tvitug stúlka
meö stúdentspróf úr hagfræði-
deild Verslunarskóla Islands ósk-
ar eftir vinnu strax I ca. 5 mánuði.
Margt kemur til greina. Uppl. i
sima 72958.
Njarðvik — Keflavik.
Ungt par (eða annar aöilinn) ósk-
ar eftir vinnu á kvöldin og um
helgar, bæði i skóla. Uppl. i sima
1707.
Ég er 19 ára vélskólanemi
á 1. ári og vantar vinnu seinni
partdags ogum helgar. Hef bil til
umráða allt mögulegt kemur til
greina. Ef þig vantar laghentan
mann og þessi vinnutimi kemur
til greina þá vinsamlega hafðu
samband viö mig i sima 36084.
Tvitugur maður
með stúdentspróf óskar eftir
snyrtilegrivinnuum tfma. Uppl. i
sima 81816.
Vantar þig vinnu? Þvi þá ekki aö
reyna smáauglysingu i Visi?
Smáauglýsingar VIsis bera ótrú-
lega oft árangur. Taktu skil-
merkilega fram, hvað þú getur,
menntun og annað, sem máli
skiptir. Og ekki er vist, að það
dugi alltaf að auglýsa einu sinni.
Sérstakur afsláttur fyrir fleiri
birtingar. Visir, auglýsingadeild,
Siöumúla 8, simi 86611.
Óska eftir vinnu
við akstur. Hef meirapróf og
rútupróf, einnig vinnuvélarétt-
indi. Simi 95-4351.
Húsnæðiíboói
Húsaskjól. Húsaskjól.
Leigumiðlunin Húsaskjól kapp-
kostar að veita jafnt leigusölum
sem leigutökum örugga og góöa
þjónustu. Meðal annars með þvi
að ganga frá leigusamningum,
yöur aö kostnaðarlausu og útvega
meðmæli sé þess óskaö. Ef yöur
vantar húsnæði, eða ef þér ætliö
að leigja húsnæði, væri hægasta
leiðin að hafa samband viö okkur.
Við erum ávallt reiðubúin til
þjónustu. Kjöroröið er örugg
leiga og aukin þægindi. Leigu-
miðlunin Húsaskjól Hverfisgötu
82, simi 12850.
Húseigendur athugið
tökum að okkur aö leigja fyrir
yöur aö kostnaðarlausu. 1-6 her-
bergja ibúðir, skrifstofuhúsnæöi
og verslunarhúsnæöi. Reglusemi
og góðri umgengni heitið. Leigu-
takar ef þér eruð i húsnæöisvand-
ræðum látið skrá yöur strax,
skráning gildir þar til húsnæði er
útvegað. Leigumiölunin, Hafnar-
stræti 16. Uppl. i sima 10933. Opiö
alla daga nema sunnudaga kl. 9-6.
Húsnæóióskast
Barnlaust par á miðjum aldri,
bæði vinna úti, óska eftir 2-3 herb.
ibúö frá 1. nóv. Góð leiga fyrir
góða ibúö. Algjör reglusemi meö
góöri umgengni; fyrirfram-
greiðsla sé þess óskað. Uppl. i
sem fyrst næstu kvöld i sima
26638 milli kl. 6-8.30.
Erlend hjón (kennarar)
óska eftir 2-6 herb. ibúö eða húsi
sem næst miðbænum. Uppl. i
sima 21053 e. kl. 5.
íslensk stúlka
búsett i Bandarikjunum óskar
eftir litilli ibúð eða herb. með
eldunaraöstööu. Uppl. I sima
35326.
Herb. óskast.
Tækniskólanema vantar herb.
sem fyrst. Uppl. i sfma 93-1441
Akranesi.
26 ára háskólanemi
óskar eför litilli ibúð. Fyrirfram-
greiðsla ef óskað er. Uppl. gefur
Jón i sima 33750.
Verkfræðinemi óskar eftir herb,
með eldunaraöstö'ðu nálægt Há-
skólanum. Nánari uppl gefur Er-
lendur Karlsson i sima 50935.