Vísir - 14.09.1978, Page 13
Fimmtudagur 14. september 1978 VISIR
Umsjón:
Gylfi Kristjánsson — Kjartan L. Pálsson
VISIR Fimmtudagur
14. septeipber 1978
Meistarar
féllu fyrir
meisturum
Englands!
Evrópumeistarar Liverpooi
tvö siðast liðin ár léku i gær-
kvöldi sinn 100. ieik i Evrópu-
keppni, og voru mótherjar
þeirraensku meistararnir Nott-
ingham Forest.
Þótt þetta væri merkisleikur
hjá Liverpool, er þetta samt
örugglega leikur, sem leikmenn
liðsins vilja gleyma sem fyrst,
þvi að Forest vann nefnilcga
2:0.
Það var Gary Birtles sem
skoraði fyrra mark Ieiksins, en
hann lék aðeins sinn 3. leik með
aðalliði Forest i gær. Stuttu eftir
hálfleik bætti svo Colin Barrett
öðru marki við. — Og ná biður
leikmanna Liverpool það erfiöa
hlutskipti að vinna upp þennan
mun i siðari leiknum á heima-
vellisinum til aðkomasti 16 liða
úrslit.
ttalska liöið Juventus, sem
hefur landsliðsmann í nær
hverri stöðu, fékk óskabyrjun
gegn Giasgow Rangers.
Eftir aðeins 9 minútur lá
knötturinn i marki Rangers,
eftir skot HM-stjörnunnar
Pietro Paulo, en oftar tókst
ttölunum ekki að skora þrátt
fyrir mikinn stuðning 70 þúsund
áhorfenda. Skotarnir eiga þvi
góðan möguleika á að vinna
þennan mun upp i slöari leikn-
um.
AEK frá Aþenu átti ekki i
miklum vandræðum með að
skora mörk i leik sinum gegn
F.C. Porto frá Portúgal. AEK
sigraði 6:1 i Aþenu, eftir aðhafa
haft yfir 4:0 i hálfleik.
Annað lið á „skotskónum
margumtöluðu” var spænska
liðiðReal Madrid.sem lék gegn
Niedercorn frá Luxemborg.
Úrslitin uröu 5:0, eftir 3:0 i hálf-
leik.
En fáir komu eins á óvart og
leikmenn Villazniga Schkodra
frá Albaniu, en það liö þaðan tók
nú i fyrsta skipti þátt I keppni
meistaraliða. Þeir fengu
Austria Wien frá Austurriki i
heimsókn, og gerðu sér Iltið
fyrir og unnu gestina 2:0!
PSV Eindhoven frá Hollandi,
sem sigraði i UEFA keppninni i
fyrra, leikur nú i keppni meist-
arliða, og liöið tapaði i gær fy rir
tyrknesku meisturunum Fener-
bahce 2:1.
Gott hjá WBA
Leikmönnum West Bromwich
Albion gekk öliu betur i Tyrk-
landi en leikmönnum PSV Eind-
hoven. Þeir héldu þangað og
léku gegn Galatasary i
UEFA-keppninni. Sigur WBA
varð 3:0, og af þeim skoraði
blökkum aðurinn Laurie
Cunningham tvívegis.
V-þýska liðið Borussia
Mönchengladbach lék heima
gegn Sturm Graz frá Austurriki
og sigraði 5:1. Mörk Borussia
skoruðu Bruns (2), Gores,
Nielsen og Simonsen.
HM stjarna Argentínu, Mario
Kempes, var i mjög strangri
gæslu i leik spænska liðsins
Valencia.sem hann leikur með,
gegn CSKA frá Búlgariu. Svo
fór lika aðKempes skoraði ekki,
og CSKA sigraði i leiknum á
sinum heimavclli 2:1.
Sovétliðin sluppu vel
Sovétmenn eiga tvö lið, sem
taka þátt i UEFA-keppninni, og
þau unnu bæði i gærkvöldi 2:0
sigra. Torpedo sigraöi norska
liðiö Molde og Dynamo Tiblisi
vann Napoli frá italiu.
Manchester City geröi góða
ferð til Hollands og náöi þar
stigi gegn Twente Enchedc 1:1
Það var Watson sem skoraði
fyrir City i siöari hálfíeik.
Fæstir áhorfendur
Sennilega fá öll liðin i Evrópu-
keppnunum þremur fleiri áhorf-
endur á heimaleik sinn i 1.
umferðinni en norska liðið
Start. Félagið fékk Esbjerg frá
Danmörku i heimsókn, og 1417
áhorfendur sáu liðin leika i 90
minútur án þess að mark væri
skorað.
Danir sterkir
Dönsku liðin stóðu sig vel i
keppninni i gærkvöldi. Frem lék
gegn franska liðinu Nancyi1
keppni bikarhafa i Kaupmanna-
höfn, og byrjuðu Frakkarnir að
rifast vegna þess hversu léleg
lýsingin á vellinum var. Þeir
héldu síðan áfram að rifast, og
voru enn að, er leiknum lauk
með 2:0 sigri Frem.
Þá gekk Odense Loka-
motiv Sofia frá Búlgariu i
heimsókn, og sigruðu Danirnir
einnig f þeim leik 2:0. Og fyrir
áhangendur Arsenal: Arsenal
fékk a-þýska liöið FC Leipzig i
heimsókn á Highbury i gær-
kvöldi, og liðin léku þar i
UEFA-keppninni. Arsenal hafði
allan timann undirtökin i
leiknum, og er yfir lauk var
staðan 3:0. Mörk Arsenal skor-
uðu Frank Stapleton (2) ogAlan
Sunderland.
Krankl með tvö!
Austurrikismaðurinn Hans
Krankl er þegar byrjaður að
skora m örk fyrir sitt nýja félag,
Barcelona frá Spáni. i gær-
kvöldi iék Barcelona i keppni
bikarhafa gegn Donetsk frá
Sovétrikjunum, og sigraði 3:0.
Krankl lét ekki sitt eftir liggja i
þeim leik og skoraði tvö mark-
anna.
Ensku bikarmeistararnir Ips-
wich léku gegn AZ ’67 frá Hol-
landi og lauk þeirri viðureign án
þess að mark væri skorað.
Johnny Giies, fyrrum leik-
maður Leeds geröi hinsvegar
mark I gærkvöldi. Lið hans
Shamrock Rovers, sem hann á
sjálfur i bókstaflegri merkingu,
sigraði A. Poelfrá Kýpur 2:0, og
sá „gamli” lét sig hafa það að
skora annað markið. Þess má
geta að Giles er eigandi, fram-
kvæmdastjóri, og þjálfari
félagsins, en okkur er ekki
kunnugt um, hvort hann er lika
„straffiskytta” og „center”.
Þrir leikmenn fengu að sjá
rauða spjald dómarans i leikj-
unum i gærkvöldi. Það voru þeir
John Roberts, sem leikur með
welska liðinu Wrexham,
Benficaleikmaðurinn Fernando
Chalna og Aberdeen-Ieik-
maðurinn Doug Rougvie.
klp/gk—
Þaö gekk jafnan mikiðá I vitateig Austur-Þjóöverja I leiknum I gærkvöldi, þegar einhver Valsmanna kom þangað I helmsókn.
Hér hefur Guömundur Þorbjörnsson komið þar að og Þjóöverjarnir setja upp „tveggja hæða” vörn til að verjast
ágengni hans. Visismynd Friðþjófur
„Engin spurning um að
þetta var vítaspyrna"
— sagði írski dómarinn, Patrick Mulhall, eftir leikinn ó milli Vals
og Magdeburg í Evrópukeppni bikarhafa í gœr
„Ég dæmdi hér á tslandi fyrir tveim
árum, ogþá landsleikinn á milli tslands
og Hollands,” sagði Patrick Mulhall
irski dómarinn sem dæmdi leik Vals og
Magdeburg á Laugardalsvellinum i
gær.
„Ég varð þá undrandi á getu islenskra
knattspyrnumanna, enda sluppu
Hollendingar rétt svo úr klóm þeirra
með jafntefli. Égátti þvi alveg eins von
á I þessum leik að þeir Islensku kæmu á
óvart og það geröu þeir svo sannarlega.
Það eru margir góöir einstaklingar I
Valsliðinu, en aftur á mcíti er liö Magde-
burgar meiri heild og var að minu viti
sterkari aöilinn i leiknum. Þeir geröu
aftur á móti þau mistök að minnka
hraðann hjá sér og náðu honum aldrei
upp aftur eftir það.
Valsliðiðlékmjög vel — já.raunar frá-
bærlega, þegar aöþvi ergætt að þetta er
áhugamannaliö og andstæðingarnir eru
atvinnumenn frá einni mestu iþrótta-
þjóð heims. Þið getið verið mjög stoltir
af þessum árangri og Valsliðinu.
...— Ilvaðum vítaspyrnuna á Magde-
burg? Mörgum fannst hún vera strang-
ur dómur .
„Það má vera að sumum hafi fundist
þaðsem vorufyrir utan völlinn.en i min-
um huga var engin spurning um hvað
átti að dæma þarna. Þetta var atvinnu-
mannabrot — hrinding á bakið þegar
sóknarmaður ætlaði að skalla knöttinn.
Þetta var brot innan vitateigs og á það
bar mér að dæma vitaspyrnu.”
—klp—
í þetta sinn verða bikarmeistarar Magdeburg að
sœtta sig við jafntefii gegn Val í Evrópukeppni
,,Þetta var ekkert
nema víti.Ég ætlaði að
fara að skalla boltann,
og varnarmaður hrinti
mér áfram þegar hann
sá engin önnur ráð”,
sagði Atli Eðvaldsson
eftir leik Vals og Magde-
burg i Evrópukeppni
b ik arm eista ra á
Laugardalsvelli i gær.
tJrslitin urðu 1:1, en
mörgum fannst vita-
spyrnan, sem Valur
jafnaði úr, vera vafa-
söm. Ekki voru þó allir á
sama máli, og einn
þeirra, sem var ekki í
vafa um réttmæti henn-
ar, var Atli sjálfur.
Það var afrek hjá
Valsmönnum að ná jafn-
tefli gegn Magdeburg,
þvi að a-þýska liðið er
skipað eintómum at-
vinnumönnum, leik-
mönnum, sem hafa
unnið marga glæsta
sigra undanfarin ár.
Það skal að visu viður-
kennt að Madgeburg var
meira með boltann og
virkaði mjög sannfær-
andi líð úti á vellinum,
en engu að siður voru
Valsmenn næri þvi að
vinna, miðað við hættu-
legustu marktækifæri
leiksins.
Þaðallra besta, sem ekki tókst
að nýta, kom á 54. mlnútu. Ingi
Björn var þá skyndilega einn á
auðum sjó og geystist I átt aö
markinu. Það var enginn til varn-
ar nema markvörðurinn, en hann
geríi sér litið fyrir og varöi skot
Inga af stuttu færi. Þar fór upp-
lagt tækifæri forgöröum.
I fyrri hálfleik voru Magde-
burgarmenn mun aðgangsharð-
ari, og þeir Wolfgang Steinbach
og Joachim Streich fengu góð
tækifæri, en Sigurður Haraldsson
varði vel i bæði skiptin. Hann réð
hinsvegar ekki við skot Wolfgang
Steinbach á 53. minútu er hann
hafði leikið laglega I gegn um
vörn Vals ásamt Jörgen Spar-
wasser, og skot Steinbach var
fast og óverjandi.
Valsmenn gáfust hinsvegar
ekki upp, þrátt fyrir msu'kið og á
63. mi'nútu bjargaði Detlef
Raugust á linu skalla frá Atla Eö-
valdssyni og Dýri Guðmundsson
átti skalla rétt yfir markið.
En svo kom jöfnunarmark Vals
á 70. minútu, og aðdraganda þess
hefur þegar verið lýst hér. Það
virkaði hjákátlegt séð úr blaða-
mannastúkunni að dæma vita-
spyrnu, en bæði Atli og dómarinn
vorusannfærandi eftir leikinn, er
þeir útskýrðu mál sitt. Eina tæki-
færið sem kom eftir þetta var gott
þrumuskot Guðmundar Þor-
björnssonar af 35 metra færi, en
þvi miður rétt framhjá.
Valsmenn mega vel viö þessi
úrslit una. Þeir léku gegn mjög
þekktu og sterku liði, liði, sem
hefur unniö marga góða sigra á
undanförnum árum I Evrópu-
keppni. Jafntefli gegn sliku liði
eru góð úrslit fyrir islenska
áhugamenn, ekki sist meö tilliti
til þess, að með heppni hefði
sigurinn getað orðið Vals.
Bestu mennVals fleiknum voru
Guðmundur Þorbjörnsson, sem
kom mjög vel út, Albert Guð-
mundssonog Sævar Jónsson, sem
er að verða einn af okkar bestu
leikmönnum, i mikilli framför.
Mesta athygli i liði Magdeburg
vakti leikmaöur númer 8, Wolf-
gang Steinbach, en hann er mjög
góður leikmaður. Minnabarhins-
vegar á hinum þekkta Martin
Hoffman (númer 11).
A-þýsk knattspyrnulið hafa
ekki gert neina stóra hluti gegn
islenskum liðum undanfarin ár.
Fyrstvar það 1:1 jafntefli Iands-
liðsins gegn A-Þýskalandi 1974 I
Magdeburg, siðan 2:1 sigur Is-
lands á Laugardalsvelli árið eftir
og nú „aðeins” jafntefli Magde-
burg gegn áhugamönnum Vals.
gk--
Þetta óttum við skilið
— sögðu Valsmenn eftir leikinn gegn Magdeburg
„Þetta var langbesti leikur, sem Vals-
liðið hefur sýnt undir minni stjórn i
sumar, og ég er mjög ánægður meö
strákana. Þeir útfærðu vel það sem ég
Iagöi fyrir þá, og um meira getur einn
þjálfari ekki beðið”, sagði Nemes,
þjálfari Vals. eftir leikinn gegn
Magdeburg I gær.
„Otileikurinn? Já, hann verður
auðvitað mjög erfiðurfyrirokkur. En ég
sagði það fyrir þennan leik að allt gæti
gerst i knattspyrnu, og ég segi það
einnig fyir siðari leikinn”.
„Áttum bestu tækifærin”
„Við áttum að minnsta kosti skilið
jafntefli i leiknum þvi að við áttum ekki
siðri tækifæri en þeir”, sagði Hörður
Hilmarsson. „Að visu voru þeir meira
með boltann, en það er reyndar segin
saga, þegar við leikum gegn erlendum
liðum”.
Við áttum bestu færin.
„Þetta var skemmtilegur leikur og
við áttum fyllilega skilið að ná jafn-
teflinu. Það hefði ekki verið svo ósann-
gjarnt að við hefðum sigrað, þvi að
hættulegustu tækifæri leiksins voru
okkar”, sagði Ingi Björn Albertsson,
fyrirliði Vals. eftir leikinn. Þaö var
einmitt hanasem fékk besta tækifærið ,
en það var markvörðurinn, sem
bjargaöi með
sagöi Ingi.
snilldarmarkvörslu.”
gk—•
Enn eitt átall
VÞjóðverja í knatt-
spyrnu í Laugardal!