Vísir - 22.09.1978, Síða 3

Vísir - 22.09.1978, Síða 3
vism Föstudagur 22. september 1978 3 Snœfellinu sökkt í gœrdag — var lengi stœrsta skipið í fiskveiðiflotanum Snæfell.sem lengi vel var stærsta skipið i fiskveiðif lota ís- lendinga liggur nú á hafsbotni á Grims- eyjarsundi. Þar var þvi sökkt i gærdag. Skipið var byggt árið 1943 og fór til sildveiða sama ár. Það er 165 tonn og hefur alla tiö verið i eigu Útgerðarfélags Kaupfélags Eyfiröin ga. „Skipið hefur legið i Akur- eyrarhöfn undanfarin ár, eöa frá þvi áriö 1975. Þaö sökk hér i höfnina fyrir nokkrum dögum og þvi var ákveðiö að sökkva þvi”, sagði Baldvin Þorsteins- son hafnarstjóri á Akureyri, i samtali við Visi. Það var flóabáturinn Drangur sem dró skipið út úr höfninni og á þann staö sem þvi var sökkt. —KP. Snæfell hafði legið nokkur ár I Akureyrarhöfn, en sökk fyrir nokkrum dögum. — Vfsismynd Gsal Togveiði- bann í Djúpál Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út reglugerð um bann viö togveiöum i Djúpál. Samkvæmt reglugerð þessari eru veiðar með botn- og flotvörpu bannaðar á svæði sem markast af lfnum dregnum milli eftirgreindra punkta: 1. 66 gr. 42.5 N 24 gr. 23 V 2. 66 gr. 43.5 N 24.gr. 10 V 3. 66 gr. 39.5 N 24 gr. 03 V 4. 66 gr. 38.0 N 24 gr. 15 V Svæði þetta er hið sama og Haf- rannsóknastofnunin lokaði hmn 14. september s.l. i vikutima vegna þess að vart hafði orðið smáþorsks i afla skuttogara á þessu svæði. Athuganir sem hafa verið gerðar á svæðinu siðan, leiddu i ljós, aö hlutfall smá- þorsks á svæðinu er enn mjög hátt og er þvi gripið til þessa ráðs að loka svæðinu fyrir togveiðum um óákveðinn tima. Krabbameinsfélagið eflir starf sitt í skólum borgarinnar Á stjórnarfundi Krabba- meinsfélags Reykjavíkur var þvi fagnaö hve reyk- ingar hafa minnkaö meöal grunnskólanemenda í Reykjavík samkvæmt könnun borgarlæknis. Jafnframt var ákveðiö að efla enn reykingavarna- starf félagsins i skólum landsins. I þvi skyni hefur félagið ráöið nýjan starfsmann, Birgi Finn- bogasonkennara viö Lækjarskóla i Hafnarfirði og landskunnan iþróttamann. Mun hann ásamt Þorvarði örnólfssyni fram- kvæmdastjóra félagsins, fara i heimsóknir i skóla, bæöi á höfuð- borgarsvæöinu og úti um land. Haldið veröur áfram útgáfu blaðsins Takmark sem Krabba- meinsfélagið hefur gefið út um tveggja ára skeið og helgað er barátta æskufólks gegn reyking- um. I vetur verður blaðið sent öll- um nemendum i 5.-8. bekk grunn- skóla um land allt. BREYTINGAR Á REYKINGUM NEMENDA 10-16 ÁRA •OOCARlCKNiniNN I REVKJAVIK Hjólmar formaður IMCO- nefndar ófram Þessa viku er i aðalstöðvum Alþjóöasiglingamálastofn- unarinnar (IMCO) i London haldinn 21. fundur i nefnd IMCO um öryggi fiskiskipa. t upphafi fundarins var Hjálmar Báröarson, siglinga- málastjóri, einróma éndur- kjörinn formaður nefndarinn- ar til eins árs. Meginverkefni þessa fund- ar er að fjalla um ýmis atriði er varða framkvæmd alþjóða- samþykktarinnar um öryggi fiskiskipa, sem gerð var á al- þjóðaráðstefnu á Spáni vorið 1977, og semja alþjóðleg ákvæði um öryggi fiskiskipa minni en 24 metra aö lengd eða um þaö bil lOObrúttó rúm- lesta, en til þeirra nær al- þjóðasamþykktin frá 1977 ekki. Philip gisti Reykjahiíð Þegar Philip drottningar- maður gisti á Loftleiðahótel- inu fyrir skömmu sagði i myndatexta i Visi að þetta væri i fyrsta sinn sem prinsinn gisti á islensku hóteli. Hér var fulldjúpt tekið i ár- inni og hefur blaðinu veriö bent á, að Philip gisti i Hótel Reykjahlið i Mývatnssveit þegar hann kom hingað i opin- bera heimsókn fyrir allmörg- um árum. Frœðslu- og leiðbeiningarstöð Ráðgefandi þjónusta fyrir: Alkóhólista, aðstandendur alkóhólista og vinnuveitendur alkóhólista. .e*ÍíAlí SAMTOK AHUGAFOLKS ' r UM ÁFEIIGISVANOA MÁL /0 í > Fræöslu- og lciftbeiningarstöð ✓ 1 l.agmula 9. simi H2399. HEFUR ÞÚ SMAKKAÐ ÍSINN FRÁ RJÓMAÍSGERÐINNI?

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.