Vísir - 22.09.1978, Blaðsíða 10

Vísir - 22.09.1978, Blaðsíða 10
10 Föstudagur 22. september 1978 VISIH VÍSIR Utgefandi: Reykjaprenth/f Framkvæmdastjári: Daviö Guömundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm. úlafur Ragnarsson Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Umsjón meö helgarblaöi: Arni Þórarinsson. Blaöa- menn: Berglind Asgeirsdóttir, Edda Andrésdóttir, Elías Snæland Jónsson, Guðjón Arngrlmsson, Jón Einar Guðjónsson, Jónlna Mikaelsdótlir, Katrin Páls- dóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. Utlit og hönnun: Jón Öskar Hafsteinsson, Magnús Olafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: Slöumúla 8. Simar 86611 og 82260 Afgreiðsla: Stakkholti 2—4 simi 86611 Ritstjórn: Slðumúla 14 slmi 86611 7 Ifnur Askriftargjald er kr. 2000 á mánuöi innanlands. Verö I lausasölu kr. 100 eintakið. Prentun Blaöaprent h/f. Lausnarorðið Endurskoöun vísitölunnar er eitt af iausnarorðunum, sem stjórnmálamenn nota um þessar mundir. Alþýðu- f lokkurinn setti sem kunnugt er það skilyrði fyrir þátt- töku i rikisstjórninni, að bókað yrði á fyrstu fundum hennar að vísitalan skyldi endurskoðuð fyrir fyrsta desember. Þessi bókun uppfyllti kröf ur Alþýðuf lokksins um gjör- breytta ef nahagsstef nu. Þegar gerðar hafa verið bráða- birgðaráðstafanir til þess að halda atvinnufyrirtækjun- um gangandi í tvo mánuði er nauðsynlegt að hafa svör á reiðum höndum um hina endanlegu lausn. Og það reynd- ist vera einfalt mál. Lausnarorðið er endurskoðun vísi- tölunnar. Ríkisstjórnir finna oft og tíðum upp á svona hlutum. Fyrrverandi ríkisstjórn ætlaði að ieysa verðbólguvand- ann með skipunsérstakrar verðbólgunef ndar. I nefndina voru skipaðir fulltrúar samkvæmt tilnefningu stjórn- málaflokka og hagsmunasamtaka og að sjálfsögðu sat þjóðhagsstjóri í öndvegi. Gamla ríkisstjórnin gat aldrei tekið á verðbólguvanda- málinu af þvi að hún beið alltaf eftir lausnarorðinu frá verðbólgunefndinni. Þessi nefnd vann ágætt gagnasöfn- unarstarf en vann ekki meiri afrek. Og nú á aftur að skipa visitölunefnd til þess að leysa efnahagsvandann. Nef ndarskipanir af þessu tagi eru hrein markleysa og tímasóun fyrir þá sök fyrst og fremst, að þeim fylgir engin stefnumörkun af hálfu ríkisstjórnarinnar. í raun og veru eru ríkisstjórnir á hverjum tíma að fela ráðleysi sitt með slíkum nefndarskipunum til athugunar og end- urskoðunar á einu og öðru. Þær eru að skjóta sér undan þeirri ábyrgð að taka pólitíska afstöðu. Að hverju er stefnt með endurskoðun vísitölunnar? Hver veit það? Enginn. Talsmenn Alþýðusambandsins hafa lýst sig mjög f úsa til þátttöku í viðræðum um end- urskoðun vísitölunnar. En að sjálfsögðu ekki til þess að takmarka hana, heldur til þess að fá fleiri þætti inn í vísitöluna og breyta kerfinu þannig að það mæli verð- lagshækkanir inn í launaverðbætur örar en nú á sér stað. En hvaðsegja þá stjórnmálamennirnir, sem nota end- urskoðun vísitölunnar sem lausnarorð til gjörbreyttrar ef nahagsstef nu? Jú, nýja visitölukerf ið, sem endurskoð- unarnefndin skal finna, á að draga úr víxlhækkunum kaupgjalds og verðlags, auka kaupmátt í samræmi við þjóðarhag og fullnægja kröfum Alþýðusambandsins! Ríkisstjórnin skipar menn í þessa vísitöluendurskoð- unarnefnd eftir sömu formúlu og gamla stjórnin bjó til verðbólgunefndina. Það er ágætt að trúa á kraftaverk og þau geta að sjálfsögðu gerst, en með hliðsjón af fyrri reynslu verða varla bundnar miklar vonir við þessa nefnd. Og hæpið er að hún skili til ríkisstjórnarinnar þeirri gjörbreyttu efnahagsstefnu, sem beðið er eftir. Kjarni málsins er sá, að ríkisstjórnirnar sjálfar verða að taka ákvarðanir. Þessi ríkisstjórn er ekki verri en aðrar í þeim efnum. Og einmitt þess vegna eru engar gjörbreytingar í sjónmáli, þó að veifað sé slagorðum um endurskoðun vísitölurnar. Það er misskilningur að einhver allsherjarnefnd verkalýðsforstjóra og fyrirtækjaforstjóra leysi mál af þessu tagi fyrir rikisstjórnina. Verðbólgunefndin leysti engin vandamál fyrir gömlu stjórnina. Og endurskoðun visitölunnar í sams konar nef nd er engin lausn, viti ríkis- stjórnin ekki hvað hún vill. „Þoð var verra en glœpur, það voru mistök" Margir virðast ekki átta sig á þvl hvaða meginregla gildir i af- stöðu islenskra kommúnista og Evrópukommúnista til hernaðar- legra afskipta Sovétrikjanna af málefnum kommúnistarikja. Hún er I sjálfu sér afar einföld valdbeitingarregla. Kegluna má m.a. lesa úr svari, sem Einar Olgeirsson gaf Morgunblaðinu 21. ágúst 1968, vegna innrásarinnar I Tékkóslóvaklu. Blaðamaður spurði Einar, sem þá var staddur i Kúmenlu: „Teljiö þér þetta jafnast á við innrásina I Ungverjaland 1956?” Einar svaraöi: — Ungverjaland er allt annaö. Kommúnistaflokkurinn I Ung- verjalandi missti algjörlega stjórn á hreyfingunni. Þar kom fram gagnrýni i forustu kommúnistaflokksins, sem var að ýmsu leyti réttmæt, en kommúnistaflokkurinn þar I landi hafði engan kraft eða skilning til þess að geta tekið nýja og jákvæða forustu. í Tékkóslóvaklu hafði kommúnistaflokkurinn skilning á þvl sem gera þurftiog skapaði sér nýja stjórn sem var að byrja með nýja pólitik, sem var ákaflega þýðingarmikil fyrir alla sóslalista I V-Evrópu.” Hinn raunverulegi mæli- kvarði Enda þótt Einar Olgeirsson sé i orði kveðnu að bera saman pólitiskar kringumstæður tveggja innrása er augljóst hvað hann leggur áherslu á. Það sem innanlandskommúnistar ráða viö mega Sovétmenn ekki blanda sér i. Aðalatriðið og eini raunverulegi mælikvaröinn er að landið verði áfram kommúniskt, en minna máli skiptir þótt meiriháttar stefnu- breyting á einhverju sviði eigi sér stað. Með hliðsjón af þeim. vörnum og útskýringum, sem islenskir kommúnistar hafa ætiö haldið uppi vegna hern- aöarlegrar og pólitiskrar yfir- drottnunar Sovétrikja i Austur- Evrópu, meö það i huga að þeir gagnrýndu aldrei afnám lýö- ræðis og almennra mannrétt- inda verður einnig að draga þá ályktun að þeir telji þá skipan mála eðlilega úr þvi aö kommúnistar eru við völd. Þessi afstaða hefur ekki br^yst varðandi Tékkóslóvakiu, nema að þvi leyti, að nú er skuldinni i bili skellt á rússnesk-tékknesku hernámsstjórnina. 1 Kina og á Kúbu hafa lýðræði og mannrétt- indi einnig verið afnumin, en að dómi islenskra kommúnista, réttlætist það af markmiðum byltinganna og þeim æðri rétt- Neðanmáls ( Indriði G. Þorsteins son skrifar T 5 r ^ Vetnisframleiðsla gæti oröið til þess aö fullnægja þörfum okkar fyrir framleiðslu brennsluefnis á böa, og um leið markað leiðina fyrir orkugjafa framtiðarinnar. t skáldsögum sem skrifaðar voru snemma á öldinni, kom stundum fyrir að höfundurinn dró upp mynd af þeysandi Bedúinum, dökkskeggjuðum undir hvitum vefjarhöttum, þar sem þeir voru að gera stóra slóð i sandinn I elt- ingaleik við einhverjar Evrópu- hetjur, sem komnar voru I fram- andi land til að frelsa konur eða fara gáleysislega höndum um kvennabúrsmeyjar feitra sol- dána. Þegar Bedúlnarnir voru al- veg aö ná þessum hetjum og villutrúarmönnum bar þá kannski að svörtum dýjum, sem erfitt var að slarka yfir annað tveggja á hestum eða úlföldum. En eins og gengur i skáldsögum þurftu hetjurnar litt að hika við eyðimerkurkeldur. Þær riðu yfir og þustu af baki og kveiktu I keld- unni alveg eins og eldspýtur væru alltaf við höndina, og þekkingin á hinni svörtu og þykku og sand- bornu leðju hefði veriö drukkin meö móðurmjólkinni. Hraðfara Bedúinar hurfu með sama I svælu og reyk og eru úr sögunni. Spámenn eru á hver ju strái Fyrir utan nöfn eins og Gulbek- ian og Getty höfðu Evrópubúar ORKUGJAHF fyrstu fréttir af oliu úr bókum um fyrrgreint efni. Það var ekki fyrr en fór aö liða á öldina aö heimur- inn varö að ráði háöur hinum svörtu uppsprettum i kvennabúrs- löndum og þeirri oliu yfirleitt, sem fannst i jörð annars staðar á hnettinum. Nú er svo komið ör- stuttu siðar að byrjaö er að spyrja að þvi hvað við taki, þegar oliuna þrýtur og spámenn eru á hverju strái sem færa rök að þvi að ann- að hvort verði það rafmagn eða spiritus eða vetni eða kol. Aðeins eitt liggur ljóst fyrir og það er að einhverju verðum viö að brenna, enda hefur olian mótað svo lif fólks, að erfitt er að hugsa sér framhald menningarlifs án ein- hvers konar brennsluefnis. Spá- dómar um, að mannlifið hlaupi i strand vegna skorts á bensini eru alveg út i hött, og svona ámóta gáfulegir og sá verkfræðilegi út- reikningur sem gerður var á sið- asta tug nitjandu aldar þess efnis, að áriö 1922 myndi hrossataö ná upp á aðra hæð húsa i New York nema eitthvað það kæmi til sem leysti hestinn af hólmi. Oliudollarinn Allt frá timum krossfaranna hefur ekki annað eins sambýli átt sér stað við Arabalönd og nú á timum. Orötak eins og oliudollari er komið sem tökuorð i fjölmarg- ar þjóötungur, og samningamenn Araba um oliuverð vekja hvar- vegna athygli. Þeir gera eðlilega kröfu um hlutdeild i velfarnaði iðnaðarrikja áður en lönd þeirra verða þurrmjólkuð af oliu og völd þeirra fyrir bi. Þar af leiðir að Arabalönd eru nú meö meirihátt- ar pólitiskum óróasvæðum i heiminum, og hafi sá háttur verið haföur á áöur, að fara þangað með liö manns til að höggva og skjóta og berja til hlýðni, ganga fyrrverandi nýlenduþjóöir að samningaborðum með silki- hanska og vænta frestunnar á verðhækkunum á oliu. Stefnumótun Þótt islenskur ráðherra komi aldrei til með að ræða við ara- biskan starfsbróður um oliuprisa, skiptir orkukreppan okkur miklu máli, ekki siður en aðrar þjóðir. Oliukaupasamningar okkar fela i sér klásúlur um heimsmarkaös- verð og þar sem Arabar hafa tek- ið verðlagninguna i eigin hendur og hafa sjálfdæmi um hana, skiptir ekki svo litlu hvernig kaupin gerast i þessum efnum. Aftur á móti mun þessi valdaað- staða vara aðeins skamma stund, og veltur þá á miklu fyrir okkur hvaða stefna verður tekin i orku- málum, og einkum hvaða brennsluefni veröur tekið upp i staöinn fyrir bensin og brennslu- oliu. Heitavatns- notkunin Góðu heilli hefur alveg frá þvi á striösárunum siöustu verið unniö að þvi að nota jarðhita i stað brennsluoliu hér á landi, þótt eng- inn verulegur skriður hafi komið á þau mál, almennt séð, fyrr en á allra siðustu timum. Heitavatns- notkun okkar fer árvaxandi og sparar gifurlegt fjármagn þegar fram i sækir. En hin væntanlegu brennsluefni eru okkur enn jafn fjarri sem öðrum, þótt ekki sé óhugsandi að fyrir okkur kunni aö fara eins og hjarðmönnum eyðimerkurinnar, að hér kunni að finnast keldur sem skilja á milli bjargálna og auðsældar. Til allrar ham- ingju kom ekki olíu- hreinsunarstöð Oefað verður leitað eftir orku- gjafa, sem getur með sem minnstum tilkostnaði tekið við af bensini og brennsluoliu og er svo aö segja án mengunar. Eins og hér er háttað lætur nærri aö við eyðum um hundrað þúsund tonn- um af bensini á ári. Þessi hundr- að þúsund tonn munu kosta hátt i tuttugu milljaröa og má með sanni segja aö mikið er puðraö og svælt af ekki stærri þjóð. Til allr- ar hamingju varð ekkert úr þvi að hér yrði byggð oliuhreinsunarstöö á ynum tima, enda kæmi slik stöð

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.