Vísir - 22.09.1978, Blaðsíða 4

Vísir - 22.09.1978, Blaðsíða 4
f VISIR LISTASAFN ÍSLANDS: Selma Jónsdóttir ásamt Helga Þorvaröarsyni, sem hefur fært Listasafni tslands að gjöf 35 myndir eftir Snorra Arinbjarnar. Vísismynd GVA Sýnir málverk og teikningar í Eden Þorbjörg Sigrún Harðardóttir hefur opnað sýningu á málverk- um og teikningum i Eden i Hveragerði. Þar sýnir hún 17 verk. Þetta er önnur einkasýn- ing Þorbjargar, en hún sýndi á Mokka s.l. vetur. A sýningunni i Eden eru oliu- myndir og teikningar sem eru unnar á s.l. tveim árum. Þorbjörg hefur ferðast nokk- uð um ttaliu og kynnt sér mynd- list, einnig hefur hún hlotið nokkra leiðbeiningu hjá ýmsum listamönnum. Sýning Þorbjargar er opin , fram á sunnudag. Sýningar: Þorbjörg Sigrún Harðardóttir, sýnir i Eden um heigina. Visismynd ÞG. Leikhúsin um helgina: Yfirlitssýning á verk- um Snorra Arinbjarnar Yfirlitssýning á verkum Snorra Arinbjarnar verður opnuð i Lista- safni tslands á sunnudaginn kl. 13.30. A sýningunni eru 175 myndir. 1 tilefni af sýningunni lánaði Helgi Þorvarðarson mágur listamannsins 35 myndir á sýn- inguna sem sýndar verða i fremst^ sal safnsis. Helgi hefur nú tilkynnt Listasafni tslands að hann muni færa safninu aö gjöf þau verk Snorra sem hann hefur lánað safninu á þessa sýningu. —KP Panelofn í sérflokki hvaö GÆÐI — VERÐ OG ÚTLIT snertir SIMI 2-12-20 GAL-ofninn HITAGJOF: Samkvœmt íslenskum staðli IST 69. 1/150, en það er eina trygging húsbyggjenda fyrir því að UPPGEFIN AFKÖST ofna eftir töflum framleiðenda séu RÉTT. TRYGGING FYRIR LÆGSTA MÖGULEGA HITUNARKOSTNAÐI \ GAL PANEL-ofnar Aðrir PANEL-ofnar -Samsuda tf Samsuda ATH: GAL-panelofninn er eini panelofninn með heilli (ekki samsoðinni) efri brún. Þessi sérstaða GAL meðal annarra panelofna gerir hann ekki bara mun fallegri i útliti, heldur aukast gæðin að miklum mun, þar sem samsuðan verður helmingi minni en á öðrum panelofnum. HF OFNASMIÐJAN I I I I I I I I I I I I I 1 i I I I I I I I I I I I I I I I I I I Listasafn tslands: Yfirlitssýn- ing Snorra Arinbjarnarsonar. Kjarvalstaðir: örlygur Sigurðs- son sýnir. Galieri Suðurgata 7: Hlutkennd ljóðlist, Michael Gibbs. GalleriSúm: Hannes Lárusson, Arni Ingólfsson og tvar Valgarðsson sýna. Loftið: Grafik, Loftur Jóhanns- son. Þjóölcikhúsiö: Föstudagur kl. 20: Sonur skóar- ans og dóttir bakarans. Laugardagur kl. 20: Sonur skóarans og dóttir bakarans. Sunnudagur kl. 20: Káta ekkjan. Iðnó: Glerhúsið föstudag og iaugar- dag. Valmúinn springur út á nóttunni sunnudag klukkan 20.30. Blessað barnalán ki. 23.30 laugardag i Austurbæjarbíói. , Einþáttungar á Litla sviðinu Sýningar á einþáttungunum „Þeir riðu til sjávar” eftir J.M.Synge og „Vopn frú Carrar” eftir Bertholt Brecht eru hafnar aftur. Þættir þessir voru frum- sýndir I vor og voru þá 11 sýning- ar fyrir fullu húsi. Leikstjóri þátt- anna er Baldvin Halldórsson, en leikmynd eftir Gunnar Bjarna- son. Bjarni Steingrímsson handleikui vopn frú Carrar. Fyrri einþáttungurinn „Þeir riðu til sjávar” segir frá ekkju sem séð hefur á eftir sonum sin- um i hafið, hverjum á fætur öör- um og biður nú fregna af þeim eina sem eftir er. Það er Guðrún Þ. Stephensen, sem leikur ekkj- una, son hennar leikur Hákon Waage, en dæturnar leika Sunna Borg og Þórunn Magnúsdóttir. Siðari þátturinn, „Vopn frú Carter Carrar” eftir Bertholt Brecht. Hugmyndina að verkinu tekur Brecht einmitt úr þætti Synge, en umhverfi og útfærsla er með öðrum hætti. Leikritið gerist i borgarastyrjöldinni á Spáni, hér er það fiskimannsekkjan Teresa Carrar, sem hefur misst mann sinn i bardögum gegn Franco og mönnum hans, og reynir i lengstu lög að forða þvi að synir hennar taki þátt i striðinu”. Briet Héðinsdóttir leikur frú Carrar, bróður hennar leikur Bjarni Steingrimsson, við hlut- vérki sonarins hefur nú tekið Randver Þorláksson, sem kom- inn er aftur til starfa við Þjóðleik- húsið eftir framhaldsnám erlend- is. í öðrum hlutverkum eru Guðrun Gisladóttir, vÆvar R. Kvaran, Anna Guðmundsdóttir og fleiri. Einþáttungarnir verða sýndir á sunnudagskvöldið næst. —GA Viltu bauna- hnetubóðing í sunnudagsmatinn? Sunnudagurinn næstkomand er hátiðisdagur náttúruiækninga manna. Að venju verður hani haldinn að heilsuhælinu i Hvera ge rði. Hátiðin hefst meö hátiðarmal klukkan 13iborðsal hælisins og ei verðinu stillt i hóf. Siðan verðui sérstök hátiöardagskrá i sam komusalnum. A eftir gefst gest um kostur á aö skoða heilsuhælið Það er Náttúrulækningafélag Reykjavikur sem hefur veg og vanda af deginum og verður bif. reiö til taks aö Laugavegi 20. Matseðillinn i Heilsuhælint verður svona: Bauna-hnetubúöingur með ávöxt um og sveppásósu. Blómkálshlaup með remúlaöi. sósu.soðið rauökál, hvítkáls-epla salat, paprikusalat. Eplahringur með þeyttum rjóma, Hrátt grænmetisfat. Söl, laukar og bleyttar sveskjur og ábætir. —Gé

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.