Vísir - 22.09.1978, Síða 23
VISIR Föstudagur 22. september
1978
27
BENEDIKT
FARINN
VESTUR
Benedikt Gröndal, utanrikis-
ráðherra, hélt vestur um haf sið-
degis á þriðjudag til þess að
sækja 33. allsherjarþing Samein-
uðu þjóðanna, sem hófst nú i vik-
unni, og mun hann sitja þingið til
2. október n.k.
Ráðherra mun taka þátt i hinni
almennu umræðu þingsins og er
ráðgert að hann flytji ræðu sina
n.k. þriöjudag 26. þ.m.
t för með ráðherranum er
Höröur Helgason, skrifstofustjöri
utanrikisráöuneytisins.
„Allir ríkisstarfs-
menn fá kjarabœtur"
þótt sumir þurfl að endurgreiða hluta septemberlaunanna
,,AUir opinberir stárfemenn
fá kjarabætur með nvju
lögunum ”, segir i yfirlýsingu
frá Bandalagi starfsmanna
rikis og bæja.
Þar er gerð grein fyrir
áhrifum bráöabirgðalaganna á
lög opinberra starfsmanna
miðað við ágústlaun að við-
bættum 3% kauphækkuninni um
siðustu mánaöamót og verð-
bótaviðaukanum.
Þar kemureinnig fram að þar
sem greitt hafi veriö fyrirfram
til margra opinberra starfs-
manna fyrir septembermánuð
samkvæmt gömlu lögunum,
sem voru i gildi 1. september,
muni sumir þeirra þurfa að
greiða aftur einhverja upphæð
en aðrir fái viðbótargreislu.
„Starfsmenn i 10. launaflokki
og þar fyrir ofan eiga inni við
lokauppgjör kaup fyrir
september þvi að visitalan, sem
þeir fá greidda niður, er lægri
en kauphækkun þeirra reynist
miðað við nýju lögin. 1
neðstu launaflokkunum voru
hins vegar greiddar áður meö
verðbótaviðaukanum hærri
visitölubætur, eöa allt upp i 8%,
og getur þar þvi komið til
endurgreiðslu um næstu mán-
aðamót”, segir BSRB.
Eins og Vfsir hefur skýrt frá
áður er hér um misjafnlega
háar upphæðir að ræöa eftir
launaflokkum. 1 fimmta launa-
flokki mun endurgreiöslan t.d.
nema um 4.800 krónum, en i
þeim flokki eru 380 rikisstarfs-
menn. t flokkunum þar fyrir
neðan eru um 270 starfcmenn,
sem þurfa aö endurgreiöa
nokkru meira, en endurgreiðsla
i 6.-9. launaflokki er minni en
4.800 krónur. —ESJ.
; v:
wm
A,,
i
1
|
o
§
s
Visir boðar áskrifendum sínum enn
mikinn fögnuð sem er Útsýnarferð,
fyrirtvo, til Florida, í ferðagetrauninni góðu.
Hún verður dregin út 25. september.
Skotsilfur verður nóg þvi Visir er
öðlingur og borgar gjaldeyrinn líka.
Ströndin á MIAMIBEACH á enga
sína lika i heiminum, sólin
ómæld og sjórinn raunverulega
volgur. En Florida er meira en sól
og strönd þvi segja má að Florida-
skaginn sé samnefnari alls
þess makalausasta sem
ferðamaður getur vænst
að sjá á lifsleiðinni og
tækifæri til skoðunarferða
eru ótæmandi.
Það er að finna, til
að mynda, víðfrægasta
sædýrasafn veraldar,
MIAMI SÆDÝRASAFNIÐ^
LJÓNA SAFAFtl SVÆÐIÐ en þar eru
Ijón og önnur frumskógardýr i sinu
náttúrulega umhverfi.
Að ógleymdum mesta skemmtigarði
\ heims, DISNEY WORLD.
Skammt þaðan er
íj KENNEDYHÖFÐI,
y' stökkpallur mannsins
inn i geimöldina. Hótel,
matur og viðurgerningur
' allur er eins og hann þekkist
bestur.
Með áskrift að Visi átt þú möguleika á
stórkostlegri ævintýraferð i ábót á sjálfan
aðalávinninginn, Visi. SÍMINN er 86611.
Fcrðagetraun
V ÍOIÐ
Nýir áskrifendur geta líka verið með!
Dregið 25. september.
ileiöar
HITI
Stundum eru tslendingar
snöggir að taka við sér ekki
sist þeir sem dansa I gegnum
lifiö. „Saturday Night Fever”-
dansar fara nú eins og eldur I
sinu um heiminn og báliö
hefur borist hingaö upp á
noröurhjara.
Heiöar Astvaldsson dans-
kennari er búinn aö hleypa
laugardagshita i vetrardag-
skrána hjá sér og er ætlunin aö
hafa sérhóp fyrir hvern
aldursflokk þeirra sem vilja
læra þessi nýju spor allt niöur
aö tólf ára.
Má þvl búast viö mögnuöum
sveiflum á dansgólfum lands-
ins I vetur.
?????
Ef maður er fæddur I Tyrk-
landi elst upp á tslandi, flytur
til Bandarikjanna og deyr svo
I London hvaö er hann þá?
Dauöur.
VOPNAGNÝR
Það er oröiö vinsælt hobbl
hér á landi aö reyna aö kúga
stjórnvöld til hlýðni. Grunn-
, skólakennarar eiga nú I launa-
deilu viö sitt ráöuneyti og hafa
gripiö til þess bragös aö neita
aö taka kennaranema I
æfingakennslu.
Útvarpiö var með stutt viö-
tai viö talsmann grunnskóla-
kennara á mánudaginn og
spuröi hann hversvegna þeir
notuöu kennaranema sem
vopn i þessari baráttu.
Ekki vildi talsmaöurinn
fallast á aö kennaranemar
væru notaöir sem vopn. Hon-
um varð þó dálitill fótaskortur
á tungunni siöar I viötalinu.
Hann sagöi eitthvaö á þá leiö
að þeir heföu lagt áherslu á aö
styöja viö bakiö á Kennarahá-
skólanum enda menntun
kennaranema mikilvæg.
Þessvegna heföi þaö þótt
gott vopn aö fara þessa
leiðina.
•
Gottóðá
Þjóöviljinn er ákaflega
reiður viö alla þá sem ekki
vilja hllta þeim ráöstöfunum
sem nýja vinstri stjórnin réttir
aö þeim. Nýi viöskipta-
ráðherrann hefur gefiö yfir-
lýsingar um aö menn veröi aö
sjálfsögöu aö hlýöa lögum, og
Þjóðviljinn tekur vel undir þaö
og skammar alla sem hugsa
eitthvaö annaö.
Ef til ólöglegra aögeröa
kemur eru Þjóöviljinn og Al-
þýöubandalagiö I heild aö fá
uppskeruna af eigin útsæöi.
Allt sföasta kjörtimabil var
verkalýöshrey fingin hvött
ákaflega tii aö vera sem
óþörfust og ólöglegar verk-
fallsaögerðir voru þá sjálf-
sagöar og eölilcgar.
Þetta smitaöi auövitaö út
frá sér og nú þykir sjálfsagt aö©
fara I stræk ef mönnum mis-#
likar eitthvaö. Alþýöubanda-#
lagið vakti þarna upp ófreskju®
sem getur orðiö þvi sjá Ifu-
erfiö.
—ÓTÍ:'