Vísir - 23.09.1978, Side 16

Vísir - 23.09.1978, Side 16
16 Sparisvæöi 1 ferðinni með okkur voru menn aö sunnan, gestir Ola, komnir á Jökuldal til að kaupa kjöt. Þeir hafa i mörg ár komiö til að fá sér i soöiö hjá Ola. Eru þeir ekki einir um það þvi Óli upplýsti aö varla væri hægt að sinna eftirspurn eftir hrein- dýrakjöti. Daginn eftir var t.d. von á mönnum aö noröan i þeim erindagjörðum. Á leið okkar til byggða fræddi Óli mig á þvi aö þetta landsvæöi sem við heföum veitt á væri land i eigu Brúar og væri eigin- lega sparisvæöi. Þar væru dýr vænni en annars staöar á heiðunum og svo hitt að auðvelt væri að feröast á bilum og ná dýrunum þegar þau finnast. Það getur hinsvegar veriö erfið- leikum bundið. Þau renna t.d. saman við landslagið og veður- far getur einnig gert mönnum erfitt fyrir. Þegar tölur um hreindýra- veiðar á liðnum árum eru skoö- aðar kemur lika i ljós aö ekki hefur verið veitt upp i þá tölu sem Menntamálaráðuneytið hefur heimilað. Ariö 1975 var t.d. veitt leyfi til að veiða 11 hundruð dýr, en aðeins 725 voru veidd. Arið eftir mátti veiða 1200 en þúsund voru skotin. 1977 voru aftur veidd um þúsund dýr, en þá mátti veiða 1550. 1 ár hefur svo verið veitt leyfi til aö veiða 1025 dýr, af stofni sem samkvæmt talningu i júli i ár telur ekki nema um 3 þúsund dýr. Finnst sumum er til þekkja það vera i mesta lagi, svo ekki sé meira sagt. En eins og áöur sagði geta verið ýmsar ástæður fyrir þessu, eins og veður. „Sem dæmi má nefna”, sagði Óli, að þetta er sjöunda ferðin min i haust og i tvö skiptin sá ég ekki dýr”. Óli stendur yfir föllnum tarfi og heldur á lungunum úr dýrinu. Glöggt má sjá hvernig skotið hefur drepið dýriö< m Lyktað inn I kviðarhol tarfs. A fengitimanum kemur megn lykt af törfunum, og þeir jafnvel ekki taldir góðir til átu. Undrun sælti að flugvél frá Egilstööum flaug yfir svæði hreindýr- anna. Var sagt aö þar væru komnir leitarmenn, en frekar illa hefur gengið að finna dýrin í haust. Hjátrú Þetta er heilmikið ferðalag þarna innúr á hreindýraslóðir, milli fimmtiu og sextiu kiló- metrar hvor leið. Strax að lokinni ferðinni var farið i fjár- hús á Merki og dýrin hengd upp og flegin. Siöan var farið inn og snædd hreindýralifur frá deginum og glænýjar kartöflur með sultu i bland. Þá var komiö fram yfir miönætti. Töluverö hjátrú er meðal veiðimanna. Til dæmis má nefna að alls ekki er við hæfi að brýna hnifa á leið á veiðar. Óli sagöi að ef menn tækju uppá þvi að brýna hnifa sina áöur en dýr væru veidd, þá gæfist hann alveg upp við veiðar þann daginn, og færi heim. Einnig þykir hið mesta flan að fara með jeppakerru með sér á fjöllin. Að loknum veiðidegi. Farmi hlaöið á bilinn Horn tarfanna eru hin myndalegustu. Á haustin eða um fengitfmann fella dýrin hornin og þau eru ekki fullvaxin fyrr en næsta vor. 0ÍIASAU vtsir Ekkert innigjald Þvottaaðastaða ÁRTÚNSHÖFÐA - SÍMI 81666 EKKERT INNIGJALD ÞVOTTAAÐSTAÐA Honda Civic 1977 Galant GL 1977 Fiat 131 sp 1977 Oldsmobile 1977 Lancer 1977 Toyota 1976 Mazda 121 1977 Datsun 1977 Volvo 1972, 1974, 1975 Skoda Pardus 1977 VW 1200 1976 Concours 1977 Benz 280 S 1970 Peugeot 7 m 504 station 1977 Bílakráin er opin á venjulegum verslunartíma frá kl. 9.00 —19.00 Þar fást smáréttir ýmiskonar, pylsur, kaffi og kökur, sælgæti, öl og tóbak. mmMMw HYRJARHÖFÐA 2 í húsi Bílasölu Alla Rúts) ÞAÐ GERIR ÞÚ EF ÞÚ REYKIR. í TÓBAKSREYK ERU FJÖLMÖRG ÚRGANGS- OG EITUREFNI, SEM SETJAST í LUNGUN OG VALDA HE SAMSTARFSNEFND UM REYKINGAVARNIR

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.