Vísir - 23.09.1978, Page 17

Vísir - 23.09.1978, Page 17
BÍLAVARAHLUTIR BILAPARTASALAN Hofdítum 10, simi 1 1397. -Opið fr<i kl 9 6.30, lauqardaqa kl. 9 3 oq sunnudaqa kl 1 3 VISIR Laugardagur 23. september 1978 Saga hreindýra hér á landi er ekki ýkja gömul. Hreindýr voru flutt hingað til lands á siðasta fjórðungi 18. aldar og virðist sem allmikið hafi áður veriðum þaðmálrætt mikinn hluta aldarinnar. I tslandslýsingu sinni segir Þorvaldur Thoroddsen frá á þessa leið: Um miðja öldina kom það fyrst til tals að senda hreina til ts- lands: Höfðu fimm sýslumenn stungið uppá þvi við stjórnina, að hreindýr væru flutt inn til reynslu, og töldu þeir að það mundi verða til mikilla nota fyrir ibúana ef tilraunin tækist. Með stjórnarbréfi 19. janúar 1751 var samþykkt að kaupa sex hreindýr i Noregi, 2 tarfa og 4 kvigur og senda til Islands, en þetta mun af einhverjum ástæðum hafa fariö fyrir. Áriö 1771 lét Thodal amt- maður flytja 13 hreindýr frá Finnmörku . Þau sýktust á leið- inni og 10 dóu, en 3 komust heilu og höldnu á land i Rangárvalla- sýslu, þrifust vel og timguöust og voru fimm árum siðar orðin 11 aö tölu. Menn óskuðu þá að fleiri væru send, og sneri stjórnin sér þá til Fjeldsteds amtmanns i Finnmörku og baö hann að láta kaupa 25 hreina, þar af 18 kvigur ogláta senda til íslands. Þessi til- skipan komst þannig til fram- kvæmda að 30 hreindýr voru send, 6 tarfar og 24 kvigur. Hafði norskur kaupmaður, Buch i Hammerfest gefið dýrin öll. 23 af hreindýrum þessum komust lif- andi til Hafnarfjarðar og var hleypt á land við Hvaleyri, tóku þegar á rás og runnu til fjalla milli Krýsuvikur og Selvogs og fjölgaði þar mikið á næstu árum, svo að oft sáust af þeim stórir flokkar.” Þannig segir Þorvaldur frá. Nokkru siðar voru enn flutt inn hreindýr og þeim sleppt i Múla- sýslum, en annars eru allar heim- ildir um innflutning hreindýranna nokkuð óljósar. I bókinni ,,Á hreindýraslóðum” segir Helgi Valtýsson svo frá: „Brátt kom i ljós að lifsskilyrði hreindýra reyndust frábærlega góö hér á landi. Fjölgaði dýrun- um svo ört sem framast má verða, og virðast engin afföll hafa orðið á hjörðinni hina fyrstu áratugi, enda eru hér á landi eng- in þau rándýr né skordýr, sem svo miklu tjóni valda á hreina- hjörðum á Norðurlöndum, i Al- aska og viðar. Dýrin þrjú sem sett voru á land i Rangárvalla- sýslu voru orðin ellefu að fimm árum liönum og getur það staðist, en siðan hurfu þau og hafa vafa- laust verið drepin. Arið 1790 var skýrt frá að dýr þau sem sleppt hafði verið á Vaðlaheiði 1783, væru þegar orðin á að giska 3-400, og mun það nærri sanni, miðað við upprunalegan fjölda, affalla- laust. Leyfði stjórnin þá að skjóta mætti 20 hreindýr á ári i Eyja- fjarðarsýslu i þrjú ár, en þó mátti engin einstakur maður skjóta eða veiða meira en eitt dýr á ári, i októbermánuði, og aðeins karl- dýr.” Þannig segist Helga Valtýs- syni. Dýrunum hélt áfram að fjölga, en jafnframt fóru að heyr- ast kveinstafir frá bændum um að þau færu illa með bithaga. Er þá smámsaman slakað á ákvæðum um veiði dýranna og loks áriö 1849 er hún gefin alveg frjáls. Fækkaði dýrunum eftir það, svo mjög að tæpri öld seinna, 1939, leiddi könnun i ljós að hreindýr á Islandi voru ekki nema um eitt hundrað talsins. Aður höfðu þó verið sett upp strangari veiði- heimildir, og dýrin jafnvel lýst friðhelg i stutta tima i senn. Eftir 1940 hefur siðan verið haft eftirlit með dýrunum og þeim fjölgað. Þau hafa þó ekki sést annarsstaðar en á Austurlandi siðan um eða uppúr 1930. —GA MAZDA enda Bílaborg hf býður þjónustu þelm, sem hyggjast selja notaðar Mazda bifreiðar. LAGFÆRÍNGAR — ÁBYRGÐ Allar notaðar Mazda bifreiðar, sem teknar eru til sölu í sýningarsal okkar, eru yfirfarnar gaumgæfilega á verkstæði okkar, og eru lag- færingar gerðar, ef þurfa þykir. Ábyrgðarskír- teini sem staðfestir það að bifreiðin sé í full- komnu lagi, er síðan gefið út gegn vægu gjaldi. TRYGGING Seljandi veit, að bifreið hans er í góðu ástandi, þegar hún er seld. Bilaborg hf veitir kaupanda 3—6 mánaða ábyrgð og setjandi er tryggður fyrir hugsanlegum bótakröfum, ef leyndir gallar, sem honum var ekki kunnugt um finnast í bifreiðinni. MAZDA EIGENDUR! Ef þið eruð í söluhugleiðingum, þá komið með bílinn til okkar. Enginn býður Mazda þjónustu og öryggi nema við. SMIDSHÖFDA 23 símar. 812 64 og 81299 Auglýsið í Vísi ^— Komduþámeð hann til okkar inn á gólf. — Það kostar þigekki neittað hafa hann, þarsem hann selst. — Tounus 17m '67 VW 1300 71 Cortina '68 Escort '68 Land-Rover Willys V-8 0G HANN SELST Þvítil okkar liggur straumur kaupenáa Opið kl. 9-7, einnigá laugardögum * Sýningahöllinni við Bíidshöfða. Símar 81199 og 81410

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.