Vísir - 13.10.1978, Side 6
c
I
VISIR
Umsjón Guðmundur Pétursson
3
Einhugur með
íhaklsmönnum
Það var sumardvalarbærinn
Blackpool I Englandi, sem i siö-
ustu viku dró aö sér allra
athygii, meöan flokksþing
Verkamannaflokksins stóö yfir.
— Þessa vikuna veröur þaö
feröamannabærinn Brighton,
sem hýsir ársþing íhaldsflokks-
ins og baöar sig i sviösljósinu á
meöan.
Fyrir þingiö hefur heyrst á
breskum Ihaldsmönnum, aö
þeir ætla ekki aö láta þaö sama
henda sig og skeöi á ársþingi
Verkamannaflokksins. Þaö,
sem eftir stóö er þingi Verka-
mannaflokksins lauk, var djúp-
ur klofningur vinstri arms
flokksins og forystumanna hans
i rikisstjórninni.
Ihaldsmenn hafa fullan hug á
aö notfæra sér þann veikleika
höfuöandstæöingsins og ráönir I
aö leggja honum ekki neitt slikt
vopn i hendurnar. Margrét
Thatcher, formaöur thalds-
flokksins, hefur þegar látiö eftir
sér hafa, aö launamálastefna
ríkisstjórnarinnar sé brostin,
svo aö heyra má, aö þegar er
byrjaö aö hamra járniö.
Nei, á ihaldsmönnum er ekki
annaö aö heyra en þeir ætli sér
aö láta þetta þing spegla sam-
stööu sina og einhug. Enda hef-
ur þaö lengst af einkennt Ihalds-
flokkinn, aö hann stendur fast
aö baki formanni sinum, meöan
hann fylgir honum, þótt flokkur-
inn tvinóni hinsvegar ekkert viö
aö sparka honum og velja
nýjan, ef leiötoginn þykir ekki
halda nógu vel um stjórnvölinn.
Þaö er þvi ekki stórtiöinda aö
vænta af ársþinginu i Brighton.
Afgreiösla ályktana fer þar aö
venju fram meö handaupprétt-
ingum, og venjulegast slikur af-
gerandi meirihluti meö óskum
og vilja forystunnar, aö ekki er
annars þörf.
Þessi ásetningur um aö sýna
einhug er þó nákvæmlega eins
og hann hljómar: Fyrst og
fremst ásetningur. Einingin er
kannski meiri á yfirboröinu og
mun ef til vill dylja þaö aö undir
niöri er nokkur órói. Þótt ekki
séu beinlinis flokkadrættir meö
þeim Margréti Thatcher og
Edward Heath, þá er ljóst, aö
þau eru ekki frekar sammála nú
um stefnu stjórnarand-
stööuflokksins en þau hafa ver-
iö.
Aö venju Ihaldsmanna hefur
Heath þó sýnt formanninum,
Margréti, tryggö og gætt sin i
opinberum yfirlýsingum. Hefur
hann ýmist varast aö láta frá
sér heyra, eöa gætt hófs I and-
stööu sinni viö stefnu formanns-
Margrét Thatcher, formaöur
ihaldsflokksins.
ins. Þó hefur annaö veifiö komiö
upp á yfirboröiö, hvilikt bil er
milli þeirra. Menn minnast enn
frá þvi fyrr á árinu, aö hann
varaöi viö þvi, aö aliö yröi á
kynþáttahatri i landinu, eins og
honum fundust yfirlýsingar
formannsins þó liklegar til
þegar hún kraföist takmörkun-
ar á innflutningi litaös fólks. Og
nú siöast hefur Heath aftur lent
á öndveröum meiöi viö
Margréti Thatcher út af stefn-
unni I launamálum.
Margrét hefur siöustu daga
eftir niöurstööur ársþings
Verkamannaflokksins haldiö á
loft þeirri stefnu, aö rikis-
stjórnin eigi sem minnst af-
skipti aö hafa af samningamál-
um hins frjálsa vinnumarkaöar.
Hinsvegar vill hún setja tak-
markanir á launhækkanir til
l
FYRR MÁ NÚ PLATA
EN HLJÓMPLATA
Pjetur & Úlfarnir
„PLATAÐIR”
Stjánl saxófóninn þenur sig um
landið. Þessi þrumugóða plata
var að koma út, og er rifin út.
Láttu plata þig með ánœgju.
Fœst vonandi enn í nœstu
plötubúð.
Pöntunarsímar 92-8389 og 92-8255
handa opinberum starfsmönn-
um. — Heath hefur lýst sig and-
vigan slikri mismunun, sem
hann telur mjög ósanngjarna
fyrir opinbera starfsmenn.
Þar fyrir utan hefur Heath
gefiö óbeinlinis i skyn, aö hann
telji þá stefnu sem Margrét
Thatcher og riddarasveinn
hennar, Keith Joseph, hafa boö-
aö I efnahagsmálunum ófæra. —
Innan flokksins hafa svo heyrst
fleiri raddir, jafnvel úr rööum
fylgismanna Thatchers, sem
telja stefnu flokksins I efna-
hagsmálum hæpna.
Á flokksþinginu i Brighton
veröur þaö þvi höfuöverkefniö
aö leggja skýrar linur um, hvaö
Ihaldsflokkurinn hyggst fyrir i
efnahagsmálunum, ef hann
kemst til valda. Riöur mest á
þeirri niöurstööu, ef flokkurinn
ætlar aö færa sér ósigur James
Callaghans og stjórnar hans i
sem mestnyt. Annars á flokkur-
inn visa gagnrýni fyrir aö hafa
ekki upp á neitt aö bjóöa I staö-
inn fyrir stefnu Verkamanna-
flokksins og rikisstjórnar hans.
Þetta verkefni veröur þó engan
veginn auöleyst, þvi aö I augum
margra ihaldsmanna er stefna
Callaghans i launamálum
einmitt á þeirri linu, sem þeim
finnst aö íhaldsstjórn hljóti aö
fylgja.
Þótt efnahagsmálin muni
þannig sitja i fyrirrúmi á
ársþinginu, eru ýmis önnur mál,
sem svifa i loftinu og vænta má
ákafar umræöu um. Þar má
fyrst telja væntanlegar um-
ræöur um eflingu löggæslunnar
vegna aukningar afbrota. Af
þeim 190 tillögum, sem hinar
ýmsu flokksdeildir sendu inn
fyrir þingbyrjunina, fjallaöi um
þaö bil þriöjungurinn um mál af
þvi tagi. Og rúmlega þriöjungur
lagöi til, aö dauöarefsingin yröi
tekin upp aftur i einhverri
mynd. — Heath og hans fylgi-
nautar hafa sett sig eindregiö
upp á móti endurvakningu
dauöarefsingarinnar, en
Margrét hefur veriö loðin í
sinni afstööu.
Annaö mál, sem liklegt þykir
til þess aö vekja fjörugar um-
ræöur, varöar takmarkanir á
innflutningi litaös fólks til
Bretlandseyja. Eins og áöur
sagöi, var þaö formaöurinn
sjálfur, sem fyrst vakti máls
á þeirri hugmynd. Virtist þaö I
fyrstu falla i góöan jaröveg hjá
kjósendum, og sætti Heath á
sinum tima gagnrýni fyrir aö
setja sig upp á móti Margréti I
máli, sem virtist ætla aö veröa
til fylgisauka fyrir flokkinn. Siö-
an hefur vindáttin snúist, og
Margrét hefur séö sig tilknúöa
til þess aö draga ögn i land frá
sinni fyrri afstööu. Hægri armur
flokksins er þó enn ákaft fylgj-
andi slikri takmörkun og má bú-
ast viö þvi, aö fram komi krafa
um aö tekiö veröi alveg fyrir
slikan fólksinnflutning.
Þvi er oft vikiö aö Heath,fyrri
formanni Ihaldsflokksins,i um-
ræðu fyrir flokksþingiö, aö þaö
er vitaö, aö honum sviöur enn
ósigurinn I formannskjörinu,
þegar Margrét var kjörin. Hann
hefur þó reynt aö sitja á sér, og
af grein sem birtist i Daily Mail
núna I vikunni er ljóst, aö hann
ætlar ekki að láta skerast I odda
heldur gera sitt til þess aö
árþingiö geti fariö fram I sátt og
samlyndi. Greinin ber fyrir-
sögnina: „Af hverju Ihalds-
flokkurinn mun sýna samstööu
okkar allra vegna”. — Þar læt-
ur hann samt ekki hjá liöa aö
gefa Margréti Thatcher ýmis
hollráö. Meöal annars varar
hann flokksbræöur sina viö þvi
aö eyöa timanum I aö fagna
vandræöum Verkamanna-
flokksins.
Tilkynning fró
Sjúkrasamlagi Reykjavíkur
Ófeigur ófeigsson læknir hættir störfum
sem heimilislæknir frá og með 1. janúar
1979.
Þeir samlagsmenn sem hafa haft hann
sem heimilislækni vinsamlegast snúi sér
til afgreiðslu samlagsins Tryggvagötu 28,
og velji sér nýjan lækni. Ath.: Hafið
skirteinin með.
Lœknaskipti
Þeir Samlagsmenn Sjúkrasamlags
Reykjavikur, sem óska að skipta um
heimilislækni frá næstu árámótum gefi sig
fram við afgreiðslu samlagsins Tryggva-
götu 28, fyrir 15. desember.
Skrá um þá heimilislækna, sem um er að
velja liggur frammi i afgreiðslunni. Vin-
samlegast hafið meðferðis samlagsskir-
teini er læknaval fer fram.
Sjúkrosomlag Reykjavíkur
Framkvœmdastjóri
Stór og öflug áhugamannasamtök óska
eftir að ráða framkvæmdastjóra sem
fyrst. Fjölbreytt og lifandi starf í boði.
Umsóknir er greini menntun og fyrri störf
sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 23. þessa
mánaðar merkt „Hæfur”. Farið verður
með umsóknir sem trúnaðarmál.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njólsgötu 49 - Simi 15105