Vísir - 13.10.1978, Síða 13
17
VISIR
Föstudagur 13. október 1978
)
gn Fram i úrslitaleiknum I Reykjavikur-
eldiinunni á morgun, en þá ieika þeir gegn
ar.
körfuknattleik:
hörku-
kir
Isdeild
Reykjavikurmeistarar Vals og >ór frá
Akureyri, og verba Valsmenn aö teljast
sigurstranglegri i þeirri viöureign.
Þriöji leikurinn um helgina er leikur
KR og IS i Hagaskóla kl. 15 á sunnudag.
Leikir þessara liöa eru ávallt mjög jafn-
ir og spennandi — og fátt sem bendir til
þess að svo veröi ekki einnig nú. 1 leik
liðanna i nýafstööu Reykjavikurmöti
sigruöu stúdentar, en KR-ingar hafa
fullan hug á aö hefna fyrir það.
Semsagt þrir leikir i Úrvalsdeildinni I
körfuboltanum, og þar meö er „vertiö-
in” hafin fyrir alvöru. gk—.
„Chelsea er
fróbœrt lið"
Chelsea er meö frábært liö og
ensk knattspyrna er sú besta i
heiminum f dag”, sagöi hinn
frægi júgóslavneski þjálfari
Miljanicá fundi meö fréttamönn-
um i gær.
Þar var rætt um þaö hvort
Miljanie, sem var á sinum tima
þjálfari júgóslavneska landsliðs-
ins og siöan Real Madrid á Spáni,
myndi taka aö sér stjórnina hjá
Chelsea.
Miljanic hefur undanfarna
daga átt viðræður viö forráöa-
menn Chelsea, en enn er ekki vit-
aö hvort þær viöræður leiöa til
þess aö hann tekur starfið aö sér.
Chelsea hefur ekki gengiö vel
það sem af er keppninni i 1. deild-
inni ensku, og liöiö er r.ú niöri viö
botn deildarinnar. Þaö yröi þvi
mikill fengur fyrir félagiö aö fá
þennan frábæra þjálfara til sin.
ek--
ÍBV fœr ekki
Laugardalsvðll
Það hefur nú verið
ákveðið/ að ÍBV leiki fyrri
leik sinn við pólska liðið
Slask hér heima 21. októ-
ber en síðari leikur liðanna
mun síðan fara fram í Pól-
landi 2. nóvember.
Sem kunnugt er komust Vest-
mannaeyingarnir i 2. umferð
keppninnar eftir aö þeir gerðu
jafntefli 1:1 viö Glentoran i Bel-
fast, en fyrri leik liöanna lauk 0:0
og IBV þvi áfram á útimarkinu.
IBV hefur leitað fyrir sér meö
aö fá inni á Laugardalsvellinum
með heimaleik sinn, en Baldur
Jónsson vallarstjóri segir þaö af
og frá, að þar verði leikið á þess-
um árstima. Hinsvegar géti IBV
fengið Melavöllinn, hafi þeir
áhuga.
ÍBV mun þvi snúa sér til Kópa-
vogsbúa, og athuga hvort mögu-
leiki sé á þvi að leika þar.
Mót hjá GR
Siöasta golfmótiö hjá Golf-
klúbbi Reykjavikur fer fram á
morgun og er það siðasti hluti
hinnar miklu „Steriókeppni” sem
staðiö hefur yfir hjá GR I sumar.
Leiknar veröa 18 holur og mun
þetta vera siðasta golfkeppnin
sem fram fer hér á landi á þessu
ári. Verðlaunin veröa vegleg
bókaverölaun, Fornaldarsögur
Noröurlanda.
Um siöustu helgi lauk Firma-
keppni GR og sigraði fyrirtækið
Lárus Arnórsson en fyrir það
keppti Geir Svansson. Geir lék 18
holurnar á 73 höggum.
Allt í rúst
hjq Gonellq
— Þessi ítalski dómari, sem dœmdi
úrslitaleik Hollands og ftalíu ó HM í
knattspyrnu hefur orðið fyrir miklu
aðkasti vegna slakrar frammistöðu
— Munið þið eför Italanum
Sergio Gonella? Ef ekki þá var
það hann sem dæmdi úrsbtaleik
heimsmeistarakeppninnar i
knattspyrnu i sumar-leikinn á
milli Argentinu og Hollands.
Að áliti flestra var hann
dæmigeröur heimadómari i
þeim leik. Hann dæmdi öll vafa-
brot á Hollendinga og lét áhorf-
endur stjórna sér með hrópum
og köilum.
Það var að minnsta kosti álit
margra sérfræðinga, sem
skrifað hafa um keppnina en
fyrirfram var þaö mjög gagn-
rýnt — sérstaklega af
Hollendingum —að ttali dæmdi
þennan mikilvæga leik. Þeir
væru allt of áhrifagjarnir og til-
finninganæmir til að geta verið
hlutlausir þegar tugþúsundir
áhorfenda fylgdust með þeim.
Þessi gagnrýni og öll
óþægindin sem Conella hefur
orðiö fyrir síðan hann dæmdi
þennan eina leik, hafa orðið
þess valdandi að hann hefur
ákveðið að leggja flautuna inn I
skáp... Verst er að hann gerði
það ekki fyrr, sögðu hollensku
blöðin er þau fréttu það.
Conella sem erbankastjóri að
atvinnu, segir að banki hans
hafi meira að segja orðið fyrir
tilfinnanlegu tjóni vegna þessa
leiks. Hollensk fyrirtæki og
einstaklingar- og jafnvel ýmsir
landar hans — hafi hætt
viöskiptum við bankann eftir
leikinn.
Einkalif hans hafi ekki heldur
fengið að vera i friöi. Hann hafi
oröið fyrir aðkastifólks og hann
hafi neyðsttilaö taka simann úr
sambandi og loks hreinlega að
flytja úr sinu æskuheimUi til að
fá frið fyrir sig og fjölskylduna.
En það voru fleiri en hann
sem fengu að finna fyrir þvi
hvernig hann dæmdi leikinn.
Fyrstu vikurnar á eftir voru
ttalir iUa séðir i Hollandi.
Brotnar voru rúður i itölskum
fyrirtækjum þarog skemmdar-
verk unnin á bilum með Ítölsk-
um númerum. Eitthvað hafa
Hollendingar róast er á leið árið
en eitt er vist að sumir þeirra
munu aldrei gleyma Conella og
kenna honum einum um hvernig
fór i Argentínu.
...Þetta fæ ég ekki skUiö sagði
Conella i viðtali við hollenskt
blað á dögunum. Ég taldi mig
hafa góð tök á leiknum og að ég
væri hiiðhollur Argentinumönn-
um, hvarflaði aldrei að mér
meðan á honum stóö.
—klp—
HÓTEL' BORG
í fararbroddi í hálfa öld
DISKÓTEKIÐ DÍSA
LEIKUR í KVÖLD KL. 9-1
PLÖTUKYNNIR ER
ÓSKAR KARLSSON
r {
w*?
\ UML
-fÖlDto jÆíjjj)
Nú er rétti tíminn
aó endurryóverja
bílinn fyrir veturinn.
Verldýsing á endurryóvörn.
,r
3E
íiíiiii..
ÞVOTTUR:
Óhreinindi á undirvagni og annarsstaðar eru
þvegin burt með upplausnarefni og heitu vatni (sem
hefur þrýsting allt að 130 kg/cm2). Kemur það í veg
fyrir að óhreinindi geti leynst í undirvagni eða hjól-
hlífum.
ÞURRKUN:
Eftir nákvæman þvott, er bifreiðinni ekið í lyftu inn í
þurrkskáp og þurrkuö með 60—70° heitum loft-
blæstri. Þetta er eitt af þeim grundvallaratriðum,
sem nauðsynlegt er að framkvæma, til að ná sem
bestum árangri gegn ryði og tæringu, þ. e. að bif-
reiðin sé bæði hrein og þurr þegar 'ryðvarnarefni er
borið á.
BORUN:
Þegar bifreiðin er orðin þurr, er henni ekið úr
þurrkskápnum. Siðan eru boruö 8 mm göt til að
koma ryðvarnarefninu Tectyl í öll holrúm og á þá
staði, sem nauösynlegt reynist meO hliðsjón af þar
til gerðu plani, sem til er yfir flestar tegundir bif-
reiða. — Öllum slíkum götum, sem boruð hafa
verið, verður lokað eftir sprautun á snyrtilegan hátt
með sérstökum plasttöppum.
1. SPRAUTUN:
Fyrst er þunnu ryövarnarefni (Tectyl 153B) spraut-
að í öll samskeyti, brot og suður, en það hefur mjög
góða eiginleika til aö smjúga inn í staði þar sem
mest hætta er á ryöskemmdum. Þetta efni er einnig
sett inn í hurðir, lokuö rúm, vélarhús o.fl.
2. SPRAUTUN:
Eftir að sprautun 1 er lokið, er sprautað þykkara
ryðvarnarefni (Tectyl 125) á staöi, þar sem meira
mæðir á, svo sem allan undirvagn og bretti.
3. SPRAUTUN:
Að lokum er sprautað gúmmímassa innan í bretti og
á alla viðkvæma staði undir bílnum til frekari hlíföarr
ryðvarnarefn'nu og til einangrunar.
ÞURRKUN:
Aö sprautun lokinni heldur bifreiðin áfram á lyftunni
inn i þurrkskáp, en þar er ryðvarnarefnið á bif-
reiðinni þurrkað með heitum loftblæstri.
ÞVOTTUR:
Að lokum er bifreiðin þrifin að utan jafnt sem innan.
Fyrst er hún úðuð með hreinsiefni og siðan spraut-
uð með vatni. þannig að Tectyl og önnur óhreinindi
á lakki skolast burt. '
Rydvörn sem aöeins tekur um tvo daga.
Ryóvarnarskálinn
vió Sigtún . f |
sími 19400 - p°sthoif 220 leclijl