Vísir - 14.10.1978, Blaðsíða 3
Laugardagur 14. október 1978
3
Shellstöðinni
v/Miklubraut.
greiði
Félögin greiði 59%
og einstaklingar 41%
Rikisstjórnin hafði reiknað með
3.260 milljarði i tekjuaukningu
með þessum hætti en heildar-
álagningin mun verða 3.732
milljarðar. Einstaklingar sem fá
tekjuskattsauka og eru með yfir
3,7 milljónir i nettó tekjur, eru þvi
6741 talsins.
Eignaskattsaukinn er nánast
eins og spáð hafði verið, enda
auðveldast að reikna hann út.
Gert var ráð fyrir 1.38 milljarði
en álagningin verður 1,37.
Hátekjuskattur á.einstaklinga
sem eru ekki i rekstri var áætlað-
ur 380 milljónir en reyndist tæp-
lega 414 milljónir. Sérstakur
skattur á félög og einstaklinga
verður 1.9 milljarðar en hafði
verið reiknað með einum og hálf-
um milljarði.
Sundurliðuð verður álagningin
með þessum hætti:
Félög: Eignaskattur samkvæmt
8. grein, bráðabirgðalaganna,
922,8 milljónir Fjöldi aðila sem
greiðir hann, 3517.
Sérstakur skattur samkvæmt
10. grein á félög 1. milljarður,
273,6 milljónir. Greiðsluaðilar,
3361. Samtals nemur þessi eigna-
álagning á félögin 2 milljörðum
og 196,5 milljónum, sem er 59% af
heildarálagningunni.
Einstaklingar: Eignaskatts-
auki eftir 8. grein, 449 milljónir,
greiðsluaðilar, 13,647.
Sérstakur skattur samkvæmt
10. grein laganna, 672, 8 milljónir,
aðilar, 9757.
Sérstakur tekjuskattur
samkvæmt 9. grein, 413,8 millj.
aðilar, 6741. Samtals gerir þetta á
einstaklinga, 1. milljarð 535,8
milljónir, sem er um það bil 41%
af heildarálagningu.
„Við vitum ekki hvað þetta
leggst á marga einstaklinga”
sagði Ævar Isberg, vararikis-
skattstjóri i samtali við Visi. ,,Ég
hef ekki kannað hve margir fá
alla skattana og hverjir eru bara
með sérstaka skatta. Eigna-
skattsaukinn er hjá 13.647
einstaklingum, en við vitum
ekkert hverjir af þeim fengu 9.
eða 10. greinina. Menn geta verið
með hvern skatt útaf fyrir sig, svo
við vitum ekkert hvað þetta i
raun og veru leggst á marga
aðila þegar tillit er tekið til allra
skatttegundanna það er ekki hægt
að leggja saman til að fá út hve
margir einstaklingar þetta eru,
þvi þessir 13.647 hafa allir fengið
eignaskatt, en það er ekki þar
með sagt að þeir hafi fengið hina
skattana. Hvernig þetta skiptist
innbyrðis vitum við þvi ekki, svo
það gengur ekki að leggja þetta
saman” sagöi Ævar Isber.
—JM.
HEFUR ÞÚ SMAKKAD fSfNN FRÁ
RJÓMAÍSGERDINNI?
Vestur-þýsku ITT litsjónvarpstcekin eru vönduð
og vegleg eign. Þau eru gerð til að endast lengur
Veljið varanlegt.
ITT litsjónvarpstcekin sýna raunverulega liti,
hafa fallegt útlit og eru vestur-þýsk
tcekniframleiðsla sem vert er að veita athygli.
Forsenda góðrar þjónustu er tceknikunnátta sem
tceknimenn okkar scekja beint til framleiðanda.
Brceðraborgarstíg 1 Sími 20080
(Gengið inn frá Vesturgötu)
Komið og skoðið ITT Schaub-Lorens
litsjónvarpstcekin hjá Gelli, Brceðraborgarstíg 1.
Basar, Flóa og
kökumarkaður
Kvenfélagið Aldan heldur sinn
árlega basar i Slysavarnar-
félagshúsinu á Grandagaröi i
dag kl. 14.
Þær taka á móti munum á
Basarinn til ki. 13 i dag.
Stofnfundur JC
í Garðabœ
Fyrirhugaðer að stofna nýtt
Junior Chamber félag i
Garðabæ. Kynningar- og
stofnfundur verður haldinn i
Barnaskóla Garðabæjar i dag
14. október klukkan 14.
1 frétt frá undirbúnings-
nefnd segir að JC sé fjöl-
mennasta hreyfing ungra
manna i heiminum i dag.
Hreyfingin er .alþjóðleg og
starfa i um 85 löndum með yfír
hálfa milljón félagsmanna.
Hérlendis eru um 900 JC
félagar á aldrinum 18-40 ára i
23 félögum. -SG
Pottablóm og
Flóamarkaður
1 dag og á morgun heldur
f járöflunarnefnd Junior
Camber Vik flóa og potta-
blómamarkað, i Volvo salnum
að Suðurlandsbraut 16 kl. 2-5
báða dagana.
A boðstólnum verður mikiö
af eigulegum varningi t.d.
nýjum fatnaði og leikföngum,
og er ekkert dýrara en kr.
2.500-. Einnig mikið af potta-
blómum á mjög hagstæöu
verði.
„Þetta er líklega ivið meira en áætlað var, en
fer þó mjög nærri þeirri spá sem gerð var. Ég
hugsa að skekkjan sé innan við tiu prósent”
sagði Arni Kolbeinsson, fulltrúi i fjármála-
ráðuneytinu þegar Visir ræddi við hann um
viðbótarálagningu skatta sem nú liggur fyrir.
SKATTAÁLÖGUR RÍKISSTJÓRNARINNAR: