Vísir - 16.11.1978, Blaðsíða 10

Vísir - 16.11.1978, Blaðsíða 10
10 Fimmtudagur 16. nóvember 1978, vism VÍSIR Útgefandi: Reykjaprenth/f ' Framkvæmdastjóri: Davfð Guömundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm. ólafur Ragnarsson Ritstjórnarfulitrúar: Bragi Guðmundsson, Elfas Snæland Jónsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Umsjón með Helgarblaði: Arni Þórarinsson. Blaðamenn: Berglind Asgeirsdóttir,Edda Andrésdóttir, Gisli Baldur Garðarsson, Jónlna Michaelsdóttir, Jórunn Andreasdóttir, Katrín Páls- dóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Stefán Kristjáns- son, Sæmundur Guðvinsson. tþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. útlit og hönnun: Jón Öskar Hafsteinsson, Magnús Ölafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson. Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Augiýsingar og skrif stof ur: Sfðumúla 8. Slmar 84611 og 82760. Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 simi 86611. Ritstjórn: Siðumúla 14 simi 86611 7 linur Askriftargjald er kr. 2400.- á mánuöi innanlands. Verð I lausasölu kr. 120 kr. eintakið Prentun Blaðaprent h/f. Hín raunverulega ríkisstjórn Um þessar mundir fara fram mikil undirheimaátök í pólitíkinni. Augljóst er, að framtíð rikisstjórnarinnar ræðst í þessum mánuði. Á bak við tjöldin fást fulltrúar stjórnarflokkanna við tvö megin-viðfangsefni. í fyrsta lagi f járlögin og f öðru lagi takmörkun verðbóta á laun um næstu mánaðamót. Verulegur áhugi sýnist vera á því í stjórnarf lokkunum að halda stjórnarsamvinnunni áfram, þó að samstarfið séá margan hátt stirt. Uppgjöf nú kostar að öllum lík- indum kosningar, því að ólíklegt er að Sjálfstæðisflokk- urinn gengi inn í stjórn án þess að láta A-flokkana og Framsókn taka út dóm kjósenda, a.m.k. væri það ekki hyggilegt. Hnútukast Benedikts Gröndals á flokksþingi Alþýðu- flokksins í garð Lúðvíks Jósepssonar er miklu fremur leikur í þráskák en vísbending um áhuga á stjórnarslit- um. Yf irlýsingar talsmanna stjórnarf Ibkkanna af þessu tagi verður að skoða í Ijósi þeirra baktjaldasamninga, sem nú eiga sér stað. Varasamt er því að draga af þeim almennar ályktanir. En það eru tvö atriði, sem vert er að gefa gaum í því pólitíska ástandi sem nú ríkir. Þar er í fyrsta lagi á það að líta að það eru aðilar utan ríkisstjórnarinnar, sem í raun og veru halda henni saman. I öðru lagi koma nú upp á yfirborðið augljósari dæmi en oft áður um það, að stefnuyfirlýsingar stjórnmálaflokka eru hrein mark- leysa, þegar til kastanna kemur. Ýmsir halda, að í ríkisstjórninni sé málum ráðið til lykta og það fari eftir afstöðu ráðherranna, hvort stjórn- in nái samkomulagi. En svo er ekki, nema að takmörk- uðu leyti. Þetta á einkum við um vísitölumálið, sem er mála viðkvæmast fyrir stjórnina. I upphafi ætlaði stjórnin að færa ákvörðunarvald um það ef ni inn i svokallaða vísitölunef nd undir forsæti Jóns Sigurðssonar. En á þessu stigi virðist f lest benda til þess, að starf þeirrar nefndar endi á sama veg og verðbólgu- nefndar síðustu ríkisstjórnar: Forstöðumaður þjóðhags- stofnunar leggur fram álit, sem enga pólitíska þýðingu hefur. Þeir sem ráða ferðinni eru forystumenn verkalýðsfé- laganna innan A-f lokkanna. Það eru þeir sem gera sam- komulag sín á milli. Völdin eru þannig raunverulega í þeirra höndum, enda hafa ráðherrarnir ótrauðir getað sóttf undi erlendis að undanförnu, þó að lif stjórnarinnar hafi hangið á bláþræði. Þetta hefðu verkalýðsforingjar flokkanna ekki getað leyft sér. I því baktjaldamakki, sem staðið hefur yfir milli verkalýðsforingja A-flokkanna, hafa kosningafyrirheit- in frá því í vor sem leið orðið að víkja fyrir öðrum póli- tískum hagsmunum. Kosningabaráttunni gegn febrúar- lögunum hefur t.d. verið snúið upp í endurútgáfu þeirra. Það sýnir ábyrga afstöðu núna, en varpar Ijósi á loddarahátt fyrir kosningar. Fyrirheit um afnám tekjuskatts hefur verið efnt með því að hækka skatta með álagningu aftur í tímann. Bak- tjaldasamningar verkalýðsforingja A-flokkanna sýnast ekki munu leiða til afgerandi breytinga í því efni. Engin grundvallarbreyting verður gerð á vísitölukerfinu. Þar er aðeins um að ræða bráðabirgðaráðstöfun til þriggja mánaða. Aðalatriðið er að þessir stjórnunarhættir geta ekki leitt til markvissrar baráttu gegn efnahagsringulreiðinni. Kjarni málsins er sá, að mönnum utan ríkisstjórnarmn- ar hef ur verið fengið það verkefni að ná samstöðu milli stjórnarf lokkanna á þeim grundvelli að það eru meiri hagsmunir að halda stjórninni saman með einhverjum ráðum en fylgja fram raunhæfri stjórnarstefnu. Það er enn verið að taka gálgaf resti þrátt f yrir lof orð um f ram- búðaraðgerðir. RISAVELDIN UNDIRBÚA NÝJA HEIMSSTYRJÖLD gegn eritrelskum, sómölskum og eþiópiskum frelsishreyfingum. Sovétrikin studdu valdarániö i Afganistan á þessu ári og margir telja (þ.á.m. Þjóöviljinn) aö valdarániö hafi veriö framiö aö undirlagi þeirra. Angóla er her- setib af kilbönskum her, frelsis- hreyfingunum þar var sundraö meö beinni ihlutun Rússa. Af þessari lausleguupptalningu sést hvernig Sovétrikin hafa veriö aö færa sig smám saman upp á skaftiö i Asiu og Afriku. Og viti menn! Bandarisku heimsvalda- Heiður Baldursdóttir skrifar: Þessi grein var upphafiega ætluð tii birtingar sem dagskrárgrein i Þjóðviijanum, eins og sjá má af efni hennar og innihaldi. Þjóðviljinn þóttist hafa dregið þá lærdóma eftir kosningarnar nú í vor að blöðin þyrftu að vera opnari og birta aðrar skoðanir en skoðanir útgefenda blað- anna. Betrumbætur Þjóðviljans virðast þó ekki rista djúpt, a.m.k. ekki þegar um er að ræða gagnrýni á starfsaðferðir Alþýðubandalagsins innan hreyfingar herstöðvaandstæðinga. Grein þessari var hafnað og yfirvarp ritstjóra Þjóðviljans var að hér væri um að ræða áróður fyrir 1. des. hreyfingunni. Rétt er að greinin er að hluta til hvatning til fólks að starfa meö 1. des-hreyfingunni en meginþungi greinarinnar er hvatning til herstöðvaandstæðinga að hef ja viðreisn- arstarf innan Samtaka herstöðvaandstæðinga. Það eru kannski einhver nýmæli hjá Þjóðviljanum að leggjast gegn þvi að herstöðvaandstæðingar séu hvattir til starfs? Bandarikin og Sovétrikin undirbúa nýja heimsstyrjöld, styrjöld sem veröur vibtækari og mannskæöari en nokkru sinni i veraldarsögunni. Bæöi risaveldin vigbUast af kappi. Til aö fegra þaö i augum alheimsins reka þau „friöar- og slökunarstefnu” af kappi. Friöar- ráöstefnur eins og t.d. Helsinki-ráöstefnan gefa Ut fag- uroröabar yfirlýsingar. Reynt er aö halda þvi aö almenningi aö unniösé stööugt aö þvi aö tryggja friö. Minnir þetta Áki á „friðar- viöræöur” stórveldanna fyrir 1. og 2. heimsstyrjöldina? Ber þessi aukni friöarboöskapur heims- valdasinnanna vott um einhverja breytingu á heimsástandinu? Ef viö lítum aftur i tlmann um tvo áratugi sjáum viö aö ein meginbreyting hefur oröið á valdajafnvæginu I heiminum. Bandarlkineruaö missa óskoruö yfirráö sln yfir auðlindum heims- ins. 1 Afriku og Asiu eru Bandarikin smám saman aö missa ítökin. Sovétrlkin efla hinns vegar ltök sin i þessum heimshlutum. Sovétrikin náöu tökum á frelsishreyfingu Viet- nam og standanU á bak viö árásir Vietnama á Alþýöuveldiö Kamputséu. Afskipti Sovétmanna af Indlandi hafa aukist og á Indlandshafi, sem raunar er „friölýst” hafsvasöi, er fjöldi sovéskra herskipa I keppni viö þau bandarisku. Sovétrikin veita herforingjaklikunni i Eþiópiu vopn og hernaöarráðgjöf og kúbanska málaliöa I strlöi þeirra sinnarnir hafa skipt um ham I þeirri von aö þaö veröi árangurs- rikt viönám gegn rauðum fána Sovétrikjanna. Skyndilega er bandariska heimsvaldastefnan oröin boöberi „friöar” og „mannréttinda” i heiminum. Má þar t.d. nefna afskipti þeirra af suöurhluta Afriku og miö-austur- löndum. En eöli Bandarikjanna er hiö sama þrátt fyrir milt bros Carters. Bandarikin halda S-Ameriku I greipum sér, blóö- baðið I Chile er veröugur minnis- varði „friöarboöskapar” Bandarikjanna. En risaveldin kljást ekki aöeins i 3. heiminum. Noröurlöndin liggja á mörkum áhrifasvæöa risaveldanna. Noröurlöndin og þar meö Island munu þvi óhjákvæmilega dragast inn I átök þeirra. Finnland er á áhrifasvæöi Sovétrlkjanna. Sovétrikin reka grófa Ihlutunarstefnu I innan- rikismál Finnlands. Allur and- sovéskur áróöur er t.d. bannaöur þar. Fjölmennar hersveitir Sovétmanna eru viö landamæri Noregs og Svlþjóöar og á Sval- baröa hefur rUssneksi herinn sniögengiö lögsögu Noregs og komiö sér upp hernaöaraöstöðu I trássi viö alþjóöasáttmála. Tvisvar sinnum hefur sovéski hgrinn æft innrás i Noreg frá sjó, — aðeins 1 km frá landamærum Noregs, OKEAN ’70 og OKEAN ’75. A N-Atlantshafinu sveima rUssnesk herskip og kafbátar og oft á dag fljúga sovéskar njósna- flugvélar yfir Island. trtrýmingarstyrjöld eöur ei? lumræöum um styrjaldarhætt- una hefur oft heyrst sagt aö þaö þýöi ekkert aö berjast gegn strlöi — næsta heimsstyrjöld veröi hvort sem er Utrýmingarstyrjöld þar sem öllu llfi á jöröinni veröi eytt meö kjarnorku- og atóm- sprengjum. Þaö er næsta athygl- isvert aö þeir sem iönastir hafa verið viö aö útbreiöa þennan hræösluáróöur eru m.a. Islenskir „stí6ialistar”sem svohafa stund- um veriönefndir. Hverjum skyldi þaö þjóna, alþýöunni eöa heims- valdasinnum, aö magna upp ótta viö heimsstyrjöld? Augljóslega heimsvald asinnum. Annars er gjöreyöingarstrlö harla ólíklegt. Stórveldin hefja ekki styrjöld I þeim tilgangi aö útrýma fólki heldur til þess aö græöa, komastyfir nýjar lendur, atvinnutadci og markaði. Enda veröur aö gæta þess, aö höfuö- þungi hergagnaframleiðslunnar er á vopnum sem beitt er i „hefö- bundinni” uppskiptastyrjöld. Hlutverk islensks alþýöufólks er ekki aö skríöa I felur þegar styrj- öldin skellur á eöa grátbiöja risa- veldin um að láta landiö i friöi, þannig verður engum bjargaö. Styrjöld er framhald pólitikur. Meöan risaveldin undirbúa nýja uppskiptastyrjöld snúumst við gegn þeim meö haröri pólitlskri baráttu. Þegar styrjöldin hefst, hefst jafnframtnýtt stig I baráttu alþýðunnar. Staða tslands í Risa- veldaskákinni Þaö má segja þaö fyrir vist aö þaö er siöur en svo vonlaust aö berjast gegn risaveldunum og striösundirbúningi þeirra. Mark- miö stórveldanna er ekki aö eyða öllu lifi á Islandi meö nokkrum bombum. Markmiö þeirra er aö hersitja landiö og nota þaö sem herbækistöö. 1 dag er ísland her- setiö af NATO-her. NATO-sinnar segja aö bandariski herinn sé hér til aö verja okkur. En þorska- striöiö sannaöi fyrir mörgum aö svoer ekki. lsland liggur nokkurn veginn á mörkum þeirrar llnu sem risaveldin hafa dregið um þvera Evrópu til aö afmarka áhrifasvæöi sin. Sem stendur er- um viö NATO-megin en I heims- styrjöld eöa jafnvel fyrr gæti far- iö svo aö NATO telji hagsmunum sinum betur borgiö meö þvi aö sleppa íslandi I hendur Sovétrikj- anna. Sem dæmi má nefna aö upplýst hefur veriö aö varnarlína NATO i Noregi er dregin um Þrándheim. Noröan hennar á aö nota norska dáta sem fallbyssu- fóöur til aö tefja fyrir framgangi Sovétmanna áöur en NATO bregst viö. Þaö er augljóst aö íslendingar geta ekki treyst á slika „vernd”. Þvi er mikilvægt aö hefja öfluga baráttu fyrir sjálfræöi tslands, gegn báöum risaveldunum, fyrir hlutieysi tsiands i heimsstyrjöld (fyrir vopnuöu hlutleysi vel aö merkja. Vopnlaus getur Islensk alþýðaaldrei variö sjálfræöi sitt). Fyrsta skrefiö er aö berjast fyrir úrsögn Islands Ur NATO og brott- för bandariska hersins. Samtök herstöðvaand- stæðinga Þau samtöksemumárabil hafa staöiö i fararbroddi andheims-

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.