Vísir - 16.11.1978, Blaðsíða 16

Vísir - 16.11.1978, Blaðsíða 16
[A árinu 1957 fór Jackie nokkrar ferðir til New York i þvi skyni að heimsækja föður sinn. Hún nefndi hins vegar ekki við hann að hún ætti von á barni. Jack Bouvier var þvi i senn undrandi og ánægður er hann las um það i blaði að hann yrði afi i nóvember. Heilsu Jack Bouvier hrakaði stöðugt þetta sumar. A afmæíisdag Jackie var hann fluttur fársjúkur á sjúkrahús þar sem hann lést viku siðar. Jackie, sem var mjög brugðiö, flaug til New York til aö undirbúa útförina. bar heimsótti hún vinkonu Bouvier til aö fá mynd, sem mætti nota meö fregnum af láti hans. Hún samdi sjálf tilkynningutil blaöanna, þar sem hún lagöi áherslu á ætt hans og bakgrunn og heimtaöi aö maöur hennar færi sjálfur meö þetta til ritsjóra The New York Times. Hjá útfararstjórnaum sat hún viö hliöina á likbörunum og virti fóöur sinn fyrir sér. Hann var fyrsti látni maöurinn sem hún haföi séö. An þess aö hika tók hún af áer armband, sem faöir hennar haföi gefiö henni sem útskriftar- gjöf og lagöi þaö i hendur hans. Þá réöi hún vart viö sig lengur, kyssti hann og hágrét. Þaö voru aöeins fáir vinir Bouvier-fjölskyldunnar sem mættu viö jaröarförina. Janet, móöir Jackie, heyröi um látfyrr- verandi eiginmanns sins er hún var um borö i Queen Elizabeth 2. á leiö til Evrópu. Jackie harmaöi aö faöir hennar skyldi ekki hafa lifaö nægilega lengi til aö sjá fyrsta barnabarn sitt. „Hann heföi veriö svo ánægöur.” sagöi Jackie. „Hvort sem barniö veröur drengur eöa stúlka skirum viö þaö Bouvier.” Á heimilinu. Fáeinum mánuöum siöar fæddist Caroline Bouvier Kennedy og fluttu foreldrar hennar ásamt þjónustufólki i nýtt hús litlu seinna. Bresk barn- fóstra, sem hét Maud Shaw haföi veriö ráöin til aö annast um ung- barniö. Þrátt fyrir allt þjónaliöiö lýsti Jackie sjálfri sér sem „gamaldags eiginkonu.” I ritgeröum hennar I kvenna- skóla, kom fram aö húnætaöi sér aldrei aö veröa húsmóöir, og þaö var hún heldur ekki. Jackie gætti þess aö eigin- maöur hennar neytti réttrar fæöu og fengi þr jár máltiöir á dag. Hún sá einnig um aö hann tæki lyf sin. Markmiö hennar var aö hafa allt I röö og reglu á heimilinu, þannig aö hann gæti komiö óvænt heim meö gesti. Hún eyddi miklum tlma I aö huga aö klæönaöi sinum, pantaöi sér alltaf föt meö góöum fyrir- vara. Hún fletti i gegnum tísku- blöö og klippti út þaö sem henni likaöi og sendi til Parlsar. 011 þekktustu tiskuhúsin I Paris áttu gínu sem unnt var aö máta föt á fyrir frú Kennedy. Jackie eyddi oft mörgum tlmum fyrir framan spegil viö aö snyrta og mála sig. Hún gat ekki afboriö aö einhver sæi hana fyrr en allt væri komiö á sinn staö. Barnið og pólitikin. Caroline virtist gefa llfi Jackie aukiö gildi. Jackie þótti, sem nú væri þörf fyrir hana og hún kæmi aö nokkru liöi. „Barniö breytti öllu fyrir Jackie” segir gömul vinkona hennar. „Hún haföi gert allt til aö geta eignast þaö og ég held aö hún heföi algjörlega falliö saman ef eitthvaö heföi fariö úrskeiöis viö fæöingi Caroline. Hún öölaöist einnig aukiö sjálf- straust gagnvart Kennedy-fjöl- skyldunni, þar sem konurnar virtust fæöa börn svo auöveld- lega.” Barniö hjálpaöi henni einnig mikiö þegar Jack Kennedy fdr aö hefja kosningaundirbúning fyrir alvöru. Hún sá baráttuna fyrir kjöri hans sem eins konar skri'msli sem gleypti alla I kringum hana. „Ég hræöist þetta umstang”, sagöi hún eitt sinn. „Bara tilhugsunin gerir þaö aö verkum aö ég fæ I magann. Jack kemur ekki til meöaö sjást heima og ég mun eiga fullt 1 fangi meö fylgja honum eftir.” Þaö geröist iöulega aö hún fór út úr stofunni, ef Jack fór aö ræöa um stjórnmál. Hún tók þá til viö aö gera grin aö honum og öllum „skrímslunum” sem hann umgekkst. „Hann fyllir húsiö af fólki sem er á aldri viö móöur mlna, eöa einhverjum af þessum hræöilegu stjórnmálamönnum sem geta gert mig brjálaöa.” Jackie henti á lofti setningar þeirra og snéri út úr þeim. Hún stundaöi llka eftirhermur af miklum móö og hermdi jafnt eftir manni slnum sem öörum. Er Jack Kennedy bauö sig fram til forsetakjörs var hann 42ja ára. 1 fyrstu var framboö hans ekki tekiö alvarlega, þar sem hann þótti ekki hafa staöiö sig sérlega vel I öldungadeildinni. Honum var þvl bent á aö vænlegraværiaö sækjast eftir aö vera varaforsetaefni. Jack þver- tók fyrir þaö. Faöir hans var sammála þessu, en hann haföi fjárfest meira en 2,1 milljarö islenskra króna til aö koma syni sinum I Hvlta húsiö. „Sonur minn sættir sig aldrei viö 2. sætiö, hvaö svo sem veröur I boöi,” sagöi Joe Kennedy. Jackie reyndist nú loksins tilleiöanleg aö leggja eitthvaö af mörkum. Hún hjálpaöi manni slnum I forkosningunum I Wisconsin og Vestur Virginiu, en þar mætti hann mestu andstöö- unni frá Hubert Humphrey. Jackie tók upp á þvl, öllum á óvart, aö fara og halda smátölur án þess aö láta þá, sem kosinga- vélinni stjórnuöu, vita. Baráttan 1 Vestur Virginlu var geysilega hörö. Kennedy- systurnar kepptust viö aö ná til námuverkamanna og fjölskyldna þeirra. Þær lögöu sig aöallega fram viö aö halda smáveislur hér og hvar. Jackie fór aö mestu einförum og var iöulega aöeins meö bil- stjóra meö sér er hún heimsótti eiginkonur námuverkamanna. Kofarnir sem fólkiö bjó I gátu varttalist mannabústaöir. Jackie brá viö er hún sá þá fátækt sem þarna rikti og mundi síöar eftir þessu fólki. Er hún varö forseta- frú pantaöi hún kampavinsglös, sem voru I laginu eins og túli- panar, frá borginni Morgantown i Vestur Virginíu. „Þessi glös voruauglýst og seld alls staöar sem vlnglös Hvlta hússins”, sagöi Jackie. „Mér var sama, ef þetta gat eitthvaö hjálp- aö þessu vesalings fólki. Þaö var gaman aö þvi, aö fólki var sýnt aö Kosningabarátta upp á milljarða króna. Barniö styrkti stööu Jackie og hér sjást msögurnar kveöja Jack á tröppunum viö hús þeirra I George Town. Hér eru hinir ánægu foreldrar aö ieika sér viö frum- buröinn. Jackie fór aö fara I kosningaferöalög meö manni sinum og hér sést hún ræöa viö verkamann I Oregon.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.