Vísir - 16.11.1978, Blaðsíða 11

Vísir - 16.11.1978, Blaðsíða 11
VISIR Fimmtudagur 16. nóvember 197S 11 — Þaö er augljóst aö Islendingar geta ekki treyst á slíka //Vernd". Því er mikilvægt aö hef ja öfluga bar- áttu fyrir sjálfstæöi landsins gegn báöum risaveldun- um/ fyrir hlutleysi Islands í heimsstyrjöld (fyrir vopnuðu hlutleysi vel aö merkja. Vopnlaus getur ís- lensk alþýða aldrei varið sjálfstæöi sitt.) Stefna Alþýöubandalagsmanna innan Samtaka herstöövaandstæöinga hefur jafnan haft yfirhöndina. Samtökin hafa því gert lítið úr hættu þeirri sem heiminum stafar af heimsvaldastefnu Sovétríkjanna og styrjaldarhættunni. Framferöi Sovétmanna um heim allan ætti aö færa mönnum heim sanninn um aö herskip þessi eru engir friöf lytjendur heldur geigvænleg ógnun viö sjálfstæöi islensku þjóöarinnar. valdsinna eru Samtök herstööva- andstæöinga. Samtökin hafa fylkt þdsundum tslendinga út á göturn- ar til aö mótmæla hersetunni: Þúsundum saman þrömmum viö árlega I mislöngum mótmæla- göngum. En i staö þess aö virkt fjöldafylgi samtakanna aukist jafnt og þétt og samtökin eflist hafa SHA þvert á móti hvaö eftir annaö gefiö upp öndina. Siöasta landsráöstefna leiddi I ljós aö enn einu sinni er þetta aö gerast, enn einu sinni stefnir starfiö og baráttueldmóöurinn niöur á viö. Hvaö veldur? Berjumst gegn báðum risaveldunum Frá þvf aö Samtök herstööva- andstæöinga voru endurreist fyrir Jyemur árum hafa staöiö yfir miklar deilur á liösfundum og landsráöstefnum samtakanna um afstööu þeirra til Sovétrlkjanna. - Stefna Alþýöubandalagsmanna innan samtakanna hefur jafnan haft yfirhixidina. SHA hafa þvi gert litiö úr hættu þeirri sem heiminum stafar af heimsvalda- stefnu Sovétrikjanna og styrjaldahættunni. i yfirlýsingum samtakanna um heimsástandiö hafa þau fariö i kring um heims- valdastefnu Sovétrikjanna eins og köttur i kringum heitan graut. Talaö er um striösundirbúning stórvelda (hvaöa stórvelda?) og andstööu viö heimsvaldastefnu og drottnunarstefnu (er drottnunar- stefna annaö en heimsvalda- stefna?) 011 áhersla er lögöá aö tala um drottnunarstefnu „án þess aö þaö sé i verkahring miönefndar aö ■ skilgreina hvort hún sé heims- valdastefna eöa ekki” svo vitnaö sé til oröa formanns miönefndar SHA. Hvernig er hægt aö heyja haröa og árangursrika baráttu gegn NATO og ameriska hernum án þess aö viöurkenna aö „drottn- unarstefna” Sovétrikjanna er sama eölis og heimsvaldastefna Bandarikjanna. 1 grini tala sumir herstöövaandstæöingar um „Rússagrýluna” eins og hún sé eitthvaö til aö gera grin aö meö herskip sin hér viö landsteinana. Framferöi Sovétmanna um heim allan ætti aö færa mönnum heim sanninn um aö herskip þessi eru engir friöflytjendur heldur geig- vænleg ógnun viö sjálfræöi islensku þjóöarinnar. En þaö er ekki einu sinni svo aö Alþýöubandalagsmenn innan SHA séu tilbúnir til ab hefja einaröa baráttu gegn hernum og NATO. Nú þegar Alþýöubandalag ið hefur hafiö stjórnarsamstarf án þess aö hafa brottför hersins I stjórnarsáttmála, bregöur svo viö, aö Alþýöubándalagsmenn innan SHA leggja megináherslu á áfangalausnir, friölýsingar- drauma og þess háttar. Þeir vilja einangraherinn efnahagslega, en gæta þess ekki aö meö þvi beina SHA baráttu sinni fráhernum og aö islenskum auöherrum. Viöskiptavinir hersins eru auk þess nokkuö svo voldugir i Islensku þjóöfélagi. Þeir munu ekki leggja niöur viöskipti sin viö kanann nema tilneyddir, þ.e. her- inn veröi rekinn úr landi — já eöa meö þjóöfélagsbyltingu á Islandi og þaö er varla markmiö SHA. Herstöövaandstæöingar ættu þvi að tviefla baráttuna gegn NATO ogkrefjast þess aö Alþýöu- bandalagiö standi viö kosninga- lofbrö sin. Raunar ætti stjórnar- samstarf Alþýöubandalagsins aö kenna herstöövaandstæöingum aö viö getum ekki treyst á Alþýöubandalagiö né nokkurn annan stjórnmálaflokk til aö - vinna verkiö fyrir okkur. tlrsögn Islands úr Nato og brottrekstur bandariska hersins verður fyrst og fremst árangur öflugrar fjöldabaráttu. Starfshættir samtaka herstöðvaandstæðinga Ég varpaði áöan fram spurn- ingunni: Hvaö veldur hnignun SHA? Þvi hef ég nú svaraö aö hálfu. Þaö er augljóst aö ef fjöldasamtök gegn heimsvalda- stefnu eru ekki heil I baráttunni gegn báöum risaveldunum og ef þau hlaupa alltaf eftir duttlung- um stjórnmálaflokks sem hefur sýnt aö honum er ekki treystandi til heilshugar baráttu, er ekki von á góöu. En meira býr aö baki. A lands- ráöstefnunni nú um daginn kom 1 ljós aö starfi samtakanna hefur hrakaö mjög á siöasta ári. Trotskistar stigu I stól og héldu þvi fram aö orsök þess væri áhugaleysi almennra herstööva- andstæöinga vegna þess aö tima- bundiö markmiö vantaöi. Lausn- in væri: Þjóöaratkvæöagreiösla. Hvilik sálfræöi! Sumir alþýöu- bandalagsmenn kenndu peninga- leysi um! Ef baráttumböur og áhugi herstöövaandstæöinga er i lágmarki þá er þaö ekki vegna sálfræöilegra eöa peningalegra aöstæöna, heldur vegna þess aö starfseiningar samtakanna, svæöahóparnir, eru hálfdauöir og tengsl þeirra viö miönefnd eru nær engin. I miönefnd sitja menn sem ekki eru valdir vegna þess að þeir hafa starfaö vel i SHA, held- ur vegna þess aö þeir eru flokks- bundnir I Alþýöubandalaginu, Fylkingunni eöa KFl/ML. Miönefndarfundir eru flestir illa sóttir og ákvaröanir þeirra ná sjaldnast eyrum almennrar liös- manna. Landsráöstefnur sitja fyrst og fremst flokksbundnir einstaklingar og kaupa sér at- kvæöisrétt, þó svo aö þeir starfi ekkertí samtökunum þessá milli. Ef Samtök herstöövaandstæöinga eiga aö standa undir nafni eiga virkir liösmenn samtakanna aö ráöa feröinni á landsráöstefnum og sitja i miönefnd. Þá fyrst eru samtökin eru byggö upp sem virk og lýöræöisleg liösmannasamtök eru þau fær um t.d. aö krefjast þjböaratkvæöagreiöslu um hermáliö. Berjumst fyrir réttri stefnu Nú hugsar kannske einhver: „Ljótt er aösjá. Greinarhöfundur rifur niöur starf þeirra samtaka sem hvaö mest hafa barist fyrir úrsögn Islands úr NATO og brott- rekstri hersins. Hvernig I ósköp- unum ætlar hann aö koma þess- um markmiöum i framkvæmd?” Rétt er aö ég hef rifiö þá stefnu og þá starfshætti niöur sem mestu ræöur innan Samtaka herstööva- andstæöinga, þá stefnu sem Alþýöubandalagiö ber hvaö mesta ábyrgö á. Þaö geri ég vegna þess aö reynslan sýnir aö þessi stefna er röng og ef viö ætl- um aö ná árangri i starfi veröum viö aö breyta henni. Nauösynlegt er aö berjast fyrir réttri stefnu innan Samtaka her- stöövaandstæöinga, en þaö eitt nægir ekki. Meðan Alþýöubanda- lagiö hefur forystu Samtaka her- stöövaandstæöinga i höndum sér og notar þau tilatkvæöasmölunar fyrir sjálf sig, meö öörum oröum, meöan starf SHA er jafn árangurslitiö og raun ber vitni um veröa allir sæmilegir and- heimsvaldasinnar aö reka bar- áttuna aö nokkru leyti fyrir utan Samtök herstöövaandstæöinga. 1. des-hreyfingin t.d. sem nýlega var endurreister ekki stefnt gegn Samtökum herstöövaandstæö- inga, heldur er hún viöleitni and- heimsvaldasinna til aö útvikka baráttuna og virkja fjöldann. Herstöövaandstæöingar veröa aö gefe Baráttuhreyfingu 1. des. gaum. Baráttuhreyfing 1, des. Markmiö 1. des-hreyfingarinn- ar er aö fylkja andstæöingum heimsvaldastefnunnar saman um vigoröin: Verjum sjálfræöi Is- lands — Gegn erlendri stóriöju — Island úr NATO, herinn burt — Gegnheimsvaldastefnu og striös- undirbúningi risaveldanna, Bandarikjanna og Sovétrikjanna. Baráttuhreyfingin telur mikil- vægt aö upplýsa almenning um þá hættu sem heiminum stafar af striösundirbúningi Bandarlkj- anna og Sovétrikjanna, og um stööu Islands i valdatafli stór- veldanna. Hún leggur áherslu á aö baráttan gegn heimsvalda- stefnunni erekki vonlaus barátta. Heimsvaldastefnan er brynju- klæddur risi á brauöfótum, inn- viöir, bandarisks og sovésks þjóö- félags eru rotnir. Stórveldin geta þá þvi aöeins barist aö þau njóti stuönings alþýöunnar en alþýöan viöa um heim hefur nú þegar gripiö til vopna gegn yfirgangs- stefnu þeirra. Þaö er islenskri al- þýöu óeölilegt aö una viö undirok- un erlends veldis. Danir náöu yfirráöum á Islandi meö svikum og vopnavaldi. Um aldaraöir voru Islendingar smáö og undir- okuö þjóö en 1. des. 1918 ööluöust þeir fullveldiö aö nýju. Þaö var eftir áratuga langa baráttu gegn danska nýlenduveldinu. Enn á ný er ísland hersetin þjóö. Enn á ný veröum viö aö hefja upp baráttu gegn erlendu auövaldi. 1. des-hreyfingin vill gera 1. desember aö baráttudegi gegn heimsvaldastefnunni og fyrir sjálfræöi lslands. Starfshættir hreyfingarinnar eru ekki siöur athyglisverðir. Framkvæmdanefnd hennar er kosin úr rööum virkra liösmanna. Liösmannafundir eru haldnir reglulega og oft og liösmenn hafa eftirlit meö starfi framkvæmda- nefndarinnar og meö þvi aö áætl- anir séu framkvæmdar. Engin ákvöröun er tekin nema liös- mannafundur hafi fjallaö um hana áöur og þessir fundir hafa siöasta oröiö um þær ákvaröanir sem óhjákvæmilega veröur aö taka á milli funda. Baráttuhreyfingin er virkileg baráttuhreyfing sem SHA má læra margt af. Að lokum I þessari grein hef ég gagnrýnt vinnubrögð Samtaka herstööva- andstæöinga og þátt Alþýöu- bandalagsins þar I. Frá þvi aö SHA voru fyrst stofnuö hafa þau verið stærsta afl andheimsvalda- sinna hér á landi. En þaö er ekki hægt aö berjast gegn NATO og hernum án þess aö berjast gegn báöum risaveldunum og án þess aötreysta áfjöldann. Sigur vinnst þvl ekki meö ályktunum einum saman eöa árlegum göngum: sig- ur vinnst meö þvi aö virkja hvern einasta herstöðvaandstæöing til sameiginlegrarstefnumótunar og meö því aö gera Samtök herstöövaandstæðinga aö virkum liðsmannasamtökum. Ég skora þvi á alla heiöarlega andheimsvaldasinna aö taka höndum saman i baráttunni fyrir réttri stefnu og starfeháttum innan SHA og i þeim f jöldahreyf- ingum sem til eru utan samtak- anna. Tökum þátt I starfi 1. des-hreyfingarinnar — vekjum upp öfluga baráttu gegn risaveld- unum! Greenpeoce somtökin: „Fordœmum órósina r 0 herro Ásgeirsson" „Greenpeace- samtökin höföu ekkert meö árásina á herra As- geirsson aö gera og slfkar aö- geröir fordæmum viö algerlega,” sagöi Alan Thornton frá Green- peace«amtökunum viö Visi i gær. Tilefniö var aö Frakkinn Roger de la Grandiéresem vill veiöa hér háhyrninga réöst 1 gær aö Þóröi Asgeirssyni skrifstofustjóra sjávarútvegsráöuneytisins og skvetti yfir hann einhverjum rauöum vökva. Frakkinn telur sig hafa veriö svikinn af Sædýrasafninu og hér- lendum yfirvöldum um leyfi til aö veiöa háhyrninga. Thornton kom aö máli viö Visi og baö um aö þaö yröi skýrt tekiö fram aö Greenpeace heföi hvergi komiö þarna nærri. „Viö fordæmum persónulegar ofbeldisárásir hver sem mál- staðurinn er. Grandiére er á eng- an hátt tengdur Greenpeace. Hann er ekki einusinni náttúru- verndarmaöur þvi hann er aö mótmæla þvl aö fá ekki aö veiöa háhyrninga.” —ÓT Bann við rek- netaveiðum — 1500 þúsund lestir þegor veiddor Sjávarútvegsráöuneytiö hefur ákveöiö aö afturkalla öll leyfi til reknetaveiöa frá hádegi I dag. Allar reknetaveiöar eru þvi óheimilar frá þeim tima. Siöasti veiöidagur hringnóta- báta er mánudagurinn 20. nóvem- ber. „Þar sem mjög óljóst er hverjir möguleikar eru á söltun og fryst- ingu á sfld það sem eftir er veiöi- timabilsins eru skipstjórar báta beönir um að athuga hvernig standimeöafsetningu á sild, áöur en þeir haldatil veiöa,” segir I til- kynningu ráöuneytisins. Kvikmyndosafnið: Gomlor kvikmyndir vontor Stjórn kvikmyndasafnsins hefur komiö saman tíl fyrsta fundar og þar var ákveöiö aö hefjast handa um söfnun upp- lýsinga og skráningu islenskra kvikmynda og kvikmynda um is- lensk efni. A siöasta Alþingi voru sam- þykkt lög um Kvikmyndasafn Is- landsog kvikmyndasjóö. I stjórn safnsins eru Arni Björnsson, Er- lendur Sveinsson, Jón Þórarins- son og Magnús Jóhannsson. For- maður er Knútur Hallsson sem er skipaöur af Menntamálaráöu- neytinu án tilnefningar. Safnstjórnin beinir þeim til- mælum tilallra þeirra sem kunna aö hafa undir höndum framan- greindar kvikmyndir eöa telja sig hafa vitneskjuum hvar þær kunni aö vera niðurkomnar aö koma þeim upplýsingum á framfæri. Þeir geta haft samband við Menntamálaráöuneytiö Hverfis- götu 6,s. 25000,eöa viö Fræöslu- myndasafn rikisins, Borgartúni 7 simi 21572. —BA—

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.