Morgunblaðið - 16.01.2001, Page 24
24 C ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
Atvinnuhúsnæði
Í smíðum
Vættaborgir - Grafavogur. Stór-
glæsilegt 145 fm parhús á tveimur hæðum
með 25 fm innbyggðum bílskúr. Íbúðirnar af-
hendast tilbúnar til innréttingar. Verð 19,0
millj. 4297
6 íbúðir í litlu fjölb. í Grafarvogi.
4 vandaðar 4ra herb. íbúðir, hver um sig ca
130 fm og tvær 3 herbergja ca 95 fm. Íbúðirn-
ar afhendast fullbúnar án gólfefna. Bílskúr
getur fylgt 3 íbúðum.
Salahverfi - Kópavogur. Erum með
nokkrar 3ja og 4ra herb. vandaðar íbúðir í
lyftuhúsi í Salahverfi í Kópavogi. Íbúðirnar af-
hendast fullbúnar án gólfefna. ALLAR NÁN-
ARI UPPL. VEITA SÖLUMENN HÚSVANGS.
Blikaás - Hafnarfjörður. Vorum að
fá í sölu raðhús á tveimur hæðum. Tvær stofur
og 3 svefnherbergi. Íbúðin afhendist fokeld að
innan en fullbúin að utan. Verð 13,7 millj.
Jónas Jónasson
sölustjóri
Páll Þ. Pálsson
sölumaður/netstjóri
Jónína Þrastar-
dóttir ritari
Guðmundur Tómass.
framkvæmdastjóri
Þóroddur S.
Skaptason
lögg. fasteignasali
Jónas Jónasson, Guðmundur Tómasson, Páll Þ. Pálsson, Jónína Þrastardóttir, Þóroddur Steinn Skaptason - löggiltur fasteignasali.
Akralind - Kópavogur. 600 fm
húsnæði á tveimur hæðum. Hvor hæð 300
fm. Aðgengið er eins og best verður á kos-
ið. Sórt plan og stórar innkeyrsludyr fyrir
báðar hæðir. Húsnæðið er óinnréttað og
er því hægt að sníða það að kröfum
hvers og eins. Verð tilboð. 4453
Smiðjuvegur - Kópavogur. 165
fm atvinnuhúsnæði á einni hæð, með 2
stórum innkeyrsludyrum og innbyggðum
35 fm kæli eða frystiklefa. Húsnæðið upp-
fyllir allar kröfur fyrir matvælaframleiðslu og
hentar vel fyrir matvælaiðnað. 5 bílastæði
fylgja. Verð 14,7 millj. 4738
Auðbrekka - Kópavogur. Bjart
og gott 713 fm lagerhúsnæði. Hægt er að
hólfa húsn. niður eftir þörfum hvers og eins.
Lofth. 3,50 m. Gluggar í norður með góðri
birtu og útsýni. Áhv. 26,6 millj. góð lán.
4571
Jörfagrund - Kjalarnes. Tvær 110
fm neðri sérhæðir í fjórbýli. Íbúðirnar skiptast í
tvö herb., stóra stofu, rúmgott eldhús, flísalagt
baðherb. og gufubað. Verð 11,5 millj. Áhv. 7,7
millj.
Einbýli
Miðtún - Reykjavík. 225 fm einbýlis-
hús á 2 hæðum. Neðri hæð með sérinngangi
og eldhúsi. Alls 6 svefnherbergi í húsinu. Verð
19,9 millj. 4707
Stigahlíð - Hlíðar. 252 fm glæsilegt
hús á einum eftirsóttasta stað í Rvík til sölu.
Húsið er á tveimur hæðum, sólskáli efst, park-
et og steinflísar á gólfum, vandaðar innrétting-
ar, tvöfaldur bílskúr og sundlaug í garðinum.
Áhv. 6,1 millj. húsn.lán. 4438
Nýlendugata - Miðbær 150 fm ein-
býlishús á þremur hæðum. Íbúðin skiptist í 6
herb., þar af 2 rúmgóð í kjallara. Rúmg. park-
etlögð stofa ásamt parketi í eldhúsi á miðhæð.
Ný rafm.tafla og endurn. gluggar. 4570
Rað- og parhús
Fjarðarsel - Reykjavík. 235 fm
endaraðhús með 22 fm bílskúr. Húsið er á 3
hæðum, 5 herb., stofa auk sér 2ja herb. íbúð-
ar á 1. hæð. Áhv. 5,1 millj. húsn.lán. 4502
Þrjú glæsileg raðhús - Gbæ.
Húsunum er skilað fullbúnum að utan, út-
veggir með marmaraáferð, gluggar glerj-
aðir og allar hurðir komnar. Þakkantar frá-
gengnir og þak með aluzink þakjárni. Inn-
byggðir bílskúrar og lóðir grófjafnaðar. Af-
hending í júní-ág. 2001
Næfurás - Árbær. Glæsilegt ca 250 fm
raðhús á þrem hæðum með innbyggðum bílsk.
1. hæð m. flísum. 2. og 3. hæð m. eikarpark-
eti. 3 stofur, 4 herb. Áhv. 6,5 millj. húsn.lán
Verð 22,0 millj. 4517
Hæðir
Sérhæð í glæsilegu húsi í
Hafnarfirði. Tvær góðar 120 fm sérhæðir
á frábærum stað í sögufrægu húsi. Íbúðirnar
afhendast tilbúnar til innréttinga. Hagstæð
greiðslukjör. 4446
Grasarimi - Grafarvogur. Erum
með í sölu 148 fm góða neðri sérhæð í þríbýli.
Íbúðin skiptist í 4 herbergi, 2 stofur og 2 bað-
herbergi. Gólfefni eru parket og flísar. Áhv.
rúml. 7,1 millj. húsn.lán. Verð 15,5 millj. 4184
Blásalir - Laus - Kópavogur.
Glæsileg 100 fm neðri sérhæð í fjórbýli. Íbúðin
skiptist í 3 herb. með parketi, baðherbergi
flísalagt í hólf og gólf, t.f. þvottavél og þurk-
ara, parket á stofu, fallegt eldhús með brúnum
leirflísum. Verð 14,5 millj. Áhv. 6,2 millj. 4490
Stigahlíð - Hlíðar - Laus. 140
fm falleg neðri sérhæð í þríbýli með 24 fm
bílskúr. Þrjú svefnherbergi, tvískipt stofa
með svölum. Húsið er nýlega Steni-klætt
að utan. Öll þjónusta á næsta leiti, t.d.
verslanir, skólar, gæsluvellir o.fl. 4536
4ra til 7 herb.
Funalind - Kóp. 164 fm glæsileg íbúð á
tveimur hæðum í vönduðu fjölbýlishúsi. 25 fm
bílskúr. Íbúðin skiptist í stóra stofu, 2 minni
stofur og 3 herb. Þvottaherbergi og búr inn af
eldhúsi. Áhv. 7,3 millj. húsn.lán. 4454
Hjallabrekka - Kópavogur. Vorum
að fá í sölu 71 fm íbúð í tvíbýli með sérinn-
gangi. Möguleiki á stækkun. Áhv. 3,3 millj.
byggsj.lán. 4714
Tungusel - Reykjavík. Erum með til
sölu vel skipulagða 4ra herbergja í fjölbýli.
Íbúðin skiptist í 3 góð svefnherbergi, stóra
stofu, snyrtilegt baðherbergi með flísum á gólfi
og nýlegum tækjum. 4713
Unufell - Reykjavík. 91 fm góð íbúð
á annarri hæð í fjölbýli. Íbúðin skiptist í 3
svefnherb. og parketlagða stofu. Verið að yfir-
byggja svalir á kostnað seljanda. Verð 9,9
millj. 4576
Skólavörðustígur - Miðbær. Vor-
um að fá í sölu glæsilega íbúð á 2. hæð. Tvær
stofur og 2 herbergi, annað stórt með sérinn-
gangi. Falleg eign í hjarta borgarinnar. 4578
3ja herb.
Leirutangi - Mosfellsbær. 68 fm
falleg íbúð á jarðhæð í fjórbýli (auka herbergi
ca 30 fm er ekki með í fmfjölda íbúðar). Sérinn-
gangur og bílastæði. Áhv. 5,8 millj. húsn.lán.
4489
Laugavegur - Miðbær. Vorum að fá í
sölu fallega íbúð á 2. hæð í hjarta borgarinnar.
Mjög stór og björt stofa sem býður uppá
marga möguleika, t.d. að bæta við 1-2 herb.
eða vinnuaðstaða fyrir listamann. Þetta er
eign sem vert er að skoða.
Miklabraut - Laus fljótlega. 61
fm björt og góð íbúð á jarðhæð með sérinn-
gangi. Íbúðin þarfnast lagfæringar. Áhv. 3,0
millj. húsbr. Verð 7,5 millj. 4702
Ársalir - Kópavogur. Erum með í
einkasölu 85 fm 3ja herb. íbúð á efstu hæð
í glæsilegri lyftublokk. Íbúðin skilast fullbú-
in en án gólfefna. Stæði á besta stað í bíl-
geymslu. 4492
2ja herb.
Þverbrekka - Kóp. 45 fm góð íbúð á
8. hæð í lyftuhúsi. Frábært útsýni. Húsið er nýl.
viðgert og málað að utan. Áhv. 3,3 millj.
húsn.lán. 4488
Kaplaskjólsvegur - Vesturbær.
Rúmgóð 61 fm 2ja herb. íbúð í fjölbýlishúsi á
þessum vinsæla stað, stutt í alla þjónustu. Út-
sýni á KR völlinn. Verð 8,3 millj. 4719
fasteigna og varðveita þau í því
formi.
Rafræn viðskipti eru enn á
bernskuskeiði miðað við það sem síð-
ar mun verða þegar öryggi eykst,
tæknin þróast og lagaumhverfið hef-
ur verið mótað. Rafræn viðskipti
munu auðvitað þróast með fasteignir
eins og annað sem gengur kaupum
og sölum. Slíka viðskiptahætti þarf
að þróa í tengslum við Landskrá
fasteigna.
Í Evrópu eru þegar komnir á
kreik fasteignalánabankar sem ein-
vörðungu starfa á veraldarvefnum
og fyrir slíkar stofnanir er mikilvægt
að eiga aðgang að sem fullkomnastri
Landskrá fasteigna til að fá góðar
upplýsingar um eignina sem veðið á
að hvíla á.
Í gjaldskrám okkar er þegar að
finna ákvæði sem varða gjaldtöku
fyrir útgáfu upplýsinga úr skránni á
erlendum málum og það er meðal
annars til að geta þjónað slíkum
þörfum. Þá má sjá það fyrir sér að
fasteignasalar geti farið að færa
kaupsamninga rafrænt inn í
Landskrá fasteigna auk þess sem
rafræn þinglýsingarvottorð eiga eft-
ir að koma. Þetta er þó ekki alveg á
næstu grösum.“
Fasteignamatið hefur um árabil
fengið alla þinglýsta kaupsamninga
og heldur yfir þá skrá. Á grundvelli
hennar er mögulegt að kalla fram
ýmsar upplýsingar svo sem um fer-
metraverð í húsum af ýmsu tagi og
flokka þær upplýsingar síðan eftir
staðsetningu, aldri, byggingarefni,
stærðum o.s.frv.
Fasteignamatið endurnýjar viku-
lega upplýsingar um veltuna á fast-
eignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu
skipt niður á sveitarfélög ásamt þró-
un fermetraverðs á íbúðum í fjöl-
eignarhúsum.
„Við ætlum smám saman að leggja
aukna áherslu á þennan þátt og efla
upplýsingagjöf auk þess sem skráin
um kaupsamninga er mikilvægur
grundvöllur fasteignamats en það
skal jú miðað við gangverð,“ segir
Haukur. „Og það er nákvæmlega
það sem kaupsamningarnir segja
okkur hvað er.
Hvað persónuverndina varðar þá
verður að sjálfsögðu farið eftir
reglum og fyrirmælum laga varð-
andi aðgengi að upplýsingum í
Landskrá fasteigna. Að vísu er það
svo að við búum við fremur frjálslega
löggjöf varðandi aðgengi að upplýs-
ingum er varða fasteignir. Menn
eiga til dæmis rétt á að fá veðbók-
arvottorð hjá sýslumanni fyrir til-
tekna fasteign og ljósrit af skjölum
sem koma þar fram.
Ekki er áformað að þetta breytist
vegna tilkomu Landskrár fasteigna.
Það verður hins vegar óheimilt að
leita upplýsinga með persónugrein-
anlegum hætti t.d. að biðja um yfirlit
yfir fasteignir tiltekins einstak-
lings.“
Slagur við tölvuþrjóta
Landskrá fasteigna verður á fáum
árum ein stærsta skrá landsins og
mun skiptast á upplýsingum við
margar aðrar skrár. „Almenn örygg-
ismál eru því ekki síður áhyggjuefni
en persónuverndin. Meðal annars
höfum við séð tilraunir til innbrota í
okkar kerfi. Svæsnasta tilraunin
kom erlendis frá,“ segir Haukur.
„Tölvuþrjótar leita sífellt nýrra leiða
til innbrota í tölvukerfi. Öryggismál
og skipan þeirra skipta því miklu
máli.“
Meðal annarra gagnasafna sem
Landskrá fasteigna mun tengjast er
stafrænn kortagrunnur Landmæl-
inga Íslands vegna hnitasetningar
eignamarka og húsaskrá Hagstofu
Íslands. „Reykjavík hefur á tæpum
áratug byggt upp öflugt landupplýs-
ingakerfi og önnur sveitarfélög eru
nú að feta í fótsporin,“ segir Haukur.
„Í lögunum um skráningu og mat
fasteigna er beinlínis tiltekið að
Landskrá fasteigna skuli vera
grundvöllur fyrir slík kerfi. M.a.
þess vegna hafa Fasteignamat rík-
isins og Landmælingar Íslands gert
með sér víðtækan samstarfssamning
en Landmælingar halda kortagrunn
landsins.“
Fasteignamál á aldamótum
„Það eru breytingatímar í fast-
eignamálum,“ heldur Haukur áfram.
„Tuttugasta öldin einkenndist öðru
fremur af því að koma húsnæði yfir
íbúa landsins og atvinnurekstur
þeirra.
Á 21. öldinni munum við væntan-
lega bæta gæði húsnæðis með nýjum
efnum og byggingaraðferðum, end-
urgera eða úrelda töluvert af eldra
húsnæði og byggja ný og betri hús í
staðinn.
Húsbyggingar einstaklinga eru á
undanhaldi og byggingarfyrirtæki
byggja nú bróðurpart þess sem er
byggt og öflug fasteignafélög munu í
auknum mæla eiga og reka fasteign-
ir. Þessa þróun sjáum við þegar hjá
ríkinu, Reykjavíkurborg og á einka-
markaði.
Ingibjörg Sólrún borgarstjóri
varpaði fram þeirri spurningu um
áramótin, hvort 21 öldin yrði öld
borgríkjanna fremur en þjóðríkj-
anna. Ef svo fer mun það endur-
speglast í byggingum.
Sú mikla umræða sem nú er um
skipulag gæti einnig leitt af sér um-
talsverðar breytingar á höfuðborg-
arsvæðinu á næstu áratugum.“
„Merkileg mynd Hrafns Gunn-
laugssonar um möguleikana í þróun
Reykjavíkur er þörf hugvekja og í
henni kristallast einmitt ýmis meg-
insjónarmið varðandi byggðina og
þróun hennar,“ sagði Haukur Ingi-
bergsson að lokum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í marz sl. flutti Fasteignamat ríkisins höfuðstöðvar sínar í glæsilegt húsnæði í Borgartúni 21. Myndin er úr afgreiðslusal.