Morgunblaðið - 19.01.2001, Blaðsíða 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2001 27
ÍBÚAR yfirráðasvæða uppreisnar-
manna í Lýðveldinu Kongó höfðu í
gær miklar áhyggjur af óvissunni í
landinu og sögðu að ef rétt væri að
Laurent Kabila forseti hefði fallið
myndi það aðeins auka stríðshörm-
ungarnar í landinu.
Embættismenn í höfuðborginni
Kinshasa sögðu að Kabila væri á
batavegi eftir að hafa særst í skotárás
á þriðjudag en ráðamenn í öðrum
ríkjum, þeirra á meðal Bretlandi,
Belgíu og Angóla, sögðu að hann hefði
beðið bana. Varnarmálaráðherra
Zimbabwe sagði í fyrradag að Kabila
væri látinn og lík hans væri í Zim-
babwe en dró þá yfirlýsingu til baka
síðar.
Kabila nýtur vinsælda
Þótt andstæðingar Kabila hafi náð
stórum svæðum í austurhluta lands-
ins á sitt vald nýtur hann enn mikilla
vinsælda þar. Margir íbúanna líta á
Kabila sem bjargvætt og styðja hann
í deilum hans við fyrrverandi banda-
menn sína í grannríkinu Rúanda.
Stjórnvöld í Rúanda og Úganda
sendu þúsundir hermanna til austur-
hluta Lýðveldisins Kongó í ágúst
1998 til að styðja uppreisn andstæð-
inga Kabila. Margir íbúanna á svæð-
inu líta á innrásarmennina sem kúg-
ara fremur en bjargvætti og óttast að
þeir notfæri sér óvissuna í Kinshasa
til að hefja stórsókn í átt að höfuð-
borginni.
Aðrir óttast að valdabarátta hefjist
milli sonar forsetans, Josephs Kabila,
sem var sagður hafa tekið við völd-
unum til bráðabirgða í fyrradag, og
Gaetans Kakudjis innanríkisráðherra
og Edys Kapends, skrifstofustjóra
forsetans.
Götur Kinshasa voru nánast mann-
lausar í fyrradag, sem var almennur
frídagur, en lífið í borginni komst í
eðlilegt horf í gær.
Borgarbúar söfnuðust saman til að
hlýða á fréttir vestrænna útvarps-
stöðva sem höfðu eftir erlendum emb-
ættismönnum að Kabila væri látinn.
Ríkissjónvarpið í Lýðveldinu Kongó
sagði hins vegar að forsetinn væri á
lífi en særður.
Borgarbúarnir deildu um hverjum
ætti að trúa og nokkrir þeirra töldu
að stjórnin vildi leyna dauða forset-
ans þar til eftirmaður hans yrði val-
inn.
„Sjónvarpið segir að Kabila sé ekki
látinn en útvarpið segir að hann sé
það. Enginn okkar veit hverjum eigi
að trúa,“ sagði Freddy Nsimba,
myndhöggvari.
Honum fannst það kaldhæðnislegt
að Kabila skuli hafa verið sýnt bana-
tilræði daginn fyrir dánarafmæli
Patrice Lumumba, fyrsta forsætis-
ráðherra landsins, en hann var tekinn
af lífi 17. janúar 1961 í valdaráni hers-
ins undir forystu Mobutu Sese Seko
sem var einráður í landinu í rúma þrjá
áratugi. Mobutu var sjálfum steypt í
uppreisn undir forystu Kabila 1997.
Nokkrir borgarbúanna óttuðust að
óvissan leiddi til glundroða og enn
meiri blóðsúthellinga. Þegar skýrt
var frá því að sonur Kabila hefði tekið
við völdunum til bráðabirgða sökuðu
nokkrir borgarbúanna stjórnina um
að reyna að koma á ættarveldi.
Richard Holbrooke, sendiherra
Bandaríkjanna, ávarpaði í gær sendi-
herra Afríkuríkja hjá Sameinuðu
þjóðunum og varaði heri Rúanda og
Úganda við því að reyna að notfæra
sér óvissuna í Kinshasa. Hann skor-
aði á ríkin að hætta hernaðaraðgerð-
um sínum í Lýðveldinu Kongó og
skipta sér ekki af innanríkismálum
landsins.
Grannríki aðstoða her Kabila
Stjórnvöld í Zimbabwe, Namibíu
og Angóla sendu hersveitir til Lýð-
veldisins Kongó til að aðstoða her
Kabila og koma í veg fyrir að upp-
reisnarmennirnir og bandamenn
þeirra legðu allt landið undir sig.
Demantar, sem hafa verið kallaðir
„bestu vinir skæruliðans“ í Afríku,
eru taldir skipta miklu máli í stríðinu.
Demantaviðskipti eru talin hafa gert
Kabila kleift að tryggja sér stuðning
stjórnvalda í Zimbabwe og greiða fyr-
ir hernaðaraðstoðina. „Zimbabwe
hefði ekki komið Kabila til hjálpar án
demanta,“ sagði Alex Yearsley, einn
af forystumönnum mannréttinda-
hreyfingarinnar Global Witness.
Miklar náttúruauðlindir eru í Lýð-
veldinu Kongó, sem er á stærð við
Vestur-Evrópu, og efnahagurinn
byggist einkum á námugreftri. Mest
er unnið af kopar en einnig talsvert af
mangani, kóbalti, sinki og gulli, auk
demanta.
Íbúar Lýðveldisins Kongó áhyggjufullir vegna óvissunnar um afdrif Kabila og stjórn landsins
Óttast glundroða og
enn meiri hörmungar
Goma, Kinshasa. Reuters, AP.