Morgunblaðið - 19.01.2001, Blaðsíða 52
52 FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Háskóli Íslands
Verkfræðistofnun
Við Vatnaverkfræðistofu Verkfræðistofnunar
Háskóla Íslands er laust til umsóknar starf
tæknimanns/verkefnisstjóra.
Starfsmanni er ætlað að hafa umsjón með og
ábyrgð á verkþáttum sem krefjast sérhæfingar
og þekkingar á þeim verkefnum sem um ræðir
hverju sinni.
Hæfniskröfur: Verkfræðimenntun eða sambæri-
leg menntun, skipulögð og nákvæm vinnubrögð,
mjög góð tölvukunnátta.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf
sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til 5. febrúar 2001.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála-
ráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Skriflegum umsóknum skal skila til starfs-
mannasviðs Háskóla Íslands, Aðalbyggingu
við Suðurgötu, 101 Reykjavík. Öllum umsókn-
um verður svarað og umsækjendum tilkynnt
um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur
verið tekin.
Nánari upplýsingar veitir Jónas Elíasson, Stofu-
stjóri VVHÍ, í síma 525 4651 (jonase@hi.is).
Við ráðningar í störf við Háskóla Íslands er
tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans.
http://www.starf.hi.is
Háskóli Íslands
Rannsóknarmiðstöð
í jarðskjálftaverkfræði
á Selfossi
Laust er til umsóknar starf við Rannsóknarmið-
stöð Háskóla Íslands í jarðskjálftaverkfræði
á Selfossi. Starfsmanninum er ætlað að vinna
að fjölfaglegum rannsóknum á áhrifum jarð-
skjálfta, með sérstakri áherslu á Suðurlands-
jarðskjálfta. Nauðsynlegt er að umsækjandi
hafi háskólapróf á sviði tækni- og félagsvís-
inda.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum fjár-
málaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 2. febrúar 2001.
Skriflegum umsóknum skal skila til starfs-
mannasviðs Háskóla Íslands við Suðurgötu,
101 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækj-
endum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar
ákvörðun hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veitir Ragnar Sigbjörnsson
í síma 525 4141 milli kl. 9 og 13, netfang: Ragn-
ar.Sigbjornsson@afl.hi.is .
Við ráðningar í störf við Háskóla Íslands er
tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans.
http://www.starf.hi.is
Biskup Íslands
auglýsir að nýju laust til umsóknar
embætti sóknarprests í Bíldurdalsprestakalli
Barðastrandarprófastsdæmi frá 15. mars 2001.
● Kirkjumálaráðherra skipar í embættið.
● Um launakjör fer skv. ákvörðun kjaranefnd-
ar, en að öðru leyti gilda um starfið lög um
stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar
nr. 78/1997 og lög um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
● Óskað er eftir því að umsækjendur geri í
umsókn skriflega grein fyrir menntun sinni,
starfsferli og öðru því sem þeir óska eftir
að taka fram.
● Valnefnd velur sóknarprest skv. starfs-
reglum um presta nr. 735/1998, en biskup
ákveður með hvaða umsækjanda hann
mælir náist ekki samstaða í valnefnd.
● Heimilt er að óska eftir því að almennar
prestskosningar fari fram samkvæmt 20.
gr. starfsreglna um presta nr. 735/1998, en
ákvæðið er svohljóðandi:
„Óski minnst þriðjungur atkvæðisbærra
sóknarbarna í prestakalli þess, að almenn
prestskosning fari fram, er skylt að verða
við því. Skrifleg ósk um kosningu skal
hafa borist biskupi eigi síðar en að hálf-
um mánuði liðnum frá þeim degi er kallið
var auglýst laust til umsóknar.“
● Ofangreindu embætti fylgir prestssetur, með
þeim réttindum og skyldum sem því tilheyrir,
samkvæmt gildandi lögum og reglum á
hverjum tíma.
● Allar nánari upplýsingar um embættið,
starfskjör, erindisbréf, helstu lög og reglur,
sem um starfið gilda, eru veittar á Biskups-
stofu, s. 535 1500, grænt nr. 800 6550, fax
551 3284.
● Umsóknarfrestur rennur út 20. febrúar 2001.
● Umsóknir sendist Biskupi Íslands, Biskups-
stofu, Laugavegi 31, 150 Reykjavík.
Embættinu fylgja viðbótarskyldur skv. nánari
ákvörðun biskups.
Það athugist að embætti sóknarpresta eru aug-
lýst með fyrirvara um breytingar á sóknar- og
prestakallaskipan. Prestum er skylt að hlíta
breytingu á störfum sínum og verksviði á skip-
unartímanum, sbr. 19. grein laga nr. 70/1996
um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Með vísan til 13. og 15. gr. laga um jafna stöðu
og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000 eru
konur hvattar til að sækja um ofangreint
embætti.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNUHÚSNÆÐI
Verslunar- og þjónustu-
húsnæði til leigu
við miðbæ Reykjavíkur. Stærð 150 fm og 300
fm ásamt 150 fm millilofti. Góðar og stórar
innkeyrsludyr. Hagstætt leiguverð.
Upplýsingar í síma 692 0305.
TILKYNNINGAR
Kópavogskirkjugarður
— breytt skipulag
Tillaga að breyttu deiliskipulagi Kópavogs-
kirkjugarðs auglýsist hér með, skv. 25. gr.
skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Breyt-
ingin nær til innra skipulags kirkjugarðsins.
Uppdrættir, ásamt skýringarmyndum og grein-
argerð, verða til sýnis á Bæjarskipulagi Kópa-
vogs, Fannborg 6, 2. hæð, frá kl. 9-16 alla virka
daga frá 24. janúar til 21. febrúar 2001.
Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa bor-
ist skriflega Bæjarskipulagi eigi síðar en kl. 15
miðvikudaginn 14. mars 2001. Þeir sem ekki
gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast
samþykkir tillögunni.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
Auglýsing um
deiliskipulag í Reykjavík
Borgartún 25-27, breyting á deili-
skipulagi.
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari
breytingum, er hér með auglýst til
kynningar tillaga að breytingu á deili-
skipulagi sem afmarkast af Kringlu-
mýrarbraut, Borgartúni, Höfðatúni og
Sæbraut, samþ. í borgarráði 10.08.93,
m.s.br. varðandi lóðina nr. 25-27 við
Borgartún.
Tillagan gerir ráð fyrir að byggt verði eitt
hús í stað tveggja sem verður 5 hæðir,
kjallari og inndregin 6. hæð. Nýtingar-
hlutfall er aukið nokkuð o.fl.
Tillagan liggur frammi í sal Borgar-
skipulags og byggingarfulltrúa í Borgartúni
3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 - 16.00 frá
19. janúar til 16. febrúar 2001.
Ábendingum og athugasemdum skal skila
skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur
eigi síðar en 2. mars 2001.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan
tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 19. janúar 2001.
Borgarskipulag Reykjavíkur
ÝMISLEGT
Lagerútsala
Hrím, umboðs- og heildverslun, er með
rýmingarútsölu á ýmsum vörum næstu
daga:
Búsáhöld, bað- og eldhúsvogir, bökunar-
vörur, hand- og rafmagnsverkfæri, veiði-
vörur o.m.fl.
Opið mánud.—föstud. frá kl. 9.00—18.00,
laugard. og sunnud. frá kl. 11.00—18.00.
Ath.: Hrím hefur flutt í nýtt aðsetur á
Smiðjuveg 5, Kópavogi (grá gata),
sími 544 2020, fax 544 2021.
Ört vaxandi fyrirtæki
í miðbænum óskar eftir
Starfskrafti til skrifstofustarfa
Kunnátta á Navision skilyrði.
Öflugu sölufólki
Verður að geta hafið störf sem fyrst.
Þar sem að starfið felur í sér mikil félagsleg
samskipti, er skilyrði að umsækjendur hafi
reynslu af slíkum störfum, séu hæfir í íslensku
og öruggir í framkomu.
Umsóknir sem að tilgreina aldur, menntun og
fyrri störf berist auglýsingadeildar Morgun-
blaðsins merkt: „Zink-2001", fyrir 10. febrúar.