Vísir - 24.01.1979, Blaðsíða 9

Vísir - 24.01.1979, Blaðsíða 9
9 vtsm Miövikudagur 24. janúar íí»79. Að borga sama reikn- inginn tvisvar sinnum Skyldu tekjur Kaupfélags Skagfiröinga vera þaö rýrar aö þaö þurfi aö innheimta reikn- inga viöskiptavina sinna tvisvar sinnum? Ég vil vekja máls á þessu, þvi ég varö fyrir þessu nýlega. Ég fékkdómkvaöningufrá lögfræö- ingi Kaupfélagsins afhentan af lögreglu staöarins. 1 kvaöning- unni kemur fram, aö mér sé stefnt fyrir dóm vegna upphæö- ar sem nemur 45.520 kr. ásamt álögöum 8% vöxtum fyrir hvern byrjaöan mánuö frá áramótum 1978. Þessa sömu upphæö greiddi ég aö fullu ásamt vöxtum fyrir umrædd áramótog var reikn- ingnum þar meö lokaö. Einnig má koma fram, aö þennan leik var einnig reynt aö leika viö systur mina á sföasta ári. Er bókhald Kaupfélagsins svo lélegt, aö svona lagaö geti átt sér staö? Hvaö varö um þann pening, sem ég greiddi Kaup- félaginu fyrir rúmu ári siöan? Hvar er hiö mikla skipulag hjá Kaupfélagi Skagfiröinga? Ég vona aö þessi skrif mín veröi til þess, aö fólk fari aö hugsa um hvernig hin mikla stofnun, Kaupfélag Skag- firöinga, er rekiö. Hiö einvalda liö á skrifstofu Kaupfélagsins viröist sofa viö vinnu slna og þaö fuil-fast aö mér finnst. Aö endingu vil ég segja þaö, aö ef ég verö neyddur meö dómi til aö greiöa þessa upphæö i annaö sinn, þá tek ég því ekki meö þegjandi þögninni. Ólafur Jónsson Skagfiröingabraut 11 Sauöárkróki Bein lína Aö sögn bréfritara er mikiö atvinnuleysi hjá iönaöarmönnum þessa dagana. Við sem heima sitjum Mig langar til aö koma eftir- farandi spurningu á framfæri við hæstvirtan iðnaöarráö- herra: Hvað hyggst iönaðarráðherra gera i þvl ástandi, sem nú ríkir I atvinnumálum iðnaðarmanna? Atvinnuleysi hefur boöiö stór- um hluta iönaöarmanna aö sitja heima svo vikum skiptir. Kauplausir og leitandi aö ann- arri vinnu, til sjósoglands, sem ekkierhægt aö fá (hérlendis). Gaman þætti okkur iönaöar- mönnum, sem heima sitjum, að heyra skoöanir iönaöarráöherra á þessu ástandi. S. Jóhannesson 8727-7054 Rimhagir menn hafa gjarnan sent þættinum llnu og nú bætist Einn Einarr I hópinn. Ljóö sitt nefnir hann: „Bein llna til viöskiptaráðherra”. Er þaö samiö I tilefni af útvarpsþætti, en þó án beins samhengis. Gott kvöid, ráöherra, ég gleöst yfir frama þinum. Getur þú sagt mér eitthvaö um viöskipti landsins? Hafa þau kannski þá hverfulu náttúru sansins aö hverfa úr greipum þér, krepptum aö uppruna slnum? Fasteignasalana teygöir þú sundur og saman þótt segöust þeir oft hjá þér gömlu frasana þekkja Þaö er oft svo auövelt aö álasa, ljúga og blekkja, en auövitaö finnst þér aö öllu jafn helvfti gaman. Þótt bein sé llnan er upphaf hennar og endir aöeins tvö orö, sem aldrei ná saman aö rlma. Og gömul kona, sem núna á ókeypis sfma, er utan viö sig og rugluö, og patar og bendir. Af sjálfsbjargarviöleitni almúgans sál þina kelur, þú sagöir aö nær væri aö hlú aö þeim fjölda sem ieigir. Sjálfseignarhúsbændur i þlnu riku eru feigir, en alla sem leigja i arma vors rfkis þú felur. Bein lina til viðskipta- ráðherra, Svavars Gestssonar, varð Eini Einari að yrkisefni. Mér oft þykir gaman aö glugga I blaöiö þitt „Viljann” og ganga úr skugga um aö skoöanir þlnar ei breytist. En er sem mér heyrist, aö örlltiö hugsjónin þreytist og ætlar þú kannski aö ganga af trúnni eins og Kiljan? UMBOÐSMENN VÍSIS á Suóurlandi og Reykjanesi Eyrarbakki Jónína óskarsdóttir Bergi Simi 99-3353 Gerðar-Garði Katrln Eirlksdóttir Garöabraut 70 simi 92-7116 Grindavik. Edda Hallsdóttir Efstahrauni 18 simi 92-8478 Hafnarfjörður Gúörún Asgeirsdóttir Garðavegi 9 simi 50641 Hella Auöur Einarsdóttir simi 99-5043 Hveragerði Sigriöur Guöbergsdóttir Þelamörk 34 simi 99-4552 Hvolsvöllur Magnús Kristjánsson simi 99-5137 Keflavik. Agústa Randrup Ishúsastig 3 simi 92-3466 Mosfellssveit Sigurveig JUIhisdóttir Arnartanga 19 simi 66479 Sandgerði Valborg Jónsdóttir Túngötu 18 simi 92-7474 Selfoss Báröur Guömundsson Fossheiöi 54 simi 99-1335-1425 Stokkseyri Dagbjört Glsladóttir Sæbakka simi 99-3320 Vestmannaeyjar Helgi Sigurlásson Sóleyjargata 4 simi 98-1456 Þorlákshöfn Franklfn Benediktsson Veitingastofúnni simi 99-3636 HÁRAEEDSLUSTOFAN EUFFARSTÍG KUmRSTÍG 29 Opið á föstudögum frá 9—7 og laugardögum frá kl. 9-12. TÍMAPANTANIR f SÍMA 13010 Tökum að okkur viðgerðir og nýsmíði á fasteignum. Smíðum eldhusinnréttingar ásamt breytingum og við- gerðum á eldri innréttingum. Gerum við leka vegna steypugalla Verslið við ábyrga aðila. Trésmíðaverkstæðið Bergstaðastræti 33 simi 24613 og 41070 OPID KL. 9—9 Allar skreytingar unnar af fagmönnum. Nmg bllailasBI a.m.k. ó kvoldln MIOVlfWIMIR II M N \RM K 1 I I Simi 12717 '\V Smurbruuðstofan BJÖRNÍNN Njólsgötu 49 — Simi 15105

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.