Vísir - 20.02.1979, Page 5
5
VÍSIR
Þriðjudagur 20. febrúar 1979.
...Jfggg!gg
| g&!|
Bragi Guömundsson á Renault 5TL ekur léttan eftir isbrautinni f
isaksturskeppni Bifreiðaiþróttaklúbbs Reykjavikur. Hann hafnaöi I 3.
sæti I keppninni.
ísoksturskeppnin hjá Úlfarsfelli
BMW í FYRSTA SÆTI
Alls tóku 19 bilar þátt i
isaksturskeppni Bifreiöaiþrótta-
klúbbs Reykjavikur, sem haldin
var á Leirtjörn undir úlfarsfelli.
Sigurvegari varð Jón S.
Halldórsson á B M W 2002, meö
heildartimann 3 min. 48,7 sek.
Viðar Halldórsson á Mazda 929,
með heildartimann 3 min. 58,8
sek. var i öðru sæti og i þriðja sæti
var Bragi Guðmundsson á Ren-
ault 5TL með heildartimann 4,001
min.
Eknar voru tvær mismunandi
brautir og leyfilegur var aðeins
venjulegur útbúnaður blla i snjd,
nagladekk eða keðjur.
Keppni þessi þótti takast mjög
vel og hefur Bifreiðaiþrótta-
klúbbur Reykjavikur I hyggju að
halda aðra slika isaksturskeppni
fljótlega.
—ÞF
Hitaveituframkvœmdir
hafnar á Akranesi
Nú eru hafnar framkvæmdir
viö fyrsta áfanga hitaveitu Akra-
ness. 1 þessum áfanga er um aö
ræöa fjarhitunarkerfi og veröur
kyndistööin staösett viö sjúkra-
húsiö.
Lagnir frá þessum fyrsta
áfanga hitaveitunnar verðá sett-
ar i stærstu stofnanirnar á
svæðinu, svo sem sjúkrahúsið,
iþróttahúsið og skólana, svo og I
80 íbúðarhús.
Akranes er stærsti þéttbýlis-
kjarni landsins, sem ekki hefur
hitaveitu. Til þessa hefur lang-
mest verið kynt með oliu og
nokkur hús með rafmagni.
Með síhækkandi oliuverði er
kyndingarkostnaður þvi orðinn
mjög mikill.
„Hitaveituframkvæmdir hafa
strandað á þvi að fá vatnsréttinn i
Deildartunguhver, en þaðan mun
aðalæðin koma” sagöi Valdimar
Indriðason, forseti bæjarstjórnar
Akraness.
„Það er orðið eitt brýnasta
hagsmunamál Akurnesinga aö fá
þennan vatnsrétt, hvort sem hann
er keyptur eða tekinn eignar-
námi. Við vonum, að rikisvaldiö
gangi nú fast i að kippa þessu I
liðinn.
Við erum inni á lánsf járáætlun,
svo framkvæmdir við að virkja
hverinn geta hafist strax og leyfi
fást.
Ef unnið er að þessum málum
eins og vera ber, ætti hitaveitan
að vera komin i gagnið á árinu
1981”, sagöi Valdimar
Indriðason.
—ATA—
Ágóði af jólakon-
sert 1.6 milljónir
í vetur var haldinn jólakonsert i Háskólabiói til
styrktar Meðferðarheimilissjóði fyrir einhverf
börn. Alls gáfu um eitt hundrað manns vinnu sina
á hljómleikunum i þágu þessa málefnis.
Nú hafa aðstandendur kon- Tekjur af jólakonsertinum
sertsins afhent fé það sem inn urðu 2,8 milljónir, gjöldl,6, þar
kom og hafa verið keypt fyrir af 1,1 milljón I húsaleigu fyrir
það verðtryggð spariskirteini Háskólabió.
rikissjóðs 1978 að upphæð 1,2 Mismunurinn var 1.211.664
milljónir króna. krónur. —JM
Gjafaféö afhent. Frá vinstri: Páll Asgeirsson, yfirlæknlr, Ómar
Einarsson, ftr., Guöni Garöarsson, form. Umsjónarfélags ein-
hverfra barna, Björgvin Halldórsson, tónlistarmaöur, Ómar Valdi-
marsson, blm. og Jón Ólafsson, forstjóri.
Svo kemur það ótrúlega
Verðið:
Station kr. 2.150.000.-
Sedan kr. 1.950.000.-
Dragið ekki að panta bil
Til afgreiðslu strax
Hafið samband við sölumenn okkar
TRABANT/WARTBURG UMBOÐIÐ
Vonarlandi v/Sogaveg Síimar 84510 84511
Byggður á grind með 65 ha. tvígengisvé! (Gamla Saab-vélin)
Komið, skoðið og kynnist þessum eftirsóttasta
bil austantjalds.
Gormar á öllum hjólum
og bíllinn því dúnmjúkur
í holum og eiginleikar
bílsins i lausamöl
eru frábœrir.