Vísir - 20.02.1979, Side 9
VISIR Þri&judagur
20. febrúar 1979.
„Ekki vildi ég hafa
þá um borð....”
Einn þreyttur
hringdi:
„Er ekki mál að linni hjá
blessuðum stjórnmálamönnun-
um og þeir fari að snúa sér aö
þvf að leysa þau vandamál sem
við blasa.
Yfir okkur er að skella ollu-
krepþa og atvinnuleysi og á
meðan deila stjórnarflokkarnir
um hvort veriö sé að fara eftir
tillögum þeirra eða ekki.
Eins og ekki liggi ljóst fyrir
hver vill hvað? Ólafur ætlaði á
höggva á hnútinn með efna-
hagsfrumvarpinu en þá þurftu
alþýðubandalagsmennirnir að
hlaupa upp til handa og fóta, og
fyrir jólin voru það blessaðir
kratarnir.
Er það nema von að maður
ruglist i þessu öllu saman': Ekki
vildi ég vera formaður á skipi
og hafa ráðherra I skipsrúmi.”
Joshua Nkomo er ekki i miklu uppáhaldi hjá bréfritara.
Nkomo er skepno!
J.H. skrifar:
Fyrir skömmu gerðist sá
viðurstyggilegi atburður, eða
réttara sagt glæpaverk, að
glæpasamtök Nkomos í Ródeslu
skutu I annað sinn á stuttum
tlma óvopnaða flugvél niður.
Flugvélin var með 50 farþega og
hrapaði hún þegar til jarðar og
allir fórust.
Ekki er langt siðan svipað ill-
virki var unnið. Þá komust 10-12
farþegar af, særðir og illa til
reika, en menn hetjunnar
Nkomos myrtu vesalings fólkið
I stað þess að hlúa að þvi eins og
siðaðir menn hefðu gert.
Nú segir Nkomo, að ákveðinn
herforingi I Ródesiu hafi átt að
vera með vélinni, en þar sem
hann var ekki með, þá eigi hann
sök á þessum morðum.
Allir hljóta að sjá, að Nkomo
er brjálaður ofstækismaður,
sem á að fordæma og helst að
láta skepnuna svara til saka.
Ég vil spyrja utanrikisráð-
herra, sem ekki hefur virt okkur
lesendur Visis svars en einn
þeirra hvatti hann til að styöja
við bakið á Amnesty Inter-
national sem barðist fyrir lifi
Bhuttos; mótmælir hann aldrei
illvirkium eins og þessum i
Ródesiu? Eða væntanlegu
réttarmoröi á Bhutto?
Einnig má geta þess, að
kirkjan styöur þessar svo-
kölluðu frelsissveitir illmenna.
Eiga hvitir menn i Ródesíu
engan rétt?
Er verið að mis-
muna mönnum eftir
því hvar þeir búa?
Jóhann ólafsson,
Svarfaðardal, hringdi:
„Fjármálaráðuneytið hefur
gefið út lög um tekju- og eigna-
skatt með áorðnum breyting-
um.
Þetta er selt á einum stað I
Reykjavik. Fyrir þá sem búa úti
á landi er það erfiðleikum bund-
ið að nálgast það.
Mig langar til þess að þeirri
spurningu verði beint til þeirra I
fjármálaráðuneytinu hvers
vegna dreifingu á þessum bækl-
ingi er svo ábótavant.
Er hér ekki verið að mismuna
mönnum eftir þvi hvar þeir
búa.”
Svar: Vísir sneri sér til Þor-
steins Geirssonar skrifstofu-
stjórna fjármálará&uneytisins.
Hann sagði a& þessi bæklingur
væri gefinn út i svo sáralitlu
upplagi a& erfitt væri að dreifa
honum vi&a enda ekki búist viö
a& hann nyti almennra vin-
sælda.
Þetta væri einkum gefiö út
fyrir starfsfólk á skattstofum og
einnig væri þetta notafi af
tfe
8B tekieskatf i| eiwankatí
starfsmönnum á endurskoöun-
arskrifstofum.
Hins vegar gæti hver og einn
fengið þetta keypt og þyrfti aö-
eins a& hafa samband vi& fjár-
málará&uneyti&og gæti hann þá
fengiö sérprentun á lögum um
tekju- og eignaskatt senda i
póstkröfu.
SKYNDIMYNDIR
Vandaðar litmyndir
í öll skírteini.
bama&fjölsk/ldu-
Ijosmyndir
AUSTURSTRÆTI 6
SIMI 12644
ÁN FL.ÚOR !
ÁN SWPIEFNA!
Að frumkvæði sænska heilbrigðisráðuneytisins var REN I
MUN vísindalega rannsakað í Vipeholms sjúkrahúsinu í
Lundi.
Árangurinn var svo jákvæður að nú mæla sænskir tann-
læknar og sænski tannlæknaskólinn með REN I MUN til
enn betri tannhirðu.
Góð feeilsa ep gæfa feveps iaaRRS
TIL SÖLU
MULTILITH 1250 L & W. Stærð 28x43 sm.
Vélin kemur beint frá verkstæöi I Bandarikjunum, þar sem hún
hefur veriö endurbyggö. (Er sem ný.)
Vélin er meö nýju keöjufrálagi, og er væntanleg til landsins eftir
nokkrar vikur.
Þeir sem óska nánari upplýsinga, sendi tilboö til auglýsinga-
deildar VÍSIS merkt MULTILITH.
TTT
VESTUR-ÞYSKU
LITSJÓNVARPSTÆKIN
Bræðraborgarstig1-Simi 20080-
(Gengiö inn frá Vesturgötu)