Vísir - 20.02.1979, Síða 14
14
Þri&judagur 20. febrúar 1979. VISLR
ANTÍK RUGGUSTOLL
Nýsmíðaðir Antik stólar eru fljótir að
auka verðgildi sitt, þeir eru eftirsóttir
og því góð verðtrygging.
Ný framleiðsla á gersemum gamla tímans.
Klassískur 18. aldar stóll.
Góður gripur og prýði á hverju heimili.
Leitið eftir nánari upplýsingum.
Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er.
Verslunin
VIRKA
Hraunbæ 102 B - Sími 75707
Húsbyssjendur
ylurinn er
" óður
Afgreiðum einangrunarplast á
Stór-Reykjavíkursvæðió frá
mánudegi — föstudags.
Afhendum vöruna á byggingarstað,
viðskiptamönnum að kostnaðar
lausu. Hagkvæmt verð og
greiðsluskilmálar
við flestra hæfi.
Borgarplast hf
Borgarneti sfm.93 tsto
knoTd 03 hclgammi 93 735S
Greint verði milli
arðsemissjón-
armiða og félags-
legra sjónarmiða
— segir Geir Hallgrímsson formaður Sjálfstœðisflokksins
Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
„tsamþandi viö launamál, þá
leggjumj vi&' sjálfstæ&ismenn
áherslu á a& frjálsir samningar
veröi teknir upp milli aöila og
fáum ekki skiliö, hvernig mál-
svarar stjórnarsinna, sem
gengu til kosninga undir kjör-
oröinu „samningana i gildi”
geta unaö viö þaö aö engir
samningar eru i gildi og kaup og
kjör ákveöin einhliöa af stjórn-
völdum”, sagöi Geir Hallgrlms-
son leiötogi stjórnarandstöö-
unnar, þegar Visir ræddi viö
hann um frumvarp ólafs
Jóhannessonar forsætisráö-
herra um efnahagsmál.
Geir sagöist telja eölilegt aö á
það yröi reynt hvaö aðilar gætu
komiö sér saman um viö samn-
ingaboröið, þar á meöal fyrir-
komulagvisitölugreiöslna. „Viö
mælum meö þvi aö aöilar miöi
visitöluna viö það, aö óbeinir
skattar og niöurgreiöslur séu
ekki inni I henni og tekiö sé tillit
til viöskiptakjara”, sagöi hann.
Samræma þarf stefnu
ríkis og annarra aðila
— Hvaða skoöun hefuröu á
þvi ákvæöi I frumvarpi forsætis-
ráöherra aö skylda rikissjóðs til
fjárframlaga til sjóða eöa ein-
stakra verkefna skuli tekin til
endurskoöunar meö það fyrir
augum aö framvegis veröi slik
fjárframlög ákveðin meö fjár-
lögum ár hvert?
„Þarna er um stefnuyfirlýs-
ingu að ræöa sem ilt af fyrir sig
er góöra gjalda verö, en hefur
ekki sjálfstætt gildi á þessustigi
málsins. Viö sjálfstæöismenn
höfum bent á aö nauösynlegt
væri aö draga lír sjálfvirkri lög-
boðinni skyldu rikisins til fram-
laga úr rikissjóöi, þannig aö viö
viljum hverfa aö þvi aö slik
framlög veröi ákveöin viö gerö
fjárlaga hverju sinni. En I þessu
sambandi veröur aö hafa i huga,
aö slik framlög eru oft og tiöum
bundin gagnframlögum frá öör-
um a&ilum og þarf aö vera sam-
ræmi I stefnu ríkisvaldsins og
annarra aðila viö þá endurskoð-
un sem fram færi”.
Fögnum stefnubreyt-
ingunni
— 1 frumvarpinu er talaö um
aö niöurgreiösla landbúnaöar-
afuröa Ur rikissjóöi skuli ekki
vera hærri en svo, aö Utsöluverö
hverrar afuröar til neytenda
veröi lægra en sem svarar veröi
til framleiöenda. Hvaö finnst
þér um þetta?
,,Þaö hefur veriö stefna okkar
sjálfstæöismanna aö reglan sem
fram kemur I greininni væri há-
mark niöurgrei&slu hverrar
landbúnaöarafuröar fyrir sig en
viö teljum vafasamt aö fara upp
i þaö hámark. En þaö ber aö
fagna stefnubreytingu nUver-
andi stjórnarsinna i þessum
efnum, vegna þess, aö aöalinn-
takiði efnahagsaögeröum rikis-
stjórnarinnar bæöi viö upphaf
ferils sins i september og aftur
1. desember voru hækkaðar
niöurgreiöslur sem nU á að
lækka aftur”.
— ólafur mi&ar viö aö heild-
artekjur og Utgjöld á fjárlögum
haldist innan marka sem svara
til 30% af þjóðarframleiöslu ár-
in 1979 og 1980. Ertu sáttur viö
þaö?
„Viö viljum takmarka útgjöld
rikisins og setja þak á þau miö-
aöviö þjóöarframleiöslu eins og
fyrrverandi rikisstjórn haföi á
stefnuskrá sinni. Viö vorum
komnir niöur fyrir 28% af þjóö-
arframleiöslu meö rikisútgjöld-
in og má þá geta nærri aö okkur
finnst ekki rétt aö hækka þetta
þak eins og þarna er gert ráö
fyrir. Viö teljum þaö raunar
allsendis óviöunandi”.
Verðbólgubraskarar
bjarga sinu.
— Hvaö meö eignakönnun-
ina?
„Viö erum á móti henni. Af-
sökunin er aö ná skuli til verö-
bólgubraskara, en ég ér þeirrar
skoðunar aö þeir muni bjarga
sinu meö einhverjum hætti.
Hinsvegar muni slik eignakönn-
un, og f yrir því er fyrri reynsla,
verða til aö koma róti á fjár-
málalif, draga úr sparna&i og
ver&a þannig heilbrigðu
atvinnulifi og sparna&armynd-
un i landinu til tjóns”.
— 1 frumvarpinu er gert ráð
fyrir aö á þessu ári skuli rikis-
stjórnin setja nýjar reglur um
útlán fjárfestingalánasjóöa, lán
veröi ákveöin meö sem hag-
kvæmastri nýtingu þeirra og
hver einstök lánveiting verði
ákveöin eftirsamræmdum regl-
um um arösemismat. Er þetta i
samræmi viö þinar skoöanir?
„Þetta ákvæöi er þegar i lög-
um en hefur eldti gengiö vel aö
framfylgja þvi og tryggja þessa
samræmingu þó þaö hafi snúist 1
rétta átt i tið fyrrverandi rikis-
stjórnar. Þessistefnumörkun er
út af fyrir sig I fullu samræmi
viö stefnuyfirlýsingu þá sem
við sjálfstæöismenn munum
kynna á fundi meö fréttamönn-
um. Viö leggjum áherslu á a&
greina milli arösemissjónar-
miöa annarsvegar og félags-
legra sjónarmiöa hinsvegar og
viljum fella aö hluta lánveiting-
ar til húsnæöismála undir fé-
lagsleg sjónarmiö”.
Viljum gjörbreyta
fyrirkomulagi afurða-
lána
— Hva&a skoðun hefuröu á
þvi aö innlánsbinding Seöla-
bankans fari úr 25% i 30% ?
„Við erum á móti þessari inn-
lánsaukningarbindingu og telj-
um stefnt i algera lánsfjár-
skömmtun meö þeim hætti. Við
viljum gjörbreyta fyrirkomu-
lagi afur&alána þannig, aö
Seölabankinn endurkaupi ekki
afuröalán viöskiptabankanna
og þvi veröi ekki um fjárbind-
ingu aðræöa til aö standa undir
slikum fjárbindingum Seðla-
bankans. Aftur á móti leggjum
við til aö opnuð veröi leið til inn-
lánsbindingar I tengslum viö Ut-
lán viöskiptabankanna og er
slik binding hugsuö til þess aö
standa aö baki myndun
gjaldeyrisvarasjóös”, sagöi
Geir Haligrimsson. -JM