Vísir - 20.02.1979, Qupperneq 24
Ný leið inn f Norðurlandaráð til umraeðu:
Olof Palme, fyrrum forsætisráöherra Sviþjóöar, var f gær kjörinn tii þess að taka við störfum forseta Noröur-
landaráðs næsta árið, en þvi embætti hefur Trygve Bratteli, fyrrum'forsætisráðherra Noregs, gegnt frá þvf
á síðasta þingi ráðsins. Myndin er tekin af þeim Palme 0g Bratteli á Norðurlandaráösþinginu I Stokkhólmi.
Fá Fœreyingar aðild
að ráðherraneindinni?
Frá Eliasi S. Jónssyni, fréttamanni
Visis, i Stokkhólmi i morgun:
Verið er að kanna,
hvort mögulegt sé að ná
samstöðu um að veita
Færeyingum einhverja
aöild að ráðherranefnd
Norðurlandaráðs, sam-
kvæmt áreiðanlegum
heimildum VIsis hér I
Stokkhólmi.
Spurningin um sjálf-
stæða aðild Færeyinga að
Norðurlandaráði hefur
verið rædd á vettvangi
ráðsins undanfarin ár, en
sjálfstæð aðild þeirra hef-
ur ekki hlotið nægjanleg-
an stuöning.
Á fundinum, sem hófst
síödegis I gær i Stokk-
hólmi, hafa Færeyingar
tvo fulltróa i dönsku
sendinefndinni, en þeir
eru frá Sambandsflokkn-
um og bjóöveldisflokkn-
um. Auk þess á færeyska
landstjórnin einn fulltriia
I dönsku rikisstjórnar-
sendinefndinni.
Erlendur Patursson,
fulltrúi Þjóðveldisflokks-
ins i Færeyjum, hefur
ásamt nokkrum öðrum
þingmönnum flutt tillögu
um að Færeyingar fái
sömu stöðu og rikin
fimm, sem hafa beina og
fulla aðild að Norður-
landaráði, en lögfræði-
nefnd ráðsins befur að
meirihluta til lagst gegn
breytingum á stöðu
Færeyinga innan ráðsins
og fer þar aö vilja
danskra stjórnvalda.
Samkvæmt heimildum
VIsis er nú reynt að finna
einhverja málamiðlun;
mun þá sérstaklega vera
rætt um þann möguleika
aö Færeyingar fái ein-
hverskonar aðild að ráð-
herranefndinni, en að
ekki verði nú gerðar nein-
ar grundvallarbreytingar
á aðild Færeyinga að ráð-
inu sem slikri. Þessi hug-
mynd mun hafa veruleg-
an hljómgrunn meðal
Islensku fulltrúanna, en i
morgun var ekki ljóst
hver niðurstaðan yröi.
Tillaga Erlends
Paturssonar er á dagskrá
Norðurlandaráðsins á
föstudaginn.
—ÞM/ESJ, Stokkhólmi
Hroyttiverk slasaðs mannsi
Skreið 150 m
lœrbrotinn
Það slys varö rétt við flugvöllinn á Patreksfirði að bfll
fauk út af veginum, rann niður eftir snarbrattri hlið og
fram af 12 metra háu bjarginiður I fjöru.
ökumaðurinn slasaðist
talsvert, lærbrotnaði m.a.
illa.
Þar sem billinn lá eftir
slysið, var ógjörningur að
sjá hann og greip bilstjór-
inn, þótt slasaður væri, til
þess ráðs að skriða út úr
bilnum og koma sér i aug-
sýn. Til þess þurfti hann að
fara út um afturgluggann,
en þaðan var nokkurt fall
niður á jörðina. Hann
skreið siðan eftir fjörunni
um 150 metra leið og
tveimur. timum siðar kom
fólk auga á hann nálægt
veginum.
Visir spurðist fyrir um
liðan mannsins, sem liggur
á Borgarspitalanum, og
var hún sögð góð eftir at-
vikum.
—SS
CHILEMADUR
SÆKIR UM
HÆU SEM
PÓLITÍSKUR
FLÓTTAMADUR
Er með nýtf vegabréf
„Chiiebúinn kom hingað sem ferðamaður, þegar hann
kom inn i landið en ekki til að beiöast hælis sem pólitisk-
ur flóttamaöur,” sagöi Arni Sigurjónsson hjá út-
lendingaeftiriitinu, þegar Visir innti hann eftir Chile-
manninum Julio Ocares. sem hefur beðist hælis sem
flóttamaöur.
Arni sagði að þegar
Ocares kom inn t landið,
hafi hann verið með nýlegt
vegabréf, gefið út af sendi-
ráði I Chile I Kanada kvaðst
Arni þvi ekki I fljótu bragði
sjá ástæðu til þess að Chile-
búinn beiðist hér hælis.
Ennfremur hefði hann ekki
haft atvinnuleyfi hér á
landi en hafi þó verið búinn
að vinna hér I hálfan mán-
uö, áöur en hann sótti um
leyfiö.
Að lokum sagði Árni að
málOcaresværiltil athugun-
ar I dómsmálaráðuneytinu
og þyrfti eflaust að athuga
það gaumgæfilega áöur en
hæli hér verði veitt. Ekki
vegna þess að hann sé
Chilebúi heldur vegna
þeirra forsendna sem hann
kemur á inn i landið.- HR
Alþýöubandalagíð um
efnahagsmálafrumvarpíð:
„Leiðir tii
aukningar á
kerfísvaldi"
,,Það kom greiniiega fram á þessum fundi, að það er
mikil andstaða gegn ýmsum ákvæðum, sem er að finna I
frumvarpi ólafs Jóhannessonar forsætisráðherra, og
það eru uppi sterkar kröfur um að fá þeim breytt”, sagöi
Lúðvik Jósepsson formaður Alþýðubandalagsins I
morgun, er Vísir ræddi við hann um fund Alþýðubanda-
lagsins I gærkvöldi.
„Hins vcgar kom það
einnig greinilega fram, aö
Alþýðubandalagsmenn
ætlast til þess, aö flokkur-
inn reyni til þrautar að ná
samkomulagi viö sam-
starfsflokka sina um
breytingar”, sagöi Lúðvik.
„1 frumvarpinu felst
gifurleg aukning á kerfis-
valdi helstu embættisstofn-
ana I landinu og skeröing á
valdi hinna kjörnu lýð-
ræðislegu stofnana. Þetta
er atriði, sem viö leggjum
áherslu á, að verði breytt”,
sagði ölafur Ragnar
Grimsson, formaður fram-
kvæmdastjórnar Alþýðu-
bandalagsins.
„Þær ágætu stofnanir
sem sömdu þetta frumvarp
reyna að binda I lög
aukningu á valdi sinu”,
sagði ólafur Ragnar.
„Það kom skýrt fram á
fundinum, að við erum
reiðubúin til að vinna að
þvi að þessi stjórn haldi
áfram, en þá á þeim grund-
velli aö þær forsendur sem
þetta stjórnarsamstarf
byggir á, séu I heiðri hafð-
ar”, sagði Ólafur.
Helstu galla frumvarps-
ins taldi Ólafur vera i
fyrsta lagi ákvæði um
sjálfvirka kjaraskerðingu.
1 öðru lagi tillögur um sam-
dráttaraðgerðir, sem bæt-
ast við ofan á veiðitak-
markanir, sem fiski-
fræðingar hafa lagt til, og
oliuhækkaninar. „Með
þessu erum við komin með
örugga atvinnuleysisfor-
múlu”, sagði Ólafur Ragn-
ar. KP/JM
Þetta var
- sagði
erfiður tími"
„Þetta var ægilega
mikill sjór sem reið yfir
skipið að framan og allt
ætlaði um kollað keyra,”
sagði Michele Luise skip-
stjóri á Edera I morgun.
Visismenn fóru um
borð í italska skipið I
morgun I fylgd tollvarða
þar sem það liggur á ytri
höfninni en þangaö kom
Edera um miðnætti I
fylgd Bifrastar.
Skipið hafði lestaö 39
þúsund tonn af málm-
grýti I Narvik I Noregi og
átti að sigla með það til
Corpus Christi i Mexikó-
flóa. A laugardag fékk
það yfir sig brotsjó og
kallaði á hjálp.
Luise skipstjóri var
þreyttur eftir erfiða sigl-
ingu til Reykjavikur en á-
nægður með að allt hafði
gengið vel. Útlitið hefði
verið svart um tima þar
sem skipið var að veltast I
slæmu veðri og miklum
sjó með opna lest eftir að
hnúturinn reið yfir.
Edera er skráð i Napóll
og siðdegis I dag eru tveir
menn frá útgerðinni
væntanlegir hingað til
lands og munu þeir skoða
skemmdirnar og siðan
verður tekin ákvörðun
um að hve miklu leyti við-
gerðverðurframkvæmd hér
Edera er 40 þúsund
lesta skip og um 230 met-
rar að lengd. Áhöfn er um
30 manns. „Þetta var
erfiður timi,” sagði Luise
skipstjóri, er við kvödd-
um.” — SG
Michele Luise skipstjóri lýsir brotsjónum.
(Visism. GVA).