Vísir - 23.03.1979, Blaðsíða 6

Vísir - 23.03.1979, Blaðsíða 6
6 VISIR Föstudagur 23. mars 1979. Umsjón: Guðmundur Pétursson skap í meðferð fanga Yfir fjörutiu lögreglulæknar á Noröur-lrlandi hafa lýst yfir stuðningi við Robert Irwin, starfsbróður þeirra, sem hrundið hefur af stað pólitiskri deilu með fullyrðingum um, að lögreglan beiti meinta hryðjuverkamenn pyndingum og harðneskju. A fjögurra klukkustundar fundi i Belfast i gærkvöldi fordæindu læknarnir það, sem þeir kölluðu tilraun til að rægja Irwin lækni og gera litið úr fullyrðingum hans. — Skoruðu læknarnir á yfirvöld að verða við kröfum um að ljúka opinberri rannsókn á meðferð lögreglunnar á gæsluföngum þar i umdæminu, en Harry Bennett dómari hefur gengið mjög fram i þvi, að slik rannsókn verði gerð. Komið hefur fram, að menn, sem grunaðir eru um að vera hryðjuverkamenn, hafi verið pyndaðir, meðan þeir voru i haldi lögreglunnar. Hefur af þvi verið lagt til, að yfirheyrslur verði teknar upp á sjónvarpssegulbönd. Lögreglulæknir, sem starfaöi með her og lögreglu, sagði af sér i gær til þess að andmæla meðferð á föngum. tSRAEL írsklr læknar andmæla hrotta- Fiugsliðrinn varö bráðKvaddur Flugstjóri Júmbó-farþegaþotu leið út af örendur fram yfir stjórntæki þotunnar, þegar hún var á leið frá Honolúlú til Dallas i vikunni. Um borð i vélinni voru 334 farþegar. Sjálfstýribúnaðurinn var stillt- ur á, svo að enginn varð neins var, nema þeir, sem voru i stjornklefanum Flugstjórinn var 59 ára gamall, og var banameinið hjartaslag. — Kona hans starfaði sem flug- freyja um borð, en fékk ekkert aö vita, fyrr en vélin var lent. undlrrila samningana á 18 mánaða afmæll helmsóknar Sadats Skoðun Lurle „Nð jæ|a) Hann hluslar hð alljent begjandH” Sadat Egyptalandsforseti segir aö mörg vandamál blði enn óleyst eftir að friðarsamningarnir hafa verið undirritaöir. — „Viö höfum Jerúsalem og mörg önnur vandamál viö að glima”, sagði hann, en kvaöst þó vongóöur um, að úr mundi rætast. Taldi hann rétt, að úr þessum ágreinings- málum yröi leyst liö fyrir liö. Menachem Begin, forsætisráð- herra Israels, leggurl dag af stað til Washington til þess að binda formlega endi á þriggja áratuga fjandskap ísraela og Egypta. A mánudaginn munu þeir allir þrir, Jimmy Carter Bandarikja- forseti, Anwar Sadat Egyþta- landsforseti og Begin undirrita friðarsamnngana. — Verða þá sléttir átján mánuðirliðnir frá þvi, að Sadat Egyptalandsforseti fór i hina sögulegu heimsókn sina til Jerúsalem. En i gærkvöldi gagnrýndi öryggisráð Sameinuöu þjóöanna harðlega landnám Israelsmanna á hernumdu svæðunum og setti á laggirnar þriggja manna ne&id til þess að rannska þáhli&mála. — Israel visaði hins vegar ályktun Rlgnlngavarnlr Tryggt verður, aö sól skini i heiði daginn, sem ölympiuleik- arnir 1980 verða settir, eftir þvi sem Moskvu-útvarpið sagði i gær. Undirbúningsnefnd leik- anna mun fá til sinna nota flug- sveit, sem ræður yfir tækni til þess að eyða regnskýjum. Ef’ann tekur að þykkna I lofti, verða vélarnar sendar á loft til að framkalla rigningu úr skýj- unum, áður en þau ná leikvang- inum I Moskvu. ráösins á bug og kvaðst ekki mundu leyfa nefndinni að koma inn á hernumdu svæöin. tsraelska sjónvarpið skýrði frá þvi i gærkvöldi, aö tsraelætlar aö byrja meiriháttar landnáms- Lögreglan í Haag vann I morg- un aö þvi aö reyna að upplýsa, hverjir væru moröingjar breska sendiherrans sir Richard Sykes sem skotinnvarþartil bana i gær fyrir utan heimili sitt. Tveir breskir lögregluforingjar fóru til Hollands imorgun til þess að taka þátt i rannsókninni með 25 hollenskum rannsóknar- lögreglumönnum, sem að henni vinna. Grunur hollensku lögreglunnar er sá, að morðingjarnir séu öfga- menn frá Noröur-lrlandi, sem mótfallnir eru stjórn Breta þar. Hinsvegar hefur hún ekkert, ekki einu sinni ónákvæma lýsingu sjónarvotta, sem bent gæti henni á morðingjana. áætlun á vesturbakka árinnar Jórdan, um leiö og samningarnir hafa verið undirritaðir við Egyptaland. Var i fréttinni sagt, að stofnaðar yrðu að minnsta kosti tiu nýjar Utvarpsstöðvar. Sir Richard hefur verið sendi- herra Breta i Haag siðan I júni 1977. Aöur var hann yfir rannsókn þess opinbera á moröi breska sendiherrans i Dublin, Christoph- er Ewart-Biggs, 1976. Nngiundl siðnvarpaO Umræðum i fulltrúadeild Bandarikjaþings var i fyrsta sinn sjónvarpað beint núna i vikunni, en það þótti bragðdaufur dag- skrárliður, enda hittist svo á, að fyrir lágu einungis venjuleg af- greiðslumál. — Engar ráðagerðir eru uppi um að útvarpa fundum öldunga- deildarinnar. voru morö- ingjarnlr frá Irlandl?

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.