Vísir - 23.03.1979, Blaðsíða 13

Vísir - 23.03.1979, Blaðsíða 13
vi&ah Föstudagur 23. mars 1979. r™■"■■■ 17 SBREYTTUM OPNUNARTÍMA" seglr Gunnar Eydal, framkvæmdastjórl sambands Islenskra bankamanna „ Bankarnir hafa hafnað viðræðum við Samband ís- lenskra bankamanna um málið og telja að þetta sé mál sem þurfi ekkert að ræða viö sambandið", sagði Gunnar Eydal, framkvæmdastjóri SIB í samtali við Visi. Starfsmannafélög stærstu bankanna hafa lýst sig mótfallna fyrirhuguðum breytingum á lokunar- tíma banka og hefur SIB af því tilefni gefið út sér- stakt blað til að skýra sjónarmið sín. „Almennur vinnutími bank- amanna er frá niu til fimm” sag&i Gunnar. „Bönkum er lok- aö hálf fjögur og þó uppgjöri sé ekki lokið klukkan fimm skoöast sá timi sem unninn er fram yfir ekki sem aukavinna og viö erum hræddir um aö hann muni lengj- ast meö þessari tilhögun. Ef al- mennur vinnutimi færist út fyrir dagvinnumörkin er þaö atriöi sem varöar gildandi kjara- samninga og veröur þvi ekkil breytt nema meö samkomulagi viö gerö nýrra kjarasamninga eöa meö sérsamkomulagi viö SÍB. Þá bendum viö á ákvæöi i kjarasamningi starfsmanna bankanna sem hljóöar svo: Hafa skal samráö viö viökom- andi starfsmannafélag um meiriháttar breytingar á skipu- lagi opnunartima, umhverfi og starfsaöstööu”. Þetta samráö var hvorki haft viö Samband islenskra banka- manna sem eru heildarsamtök- in né starfsmannafélög ein- stakra banka. Viö höfum sent bönkunum Bankamenn eru á móti þvf aö opnunartimabankanna veröi breytt. ályktun stjórnar sambandsins þar sem þeim vinnubrögöum er mótmælt harölega aö engin samráö séu höfö viö stéttarfélag bankamanna um málið Sparnaöarnefnd hafi hvorki leitaö eftir hugmyndum SIB meðan málið var á ákvörðunar- stigi né hafi Samvinnunefnd bankanna sent tillögurnar til SIB til umsagnar, þrátt fyrir itrekaöar óskir þar um. Bankarnir hafa svaraö þessu meö bréfi þar sem hafnaö er viöræöum viö SÍB Þar segir, aö þeir telji aö fariö hafi veriö rétt og löglega aö þessum málum, og nákvæmlega i samræmi viö kjarasamninga starfsmanna bankanna og aö þeir sjái þvi ekki ástæöu til aö ræöa máliö frekar á þessum vettvangi. Eftir tvær vikur veröur haldiö þing StB sem er haldið á tveggja ára fresti og fer m& æösta vald i málefnum banka- manna og ég tel ekki óliklegt aö þaö veröi gerö einhver stefnu- markandi ályktun þar. En ég vil undirstrika aö breytingar sem geta haft áhrif á umsaminn vinnutima á ekki aö taka án samráös viö viökom- andi stéttarfélag”, sag&i Gunn- ar Eydal. —JM Frumvarp ðlals séO meö augum ASÍ: 5.5% minm kauphækkun Alþýöusamband lslands hefur sent frá sér fréttabréf um frum- varp Ólafs Jóhannessonar. Þar segir aö frumvarp forsætisráöherra feli I sér kjara- skeröingu. Þó óvissa sé um einstaka þætti megi reikna meö aö kauphækkunin 1. júnl veröi um 5,5% minni en samiö var um vegna eftirfarandi atriöa: Viöskiptakjararýrnun 3%, áfengi og tóbak 1/2% búvörufrádráttur, 1/2%, oliustyrkir 1/2% og veröbótaauki 1%. Skeröing launa I júnl veröi þvl 9350 krónur á 170.000 króna laun. 11.000 á 200.000 króna laun, 13. 300.000 króna laun. Viðskiptakjör 1 frumvarpi forsætisráöherra er miðað við að tekiö sé tillit til þeirra breytinga sem orðið hafa á viöskiptakjörum frá meöaltali ársins 1978. Samkvæmt spá um viðskiptakjör leiöir sú viðmiðun til 3% minni kauphækkunar 1. júni en samkvæmt kjara- samningum. Timabilið sem val- iö er til viömiöunar skiptir miklu máli sem sjá má af þvl aö ef miðað væri viö fjóröa árs- fjórðung 1978 yröu launin 0,48% lægri en ella. Oliustyrkir 1 frumvarpinu er gert ráö fyrir aö draga skuli frá hækkun verðbótavisitölu sem nemur þvi sem variö er til aö létta byröi þeirra, sem veröa fyrir kostnaðarauka vegna oliuverös- hækkunar. Þar sem frumvarpiö gerir ráð fyrir þvi aö tekiö sé tillit til ollu- vershækkunarinnar viö út- reikninga viöskiptakjara og tekjur launafólks lækkaöar sem þvi nemur, væri um tvöfalda kjaraskerðingu aö ræöa ef heimilin væru skattlögð aö auki til niðurfærslu á kostnaöi at- vinnurekenda. Afengi og tóbak 1 dag fáum viö ekki launahæk- un þótt áfengi og tóbak hækki þar sem þessar vörur eru ekki i veröbótavisitölunni. Ef svo hefði verið heföu veröbætur veriö hærri en raun varö á, þar sem áfengi og tóbak hafa hækkaö um 113% á samnings- tlmabilinu en önnur útgjöld um 75%. Frumvarpið gerir ráö fyrir aö þessar vörur veröi reiknaðar með en alltaf á gamla ver&inu. 750 á 250.000 krónur og 16.500 á Þannig munu laun ekki hækka þó áfengi og tóbak hækki, heldur verður hækkunin dregin frá hækkun framfærslukostnaðar viö hvern útreikning á verö- bótavisitölu. Búvörufrádráttur 1 kjarasamningum á undan- förnum árum hefur verið samiö um sérstakan frádráttarliö vegna launahækkana bænda. Launaliöurinn safnast upp meö timanum, sem dregur úr frá- dráttaráhrifunum. í frum- varpinu er gert ráö fyrir að þessi uppsöfnun falli niður, sem leiöir til aukins frádráttar sem 1. júni nemur 1/2%. Ætlunin er aö auka frádráttinn i fram- tiðinni meö þvi að hætta þessari uppsöfnun. Þetta er þaö sem átt er viö meö þvi aö setja grunninn á 100 viö hvern útreikning verð- bótavisitölu Verðbótaauki í júnlsamningunum 1977 var samiö um sérstakan verðbóta- auka, sem bætir þá kaup- máttarrýrnun, sem verður á þriggja mánaöa timabilinu milli útreiknings visitölubóta. Verðbótaaukinn veröur hærri, þvi fyrr sem verðhækkanir koma á timabilinu og er þetta meðal annars gert til að mæta tilhneigingu stjórnvalda til aö fresta veröhækkunum rétt fram yfir visitöluútreikning. Veröbótaaukinn er þeim mun hærri sem verðbólgan er meiri og lækkar meö minnkandi verö- bólguhraöa. Vegna verðbóta- aukans er kaup nú 1/2 % hærra en ella, en i frumvarpinu er lagt til að hlutfalliö haldist óbreytt framvegis. —JM Í5na&arbla&6 FRÉTTIR OG FAGLEGT EFNI. Iðnaðarblaðið birtir sérhæft efni fyrir þá sem starfa við iðnað. Þar er að finna faglegt efni og fréttir af því helzta sem efst er á baugi í íslenzkum og erlendum iðnaði. Iðnaðarblaðið segir frá tækninýjungum, framleiðslu- og innflutningstækifærum, verk- og tæknimenntun, rekstri, öryggismálum, launa- og kjaramálum, ásamt margvíslegu sérefni umJbyggingariðnað, mannvirkjagerð og framleiðslu. Iðnaðarblaðið er vettvangur íslenzks iðnaðar og birtir ítarlegri upplýsingar um iðnað, bæði í efni og auglýsingum, en nokkurt annað blað. Áskriftarsímar 82300 og 82302.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.