Vísir - 02.05.1979, Page 7
Tveir
ð NM
Tveir islenskir keppendur
taka þátt i Norðurlandamóti
karla i fimleikum sem fram
fer í Kallinge i Sviþjóð um
næstu helgi.
Þetta eru þeir Jónas
Tryggvason og Heimir
Gunnarsson, báðir úr Ar-
manni, og verða þeir fyrstu
keppendur íslands á NM i
fimleikum karla. Þeim til
aðstoðar á mótinu verður
Guðni Sigfússon, þjálfari.
Miíller
byrjar llla
Gerd Muller, v-þýski
knattspyrnukappinn kunni,
lék sinn fyrsta leik með
bandariska liðinu Lauder-
dale Strikers um helgina.
Ekki var frammistaða hans I
þeim leik neitt til að hrópa
húrra fyrir, og honum var
skipt útaf, á 77. minútu.
Strikers, með marga
kunna kappa innanborðs, t.d.
sjálfan George Best og Teo-
filo Cubillas frá Perú, yfir-
spilaöi Tampa Bay, sem var
mótherji liðsins, langtimum
saman úti á vellinum, en það
gekk litið uppi við mark
Tampa Bay. Og samkvæmt
þvi mátti Lauderdale Strik-
ers þola ósigur, 2:1.
gk—.
KPOl I
hðpinn
Hollenski landsliðsþjálfar-
inn I knattspyrnu, Jan
Zwartkruis, er búinn að velja
16 leikmenn til að leika gegn
Póllandi, en þjóðirnar mæt-
ast i Evrópukeppni landsliöa
á miðvikudagskvöldið.
Fyrirliðinn snjalli frá
Ajax, Ruud Krol, er á ný
kominn I hópinn, en hann lék
ekki meö er Hoíland sigraði
Sviss 3:0. Þá eru þeir I liðinu
á nýjan leik Ruud Geels frá
Anderlcht og Hovenkamp frá
AZ ’67, en út úr liðinu eru
settir þeir Piet Wildschut og
Adrie van Kraay.
Leikurinn á miðvikudag
fer fram I Póllandi. Holland
hefur forustu i riðlinum,
hefur unniö alla sina leiki.
Sem kunnugt er leika þessi
lið I sama riðli og Island.
gk—•
Cruyff
búinn aö
semja?
„Það getur vel veriö að
Cruyff hafi verið hér i New
York, en ég sá hann aldrei”,
sagði talsmaður bandariska
knattspyrnufélagsins New
York Cosmos, er hann var
spurður að þvi I gær hvort
hollenski knattspyrnu-
maðurinn Johan Cruyff hafi
verið I Bandarlkjunum I við-
ræðum við Cosmos.
Hollenska blaðið Amster-
dam de Telegraaf sagði i gær
að Cruyff hafi undirritað
samning við Cosmos, og
muni hann fá eina milljón
bandarikjadollara fyrir eitt
ár hjá félaginu. En þetta hef-
ur ekki fengist staðfest hjá
Cosmos. ek—.
Siggi í
Víking!
Handknattleiksliði Vikings mun
berast góöur liðsauki næsta
vetur, þvi að Siguröur Sveinsson
hefur tilkynnt félagaskipti I fé-
lagið.
Siguröur lék sem kunnugt er
með Þrótti áður en hann hélt utan
, til Sviþjóðar, en þar hefur hann
leikið með gamla félaginu hans
Ólafs Benediktssonar, Olympiu, i
vetur meö góðum árangri.
Sigurður er ungur leikmaður i
mikilli framför, og hann var orö-
aður við landsliðið i fyrra eftir aö
hafa leikið með unglingalandslið-
inu. Hann er vinstrihandarskytta
góð, og er ekki vafamál að hann
mun styrkja Vikingsliðið mikiö.
gk-.
Það er eins gott fyrir menn að búa sig vel, þegar þeir fara á völlinn þessa dagana, þótt komið sé fram i
maf. Hér sjást nokkrir Vikings-,,áhangendur” og framámenn á Mclavelli f gær og virðast vera kátir
þrátt fyrir kuldagarrann, enda sigruðu þeirra menn ileiknum 1:0. Vfsismynd: Einar
VlKIHGUR OPNABI
AUT FYRIR FRAM
- MEÐ SIGRI VFIR VAL Í REYKJAVÍKURMÓTIHU I GÆR
„Það var ekkert annað hægt að
dæma i þessu tilfelli en vita-
spyrnu. Vikingurinn var bókstaf-
lega tekinn á mjaðmahnykk og
skellt af Valsmanninum inn i
'vltateignum, og á slikt brot er
ekki neinn annar dómur til en
viti.”
Þetta sagði Guömundur
Haraldsson, millirikjadómari
okkar i knattspyrnu, er við kom-
um inn I búningsklefa til hans eft-
ir leik Vals og Vikings i Reykja-
vikurmótinu i knattspyrnu I gær.
Þar dæmdi Guðmundur réttilega
vitaspyrnu á Val, og úr henni
skoruðu Vikingar eina mark
leiksins.
Annars var Guðmundur allt
annað en hress, þegar við komum
að heimasækja hann þarna i
búningsklefann. Hann hafði, eins
og svo oft áður og einnig
HKmeö
slgur
í Eyjum
HK tókst að sigra Þór frá Vest-
mannaeyjum I fyrri leik liðanna
um laust sæti i 1. deild Islands-
mótsins i handknattleik að ári, er
liðin léku I Eyjum i fyrrakvöld.
Úrslitin 18:15, og flest bendir þvi
til þess að HK haldi sæti sinu i
deildinni.
Þórsararnir leiddu ávallt I fyrri
hálfleik, en komust aldrei langt
framúr. Staðan I leikhléi 8:6 fyrir
Eyjamennina, en HK jafnaði
siðan 12:12 og komst yfir. Aftur
var jafnt 15:15, en HK skoraði
þrjú siðustu mörkin og sigraði þvi
18:15.
Liðin eiga eftir að mætast aftur,
og þá á heimavelli HK að Varmá I
Mosfellssveit. Sá leikur fer fram
annað kvöld eða á laugardag gk-
ýmsir kollegar hans úr dómara-
stétt, fengið að heyra persónuleg-
ar glósur frá núverandi þjálfara
Vikings og landsliösþjálfaranum
Youri Ilitchev.
„Framkoma þessa manns I
leikjum og eftir þá er fyrir neðan
allar hellur,” sagði Guðmundur.
„Hann lætur okkur aldrei I friöi
með röfli og þrasi, og þetta á eftir
að enda með einhverjum látum
nema stjórn KSI taki til sinna
ráða og kenni honum almennar
kurteisisvenjur, I sambandi við
knattspyrnu”.
Youri kom inn i klefa til Guð-
mundar á meðan við vorum þar
— Var hann eitthvað að myndast
við að biðja hann afsökunar á
framkomu sinni — og þakkaði
honum svo i lokin fyrir vita-
spyrnudóminn!!
Nú, um þennan leik er heldur
litið að segja. Hann fór fram við
verstu aðstæður, hávaðarok og
kulda. Vikingar léku undan vindi I
fyrri hálfleik og áttu þd a.m.k,
eitt skot f þverslá, en hvorki þeim
né Valsmönnunum tókstað skora.
1 siðari hálfleik voru Viking-
arnir mjög ákveðnir og fengu
Valsmenn engan tima til aö
byggja upp sókn eða skjóta á
mark fyrir þeim. Sjálfir brutust
þeir upp á móti vindinum hvað
eftir annaö, og i einu sliku upp-
hlaupi náðu þeir að krækja sér I
vitaspyrnuna, sem Gunnar Orn
Kristjánsson skoraði úr með föstu
skoti. —klp —
STÁÐÁN
Staðan i Re>kjavikurmótinu I
knattspyrnu er nú þessi:
Valur —Vikingur 0:1
Valur 5 40 1 10:4 10
Fram 5 3 2 0 9:5 8
KR 6 3 12 11:6 8
Fylkir 5 2 12 6:3 5
Þróttur 5 1 1 3 6:7 4
Vikingur 5 12 2 4:8 4
Armann 5 0 1 4 2:11 1
A laugardag leika Þro'ttur og
Fylkir kl. 14 á Melavelli og strax
á eftir Armann og Vikingur. Mót-
inu lýkur siöan á sunnudag með
leik Vals og Fram og hefet hann
kl. 14.
Tékkar
I efsta
sælið
Evrópumeistarar Tékka i
knattspyrnu hafa nú tekið af-
gerandi forustu I 5. riðli for-
keppni Evrópukeppni lands-
liða eftir 3:0 sigur gegn Lux-
emborg I gær.
Leikurinn fór fram
Luxemborg og kom það á ó-
vart að heimamenn stóðu við
og við I gestunum. Hins veg-
ar fór ekki á milli mála hvort
liðið var betra, og sigur
Tékkanna var fyllilega verð-
skuldaður.
Maryan Masny skoraði
fyrsta mark ieiksins á 21
minútu, og staðan var 1:0
allt fram á 67. minútu, er
Miroslav Gajdusek skoraði
eftir mikinn misskilning á
milli varnarmanns og mark-
varðar Luxemborgarliðsins.
Siðasta markið kom siðan
rétt á eftir, og var Stam-
backer þar að verki með
kollspyrnu eftir fyrirgjöf frá
vinstri.
Tékkar standa nú mjög vel
að vigi I riölinum, og bendir
ekkert til annars en þeir sigri
auðveldlega og komist á
fram. En staöan er þessi:
Tékkósl. 3 3 00 8:1 6
Frakkland 4 2 11 8:5 5
Sviþjóð 2 0 1 1 3:5 1
Luxemborg 3 003 1:9 0
1 kvöld veröur mikið um að
vera I Evrópukeppninni
Meöal leikja má nefna Pól
land/ Holland, Austurriki/
Belgia, Irland/ Danmörk
Ungverjaland/ Grikkland
gk—■
HAHN SETTI FRAM
HAAR FJARKROFUR
- seoip Haiidór Einarsson formaður Kðrluknalllelksdelldar
vals um samninga Vals vlð Tlm uwyer
„Við gerðum munnlegt sam-
komulag við Tim Dwyer, en það
geta komið upp mál, sem valda
þvi að við munum ekki gera
endanlegt samkomulag við
hann”, sagði Halldór Einarsson,
formaður Körfuknattleiksdeildar
Vals, en Visir ræddi við hann I
gær.
Þjóðviljinn skýrir frá þvi i gær
að Valsmenn séu búnir að endur-
ráða Dwyer og fái hann mun
hærri upphæð i sinn vasa en hann
fékk s.l. vetur. Þetta verði til
þess, segir Þjóðviljinn, að hin fé-
lögin verði að hækka greiðslur til
sinna leikmanna einnig, og muni
þeir verða með hærri laun en
gerist meðal bandariskra körfu-
knattleiksmanna I nágrannalönd-
unum.
„Þvi er ekki að neita að eftir að
Dwyer hafði heyrt það hjá strák-
unum I liðinu að þeir vildu hafa
hann áfram, þá setti hann fram
miklar kröfur”, sagði Halldór.
„Honum var siöan ekki hnikað
með þessar kröfur og við gerðum
munnlegt samkomulag við hann.
Hinu er ekki að leyna að þótt
þetta samkomulag hafi verið
gert, getur svo farið að það breyt-
isteitthvað. Ég er ekki tilbúinn að
ræða það I smáatriðum á þessu
stigi”, sagði Halldór að lokum.
gk.—