Vísir - 31.05.1979, Blaðsíða 1

Vísir - 31.05.1979, Blaðsíða 1
Endurnýja kirkjuna á Raufarliðfn S|á bls. 11 S|á bls. 9 Skðla- keril I sveltl Enn un slórhættunin t nllumnrttMnum l Rotlerdam: „Hefur hækkað um 150% siðan f fyrra” „Að meðtalinni þessari nýjustu hækkun hefur oliuverðið hækkað um 150% frá þvi i fyrra,” sagði Svavar Gestsson viðskiptaráðherra i morgun., Markaðsverð á gasoliu i Rotterdam er nú orðið 150 krónur en var eftir siðustu hækkun nú ný- verið 103 krónur. Þessi hækkun þýðir að bensinverð farí i 320 krónur siðar i sumar, komi hún öll fram i innanlandsverðinu. „Menn verða að átta sig á þvi, að allar þjóðir Vestur-Ev'rópu miða oliuverð sitt við Rotterdam- markaðinn og i tið siðustu rikis- stjórnar var lagt að Sovétmönn- um að miða ákvörðun sina við það,” sagði Svavar, „Þeir sem vilja flauta á svona hækkanir þyrftu að taka sér far með Smyrli til Rotterdam til að réttir aðilar geti numið pipið,það er ekki okkar verk að hækka svona oliuna,” sagði viðskiptaráðherra. Hann sagði að við ættum nú birgðir fram i júli en ljóst væri að gripa þyrfti til viðtækra ráðstafana. Kristján Ragnarsson formaður LltT sagði i morgun að þessi nýjasta hækkun gæti aldrei komið öll inn i fiskverðið, bersýnilega þyrfti að gripa til aðgerða i við- tækara samhengi, t.d. niður- greiðslna. Kristján sagði að fyrir þessa hækkun hefði fiskverð þurft að hækka um 8% og auk þess hefði oliugjaldið þurft að hækka úr 2,5% i 10,5%.Þá er miðað við gas- oliu á 103 krónur en nýjasta verö- ið er eins og áður sagði 150 krón- ur, og er talið liklegt að bensin- verð fari i 320 krónur siðar i sum- ar. — ÓM. Oliuskip landaði rándýrri oliu viö Laugarnes I morgun. Vlsismynd:GVA Helgin byrjar á morgun með Helgarblaði Vísis Helgarblaö Visis kemur út á morgun föstudag, þar sem ekki verður unnið i prentsmiðjum laugardag fyrir hvitasunnu. Blaðið er fjölbreytt og efnis- mikið að vanda og meðal efnis er viðtal við Óla G. Jóhannsson sem rekur Gallery Háhól á Akureyri. Viðtalið er skreytt teikningum eftir Ragnar Lár sem einnig skrifar textann. Helgarblaðsviðtaliö er að þessu sinni við Islenskan prófessor, Gunnar Böðvarsson, sem búsettur er i Bandarikj- unum. Þá er rætt við bónda frá Vopnafirði sem er meö erfða- sjúkdóm sem gerir hann sérstaklega viökvæman fyrir beinbrotum og kv.eösthann hafa brotnað að minnsta kosti tiu sinnum, þá á hann við meiri- háttar brot þvi hann segist ekki telja það með þó það brotni plpa i handlegg stöku sinnum. Fast efhi er á sinum staö, Gisli Jónsson skrifar pistilinn Á förnum vegi”t krossgáta, myndagetraun og fleira. Auk þess mun Indriði G. Þorsteins- son skrifa neðanmálsgrein. Þaónæstablaö VIsis kemur út þriöjudaginn 5. júni.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.