Vísir - 31.05.1979, Blaðsíða 4
VISIR Fimmtudagur 31. mai 1979
í'í/'frvf»r.
sem
dæl
md
ur
uga
Fyrri fundir leiötoga Sovétrikjanna og Bandarfkjanna hafa sýnt aO þeir geta veriO strangasta puO. — Á
myndinni hér fyrir ofan er Brezhnev aO leggja áherslu á ákveOiO atriOi í samræOum viö Nixon þegar
hinn siOarnefndi átti fund meö Brezhnev viö Svarta hafiO 1974. — Fyrirhugaöur fundur þeirra Brezhnevs
og Carters heföi átt aO vera i Bandarfkjunum samkvæmt diplómatalögmálum, en heilsufar Brezhnevs
mun hafa ráOiö þvi aö þeir munu mætast heldur I Vfnarborg.
Á undanförnum
árum hafa hinar
frábæru amerísku
UNIVERSAL dælur
áunnið sér óbilandi
traust íslenskra
iðnaðarmanna og
verktaka, bæði fyrir
mikinn dugnað og
ótrúlega endingu.
Hinar viðurkenndu
sænsku GRINDEX
dælur hafa ekki siður vakið hrifningu.
Einstaklega léttar og meðfærilegar rafmagnsdælur
sem hægt er að nota við hinar erfiðustu aðstæður.
Það er óhætt að treysta
dælunum frá UNIVERSAL
og GRINDEX
fyrir flestum
vandamálum.
Um leiö sýnist þeim, aö hann hafi
ekki Jullt vald á hreyfingum
handar og fótar öörum megin.
Þótt Kremverjar reyni aö sýna
með Ungverjalandsheimsókninni
og hinni fyrirhuguðu ferö til
Vinarborgar að Brezhnev sé fær i
flestan sjó vita menn að þaö var
ákveöin tregða af þeirra hálfu til
þess að fastákveða fundardagana
i Vin 15. til 18. júni. Vilja þeir
raunar enn ekki við annaö kann-
ast en þessir dagar séu einungis
hálfákveðnir. Þykir liklegt, að sú
tregða stafi af þvi að i Kreml vilji
menn hafa vaðið fyrir neðan sig
ef veikindi kynnu að aftra
Brezhnev.
1 rauninni hefði fundur þeirra
Carters og Brezhnevs átt að
verða i Washington þvi að siöustu
tveir fundir leiðtoga Bandarikj-
anna og Sovétrikjanna voru
haldnir á sovésku yfirráðasvæði
og röðin komin að Sovétmönnum
að endurgjalda heimsóknirnar.
Kvisast hefur, að Vinarborg hafi
orðið fyrir valinu f stað Washing-
ton vegna þess að menn kviðu þvi
að Washingtonheimsókn kynni aö
reynast Brezhnev of erfiö.
Hvaða heilsufarsvandamál sem
Brezhnev kann að eiga við að
striða þá sýnist staða hans heima
fyrir ekkert hafa haggast. Ekki
alls fyrir löngu var honum sýndur
sérstakur sómi með orðuveitingu
fyrirbókmenntir, og honum veitt-
ist sú ánægja að sjá son sinn
skipaðan fyrsta aðstoðarráðherra
i ráðuneyti millirikjaverslunar. í
sovéskum blöðum hefur ekki
verið unnt að finna minnstu vis-
bendingu þess, að nokkur annar
sé farinn að keppa að sæti
Breshnevs.
Augu manna hafa þó beinst að
Kosygin forsætisráöherra sem
þrem árum eldri en Brezhnev
virðist viö hestaheilsu. Fyrr i
þessum mánuði brá hann sér til
Prag til þess, að þvi er virtist að
ráöa fram úr einhverjum vanda-
málum við samstillingu strengja
tékknesku og sovésku stjórnanna.
— Ef einhver þyrfti að taka sæti
Brezhnevs I viðræðum um al-
þjóðamál þá yrði það án nokkurs
vafa Kosygin sem lengi var utan-
rikisráðherra Sovétrikjanna.
Kosygin þykir öruggur i sæti
sinu sem forsætisráöherra vegna
sérþekkingar sinnar i efnahags-
málum, en hugsanlegt er, að hann
kynni að eftirlátá forystu sina i
sovéska kommúnistaflokknum
hinn 73 ára gamla Andrei Kiri-
lenko. Kirilenko hefur oftsinnis
tekiö formannssæti Brezhnevs i
fjórtán manna æösta ráöinu i
fjarveru Brezhnevs sjálfs sem
hefur æ oftar veriö frá siðustu ár-
in.
in
Smiðjuvegi 8 - Simi 73111
Brezhnev
UTBOÐ
Hitaveita Suðurnesja óskar ettir tilboðum i
lagningu o 500 mm Ductilpipu 1500 m að lengd
i nágrenni Svartsengis.
Útboðsgagna má vitja á skrifstofu Hitaveitu
Suðurnesja Vesturbraut 10A Keflavík og á
verkfræðiskrifstofunni Fjarhitun h/f, Álfta-
mýri 9 R. gegn 20.000,- kr. skilatryggingu
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Hitaveitu
Suðurnesja fimmtudaginn 14. júní n.k.
TILRAUNAVEIÐAR
á hrygningarsíld nú í sumar
Sjávarútvegsráðuneytið áætlar nú i júní nk.
að veita tveim hringnótabátum heimild til
veiða á sild.Miðar þessi tilraun að því að
kanna möguleika á vinnslu og sölu á hrygn-
ingarsild.
Heimildin til veiða miðast við seinni hluta
júnímánaðar og verða þessar tilraunir fram-
kvæmdar undir stjórn og eftirliti Hafrann-
sóknastof nunarinnar.
Sjávarútvegsráðuneytið mun ákveða veiði-
magn, ennfremur hvar síldin verður lögð upp
til vinnslu hverju sinni, en veiðar þessar
verða að öllu leyti á kostnað og ábyrgð
útgerðarmanna skipanna.
Umsóknir um leyfi skulu hafa borist ráðu-
neytinu fyrir 6. júni n.k. og skal í umsókn
greina frá útbúnaði skipsins.
Sjávarútvegsráðuneytið
30 mai 1979
áfar-
aldsfæti
Leonid Brezhnev leiðtogi Sovét-
rikjanna kom til Búdapest i gær i
ferð sem kölluð er „kurteisis-
heimsókn”, en virðist fyrst og
fremst farin til þess að hrekja það
álit sem skapast hefur á vestur-
löndum af veikindafréttum af
honum siðasta áriö, að Brezhnev
sé orðinn útbrunnið skar.
Hinn 72 ára gamli Brezhnev,
sem flestum fréttum bér saman
um, aö hafi við flest opinber tæki-
færi undanfarinna mánaöa komið
mönnum kranklega fyrir sjónir,
fer i Ungverjalandsheimsóknina
aðeins tveim vikum, áður en hann
leggur i annað og erfiðara ferða-
lag. Nefnilega til fyrirhugaðs
fundar viö Carter Bandarikjafor-
seta i Vinarborg.
Það veröur fyrsti fundur
Brezhnevs og Carters og veröur
haldinn til þess að undirrita nýj-
ustu samningana um takmarkan-
ir kjarnorkuvopna SALT II. —
Undirritunarathöfnin sjálf þykir
ekki það erfiöa á fundinum heldur
þær viðræður, sem hljóta að fara
fram milli leiðtoga þessara
tveggja stórvelda, þegar þeir
loksins hittast i fyrsta sinn.
Reynslan af fyrri fundum leið-
toga þessara tveggja rikja sýnir,
að þeir geta verið stifasta puð.
Austantjalds halda menn þvi
fram að Ungverjalandsheim-
sóknin hafi verið ákveðin löngu
áður en SALT-fundurinn i Vinar-
borg bar á dagskrá. Margir ætla
bó. að hún sé fyrst og fremst farin
FRA BORGARBOKASAFNI
Hljóöbókasafnið veröur lokað til 11. júní n.k. Verður þá opnáö í Hólmgarði 34.
Opið mánudaga — föstudaga kl. 10-4
Heimsendingaþjónusta á prentuðum bókum við fatlaða og aldraða verður áfram í
Sólheimasafni, simi 83780.
Símatími mánudaga og fimmtudaga kl. 10-12.
BORGARBÓKAVÖRÐUR
til þess að sýna að læknar Kreml-
verja séu vissir um, að Brezhnev
hafi heilsu fyrir hvorutveggja.
Fréttir af heimsókn Titós
Júgóslaviuforseta til Moskvu
(dagana 16.-21. mai) þykja líka
bendatil þess aö Brezhnev geti vel
tekist á hendur langar og strang-
ar viðræður um erfiö málefni. Að
visu virtist Brezhnev með dauf-
ara yfirbragði þegar hann tók á
móti Tító á flugvellinum, en föru-
nautar Titós sögðu eftir ferðina
að dagana á eftir hefði forseti
Sovétrikjanna leikið á als oddi og
hvergi hlift sér.
Frá öðrum heimildum hafa
menn það að Brezhnev hafi verið
ólikt hressari meðan á heimsókn
Titós stóð, heldur en tveim vikum
fyrr, þegar hann gegndi gest-
gjafaskyldum sinum við Valery
Giscard d’Estaing Frakklands-
forseta. Var frönsku gestunum
um og ó.
Spurningin um heilsubrest
Brezhnevs hefur brunnið á vörum
manna frá þvi á siðasta ári þegar
aðstoðarmenn hans þurftu að
hjálpa honum úr sæti eftir við-
ræöur við Kekkonen Finnlands-
forseta og eftir að menn tóku eftir
fjarveru Brezhnevs við ýmis
opinber tækifæri. En i Sovét-
rikjunum heyrist ekki á þetta mál
minnst i fjölmiðlum, enda er
heilsufar ráðamanna í Kreml jafn
heilagt og einkalif þeirra sem
aldrei ber á góma i sovéskum
blöðum. Sovéskir embættismenn
og blaðamenn bregðast oft gram-
ir við ef vestrænir fréttamenn
færa slik mál i tal við þá.
Þrátt fyrir miklar vangaveltur
á vesturlöndum um heilsufar
Brezhnevs slðustu árin og hvað aö
honum ami þar sem ýmsar get-
gátur hafa skotiö upp kollinum
um hina alvarlegustu sjúkdóma,
þá hallast menn orðiö að þvi að i
rauninni þjaki hann ekkert annað
en gliman við Elli kerlingu.
Meðal erlendra sendifulltrúa I
Moskvu er þaö þó hald margra aö
hann sé haldinn veiki sem komi
niöur á mæli hans og heyrn, svo
aö hann heyrist vera drafandi.