Vísir - 31.05.1979, Blaðsíða 16
VISLH
Fimmtudagur 31. mai 1979
Um sjón:
Sigurveig
.lóns'Játtir
Alvaran aö bakl skonslns
Leikfélag Akureyrar: Skrítinn
fugl — ég sjálfur
Höfundur: Alan Ayckbourn
Þýðandi: Kristrún Eymunds-
dóttir
Leikstjóri: Jill Brooke Arnason
Svið: Hallmundur Kristinsson
Búningar: Freygerður Magnús-
dóttir
Siðasta frumsýning L.A. á
þessum vetri er afstaðin.
Fimmta verkefni leikársins er
gamanleikurinn Skritinn fugl —
ég sjálfur (Absurd Person —
singular) eftir Bretann Alan
Ayckbourn en ég hef sannspurt
frá Lundúnum að hann sé mjög
vinsæll höfundur i þeim stað og
ýmis verk hans á sviði þar við
ágætar undirtektir. í leikskrá
L.A. segir að Skritinnfuglsé eitt
besta verk hans.
Það er undarlegt hvað Bretar
virðast standa meö báða fætur
kolfasta i hjónalífsstúdfum og
velta sér upp úr hjúskapar-
vandamálum öðrum fremur. 1
Skritnum fugli nægja ekki færri
en þrjú hjónabönd með tilheyr-
andi mismunandi stórvandræð--
um. Litiö er inn hjá þrennum
hjónum sem koma i heimsókn
hver hjá öðrum um þrenn jól.
Fyrst er komið i eldhúsið hjá
smákaupmannsgreyi sem
rembist við aö verða stór og
hreinlætisbilaðri, einfaldri
konu hans sem reynir af
vanmætti sinum að gera allt
sem hann heldur að geti
hjálpað sér við að koma sér i
mjúkinn hjá meiri mönnum.
Þá er næst komið til kvenna-
gullsins og misheppnaöa arki-
tektsins og sálsjiirar pilluét-
andi konu hans með tilheyrandi
afbrýði og sjálfsmorðstilraun-
um. Lokst er komið i eldhús
bankastjðrans sjálfumglaða og
drykkjusjúkrar konu hans.
Eins og sjá má eiga persón-
urnar hér við vandamál að
striða og þau ekki smá. Adeila
verksins er mikil, sá sem er
afbrigðilegur á einhvern hátt
stendur einn, afskiptaleysi,
skyn- og skilningsleysi sam-
ferðamannanna er algert, fals-
viðmót og kurteisiskjaftæði
ræður ferðinni. Enginn má vera
hreinskilinn og þess vegna geta
litlir kallar komið sér i þá að-
stöðu að teyma aðra á asnaeyr-
unum ef þeim sýnist. Þetta er
brot af þvi sem ég þóttist geta
séð í þessari sýningu. Þegar að
er gáð virðist þetta.mun frekar
harmsögulegt efni en skoplegt
en það er ef til vegna þess hve
vandamálin era nærtæk I nú-
timasamfélagi að mér fannst
óviðkunnanlegt á pörtum aö sjá
þau dregin upp á svið til þess að
láta hlæja að þeim. Vonandi
verða þeir fleiri sem sjá
alvöruna að baki skopinu en
hinir sem koma, hlæja og
gleyma.
Gamanleikur er ekki einfalt
leikform. Ef vel á að takast
skiptir hraði, nákvæmni,
smekkvisiog ákveðin hófstilling
meira máli en hægt er að
komast af með i annars konar
verkum. Hættan. á ofleik og
vanleik er meira en ella. Hvort
sem um er að kenna frumsýn-
ingarskjálfta eöa stuttum
æfingatima fannst mér þetta
fara nokkuð úr böndum á sýn-
ingu L.A. og óþarflega mikið
lagt upp út fiflalátum og billeg-
um farsatrikkum (detta á rass-
inn, kippa burtu stól o.s. frv.)
Margir virtust þó skemmta sér
hið besta og auðvitað var þarna
fullt upp af ágætum bröndurum
sem hægt var að hlæja að með
ölium skrokknum.
Svanhildur Jóhannesdóttir og
Viðar Eggertsson léku kaup-
mannshjónin, Gestur E. Jóns-
son og Þorey Aðalsteinsdóttir
arkitektinn og konu hans og
Sigurveig Jónsdóttir og Theódór
Júliusson bankastjorahjónin.
Ég ætla ekki að tiunda frammi-
stöðuhvers ogeinshérenget þó
ekki stillt mig um að nefna
ágæta túlkun Þóreyjar f slnu
hlutverki. Þvi skilaði hún mjög
vel og eðlilega.
Leikmynd Hallmundar Krist-
inssonar var ágæt. Það þarf
heUmikla útsjónarsemi til að
koma þremur heilum sviðs-
myndum fyrir á litlu föstu sviði
en það tókst hér. Myndirnar
undirstrikuðu ágætlega þær
manngerðir sem við hvert eld-
hús bjuggu.
I sýningarlok var kvaddur
ArniValur Viggóssonsem hefur
veriö ijósameistari i þúsund
sýningarkvöld en lætur af störf-
um að þessu verki loknu. Vist er
að ekki verður auðhlaupið i
skarð hans enda ekki á hvers
manns færi að lýsa svið og oft
mikil list.
Nú er tekið til starfa leikhús-
ráð hjá L.A. Með þvi geta leik-
arar og starfsfólk Leikfélagsins
haft áhrif á verkefnaval og aðr-
ar ákvatfianir varðandi starfið
og má þvi binda vonir við að lif
og gróska færist á ný i leikhúsið.
Máttur leikhúss getur verið
mikill ef þvi er stjórnað af sönn-
um metnaði en ekki öðrum
hvðtum.
innrðs I friðhelgi
einkalffsins?
Félagslegar rannsóknlr verða tll umræðu á
almennum fundl á flmmtudaglnn
Nokkur umræða hefur orðið i
vetur um skoðanakannanir og
framkvæmd þeirra. Þingmenn
hafa meðal annarra látið málið til
sin taka og á Alþingi hafa verið
lögð fram frumvörp, þar sem gert
erráðfyrirtakmörkunum á frelsi
til slikra kannana.
Nú hyggst Félag þjóðfélags-
fræðinga efna til umræðna um
málið á breiðum grundvelli á al-
mennum fundi i Æfingaskóla
Kennaraháskólans við Bólstaðar-
hlið.
Fundarefnið ber heitið: Félags-
legar rannsóknir, friðhelgi einka-
lifs. Ragnhildur Helgadóttir, al-
þingismaður og Þorbjörn
Broddason, dósait munu flytja
stutt framsöguerindi og að þeim
loknum verða almennar umræð-
ur.
Félag þjóðfélagsfræðinga hefur
starfað um nokkurra ára skeið.
Fyrir tveimur árum var það
Félagsvisindafélag Islands, en
það var stofnað með tilkomu
námsbrautar i þjóðfélagsfræðum
við Háskóla íslands. Félagsmenn
eru nú 63 talsins.
Fundurinn i Æfingaskólanum
verður á fimmtudagskvöldið og
hefst ki 20. Hann er öllum opinn.
- SJ
SUMARSYNING I
ÁSGRÍMSSAFNI
Arleg sumarsýning Asgrims-
safns hefur nú verið opnuð og er
hún 46. sýning safnsins frá
stofnun þess áriö 1960.
A sýningunni eru nokkur ný
verk, sem safninu hafa borist.
Meðal þeirra eru tvær vatnslita-
myndir sem nú eru sýndar i
fyrsta sinn. Aðra þeirra færði
Gunnar Hjörvar safninu að gjöf,
en hún er af bænum
Litla-Vatnshorni i Dölum. Hin
myndin er ein af stærstu vatns-
litamyndum Asgrimssafns og var
hún i eigu Jóns Sveinbjörnssonar
konungsritara i Kaupmannahöfn.
Þaðan kom myndin fyrir nokkr-
um mánuðum.
1 heimili Ásgrims Jónssonar er
sýning á vatnslitamyndum frá
ýmsum timum, en i vinnustofunni
oliumál verk og nokkrar
þjóðsagnateikningar.
Safnið verður opið alla daga,
nema laugardaga, i júni, júli og
ágúst kl. 1.30-4.
unnar
PRINSESS-
AN FÉLL
Söngleikurinn Prinsessan á
bauninni á ekki langa lifdaga
hér á landi. Aðsókn hefur
verið með eindæmum dræm
og nú hefur Þjóðleikhúsið
ákveðið að á fimmtudags-
kvöldið verði siðasti sýning á
leiknum.
Þá hefur Prinsessan aöeins
verið sýnd 10 sinnum, og hafa
sýningar Þjóðleikhússins vist
sjaldan orðið færri á neinu
öðru verki. Þær geta raunar
ekki orðiö öllu færri, þvi á
fyrstu 8 sýningarnar er nokk-
ur hluti aðgöngumiðanna seld-
ur á haustin til áskrifenda.
- SJ
Leikararnir fengu yfirleitt
góða dóma gagnrýnenda, þótt
söngleikurinn vekti litla hrifn-
ingu. Hér er Sigriöur Þor-
valdsdóttir I hlutveii prinsess-
LJÖflATÚHLEIKAR AÐ
KJARVALSSTÖflUM
John Speight, baritonsöngvari
og Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir,
pianóleikari halda ljóðatónleiaka
aö Kjarvalsstööum i kvöld, 3Lmai
kl. 20.30.
A efnisskránni eru Islensk þjóð-
lög I útsetningu Þorkels Sigur-
björnssonar, lög eftir Fauré og
Ravel oghinn þekkti ljóðaflokkur
Schumanns „Dichterliebe” við
ljóö Heine.
Aðgöngumiðar veröa seldir við
innganginn.