Morgunblaðið - 20.02.2001, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 20.02.2001, Blaðsíða 5
HANDKNATTLEIKUR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2001 B 5 17. 02. 2001 8 3 1 7 0 6 10 11 28 32 7Einfaldur1. vinningur í næstu viku 1. vinningur seldur í Noregi 14. 02. 2001 2 15 37 43 44 46 9 19  FRÉTTIR, héraðsblaðið í Eyjum, var með fréttaritara í Laugardals- höllinni á laugardaginn þegar Eyja- stúlkur kepptu við Hauka. Þaðan sendi blaðið fréttir beint á Netinu til áskrifenda jafnt í Eyjum, uppi á landi og á hinu meginlandinu því þeir eru með áskrifendur þar líka. Hressir Eyjamenn kölluðu þá áskrifendur á Stór-Vestmannaeyjasvæðinu.  HEIÐURSGESTIR á bikarleik kvenna voru Steinþór Skúlason for- stjóri SS, Guðjón Hjörleifsson bæj- arstjóri í Eyjum, Magnús Gunnars- son bæjarstjóri í Hafnarfirði, Þorgeir Haraldsson formaður hand- knattleiksdeildar Hauka og Þor- varður Þorvaldsson formaður hand- knattleiksdeildar ÍBV.  HARPA Melsteð skaut mest Haukastúlkna eða 13 sinnum, 5 sinn- um lá boltinn í netinu, Vigdís Sigurð- ardóttir náði að verja frá henni tvisv- ar sinnum og voru bæði þau skot úr vítaköstum. Önnur skot Hörpu fóru í tréverkið á Eyjamarkinu, vörnin varði, eða skotin fóru framhjá.  TVEIR leikmenn Hauka höfðu 100% skotnýtingu, Björk Hauksdótt- ir og Sandra Anulyte. Björk skoraði fyrsta mark Hauka en Sandra það síðasta og var það í einu skiptin sem þær stöllur skutu á mark ÍBV.  EYJASTÚLKUR klipptu á helstu vopn Hauka í vetur, sem eru gegn- umbrot þeirra Auðar, Brynju og Hörpu. Þær brugðust alveg í bikar- úrslitunum og skoruðu þær ekki eitt einasta mark eftir gegnumbrot.  TÖK ÍBV á skyttunum í Haukalið- inu voru ógurleg því ekki aðeins stoppuðu Eyjastúlkur gegnumbrotin heldur komu þær nær algjörlega í veg fyrir það að Haukar skoruðu með skoti utan punktalínu, en aðeins eitt mark kom þannig.  HANNA G. Stefánsdóttir og Edda B. Eggertsdóttir, hægri og vinstri hornamenn Hauka og ÍBV, háðu mikla rimmu sín á milli. Edda hafði betur en hún skoraði 4 mörk úr vinstra horninu á meðan Hanna skoraði 3 mörk úr hægra horninu.  AMELA Hegic skaut oftast í liði ÍBV, alls 17 sinnum. Skotnýting hennar var jafnframt ein sú versta í Eyjaliðinu en hún skoraði aðeins tvö mörk. Hún bætti það hins vegar upp með því að eiga tvær stoðsendingar sem gáfu mörk.  TAMARA Mandzic var atkvæða- mest í liði ÍBV, hún skaut 14 sinnum, skoraði 5 mörk, átti 3 stoðsendingar og fiskaði eitt vítakast, sem einmitt varð til þess að ÍBV náði að knýja fram framlengingu.  BRYNJA Steinsen var atkvæða- mest í liði Hauka, hún skoraði 3 mörk úr 9 skotum, átti þrjár stoðsendingar og fiskaði fjögur vítaköst. FÓLK Auðvitað eru alltaf vonbrigði aðtapa, en ég tek ofan fyrir liði sem gerir eins og þær gerðu í þess- um leik. Þær höfðu meiri vilja og gerðu færri vitleysur. Við erum ekki nema sex stigum á undan ÍBV í deildinni, en megnið af þeim stig- um sem þær hafa tapað í vetur fóru áður en þær voru komnar með full- skipað lið. Við vissum það fyrir leikinn að þetta yrði mjög jafnt, en þær kláruðu leikinn aðeins betur en við,“ sagði Ragnar Hermannsson. Gríðarleg vonbrigði „Mér líður vægast sagt alveg hörmulega. Þetta voru gríðarleg vonbrigði, við áttum að klára þetta í venjulegum leiktíma, en því miður gekk það ekki eftir. Heppnin var þeirra megin í dag. Það var mjög góð stemmning í okkar hópi fyrir leikinn, en þegar þær jafna og ná framlengingunni þá verður ósjálf- rátt ákveðið spennufall hjá okkur sem hefur áhrif, þó maður vilji ekki alltaf viðurkenna það. Annars var ég mjög ósátt við vítakastsdóminn í restina, Tamara stendur langt inní teig þegar hún tekur boltann og það hefði því í raun átt að dæma á hana línu. En við breytum því ekki núna,“ sagði Harpa Melsted, fyr- irliði Hauka. „Seinni hálfleikurinn í framleng- ingunni kláraðist í raun þegar við misstum mann útaf. Það er hræði- legt að missa mann útaf í framleng- ingu og það var nokkuð sem við vildum alls ekki. Við verðum að berja okkur saman og gera okkar besta í deildinni, við eigum eftir að fara til Vestmannaeyja og svo gæti það farið þannig að þessi lið mætt- ust í úrslitakeppninni og þá vona ég bara að við fáum að lyfta bikarn- um,“ sagði Harpa. Köstuðum sigr- inum frá okkur „ÞÆR voru grimmari í öllum litlu atriðunum í leiknum, þær tóku öll fráköst og voru pínulítið fastari í öllum þessum atriðum. Svo hend- um við leiknum frá okkur, við misnotum 4 víti og þegar 25 sekúndur eru eftir af leiknum og við yfir þá segi ég þeim að skjóta framhjá. Það er ekkert við Sonju að sakast í því efni, það er eðlilegt að leik- menn reyni skot þegar þeir komast í færi, en ég var búinn að biðja um að þær skytu framhjá eða yfir eða eitthvað. Þá hefði enginn tími verið eftir fyrir ÍBV að jafna, sagði Ragnar Hermannsson, þjálfari Hauka, við Morgunblaðið. Eftir Ingibjörgu Hinriksdóttur Morgunblaðið/Kristinn Ragnar Hermannsson, þjálfari Hauka, stjórnar sveit sinni í leiknum gegn ÍBV. ÁHORFENDUR á bikarleik Eyja- og Haukastúlkna voru tæplega 1400. Það átti ekki fyr- ir Eyjamönnum að liggja að sleppa eins vel, leikmenn sjálfir ætluðu sér að koma í land á föstudeginum en flýttu för sinni um einn dag vegna óhag- stæðrar spár enda varð ófært, bæði í flugi og með Herjólfi. Stuðningsfólk, sem ætlaði sér einnig til Reykjavíkur á föstu- deginum varð einnig að bíða átekta því ekki leit út fyrir að það kæmist á leikinn. Það rof- aði samt til og fólk komst með Herjólfi á laugardagsmorgni en þá voru margir hættir við vegna slæmrar spár. Samt mættu rúmlega þrjú hundruð Eyjamegin í stúkuna í Laug- ardalnum því nóg er af dyggu stuðningsfólki uppi á landi. Viðbúnaður Hauka var mik- ill, þeir voru með opið hús strax klukkan tíu um morguninn þar sem fólk gat snætt morgun- verð, spjallað um leikinn og lát- ið mála sig stríðsmálningu í framan. Síðan voru strætóferð- ir í Laugardalshöllina og þurfti fjóra slíka, með rúmlega þrjú hundruð stuðningsmenn á öll- um aldri, til að ferja fólkið á leikstað Auk þeirra mættu 600 til viðbótar svo að Hafnfirð- ingar voru alls um 875. Var smeykur „Ég er í öðrum heimi núna, þetta er búið að vera svo æð- islegt,“ sagði Þorvarður Þor- valdsson rámur og lafmóður formaður handknattleiks- deildar ÍBV eftir bikarsigurinn á Haukum á laugardaginn. „Ég var auðvitað smeykur um tíma en hafði trú á mínu liði. Það er allt búið að ganga á afturfót- unum fyrir þennan leik, veð- urguðirnir og allt annað svo að það hlaut að koma svolítill bón- us hjá okkur í lokin. Ég óska stuðningsmönnum til hamingju og vil þakka Eyjamönnum fyrir þeirra stuðning.“ Sluppu upp á land Það væri mjög gaman að eiga eft-ir nokkra leiki í úrslitakeppn- inni gegn Haukunum en við vitum það að til þess að komast í þá leiki þá þurfa liðin að hafa mjög mikið fyrir því. Það eru sex mjög jöfn lið í efstu sætum deildarinnar og það verður mjög erfið fæðing að komast í úrslitaleikina. Við erum núverandi Íslandsmeistarar, bikarinn er kom- inn heim og við stefnum ótrauðar að því að halda Íslandsbikarnum í Eyj- um,“ sagði Vigdís Sigurðardóttir. Verra á hliðarlínunni en vellinum „Mér finnst miklu verra að vera við hliðarlínuna en á vellinum,“ sagði Ingibjörg Jónsdóttir, sem var þjálfara ÍBV til aðstoðar en sjálf á hún marga spennandi leiki að baki og hefur margsinnis leitt liðið til sigurs sem fyrirliði. Ingibjörg lét ekki stöðva sig í að hvetja lið sitt til dáða þó að hún sé komin átta mán- uði á leið. „Ég vissi að það skipti öllu að halda haus því við vorum að spila mjög góða vörn á meðan sókn- arleikurinn var að klikka og það var erfitt að horfa upp á það. Við vorum litla liðið í þessum leik, töpuðum fyrir þeim í deildinni með sextán mörkum og enginn hafði trú á okk- ur en við vissum að við væru með öflugan mannskap, að vísu ekki margar en sterkar. Við urðum því bara að sanna okkur, það var ekkert annað að gera,“ sagði Ingibjörg. Trúði þessu þegar tíu sekúndur voru eftir ÞETTA var mjög erfiður leikur. Ég held að við höfum tekið þá um- fjöllun fyrir leikinn um að Haukarnir væru mikið sterkari en við of trúanlega en þegar leið á leikinn sáum við að við gætum unnið þær og þá náðum við að stemma okkur vel saman. Ég var samt allan tím- ann mjög hrædd um að við næðum ekki að klára þetta og það var í raun ekki fyrr en 10 sekúndur voru eftir af framlengingunni og við þremur mörkum yfir sem ég leyfði mér að trúa því að titillinn væri í höfn,“ sagði Vigdís Sigurðardóttir, fyrirliði og markvörður ÍBV, við. Morgunblaðið/Kristinn Ingibjörg Ýr Jóhannsdóttir og Vigdís Sigurðardóttir með bikarinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.