Morgunblaðið - 20.02.2001, Blaðsíða 16
VERNHARÐ Þorleifsson, júdó-
maður úr KA, sigraði í opnum flokki
á móti í Danmörku um helgina og
Bjarni Skúlason úr Ármanni fékk
brons í sama flokki. Vernharð lagði
fimm Japani á leið sinni til sigurs og
Bjarni fjóra. Í -100 kg flokki varð
Vernharð þriðji og Bjarni sjöundi í
-81 kg flokki eins og Heimir Har-
aldsson úr Ármanni í þungavikt. Ís-
lenska liðið varð í þriðja sæti.
JANICA Kostelic, króatíska stúlk-
an sem hefur heldur betur slegið í
gegn í heimsbikarnum á skíðum í
vetur, sagði á sunnudaginn að það
hefði ekki verið nein alvara í því hjá
sér að hætta keppni eftir slæma út-
komu á heimsmeistaramótinu á dög-
unum. Kostelic, sem er 19 ára, vann
enn eitt heimsbikarmótið á sunnu-
dag, í Garmisch-Partenkirchen í
Þýskalandi, og sagði að líf sitt yrði
ansi dauflegt ef hún drægi sig í hlé
frá skíðaíþróttinni.
KOSTELIC hefur nú unnið átta
heimsbikarmót í röð, sem er met-
jöfnun, og fátt getur komið í veg fyr-
ir að hún sigri í stigakeppni heims-
bikarsins í vetur.
PIERRICK Bourgeat frá Frakk-
landi sigraði í tveimur svigmótum í
heimsbikar karla um helgina en þau
fóru fram í Shigakogen í Japan.
Bourgeat hafði ekki unnið heimsbik-
armót í tvö ár.
JEVGENI Kafelnikov frá Rúss-
landi hélt upp á 27. afmælisdaginn
sinn á sunnudaginn með því að sigra
Sebastian Grosjean frá Frakklandi,
7:6 og 6:2, í úrslitaleik á opna Mars-
eille-mótinu. Þetta var 23. mótssigur
Ólympíumeistarans frá því í Sydney
í haust.
HENRIK Larsson, Svíinn snjalli,
hefur nú skoraði 40 mörk fyrir Celtic
í skosku knattspyrnunni í vetur.
Larsson skoraði tvívegis gegn
Dunfermline í bikarkeppninni á
laugardaginn en mörkin dugðu þó
aðeins til jafnteflis, 2:2, og liðin mæt-
ast aftur á heimavelli Celtic.
JENS Nowotny, þýski landsliðs-
maðurinn í knattspyrnu hjá Lever-
kusen, meiddist illa á ökkla þegar lið
hans tapaði, 2:1, fyrir Hansa Rost-
ock á laugardaginn. Hann missir
væntanlega af landsleik Þjóðverja
og Frakka í næstu viku.
FÓLK
Ég veiktist á föstudaginn og varafar slappur af flökurleika og
magakveisu auk hausverks á meðan
keppnin fór fram.
Miðað við það er
hægt að vera sátt-
ur,“ sagði Jón að
keppni lokinni í
Austurríki. „Fyrir vikið vantaði mig
alla snerpu í sprettunum og eins var
eitt þúsund metra hlaupið erfiðara
en ella. Ef allt hefði verið með felldu
átti árangurinn í eitt þúsund metra
hlaupinu að vera betri því að þessu
sinni fann ég ekki fyrir krampa í fót-
unum eins og í Tallinn,“ sagði Jón
ennfremur.
Hann byrjaði keppnina í Austur-
ríki á því að hlaupa 60 metrana á
7,07 sekúndum. Það er nærri fjórð-
ungi úr sekúndu lakari tími en Jón á
best. „Ég ætlaði bara aldrei að kom-
ast upp úr viðbragðsblokkunum, sá
bara í bakhlutann á andstæðingun-
um,“ sagði Jón um 60 m hlaupið.
Jón stökk lengst 7,49 metra í
langstökki, nokkuð frá sínu besta og
síðan varpaði hann kúlunni 15,98
metra. „Ég komst eiginlega ekki í
gang fyrr en í kúluvarpinu,“ sagði
Jón.
Í fjórðu og síðustu grein stökk
Jón yfir 2,02 metra í hástökki. „Það
skiptir geysilegu máli að komast vel
yfir tvo metra, í stað 1,95 metra sem
ég stökk yfir í Tallinn, á þessu mun-
ar rúmum sextíu stigum.“
Að loknum fyrri keppnisdegi var
Jón með 3.462 stig, sama stigafjölda
og hann hafði önglað saman í þraut-
inni í Tallinn. Tíminn í 60 m grinda-
hlaupinu, fyrstu keppnisgrein síðari
dags, var viðunandi, 8,04 sekúndur.
Jákvæðasti hluti keppninnar var að
mati Jón Arnar, stangarstökkið. Þar
lyfti hann sér yfir 5,10 metra. „Ég
var óheppinn að fara ekki yfir 5,20
metra. En það var jákvætt að fara
yfir 5,10, það tekst mér ekki oft í
fjölþrautarkeppni,“ sagði Jón Arn-
ar.
Eitt þúsund metrana hljóp Jón
Arnar á 2.55,50 mínútum sem er all-
verulega frá hans besta. „Ég gat
ekki gefið meira í hlaupið. Ef ég
hefði gert það var hætt við að ég
kastaði upp á miðri leið og þar með
hefðiþrautin verið unnin fyrir gýg.“
Jón Arnar segist nú bíða og vona
að árangurinn nægi sér til þess að
komast á heimsmeistaramótið. Með
árangrinum um helgina náði hann
að færast upp um eitt sæti á heims-
afrekalista ársins í sjöþraut, er nú í
fjórða sæti.
Mótið um helgina var hið þriðja á
jafnmörgum helgum sem Jón Arnar
tekur þátt í. Fyrir þremur vikum
keppti hann í Tallinn, þá í fimm
greinum á Meistaramóti Íslands og
loks í sjöþrautinni í Vínarborg. Burt
séð frá veikindunum kvað hann lík-
amann þolaerfiðið vel og engin
meiðsl hafa komið upp.
„Formið er fyrir hendi, ég hef náð
að halda því við. Auk þess kenni ég
mér einskis meins þrátt fyrir afar
stífa keppni þrjár helgar í röð. Þetta
er afar jákvætt bæði andlega og lík-
amlega og veitir ákveðið sjálfstraust
fyrir átökin á þessu ári.
Einnig tel ég mig eiga meira inni
en ég hef sýnt í sjöþrautarkeppni
vetrarins, til dæmis með betri ár-
angri í stökkum og eitt þúsund
metra hlaupinu á ég að geta bætt
við mig 150 til 200 stigum,“ sagði
Jón Arnar Magnússon.
Jón Arnar varð langfyrstur
Jón Arnar fékk ekki mikla keppni
í sjöþrautinni á austurríska meist-
aramótinu. Klaus Ambrosch varð
austurrískur meistari, fékk 5.633
stig. Annar varð Thomas Tebbich
með 5.492 stig og þriðja sæti kom í
hlut Thomas Lorber, hann safnaði
saman 5.355 stigum í greinunum sjö.
Jón Arnar bætir sig
JÓN Arnar Magnússon, fjölþrautarmaður úr Breiðabliki, færðist
skrefi nær þátttöku á heimsmeistaramótinu í Lissabon í næsta
mánuði er hann hlaut 6.084 stig í sjöþraut á austurríska meistara-
mótinu sem fram fór í Vínarborg um helgina. Bætti Jón Arnar ár-
angur sinn um 28 stig frá þrautinni í Tallinn fyrir hálfum mánuði. Til
þess að vera öruggur um þátttöku á HM þurfti Jón að ná 6.100 stig-
um, en meiri líkindi eru til þess en ekki að árangurinn í Austurríki
hafi tryggt honum farseðilinn til Lissabon.
Ívar
Benediktsson
skrifar
Björgvin
sigraði í
Svíþjóð
BJÖRGVIN Björgvinsson,
skíðamaður frá Dalvík, sigr-
aði í svigi á alþjóðlegu móti
sem fram fór í Sundsvall í
Svíþjóð á sunnudaginn.
Björgvin var með 1,10 sek.
forystu eftir fyrri ferðina á
næsta keppanda og varð 0,85
sek. á undan eftir seinni ferð-
ina. Alexander Seinestam frá
Svíþjóð varð annar og Per
Rönnmark frá Svíþjóð þriðji.
Fyrir sigurinn fékk Björgvin
25,46 FIS-stig sem er mjög
góður árangur en hann var
með 36,08 FIS-stig í svigi á
stigalista alþjóða skíða-
sambandsins sem gefinn var
út 5. febrúar.
Björgvin er nú staddur í
Oppdal í Noregi þar sem
hann mun stunda æfingar
fram á fimmtudag en þá fer
hann til Oslóar til að taka
þátt í alþjóðlegum mótum
þar um helgina.
Einar setti Íslandsmetið í ann-arri tilraun og bætti Íslands-
metið sem hann setti nokkrum mín-
útum fyrr í keppninni er hann lyfti
sér yfir 2,25 metra í fyrstu tilraun.
Einar fór áður yfir 2 metra slétta,
2,10 og 2,20 metra, í fyrstu tilraun.
Eins og nærri má geta hafði Einar
talsverða yfirburði í keppninni,
næstur honum varð Björgvin Reyn-
ir Helgason, HSK, með 1,95 metra.
Einar átti sjálfur fyrra Íslands-
metið í hástökki, 2,24 metra, en yfir
þá hæð lyfti hann sér 28. janúar í
fyrra, einnig í Laugardalshöllinni.
„Fylgja þessu eftir“
„Nú er bara um að gera að drífa
sig yfir 2,30 metra. Ég var mjög ná-
lægt því að þessu sinni og það var
léttara en ég reiknaði með,“ sagði
Einar glaður í bragði. „Ég vissi að
geta var fyrir hendi, spurningin var
bara um að töfra hana fram og það
tókst. Nú er bara að fylgja þessu
eftir.“ Aðspurður sagðist Einar
Karl vonast til þess að árangurinn
nægði sér til þess fá keppnisrétt á
heimsmeistaramótinu en Vésteinn
Hafstseinsson, landsliðsþjálfari, er
að kanna möguleikana á því.
Með þessum árangri hefur Einar
Karl lyft sér upp í flokk hástökkv-
ara á alþjóðlega vísu, en oft er sagt
að 2,25 metrar sé ákveðinn þrösk-
uldur sem hástökkvurum reynist
erfitt að komast yfir. Samkvæmt
heimsafrekalista ársins í hástökki
karla, sem alþjóða frjálsíþróttasam-
bandið tekur saman, er Einar Karl
í 11. – 15. sæti. Hann er í góðum
félagsskap þar sem Ólympíumeist-
arinn í hástökki, Rússinn Sergey
Klyugin, hefur hæst stokkið 2,28
meta á innanhússtímabilinu. Meðal
þeirra sem eru næstir á eftir Einari
með 2,27 metra er Bandaríkjamað-
urinn Charles Austin, Ólympíu-
meistari í Atlanta 1996, og heims-
methafinn Javier Sotomayor frá
Kúbu.
Svíarnir Stefan Holm og og Stef-
an Strand hafa stokkið karla hæst
innanhúss í vetur, 2,34 metra.
Einar Karl Hjartarson tvíbætti Íslandsmetið, stökk 2,28 metra
„Ég á meira inni“
„ÉG reiknaði með að bæta met-
ið og fara yfir 2,25 metra, en að
fara fjórum sentimetra yfir
gamla metið var meira en ég
reiknaði með,“ sagði Einar Karl
Hjartarson, hástökkvari úr ÍR.
Hann bætti á sunnudaginn eigið
Íslandsmet í hástökki innan-
húss um fjóra sentimetra, stökk
2,28 metra á Meistaramóti Ís-
lands, 15–22 ára sem fram fór í
Laugardalshöll. Einar var hárs-
breidd frá því að fara yfir 2,30
metra sem er lágmarksárangur
til þátttöku á heimsmeist-
aramótinu í Lissabon í næsta
mánuði.
Morgunblaðið/Golli
Einar Karl Hjartarson, ÍR, bætti eigið Íslandsmet í hástökki um 4 sentímetra á sunnudaginn.