Morgunblaðið - 20.02.2001, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 20.02.2001, Blaðsíða 8
HANDKNATTLEIKUR 8 B ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Það gekk eftir en við náðum ekkiað halda það út og lið eins og við erum með, með alla þessa reynslu, á auðvitað að halda út svona leik. Það var alls ekki nauðsynlegt að búa til þessa spennu í síðari hálf- leik og það var ekki með vilja gert þó svo áhorfendur hafi sjálfsagt haft gaman af. Það fór allt í svekkelsi hjá okkur eftir hlé, við köstuðum boltanum til mótherjanna í hraðaupphlaupi og sóknir okkar urðu miklu þyngri en nauðsynlegt var.“ Þú tókst nokkrum sinnum af skar- ið í síðari hálfleiknum. „Já, já, maður varð að gera það, en ég lék ekki nógu vel í dag. Haraldur sá um þetta fyrir hlé hjá okkur og Óskar var búinn að reyna og reyna í síðari hálfleiknum og ég varð auðvit- að að hjálpa honum því hann var orð- inn dauðþreyttur, karlinn. Vörnin var góð á stórum kafla en Sigurður Sveinsson kom inn með þrusugóðan leik og okkur tókst að stöðva hann. Í síðari hálfleik var það fyrst og fremst lélegur sóknarleikur okkar sem kom HK inn í leikinn. Þeir fengu allt of mörg auðveld mörk vegna þess hve sóknin var léleg hjá okkur. Hornin nýttust ekki eins og þau gera oft og kannski var það vegna þess að hornamennirnir byrjuðu á að fara inn og klikka og gerðu lítið af því að fara inn úr hornunum eftir það. Við verðum að læra af þessum leik og nýta okkur hann í Evrópukeppn- inni og ég ætla rétt að vona að menn læri af þessu og mæti tvíefldir í Evr- ópuleikina,“ sagði Rúnar. Óþarfi að gera þetta spennandi „ÞETTA var vissulega erfiðara en ég átti von á í hálfleik,“ sagði Rúnar Sigtryggsson eftir sigurinn, en hann átti góðan leik fyrir Hauka og gerði tvö mikilvæg mörk á lokakaflanum. Fyrir leikinn átti ég alveg eins von á mjög erfiðum leik, en ég taldi að ef við næðum góðum leik í byrjun þá ættum við að geta náð ágætri forystu. Eftir Skúla Unnar Sveinsson Það var fyrst og fremst reynslu-leysið sem háði okkur til að byrja með en gamli karlinn kom inn á og kom okkur í gang. Fyrsta korter- ið fór með leikinn fyrir okkur, með betri byrjun hefði sigurinn getað lent hvorum megin sem var. Í leikhléi vorum við stað- ráðnir í að láta ekki sigla yfir okkur og ég tel að liðið hafi sýnt mikinn karakter í seinni hálfleiknum. Það vantaði aðeins herslumun til að jafna. Ég er ekki vanur að gagnrýna dómara en mér fannst óþarfi af þeim að hjálpa Haukunum svona mikið eins og raunin var.“ Þið breyttuð ekki um varnarleik fyrr en Haukar voru komnir sjö mörkum yfir. Hefðuð þið ekki þurft að grípa til þess fyrr að setja einn fyrir framan, eins og þið gerðuð gegn Aftureldingu með góðum ár- angri? „Eftir á að hyggja hefði líklega verið betra að grípa til þess fyrr því við réðum ekkert við Halldór hægra megin. En það kostar gífurlega orku að spila svona varnarleik og það er erfitt að halda hann út í heilan leik, og Páll hefur því eflaust viljað spara hana sem lengst. En ég vona að okk- ur takist að nota reynsluna úr þess- um úrslitaleik á jákvæðan hátt í þeim deildarleikjum sem við eigum eftir. Við eigum að geta unnið marga leiki ef við spilum eins og við höfum gert í bikarnum. Nú er hann búinn en við ætlum að halda okkar striki og laga stöðu okkar í deild- inni,“ sagði Óskar Elvar. Vantaði ótrúlega lítið til að jafna „Það var ekkert mál fyrir mig að koma inn í svona leik, ég þekki þetta allt saman. Þetta var erfiðara fyrir strákana að koma inn í leikinn, þeir voru mjög taugaspenntir, börðust vel frá byrjun en í fyrri hálfleik fylgdi hausinn ekki með og það vantaði alla skynsemi. En þetta kom allt hjá okkur og það vantaði ótrú- lega lítið upp á að við næðum að jafna. Við hefðum bara þurft að byrja leikinn betur,“ sagði Sigurður Sveinsson, hin aldna stórskytta HK- inga, sem varð markahæsti leikmað- ur Kópavogsliðsins með 7 mörk, 16 dögum fyrir 42. afmælisdaginn. „Eftir ömurlegan fyrri hálfleik komum við til baka með góðri bar- áttu, höfðum trú á því sem við vor- um að gera og vorum komnir í takt við leikinn. En eftir það féllu öll vafaatriði Haukunum í hag, og það var okkur sérlega dýrt í 2–3 skipti þar sem Haukar fengu hraðaupp- hlaup eftir að brotið var á okkur. Þarna voru á ferð bestu dómarar Ís- lands og mér finnst þetta leiðinlegt fyrir þeirra hönd. Ég veit ekki hvort þeir voru svona hræddir við Viggó eða hvað þetta var, en þetta var sorglegt,“ sagði Sigurður Sveinsson. Reynslu- leysið háði okkur „ÞAÐ er alltaf leiðinlegt að tapa og ég er mjög svekktur með þessi úrslit. En við getum verið ánægðir með að hafa komið til baka eftir erfiðan fyrri hálfleik og verið nálægt því að jafna metin, og ég vil sérstaklega þakka áhorfendum úr Kópavogi fyrir frábæran stuðn- ing. Við vorum með hálfa Höllina á okkar bandi og af því er ég mjög stoltur sem HK-ingur og Kópavogsbúi,“ sagði Óskar Elvar Óskars- son, fyrirliði HK, við Morgunblaðið eftir úrslitaleikinn. Eftir Víði Sigurðsson Það var gríðarleg stemmning íLaugardalshöllinni, stuðnings- menn liðanna í sínum litum, rauðu og hvítu, og kynning leik- manna með nýstárleg- um hætti þar sem krakkar úr yngstu flokkum félagsins gengu í sínum búningum inn með leik- mönnum. Stund sem þau gleyma örugglega seint. En svo hófst leikurinn og það voru HK menn sem hófu hann en misstu boltann eftir að hafa reynt að finna glufu á sterkri vörn Hauka í eina mín- útu og 40 sekúndum betur. Hlynur Jó- hannesson varði langskot Hauka. Þetta var eina skotið sem hann varði í leiknum og þetta var eina sóknin í lang- an tíma, eða allt þar til tíu mínútur voru eftir af hálfleiknum, sem misfórst hjá Hafnfirðingum. Já, sóknarnýting Hauka í fyrri hálfleik var einstaklega góð, 14 mörk í 21 sókn, eða 67% og eftir að hafa misnotað fyrstu sóknina komu 11 sóknir í röð þar sem liðið skoraði. Glæsilegt hjá Haukum og erfitt fyrir HK að verjast slíkum ágangi. Fram að leikhléi gerðu Haukar síðan þrjú mörk úr níu sóknum. Sigurður Valur Sveinsson mætir Haukar komust í 4:0 eftir rúmlega átta mínútna leik og þá tók Páll Ólafs- son, þjálfari HK, leikhlé. Sigurður Sveinsson mætti til leiks og hvílík end- urkoma hjá honum. Hann var búinn að skora eftir tæpar 20 sekúndur og Haukar réðu ekkert við hann því hann átti fyrstu sex mörk HK, skoraði sjálf- ur fyrstu tvö, gaf síðan á línuna með sínu einstaka hætti og áhorfendur hrif- ust með, jafnt stuðningsmenn HK sem Hauka. Enda annað ekki hægt. HK misnotaði fyrstu fimm sóknirnar en síðan komu fimm í röð þar sem lið- inu tókst að skora en Haukar svöruðu alltaf í sömu mynt þannig að staðan breyttist lítið, munurinn hélst og jókst heldur og um tíma munaði sex mörk- um, 12:6 en fimm mörkum í leikhléi. Fremsur í flokki Hauka var örvhentur leikmaður eins og hjá HK, Halldór Ingólfsson. Hann fór einnig á kostum, þó á annan hátt en Sigurður. Halldór gerði þrjú mörk fyrir hlé og þrívegis fékk hann dæmt vítakast sem Jón Karl Björnsson nýtti af miklu öryggi. HK notuðu leikhléið vel Fæstir áttu von á spennu eftir hlé og höfðu ýmislegt fyrir sér í því. Í fyrsta lagi hafði sókn HK byggst nær ein- göngu á Sigurði og vörn Hauka hlaut að finna svar við því. Í annan stað hafði engin ógnun komið af vinstri væng HK þaðan sem Sverrir Björnsson gerði eitt mark fyrir hlé og var það eina mark hans í leiknum. Í þriðja lagi var Jón Bersi Ellingsen, varnarjaxl HK, búinn að fá tvær brottvísanir og því vá fyrir dyrum. Hann fékk sína þriðju brott- Halldór Ingólfsson, fyrirliði Hauka, og Bjarni Frostason markvörðu SKEMMTILEG endurkoma Sigurðar Vals Sveinssonar í HK-liðið dugði ekki til að leikmenn þess fengju að hampa bikarnum, til þess voru mót- herjarnir, Haukar úr Hafnarfirði, einfaldlega of sterkir. Haukar sigruðu 24:21 eftir að hafa verið 14:9 yfir í leikhléi. Með baráttu og aftur bar- áttu tókst Kópavogsliðinu að minnka muninn í eitt mark, 20:21, þegar fimm mínútur voru eftir, en lengra komust þeir ekki en geta vel við un- að að fá silfurpening um hálsinn í sínum fyrsta bikarúrslitaleik. Skúli Unnar Sveinsson skrifar Skemmtileg endu Sveinssona Haukar of ste

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.