Morgunblaðið - 20.02.2001, Síða 7
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2001 B 7
Við vorum vel stemmdir frá upp-hafi, og reyndar allan tímann.
Þó HK væri nálægt því að jafna,
héldum við okkar
hlut með góðum
varnarleik og mark-
vörslu. HK-ingar
náðu ekki taktinum í
fyrri hálfleik en eftir það var að
duga eða drepast fyrir þá, þannig að
þeir komu með miklum krafti í
seinni hálfleikinn. Við héldum haus
og sennilega hefur reynslan haft
eitthvað að segja.
Sóknarleikur okkar gekk ekki
eins vel seinni hluta leiksins þegar
þeir komu út á móti Halldóri en við
skoruðum mörkin sem þurfti til að
halda okkur gangandi á þeim kafla.
Spurningin var að halda þetta út og
það tókst okkur,“ sagði Óskar, og
bætti því við að hann væri ekki
endilega hættur í handboltanum
eftir þetta tímabil. „Ég er mennt-
aður íþróttafræðingur með hand-
bolta sem aðalfag, þannig að
kannski liggur leiðin yfir í þjálfun,“
sagði Óskar, sem er 35 ára og lék
lengst af með FH en kom til Hauka
1998 eftir nokkurra ára dvöl í
Þýskalandi.
Frábær byrjun lagði grunninn
„Þetta var frábær byrjun hjá
okkur og hún lagði grunninn að
þessum sigri. HK-ingar voru stress-
aðir í sínum fyrsta úrslitaleik en það
mátti alltaf búast við því að þeir
kæmust aftur inn í leikinn og þá
skipti mestu máli hjá okkur að fara
ekki á taugum. Okkur tókst nokk-
urn veginn að komast hjá því,“ sagði
Halldór Ingólfsson, fyrirliði Hauka.
„Okkar leikur datt niður í seinni
hálfleik, HK breytti um vörn sem
virkaði vel, en við héldum haus og
ég var aldrei smeykur, var alltaf 100
prósent viss um að við myndum
sigra. Við erum ekki búnir að ná
okkur fyllilega á strik eftir hléið
langa, en erum að vinna okkur út úr
því og þetta var fyrsti úrslitaleik-
urinn af mörgum sem við eigum
framundan á tímabilinu.
Ég vil þakka okkar frábæru
stuðningsmönnum fyrir sinn hlut,
þeir eiga stóran hlut í þeim árangri
sem við höfum náð. Félagið er orðið
mjög sterkt, leikmenn, stjórnar-
menn og stuðningsmenn eiga allir
sinn þátt í þessum bikarsigri,“ sagði
Halldór Ingólfsson.
Morgunblaðið/Kristinn
Kampakátir leikmenn Hauka fagna bikarmeistaratitlinum eftir að þeir lögðu HK-menn að velli, 24:21.
Fyrsti og síðasti
bikarsigur Óskars
„ÞAÐ var mjög sætt að sigra og frábær tilfinning fyrir mig að vinna
minn fyrsta bikarmeistaratitil frá upphafi eftir allan þennan tíma í
handboltanum. Þetta verður líka sá síðasti því ég er búinn að
ákveða að leggja handboltaskóna á hilluna í vor,“ sagði Óskar Ár-
mannsson við Morgunblaðið en hann lék mjög vel með Haukum,
skoraði mikilvægt mark á lokakaflanum, kom Haukum í 23:20 og
nánast tryggði liði sínu sigurinn, 24:21.
Morgunblaðið/Kristinn
Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, gefur skipanir til sinna manna í vörn.
Eftir
Víði
Sigurðsson
Við komum mjög öflugir inn íleikinn og HK-ingar voru
heppnir að vera bara fimm mörk-
um undir í hálfleik.
En í byrjun síðari
hálfleiks gekk allt
upp hjá þeim en
ekki hjá okkur. Við
náðum ekki að bæta við forskotið
eins og við ætluðum okkur, þeir
komust inn í leikinn og gerðu hann
spennandi. HK-ingar spiluðu
seinni hálfleikinn mun betur en ég
átti von á, voru geysilega duglegir
og börðust leikinn á enda. Boltinn
rúllaði með þeim síðustu 20 mín-
úturnar, þeir náðu öllum fráköst-
um og við þurftum virkilega að
hafa fyrir þessu. Sigurður Sveins-
son spilaði stórkostlega, 41 árs
gamall, og sýndi hvers konar
handboltasnillingur hann er. Með
hann í aðeins betra formi hefði sig-
urinn getað fallið hvorum megin
sem var.
Ég er ekki sáttur við alla þá
brottrekstra sem við fengum á
okkur, þetta var önnur lína frá
dómurunum en við eigum að venj-
ast, en dómgæslan var samt öguð
og í öruggum höndum.“
Við erum tilbúnir í
þann slag sem eftir er
Ertu sáttur við frammistöðuna í
heild hjá þínu liði?
„Við erum búnir að æfa stíft frá
áramótum, liðið var keyrt niður
eftir mikið álag fyrr í vetur, og er
að koma aftur upp. Það er mikið
framundan en við erum á réttri
leið á ný og tilbúnir í þann slag
sem eftir er. Þetta er eðlileg þró-
un. Ég er mjög ánægður með Ósk-
ar og Rúnar, og ekki síst Baum-
ruk, sem er nánast á annarri
löppinni. Hinsvegar voru horna-
mennirnir ekki nógu góðir og fóru
í þrígang illa með færi sem gátu
gert út um leikinn fyrir okkur,“
sagði Viggó Sigurðsson.
Þurftum seiglu
og baráttu
„VIÐ þurftum virkilega að hafa fyrir þessum sigri og sýna seiglu til
að koma bikarnum í hús. En baráttan í liðinu var stórkostleg og
menn sýndu mikinn karakter. Það eru atriðin sem skila svona titl-
um,“ sagði Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, sem fagnaði sínum
fyrsta stóra titli sem þjálfari á ferlinum, en hann varð á sínum tíma
fimm sinnum bikarmeistari sem leikmaður Víkings.
Eftir
Víði
Sigurðsson