Morgunblaðið - 20.02.2001, Qupperneq 10
KÖRFUKNATTLEIKUR
10 B ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Þórsarar byrjuðu betur og voru yf-ir í fyrsta leikhluta en ljóst var
að leikmenn beggja liða voru tauga-
spenntir. Mikið var
um mistök og hittnin
var slök. Staðan var
18:17 eftir fyrsta
leikhlutann og
Cedrick Holmes búinn að fá 3 villur.
Hann var hvíldur í upphafi annars
leikhluta en ÍR-ingar náðu þá góðum
leikkafla og breyttu stöðunni í 18:23
og síðan 20:30. Holmes kom aftur inn
á en fékk þá sína 4. villu og settist á
bekkinn. Þórsarar hleyptu spennu í
leikinn og jöfnuðu 33:33 en staðan í
leikhléi var 35:37.
Spennan fjaraði út strax í þriðja
leikhluta. Þórsarar voru heillum
horfnir. ÍR skoraði 11 stig gegn engu
og staðan 35:48. Eiríkur Önundarson
og Hreggviður Magnússon sýndu
ágætis tilþrif en Þórsarar voru í örg-
ustu vandræðum. Óðinn Ásgeirsson
hitti illa, Sigurður Sigurðsson og Ein-
ar Hólm Davíðsson voru mistækir og
Maurice Spillers skoraði aðallega af
vítalínunni.
Í stöðunni 48:64 voru ÍR-ingarnir
Sigurður Þorvaldsson og Björgvin
Jónsson einnig komnir með 4 villur
en gestirnir slógu ekkert af. Þeir
nýttu sér slaka hittni Þórsara og
skoruðu margar körfur úr hröðum
sóknum þar sem Þórsarar voru alltaf
skrefinu á eftir. Staðan eftir þriðja
hluta var 55:69.
Í upphafi fjórða hluta fékk Hregg-
viður sína 4. villu og þar með voru
fjórir leikmenn ÍR komnir með 4 vill-
ur. Við venjulegar aðstæður hefðu
Þórsarar átt að geta nýtt sér þetta en
lykilmenn þeirra náðu sér ekki á strik
meðan maður kom í manns stað hjá
ÍR og virtust gestirnir hreinlega vera
betur stemmdir. Þórsurum tókst þó
að minnka muninn í 63:69 þegar 6
mín. voru eftir og munurinn var enn 6
stig, 72:78 þegar 3 mínútur voru eftir
af leiknum. Þessum síðustu mínútum
vilja Þórsarar eflaust gleyma. Allt
gekk á afturfótunum hjá liðinu og ÍR
tryggði sér öruggan og sanngjarnan
sigur.
Eiríkur Önundarson var besti
maður vallarins. Hreggviður og
Holmes áttu líka fínan leik og liðs-
heildin var sterk hjá ÍR. Spillers var
atkvæða-
mestur Þórsara en Einar Örn Að-
alsteinsson var þó einna bestur í lið-
inu. Hermann Daði Hermannsson lék
einnig vel en aðrir geta miklu betur.
Munaði þar mestu um að Óðinn gerði
aðeins 10 stig og var mistækur en
hann á að vera 20 stiga maður. Þá
vantaði 3ja stiga körfurnar hjá Þór og
í heild var sóknarleikur liðsins slakur.
Góður sigur ÍR-inga
VONIR Þórs um sæti í úslitakeppninni þetta árið urðu nánast að
engu eftir að liðið tapaði heima fyrir ÍR á sunnudaginn. Að sama
skapi vænkaðist hagur ÍR-inga og kljást þeir nú við Borgnesinga um
8. sætið í deildinni og vissulega geta þeir komist ofar. ÍR sigraði Þór
89:81 í leik sem náði aldrei að verða verulega spennandi því heima-
menn virtust ekki tilbúnir, lykilmenn Þórs brugðust og sigur ÍR var
tiltölulega auðveldur.
Stefán Þór
Sæmundsson
skrifar
Við vorum kærulausir undir lokinog hleyptum þeim inn í leikinn.
Þar sem þetta er annar tapleikur
Hamars á heimavelli
í vetur lítum við á
þennan sigur sem
ágætan árangur. Við
erum núna í öðru
sæti í deildinni þannig hver sigur
skiptir miklu máli,“ sagði Sigurður
Þ. Ingimundarson, þjálfari Keflavík-
ur.
Leikmenn Keflavíkur voru mjög
frískir í upphafi leiks og komust þeir
strax í 2:12. Hamarsmenn komust
lítið áleiðis gegn frískri vörn gest-
anna en greinilegt var að þeir vildu
bæta upp fyrir undanúrslitaleikinn í
bikarnum. Hittni gestanna var góð
og fengu þeir tiltölulega frí skot á
meðan Hamarsmenn voru að berjast
í bökkum á vallarhelmingi Keflavík-
ur. Uppskera Keflavíkur var góð í
lok leikhlutans, 12:28.
Mikil harka og grimmd hljóp í
leikinn í öðrum leikhluta. Það var
ekki fyrr en um hann miðjan sem
vörn Hamars small saman. Ásamt
henni og hröðum og góðum sóknar-
bolta fóru heimamenn að minnka
muninn jafnt og þétt. Guðjón Skúla-
son byrjaði vel í leiknum en síðan tók
Gunnar Einarsson við og hélt Kefl-
víkingum á floti. Dæmið hafði nú
heldur betur snúist við í þessum leik-
hluta og vann Hamar hann, 25:13, og
var staðan í hálfleik 37:41.
Þriðji leikhluti var keimlíkur þeim
fyrsta. Gestirnir byrjuðu mun betur
og náðu að auka forskotið strax í 10
stig. Vörnin hjá þeim var góð en leik-
urinn snerist oft á tíðum upp í mikla
vitleysu og mistök sem aðallega voru
gerð af heimamönnum. Í þessum
leikhluta sýndu gestirnir mátt sinn
og meginn með þá Calvin Davis og
Gunnar Einarsson í broddi fylkingar
en Magnús Þ. Gunnarsson átti einn-
ig ágæta innkomu. Keflavík vann
þennan leikhluta nokkuð örugglega,
10:22, og breyttu stöðunni í 47:63
fyrir síðasta leikhlutann.
Það var ekki öfundsvert verkefni
sem beið Hamars í fjórða og síðasta
leikhluta gegn Keflavík. Keflvíking-
ar fóru á kostum í byrjun leikhlutans
og juku muninn jafnt og þétt í 26
stig. Í þessum leikhluta fór Hamars-
maðurinn Chris Dade í gang og skor-
aði hann í honum 22 af 36 stigum sín-
um, þar af sex þriggja stiga körfur.
Þetta, ásamt góðri baráttu Hamars
og góðri vörn, varð til að munurinn
breyttist skyndilega í fjögur stig.
Reynsla Keflavíkur vó þó þungt und-
ir lokin eftir mikið kæruleysi og
gerðu þeir sig ekki seka um nein
mistök sem gætu kostað þá sigurinn.
„Við vorum værukærir. Leikmenn
Keflavíkur voru greinilega tilbúnir í
slaginn – náðu alltaf góðu forskoti og
því var erfiðara að vera á hælunum á
þeim en ella,“ sagði Pétur Ingvars-
son þjálfari og leikmaður Hamars.
Morgunblaðið/ Guðmundur Karl Sigurdórsson
Svavar Páll Pálsson sækir að körfu Keflvíkinga, Jón Norðdal Hafsteinsson til varnar.
Keflavík stóðst
lokaáhlaup Hamars
KEFLAVÍK vann góðan sigur á heimavelli Hamars í Hveragerði á
sunnudaginn, 86:92. Leikurinn var mjög kaflaskiptur en Keflavík
náði mest 26 stiga mun í fjórða leikhluta en með ótrúlegum loka-
kafla minnkuðu heimamenn muninn niður í 4 stig undir lokin. Áður
höfðu Keflvíkingar komið sér upp 16 stiga forskoti sem heimamenn
voru duglegir við að kroppa í. Þetta var jafnframt annað tap Hamars
á heimavelli í vetur.
Helgi
Valberg
skrifar
Í karlaflokki ætlar KKÍ að stefnaað því að eiga raunhæfa mögu-
leika á aðkomast í hóp þeirra 16
þjóða sem komast í
úrslit Evrópu-
keppninnar 2007–
2009 en fróðir menn
telja að Ísland sé í
kringum þrítugasta sæti í Evrópu.
Á Norðurlandamótinu, þar sem ís-
lenska karlalandsliðið hafnaði síð-
ast í þriðja sæti, er ætlunin að ná í
2. eða 3. sætið á næstu árum en gull
eða silfur árið 2006. Yfirleitt hefur
verið keppt á tveimur öðrum mót-
um, Promotion Cup og Smáþjóða-
leikunum, og ætla Íslendingarnir
sér eftir sem áður að hampa gulli
þar taki liðið þátt í þeim mótum en
Ísland á ekki lengur þátttökurétt á
Promotion Cup vegna góðs árang-
urs liðsins á öðrum vígstöðvum.
Kvennalandsliðið hefur ekki eins
sterka stöðu en er þó á góðri upp-
leið enda á það sér mun skemmri
sögu en karlarnir. Ef liðið nær við-
unandi árangri á Norðurlanda-
mótinu á næsta ári verður stefnt á
þátttöku í Evrópukeppni árið 2006
en viðunandi telst að ná 3. til 4.
sæti á Norðurlandamótunum 2002,
2004 og 2006. Eins og karlarnir
ætlar liðið sér að sigra bæði
Promotion Cup og á Smáþjóðaleik-
unum.
Frábærri frammistöðu unglinga-
landsliðs drengja í úrslitakeppni
Evrópukeppninnar 1993, þegar lið-
ið náði 9. sætinu og vakti mikla at-
hygli, á að fylgja eftir en að auki ná
í gull eða silfur á Norðurlandamóti.
Stúlkurnar eru aðeins hógværari,
ætla sér í undankeppni Evrópu-
keppninnar en ná 1. til 3. sæti í
Promotion Cup og 2. til 4. sæti á
Norðurlandamótinu.
Rökin fyrir að setja þessi metn-
aðarfullu markmið eru þau helst að
margir íslenskir körfuknattleiks-
menn eru að spila í Bandaríkjunum
og hafa margir náð ágætis árangri.
Auk þess er meðalhæð íslenskra
leikmanna mun meiri en áður og
þar sem yngri landsliðin hafa leikið
mun fleiri leiki við aðrar þjóðir en
fyrri landslið má reikna með að
reynsla fleyti liðinu eitthvað áfram.
Hjá kvenfólkinu er bent á að mun
fleiri stúlkur æfi nú körfuknattleik
og margir góðir landsliðssigrar
undanfarin ár hafi stappað í þær
stálinu.
Sem fyrr munu landslið æfa á
sumrin og ætlunin er að spila jafn-
marga landsleiki en helsta nýjung-
in er sú að stofnuð verður „lands-
liðsfjölskylda“ þar sem í verður
stór hópur karla og kvenna. Í af-
reksstefnuskránni kemur fram að
unnið verður með skólunum þannig
að landsliðsmenn geti stundað nám
í fjarveru og fengið launuð leyfi hjá
atvinnurekendum sínum vegna
fjarvista með landsliðinu. Einnig
verður haft samráð við foreldra og
þess gætt meðal annars að „fjöl-
skyldumeðlimir lifi heilbrigðu líf-
erni, t.d. borði hollan mat og fái
nægan svefn.“
Ljóst er að slíkur árangur kostar
ekki bara ómælda sjálfboðavinnu
heldur beinharða peninga. Körfu-
knattleiksmenn segja að skuldum
verði ekki safnað og ætla sér að
safna rúmlega ¾ hlutum af þeim 23
milljónum sem til þarf árið 2001 og
svipað árið 2002. Þeir telja einnig
að Afrekssjóður ÍSÍ mætti leggja
til að minnsta kosti um 10% og
einnig að landsliðin fái að æfa og
keppa endurgjaldslaust í íþrótta-
húsunum, eins og tíðkast víðast í
heiminum. Þar fyrir utan verður að
hafa allar klær úti og spara á öllum
sviðum, leikmönnum verða þó ekki
greidd laun en eiga ekki að þurfa
borga með sér.
Búið er að skipa landsliðsnefndir
karla, kvenna og unglinga sem eru
stjórn KKÍ til ráðgjafar og faglegr-
ar umsjónar en alls eru 8 landslið á
vegum körfuknattleikssambands-
ins. Í landsliðsnefnd karla eru Gísli
J. Friðjónsson formaður, Jón
Bjarni Helgason, Guðfinnur Frið-
jónsson og Stefán Eggertsson, í
kvennanefndinni eru Hrannar
Jónsson, Guðni Hafsteinsson og
Björg Hafsteinsdóttir sem er for-
maður. Unglinganefnd yngri lands-
liða karla og kvenna skipa Sturla
Jónsson formaður, Henning Freyr
Henningsson, Daði Steinn Arnars-
son og Halldór Þorsteinsson.
Metnaðarfull
afreksstefna
METNAÐARFULL afreksstefna Körfuknattleikssamband Íslands til
sex ára var kynnt um helgina og þrátt fyrir að forráðamenn þar á bæ
geri sér grein fyrir að markið sé sett hátt er einhugur um það enda
hafa öll markmið undanfarinna sjö ára náðst og rökin fyrir enn meiri
árangri sterk. Karlar ætli sér meira en að hafa færst upp um 17 sæti
í Evrópu og vilja á verðalaunapall á Norðurlandamóti ásamt körfu-
knattleikskonum. Hins vegar telja menn að þrátt fyrir góðan árang-
ur verði ekki lengra komist nema til komi breyttar áherslur og ger-
breytt afreksstefna sem hefst um 12 ára aldur.
Stefán
Stefánsson
skrifar
„VIÐ teljum að þetta séu raunhæf
markmið og höfum trú á að þeim
verði náð en allt sem við höfum
stefnt að síðustu sex til sjö árin
hefur gengið eftir,“ sagði Ólafur
Rafnsson formaður Körfuknatt-
leikssambands Íslands þegar
hann var spurður um hvort mark-
miðið væri raunhæft. Hann sagði
þó bogann þaninn. „Það er enginn
vafi á að þetta er miklu brothætt-
ara núna heldur en verið hefur.
Við höfum farið upp um allt að 15
sæti á þessum 7 árum og að kom-
ast tveimur til þremur sætum of-
ar er að okkar mati tvöfalt eða
þrefalt stærra skref en hitt. Mesta
breyting frá síðustu afreksstefnu
er breidd leikmannahóps. Áður
fyrr urðum við að treysta á lyk-
ilmenn og ef þeir voru ekki með
var okkur vandi á höndum. Í dag
erum við með allt að sjö menn um
hverja einustu stöðu og hver ein-
asti þeirra er í byrjunarliði hjá
sínu liði auk þess að hávaxnari
leikmenn eru í öllum stöðum.“
Fyrri afreksstefna var til fjög-
urra ára. „Við teljum einfaldlega
að með lengri tíma, án þess að
hann sé of langur, tryggjum við
meira svigrúm til að sýna þol-
inmæði og með lengri markmiðs-
setningu fara menn síður á taug-
um þó allt hafi ekki gengið vel í
byrjun því oft vilja menn að ár-
angur komi of fljótt,“ sagði for-
maðurinn og vænti viðbragða Af-
rekssjóðs. „Við gerum okkur
miklar væntingar þar því farið er
fram á að menn setji fram vel skil-
greinda stefnu og það teljum við
okkur hafa gert og rökstutt hana
eins og mögulegt er. Við bjóðum
einnig umtalsverða eigin fjár-
mögnun en höfum borið skarðan
hlut frá borði við úthlutun sjóðs-
ins undanfarin ár, fengið innan
við 1% af styrkjunum undanfarin
tíu til tólf ár. Við erum að sýna að
við höfum vaxið um þó þetta und-
anfarin ár, það hefur allt gengið
og ef þetta dugar ekki til verður
að viðhafa þau stóru orð að þá sé
verið að útiloka körfuknattleik
frá afrekssjóðnum.“
Raunhæft