Morgunblaðið - 20.02.2001, Side 12
KNATTSPYRNA
12 B ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Roma heldur sex stiga forystu íítölsku deildinni, lagði Lecce
um helgina á heimavelli. Juventus og
Lazio unnu bæði á útivelli og halda
því Roma við efnið.
Leikmenn Roma unnu sinn fjórða
leik í röð í deildinni og virtust ekki
láta tapið fyrir Liverpool á fimmtu-
daginn hafa áhrfi á sig. „Það var
mjög erfitt að mæta til þessa leiks
eftir tapið á fimmtudaginn, sérstak-
lega þar sem leikmenn Lecce eru
engin lömb að leika sér við,“ sagði
Fabio Capello þjálfari Roma eftir
leikinn en hann var mjög ánægður
með stigin þrjú sem lið hans krækti í.
Hann sagðist óttast Juventus heldur
meira en Lazio þar sem þeir síðar-
nefndu ættu efiðari leiki eftir, meðal
annars í Evrópukeppninni.
Alessandro Del Piero gerði eina
mark Juve þegar liðið lagði Bari á
útivelli og markið kom ekki fyrr en á
81. mínútu.
Áhorfendur og stuðningsmenn
Lazio þurftu að bíða enn lengur eftir
sigurmarki liðs síns á útivelli gegn
Perugia því Diego Simeone gerði
sigurmarkið á 88. mínútu.
Brasilíumaðurinn Matuzalem kom
mikið við sögu þegar Napolí vann
Inter Mílanó 1:0 á sunnudaginn.
Kappinn sá gerði stórglæsilegt mark
á 54. mínútu, með föstu skoti nokkuð
utan vítateigs. Hann varð svo yfir sig
kátur pilturinn að hann fór úr keppn-
istreyju sinni, fékk gult fyrir vikið og
hafði fengið annað fyrr í leiknum og
var því rekinn af velli. Það kom þó
ekki að sök því Mílanómenn náðu
ekki að nýta sér liðsmuninn.
Það gekk mikið á í Mílanó þegar
Bologna heimsótti AC Milan. Gest-
irnir voru eitthvað sofandi í vörninni
og Andriy Shevchenko skoraði tví-
vegis fyrir heimamann og hefur nú
gert 15 mörk fyrir liðið. Giacomo
Ciprini lék sinn fyrsta leik með gest-
unum og hann minnkaði muninn
snemma í síðari hálfleik og jafnaði
síðan skömmu síðar. Giuseppe Sig-
nori hélt upp á 33 ára afmæli sitt með
því að koma gestunum yfir á 81. mín-
útu og þar kom nýliðinn einnig við
sögu, lagði boltann fyrir Signori.
Heimamönnum fannst ekki gott að
vera 2:0 yfir og lenda síðan 3:2 undir
og Luigi Sala bjargaði andliti félags-
ins með því að jafna og krækja í eitt
stig á 90. mínútu.
Fagnaði marki og var rekinn af velli
STOKE City nýtti ekki gott
færi til að saxa enn frekar á
forskot toppliða ensku 2.
deildarinnar þegar liðið
gerði jafntefli, 1:1, í nágran-
naslagnum frammi fyrir 22
þúsund áhorfendum á Brit-
annia Stadium. James
O’Connor kom Stoke yfir en
Port Vale jafnaði metin
skömmu fyrir leikslok.
Jafnteflið kom þó Stoke upp
í fjórða sæti deildarinnar og
liðið er nú fimm stigum og
tveimur leikjum á eftir Wig-
an, sem er í öðru sætinu.
Birkir Kristinsson, Bjarni
Guðjónsson, Brynjar Björn
Gunnarsson og Ríkharður
Daðason léku allan leikinn
með Stoke. Ríkharður þótti
standa sig best en hann var
mjög ógnandi í framlínu
Stoke.
„Við erum mjög óánægðir
með þessi úrslit því þó leik-
urinn hafi ekki verið góður
af okkar hálfu fengum við
mun fleiri færi en leikmenn
Port Vale. Þeir börðust
hinsvgegar gífurlega, enda í
mikilli fallhættu, og fögnuðu
stiginu ákaflega,“ sagði Guð-
jón Þórðarson, knatt-
spyrnustjóri Stoke, við
Morgunblaðið.
Stoke
missti dýr-
mæt stig
Spænsku meistararnir DeportivoLa Coruna unnu sögulegan sig-
ur á Barcelona, 3:2, á útivelli í
spænsku knattspyrnunni á laugar-
daginn. Þetta var fyrsti sigur
Deportivo á Nou Camp frá upphafi, í
31 heimsókn þangað og hann hefur
líklega bundið enda á vonir Börsunga
um að halda í við toppliðin. Þeir eru
nú 11 stigum á eftir Real Madrid og 7
stigum á eftir Deportivo.
Victor var maðurinn á bakvið
þennan magnaða sigur Deportivo.
Hann lagði upp fyrsta markið fyrir
Djalminha og skoraði hin tvö á glæsi-
legan hátt. Það síðara með stór-
brotnu skoti eftir aukaspyrnu, mín-
útu fyrir leikslok. Rivaldo og Luis
Enrique skoruðu mörk Barcelona
sem komst í 2:1 í fyrri hálfleiknum.
Real Madrid átti slakan leik gegn
Racing Santander en vann, 1:0, á
heppnismarki frá Raúl.
Valencia skaust uppfyrir Barce-
lona og í þriðja sætið með því að
sigra Las Palmas, 2:0, á Kanaríeyj-
um. Þórður Guðjónsson lék ekki með
Las Palmas sem þurfti að setja úti-
spilarann Robert Jarni í markið 5
mínútum fyrir leikslok en markvörð-
ur liðsins var þá rekinn af velli og
Las Palmas hafði þegar notað þrjá
varamenn.
Sögulegur
sigur La
Coruna á
Nou Camp
Meistararnir í Bayern Münchenunnu góðan sigur á Spartak
Moskvu í Meistaradeildinni í síðustu
viku og flestir bjuggust við að við-
ureign þeirra við nágranna þeirra í
München, Unterhaching, yrði auð-
veld, en annað kom á daginn. Heima-
menn náðu að skora snemma í síðari
hálfleik og þar við sat. Meistararnir
virkuðu þungir og áhugalausir og
allt að því sáttir við að tapa sínum
sjötta leik í deildinni, en það er einu
tapi meira en allt tímabilið í fyrra.
Ottmar Hitzfeld, þjálfari meistar-
anna, var allt annað en ánægður með
sína menn. „Við fengum nægilega
mörg tækifæri til að gera í það
minnsta eitt mark. Í liðinu erum við
með 18 eða 19 frábæra leikmenn, en
þeir verða samt sem áður að leggja
sig fram, annars vinnum við ekki,“
sagði þjálfarinn. Þrátt fyrir tapið er
Bayern enn með tveggja stiga for-
ystu því næstu lið, Schalke og Lev-
erkusen, töpuðu einnig.
Það virtist þó allt ganga Lev-
erkusen í haginn þegar liðið heim-
sótti Hansa Rostock því Ulf Kirsten
kom gestunum í 1:0 með marki eftir
23 mínútur. Þar sem Rostock er með
versta árangur allra liða í deildinni á
heimavelli áttu flestir von á auðveld-
um stigum til handa Leverkusen.
Heimamenn gáfust hins vegar ekki
upp og Nígeríumaðurinn Victor
Agali jafnaði með skalla og Steffen
Baumgart kom þeim yfir snemma í
síðari hálfleik og það breytti engu þó
heimamenn léku einum færri síðustu
fimm mínúturnar.
„Ég er langt frá því að vera
ánægður. Ég gæti kvartað yfir
ástandi vallarins eða dómaranum, en
þá lendi ég bara í vandræðum. Ég
óska Hansa Rostock til hamingju
með sigurinn,“ sagði Berti Vogts
þjálfari Leverkusen.
Schalke lék einnig á útivelli, heim-
sótti Werder Bremen og tapaði líka
2:1, rétt eins og Leverkusen. Þar
þróuðust mál þó með öðrum hætti
því heimamenn komust í 2:0 með
mörkum Claudio Pizarro og Fabian
Ernst á 17. og 26. mínútu. Heima-
menn fengu nokkur færi á að komast
í 3:0 en tókst ekki en Daninn Ebbe
Sand lagaði stöðuna lítillega fyrir
Schalke, hans 15. mark í vetur.
„Við getum varla kvartað því við
vorum steinsofandi í fyrri hálfleik en
lékum þokkalega í síðari hálfleik, en
þá var það orðið of seint,“ sagði
Huub Stevens þjálfari Schalke.
Fredi Bobic skoraði tvívegis fyrir
Dortmund þegar liðið tók á móti
HSV og sigraði 4:2. Hin mörkin
gerðu Otto Addo og Milan Fukal,
sem gerði sjálfsmark.
Enn tapar Stuttgart
Eyjólfur Sverrisson og félagar
heimsóttu Stuttgart um helgina og
unnu 1:0 og nú er ástandið orðið al-
varlegt hjá Stuttgart, þar sem Eyj-
ólfur hóf atvinnumannaferil sinn, lið-
ið er í næstneðsta sæti og haldi það
áfram á sömu braut blasir ekkert
nema fall við félaginu.
Eyjólfur lék allan tímann með
Herthu, var nú næstur fyrir aftan
framherjana og hann átti stóran þátt
í eina marki leiksins, skallaði á
Michael Preetz stundarfjórðungi
fyrir leikslok.
Hertha er í fimmta sæti deildar-
innar, þremur stigum á eftir liðunum
sem eru í 2.–4. sæti og með jafn
mörg stig og Kaiserslautern, sem
vann Kölnara með marki Tékkans
Vratislavs Lokvenc.
Reuters
Eyjólfur Sverrisson heldur um Bradley Carnell, leikmann Stuttgart, eftir að þeir féllu við í baráttunni um knöttinn.
Efstu liðin
töpuðu öll
Reuters
Eyjólfur Sverrisson stekkur hærra en Marcelo Bordon, leik-
maður Stuttgarts, og skallar knöttinn.
ÞRJÚ efstu liðin í þýsku deild-
inni töpuðu öll um helgina en
staða þeirra breyttist ekkert við
það, Bayern er efst og síðan
koma Schalke og Leverkusen.
Dortmund vann góðan sigur á
HSV og er nú einnig tveimur
stigum á eftir Bayern.