Morgunblaðið - 20.02.2001, Síða 13
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2001 B 13
GARY Megson, knattspyrnustjóri
WBA, notaði ekki Lárus Orra Sig-
urðsson gegn Birmingham í 1. deild-
inni á laugardag, þrátt fyrir að hafa
stöðvað för hans til Luton sem láns-
maður á síðustu stundu. Lárus Orri
sat á bekknum allan leikinn en Birm-
ingham vann, 2:1, í mikilvægum leik í
baráttunni um sæti í úrslitakeppn-
inni.
HEIÐAR Helguson lék í 70 mín-
útur með Watford sem tapaði fyrir
Crewe í 1. deildinni, 2:0.
BJARNÓLFUR Lárusson lék allan
leikinn með Scunthorpe sem tapaði,
3:0, fyrir Cardiff í 3. deild.
TEDDY Sheringham, sem hefur
skorað 18 mörk fyrir Manchester
United, gaf í skyn um helgina að
hann myndi yfirgefa félagið eftir
þetta tímabil. Samningur Shering-
hams rennur út í vor og hann segir að
ekkert hafi verið rætt við sig um nýj-
an samning. Fyrst svo væri, færi
hann að líta í kringum sig hvað úr
hverju.
JIMMY Floyd Hasselbaink lýsti
því yfir um helgina að hann myndi
leggja skóna á hilluna eftir fimm ár
þegar samningi hans við Chelsea
lýkur. Hasselbaink kvaðst ætla að
vinna meistaratitilinn og enska bik-
arinn með Chelsea og það yrði síðan
hæfilegt að hætta 33 ára gamall.
EIÐUR Smári Guðjohnsen varð
þriðji í einkunnagjöf stuðnings-
manna Chelsea á heimasíðu félagsins
eftir leikinn við Arsenal, þrátt fyrir
að hann léki aðeins síðari hálfleikinn.
FRAMHERJAR Chelsea eiga
minnsta sök á slæmu gengi liðsins á
útivöllum í vetur, samkvæmt skoð-
anakönnun á heimasíðu félagsins.
Aðeins 2,16 prósent telja að þeim sé
um að kenna. Flestir, eða 54,1 pró-
sent, kenna hinsvegar skorti á sjálfs-
trausti leikmanna um hvernig hefur
afarið.
SVEN-Göran Eriksson, hinn nýi
landsliðsþjálfari Englendinga, var á
meðal áhorfenda á bikarslag Arsenal
og Chelsea. Ljóst er að hann var ekki
með marga leikmenn í sigtinu því að-
eins voru fimm Englendingar sam-
anlagt í byrjunarliðum félaganna
tveggja.
FRAKKAR voru næstflestir af
þeim sem hófu leikinn, 4 af 22. Að
auki voru 3 Ítalir, 2 Hollendingar,
Úkraínumaður, Letti, Svíi, Spán-
verji, Nígeríumaður, Kamerúnmað-
ur, Júgóslavi og Úrúgvæi. Vara-
mennirnir fimm sem komu inn á voru
frá Íslandi, Frakklandi, Argentínu,
Króatíu og Hollandi.
CELESTINE Babayaro, nígeríski
landsliðsmaðurinn hjá Chelsea, er að
líkindum í slæmum málum. Á sjón-
varpsupptökum af leiknum við
Arsenal sást greinilega að hann steig
ofan á Fredrik Ljungberg og spark-
aði í Dennis Bergkamp án þess að
dómarinn sæi til.
HELGI Kolviðsson og félagar í
Ulm unnu mikilvægan sigur á Chem-
nitzer, 3:0, í þýsku 2.deildinni í knatt-
spyrnu á sunnudaginn. Helgi lék all-
an leikinn í vörn Ulm sem er í 13. sæti
af 18 liðum deildarinnar.
GUNNLAUGUR Jónsson lék allan
leikinn með Uerdingen sem vann
Aue, 1:0, í þýsku 3. deildinni á laug-
ardag. Uerdingen komst í 7. sæti
deildarinnar með sigrinum.
JÓHANNES Karl Guðjónsson lék
allan leikinn með RKC Waalwijk sem
gerði jafntefli, 2:2, við Sparta Rotter-
dam í hollensku úrvalsdeildinni á
sunnudaginn.
ARNAR Grétarsson og Rúnar
Kristinsson léku allan leikinn með
Lokeren sem tapaði, 2:0, fyrir St.
Truiden í belgísku knattspyrnunni.
Auðun Helgason kom inn á sem
varamaður á 35. mínútu og Arnar
Þór Viðarsson lék síðari hálfleikinn.
SIGURÐUR Ragnar Eyjólfsson
lék síðasta korterið með Harelbeke
sem tapaði, 1:4, fyrir Anderlecht í
Belgíu. Tékkneski risinn Jan Koller
skoraði þrjú marka Anderlecht.
FÓLK
Það var á þessum tímapunkti semleikurinn sveiflaðist okkur í
hag. Ef Eiður hefði skorað, hefði það
væntanlega ráðið úrslitum í leikn-
um,“ sagði Arsene Wenger, knatt-
spyrnustjóri Arsenal.
„Undirtökin hefðu verið okkar, ef
boltinn hefði farið inn. Í staðinn var
það Arsenal sem komst í sókn og
skoraði, og þar með voru þeir með
leikinn í sínum höndum,“ sagði
Claudio Ranieri, stjóri Chelsea.
Thierry Henry skoraði fyrst fyrir
Arsenal úr vítaspyrnu en Jimmy
Floyd Hasselbaink jafnaði fyrir
Chelsea með glæsilegu skoti. Mikið
gekk á í fyrri hálfleiknum þegar
fimmtán leikmenn liðanna tóku þátt í
handalögmálum og félögin eiga yfir
höfði sér sektir fyrir vikið. „Sumir
voru heppnir að sleppa við rauða
spjaldið. Ég var hræddur um að við
myndum missa mann af velli fyrir
einhver heimskupör,“ sagði Wenger.
Hann hrósaði Patrick Vieira sér-
staklega en Vieira var valinn maður
leiksins. „Hann er magnaður um
þessar mundir,“ sagði franski stjór-
inn um landa sinn.
Rainieri, stjóri Chelsea, var ekki
jafnhrifinn af Vieira. „Dómarinn of-
urverndaði Vieira. Ef hann var
snertur, var það eins og sjálfur Guð
hefði verið áreittur,“ sagði Ítalinn.
Wenger beindi sjónum sínum að
hinni hörðu samkeppni fjögurra
sóknarmanna um tvær stöður í liði
sínu. „Ég er með fjóra sóknarmenn í
heimsklassa, Henry, Bergkamp,
Kanu og Wiltord, og samkeppni
þeirra kemur liðinu til góða. Ég er
hæstánægður með þá alla en því
miður get ég aðeins notað tvo þeirra
í einu,“ sagði Wenger.
Sannfærandi sigur
hjá Liverpool
Liverpool vann sannfærandi sigur
á Manchester City, 4:2, á Anfield í
gær. Vladimir Smicer krækti í tvær
vítaspyrnur og skoraði úr annarri
þeirra sjálfur. Jari Litmanen, Emile
Heskey og Marcus Babbel skoruðu
hin mörk Liverpool-liðsins, sem er á
mikilli siglingu um þessar mundir. Í
8-liða úrslitunum sækir Liverpool
heim sigurvegarann úr viðureign
Tranmere og Southampton sem
skildu jöfn, 0:0, í Southampton á
laugardag. Þar voru þrjú mörk
dæmd af leikmönnum Southampton.
Guðni og félagar gegn
Arsenal á Highbury?
Guðni Bergsson og félagar í Bolt-
on náðu ekki að vinna Blackburn í
nágrannaslag, þrátt fyrir að leik-
menn Blackburn væru manni færri
frá og með 10. mínútu. Blackburn
komst yfir en Michael Ricketts jafn-
aði fyrir Bolton, 1:1, með sínu 18.
marki á tímabilinu. Liðin, sem stefna
í einvígi um sæti í úrvalsdeildinni,
mætast aftur í Blackburn og sigur-
vegarinn mætir Arsenal á Highbury.
Arnar Gunnlaugsson lék síðustu 5
mínúturnar með Leicester, sem
vann Bristol City úr 2. deild auðveld-
lega, 3:0. Arnar fékk gott færi til að
skora í lokin þegar hann tók auka-
spyrnu á vítateigslínu en skaut yfir.
Leicester leikur á heimavelli í 8-liða
úrslitunum við Wimbledon eða Wy-
combe, sem gerðu jafntefli, 2:2.
Tottenham fór létt með Stockport
á White Hart Lane og sigraði, 4:0.
Simon Davies kom inn á sem vara-
maður í fyrri hálfleik þegar Öyvind
Leonhardsen meiddist og hann skor-
aði tvö markanna.
West Ham í bikarham
Mótherjar Tottenham verða
grannar þeirra í West Ham sem
gerðu heldur betur góða ferð á norð-
austurströndina þar sem þeir sigr-
uðu hið sterka lið Sunderland, 1:0.
Franski sóknarmaðurinn Frederic
Kanoute var West Ham dýrmætur
eina ferðina enn því hann skoraði
sigurmarkið korteri fyrir leikslok.
Sigur West Ham var sanngjarn og
það virðist vera bikarára yfir liðinu í
ár. Hamrarnir lögðu Manchester
United á Old Trafford í 4. umferð og
fá nú heimaleik gegn Tottenham.
Reuters
Sylvain Wiltord gulltryggir sigur Arsenal með því að skora sitt annað mark gegn Chelsea, 3:1.
Stangarskot Eiðs Smára
var vendipunkturinn
STANGARSKOT Eiðs Smára
Guðjohnsens um miðjan síðari
hálfleik var vendipunkturinn í
bikarslag Lundúnaliðanna
Arsenal og Chelsea á Highbury
á sunnudaginn. Eiður Smári
kom inn á sem varamaður hjá
Chelsea í upphafi síðari hálf-
leiks og þegar staðan var 1:1
átti hann viðstöðulaust þrumu-
skot af þriggja metra færi, bolt-
inn small í stönginni og þeyttist
út á völlinn. Varamaðurinn
Sylvain Wiltord skoraði tvívegis
á lokasprettinum og tryggði
Arsenal sigurinn, 3:1, og þar
með eru bikarmeistarar ársins
2000 fallnir úr keppni. Arsenal
þykir hinsvegar sigurstrangleg-
asta liðið í keppninni eftir þessi
úrslit.
Reuters
Eiður Smári Guðjohnsen fagnar Jimmy Floyd Hasselbaink eftir
að hann skoraði jöfnunarmark Chelsea gegn Arsenal.