Alþýðublaðið - 24.11.1972, Side 12
áiþýðul
KÓPAVGGS APOTEK
Opið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga tll kl. 2
Sunnudaga milil kl. 1 og 3
LofonotO
umfrftftmfl.
HrSkipfíiu
s^easmaaástíu
^-l|'
HVAR ENDAR < ÞETTA?
Zo9/9W’ti
/«t%
t»*unuru
J Vy' *
ASI
bannig hel'ur rikisstjórnin skert
ákvæfti kjarasamninganna, sem
verkalýóshreyfingin gerhi vih at-
vinnurekendur haustiö 1971 eftir
margra mánaða erfitt samninga-
þóf. Á þvi tæpa eina ári, sem lióið
hefur frá þvi samningarnir voru
geróir, hefur rikisstjórnin með
ráðslöfunum sinum komið mál-
um þannig fyrir, að kaupmáttur
vikulauna verkamanns, sem
hefði átt að vera 14-15% meiri nú,
en l'yrir gerð kjarasamninganna,
hefur aukizt um aðeins rösk l()%,
— milli ljögur og fimm prósentu-
stig hefur rikisstjórnin haft af
honum. Hvernig hefur hún gert
þetta? Kifjum upp nokkra atburði
undangengins árs.
Súlan lengst til vinstri á mynd-
inni sýnir hver kaupmáttaraukn-
ing vikukaupsins hefði verið orðin
i byrjun sumars 1972 ef kjara-
samningarnir hefðu fengið að
vera i friði fyrir rikisstjórninni.
Þá hefði kaupmáttur vikukaups-
ins verið orðinn 14,5,% meiri, en
hann var áður en samningarnir
voru gerðir haustið 1971. Hefur þá
verið tekið tillit til hinnar beinu
kauphækkunar sem kom til fram-
kvæmda við samningagerðina i
dcsember 1971, taxtatilfærslurn-
ar, sem komu til framkvæmda
siðar og 4% hækkunarinnar, sem
kom Iram þann l. júni.
Kn þá þegar, i byrjun sumars
1972 — hafði rikisstjórnin skert
þclta kaup um 4,4 framfærslu-
visitölustig, sem jafngilda 3,l
kaupgreiðsluvisitölustigi og ca.
2,(> prósentustigum i kaupi. Þetta
gerði hún með visitölufölsunum i
sambandi við skattlagabreyting-
arnar.
Kikisstjórnin felldi niður nef-
skatta en mætti þvi tekjutapi með
hækkun tekjuskatta. Þar sem
nefskattar eru i visitölunni, en
lekjuskattar ekki, hafði þessi
breyting það i för með sér, að
visitalan lækkaði jafnvel þótt
breytingin va>ri i rauninni engin
fyrir hinn almenna skattborgara,
- aðeins tilfærsla frá einni skatt-
tegundinni yfir á aðra.
Kn vegna þess að visitalan
lækkaði við þetta. þá hefði kaup-
gjaldið einnig átt að lækka sem
þvi svaraði. Það þorði
rikisstjórnin þó ekki að gera. Hún
greip þess i stað til þess ráðs, að
minnka niöurgreiðslur á nauð-
synjum og hækka með þvi fram-
færslukostnaðinn / unz fram-
færsluvisitalan hafði aftur
hækkað um þau 4,4 stig, sem
málamyndabreytingarnar i
skattamálunum höfðu lækkað
hana um.
Gagnvart launþegum kom
þessi skollaleikur þannig út, að
malvörur stórhækkuðu i verði, en
sú verðhækkun fékkst ekki bætt.
Með þessu móti hafði rikisstjórn-
in 4,4 visitölustig af launafóikinu
strax i ársbyrjun 1972 og af þess-
um 4,4% visitölustigum skuldar
hún launþegum enn 3,8 stig, sem
jafngilda 2,7 kaupgjaldsvisitölu-
stigum og 2,3 prósentustigum i
kaupgjaldi. Þarna tókst rikis-
stjórninni sem sé aö lækka kaup-
hækkunina sem fékkst
með k j a r a sa m ni n g u n u m
haustið 1971 úr 14,5% i ca. 12%.
Kn stjórnin lét ekki þar staðar
numið. Ilún lét snemmsumars
Framhald á bls. 4
¥~W' *« í
t !í 1 1 | 1 ii
ÞEIR SOMDII
ÞÁ ALDREI!
Úrskurður Félags-
dóms í „Ratvirkjadeilunni”
Kftir mánaðar verkfall raf-
virkja i sumar var talið, að samn-
ingar hefðu tekizt, og var verk-
fallinu þá aflýst.
t gær úrskurðaði Félagsdómur
hins vegar, að samningar hefðu
aldrei tekizt og sýknaði jafnframt
Félag islenzkra rafvirkja af kröf-
um Félags löggiltra rafverktaka,
sem hélt þvi fram, að rafvirkjar
hefðu brotið þá nýgerða samn-
inga með ályktun, sem gerð var á
félagsfundi þeirra, er samning-
arnir voru bornir undir atkvæði.
Eins og skýrt var frá á sinum
tima i sumar hér i Alþýðublaðinu
samþykkti félagsfundur i Félagi
islenzkra rafvirkja, sem haldinn
var daginn eftir að fulltrúar fé-
lagsins höfðu undirritað nýja
samninga við fulltrúa rafverk-
taka með fyrirvara, ályktun, sem
rafverktakar mótmæltu harð-
lega, og hófu málsókn á hendur
rafvirkjum.
Ályktun rafvirkja var á þann
veg, að félagsmönnum i FfR væri
bannað að vinna að nýlögnum eða
meiri háttar breytingum á lögn-
um nema samkvæmt ákvæðis-
vinnutaxta. 1 forsendum dóms
Félagsdóms segir, að ekki verði
talið, að kjarasamningur hafi
stofnazt með aðilum máls þessa
og samkvæmt þeirri niðurstöðu
beri að sýkna stefnda af öllum
kröfum stefnanda.
Dómkröfur stefnanda, sem var
Vinnuveitendasamband íslands
vegna Félags löggiltra rafverk-
taka i Reykjavik og Landssam-
bands rafverktaka, á hendur
stefnda, sem var Alþýðusamband
lslands f.h. Rafiðnaðarsambands
lslands vegna Félags islenzkra
Rafvirkja, voru þessar:
1. Að dæmt yrði, að samþykkt
sú, sem gerð vará fundi FfR þann
19. júli 1972 og feli i sér bann við
þvi, að félagsmenn FÍR vinni að
nýlögnum eða meiriháttar breyÞ
ingum á raflögnum nema sam-
kvæmt ákvæðisvinnuverðskrá,
væri brot á kaup- og kjarasamn-
ingi á milli aðilanna, sem undir-
ritaður hafði verið daginn áður,
18. júli.
2. Að dæmt yrði, að FÍR hafi
með samþykkt þessari beitt sér
fyrir ólögmætum vinnustöðvun-
um og beri fulla skaðabótaábyrgð
gagnvart einstökum félögum i
Félagi iöggiltra rafverktaka i
Reykjavik og Landssambandi is-
lenzkra rafverktaka á öllu þvi
tjóni, sem leitt hafi af samþykkt
þessari.
3. Að Félagi islenzkra rafvirkja
yrði gert að greiða sekt til rikis-
sjóðs fyrir að hafa beitt sér fyrir
ólögmætum vinnustöðvunum,
sbr. lög nr. 80/1938.
4. Að stefnda verði gert að
greiða stefnanda málskostnað að
skaölausu, að mati dómsins.
Stefndi krafðist hins vegar sýknu
af öllum kröfum stefnanda og
málskostnaðar úr hendi hans
eftir.mati dómsins.
Niðurstaða Félagsdóms varð sú,
að rafvirkjar voru sýknaðir af öll-
um þessum kröfum og var máls-
kostnaður látinn niður falla, en
samningar milli rafvirkja og raf-
verktaka hafa þannig enn ekki
tekizt, þrátt fyrir mánaðarlangt
verkfall i sumar.
ÞRÍTUGASTA OG FIAAMTA
SKIPIÐ FRÁ DRÖFN H.F.
Skipasmiðastöðin DRÖFN h.f.
Hafnarfirði hefur nylega afhent
þritugasta og fimmta skipið, sem
stöðin hefur smiðað. Þetta skip er
byggt úr eik með yfirbyggingu úr
stáli. 36 rúmlestir að stærð. Eig-
andi h.f. Miðnes i Sandgerði.
Skipið hlaut nafnið Maria K.E.
84.
Það er búið öllum venjulegum
og nýjustu fiskleitar og siglinga
ta'kjum. og togveiðibúnaði. Það
er með Caterpillar aðalvél og
Lister hjálparvél. Aðalverkstjóri
við smiði skipsins var Sverrir
Gunnarsson skipasmiðameistari,
en teikning af skipinu var gerð af
Agli Þorfinnssyni skipasmiða-
meistara i Keflavik.
Þetta er fyrsta skipið, sem
Skipasmiðastöðin DRÖFN h.f.
smlðar eftir þessari teikningu, en
fyrirhugað er, að raðsmiða nokk-
ur slik skip. Er að hefjast smiði á
þvi næsta.
Þetta er annað skipið, sem
Skipasmiðastöðin DRÖFN h.f.
afhendir á þessu ári. Hið fyrra
var m.s. Sigurbergur G.K. 212. st-
Slskip, 116 rúmlestir að stærð,
sem smiðað var i samstarfi við
Slippstöðina h.f. á Akureyri.
Eigandi þess skips er Sigur-
bergur h.f. i Hafnarfirði.
HÚSID SEM HVflRF (FRAMHALD)
1 haust hvarbað heita má spor-
laust/hús. sem hafði staðið ára-
tugum saman við Ingólfsstræti og
var nefnt Amtmannshús. Það var
fvrir hreina tilviljun, að við frétt-
um at þvi hérna á Alþýðublaðinu,
að verið væri að rifa það. og Ijós-
myndarinn kom á vettvang
augnabliki áður en það varð að
ólögulegri hrúgu.
En það voru aðrir aðilar, sem
ekkert vissu fyrr en allt var um
garð gengið. og verður það að
teljast harla furðulegt, þvi þar
var um að ræða Hörð Ágústsson,
sem hefur unnið undanfarin ár
ásamt Þorsteini Gunnarssyni, að
tillögugerð i sambandi við friðun
gamalla húsa i Reykjavik og
rannsóknir á þeim.
Og i gær veitti blaðamaður
Alþýðublaðsins þvi athygli að á
grunni Amtmannshússins voru
stórvirkar vélar farnar að vinna,
og ekki var annað að sjá en verið
væri að undirbúa vegarlagningu
frá Ingólfsstræti upp á Grettis-
götu.
Blaðið hafði samband við Inga
Ú . Magnússon, gatnamálastjóra,
en hann sagði, að þarna væri
aðeins um að ræða gerð aðkomu
að Iðnaðarmannaúsinu — sem er
nýtt stórhýsi við Ingólfsstræti.
Hinsvegar bar hann ekki á móti
þvi. að aðkoma þessi sé i þvi
fyrirhugaöa hraðbrautarstæöi,
sem Amtmannshúsið varð að
vikja fyrir og á að teygja sig i
Framhald á bls. 4