Vísir - 08.06.1979, Blaðsíða 23

Vísir - 08.06.1979, Blaðsíða 23
VÍSIR Föstudagur 8. júnl, 1979 útvarp og sjónvarp útvarpki. 20.00: t þættinum veröur þýska punk-rokk stjarnan Nina Hagen kynnt. Og i framhaldi af þvi fá umsjónarmenn þáttarins þá Jónatan Garöars og Karl Sig- hvats I heimsókn til sin til þess aö ræöa um punkiö út frá menning- arlegu sjónarmiöi. Einnig koma þrlr aörir gestir I heimsókn. En þeir munu ætla aö standa fyrir einhverskonar sumarhátlö á Miklatúni. Aöspurö um framtiöina hjá þessum þáttum sagöi Sigrún aö svipaö form yröi áfram á þáttun- um þ.e. tónlist og talaö mál i bland. „Viö munum reyna aö vera menningarleg án þess aö vera leiöinleg” sagöi hún aö lok- um. F.I. Slónvaro kl. 20.40: Skonrokk Visir hafði samband við Þorgeir Ástvaldsson og spurðist fyrir um hvað yrði i þættinum i kvöld. Hann sagöiaöþátturinn byrjaöi meö diskólagi ársins 1978, Got to be real, sungiö af söngkonunni Cheryl Lynn. Svo kemur David Essex meölagiö Imperial Wizard nokkurskonar ádeilaá strlö. Tom Robinson band á einnig eitt ádeilulag í þættinum, lagiö Black Angel. Aörir san koma fram eru gömlu jaxlarnir Rolling Stones, Peter Tosh upphefur sig i laginu I am the toughest, Ron Wood og Ringo eru saman I einu lagi, Janes Ian á eitt rólegt lag. Þætt- inum lýkur svo á skrautsýningu hóps er kallar sig Gonzales, lag þeirra heitir Haven’t stopped dancing yet og er i diskóstil. Sigrún Stefánsdóttir umsjónar- maöur þáttarins Græddur var geymdur eyrir. Sjónvarp kl. 21.10: ORÆDDUR VAR GEVMDUR EYRIR Annar þáttur sjónvarpsins um verölagsmál mun f jalla um verö- myndun. Sigrún Stefánsdóttir umsjónarmaöur þáttarins sagöi aö Friöbjörn Berg deildarstjóri á verðlagsskrifstofunni kæmi fram i þættinum og segöi frá þvi hverj- ir væru helstu þættirnir sem mynduöu verö vöru, frá þvi hún er framleidd og þangaö til hún kæmist i hendur neytenda. Tekin væru nokkur dæmi um þetta t.d. gallabuxur, leikföng og hjól- baröar. Einnig væri komiö aö skiptingu vörutegunda milli álags- og tollaflokka og fleira sem sagt þaö yröi komiö aö ýmsu i sambandi við verömyndun. Sig- rúnu til aðstoöar er Halldór Reynisson. Umsjón: Friörik Indriöason útvarp 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Viö vinnuna: TórJeikar. 14.30 Miödegissagan 15.00 Miödegistónleikar 15.40 Lesin dagskrá næstu viku 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veöurfregnir). 16.30 Popphorn: Dóra Jóns- dóttir kynnir. 17.20 Litli barnatiminn 17.40 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.40 tslensk tónlist. 20.00 Púkk Sigrún Valbergs- dóttir og Karl Agúst Clfsson sja um unglingaþátt. 20.40 Ekki hneggjar hjólhest- urinn Sitthvaö um hjólhesL inn, aödáendur hans og óvini. Dagskrárþáttur i um- sjá Ernu Indriðadóttur og Valdisar óskarsdóttur. 21.10 Sónala i A-dúr fyrir fiölu og pianóeftir César Franck. 21.40 A fömum vegi i Rangár- þingi. Jón R. Hjálmarsson fræðslustjóri talar viö Guð- laug Bjarnason á Giljum i Hvolhreppi: — fyrri hluti. 22.05 Kvöldsagan 22.30 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.50 Eplamauk. Létt spjall Jónasar Jónassonar og lög á milli. 23.35 Fréttir. Dagskrárlok. sjónvarp 20.00 Fréttir og veöur 20.30. Auglýsingar og dagskrá 20.40 Skonrok(k) 21.10 Græddur var geymdur eyrir 21.30 Djörfung og dáö (The Wild and the Brave) bandarisk kvikmynd frá árinu 1974 tekin i Uganda. I þjóðgaröi nokkrum i noröurhluta landsins veröa yfirmannaskipti, og tekur svartur þjóögarösvöröur viö af hvitum. Myndin lýsir þeim breytingum, sem eiga sér staö i Afriku og lifskjör- um fólksins. Þýöandi Krist- mann Eiösson. 23.10 Dagskrárlok 19 STUTT VIBDVOL f PMADfS Pf Undarleg staöa er komin upp I menningarmálum þessa lands. Eins og allir vita hafa kommún- istarlagt mikla áherslu á einka- rétt sinn til aö skipa málum i menningunni oggefa dtbréf upp á hverjir séu iistamenn og hverjir ekki. Þeir hafa nefnilega um langa hriö taliö sjálfum sér og öörum trú um, aö aörir heföu ekki menningarlegan áhuga og gætu ekki sinnt þeim sem skyldi. Og meiniö heföi jú verið þaö, aö Alþýöubandalagiö heföi ekki aögang aö valdastólum til aö reka raunverulega menning- ar - pólitk.En svo gerist þaö skyndilega aö Alþýöubandalag- iö veröur ráöandi flokkur i borg- arstjórn Reykjavlkur og fyrr- verandi formaöur Alþýöu- bandalagsins veröur mennta- málaráöherra og erfingi sama flokks. sonur sjálfs Einars 01- geirssonar, veröur formaöur Útvarpsráös. Menningar- sprautur kommanna voru i vimu og svima fyrstu mánuðina eftir aö þessi skilyröi til aö skapa hér menningarparadls á jöröu urðu fyrir hendi. En nú sundlar þá flesta, en af öörum ástæöum. Ekki var Alþýöubandalagiö fyrr bdiö aö taka viö stjórnar- taumunum i Reykjavik enstopp var sett á byggingarfram- kvæmdir viö Borgarleikhús. Borgin nánast hættir aö koma sér upp myndverkum og frum- kv æði borgarinnar i menningar- málum, sem ætiö hefur verið nokkuö, hverfur. Og hvaö gera ráöherrann og erfinginn. Útvarpiö er svelt. Skoriö er á aDa helstu menning- arviöleitni sjónvarpsins. Menn- ingarsjóður er haföur I algjöru svelti. Listahátlö er I óvissu vegna ósvifinnar kröfugeröar til fjármuna sem siðasta stjórn hennar skdaöi af sér. Þaö er komið á daginn aö aldrei hafa veriö menningarfjandsamlegri viöhorf rlkjandi hjá yfirvöldum rlkis og borgar en einmitt nú. Puntuddkkur Alþýöubandalags- ins i Bandalagi listamanna heföu einhvern tima látiö i sér heyra viö þessar aöstæöur, en nú þegja þær þunnu hljóöi og lúta höfði eins og stráklingar I skammakrók. En þrátt fyrir þaö afturhald sem hefur heltekiö menningar- málin láta kommarnir eftir sér aö reyna aö ná völdum hjá Leik- félagi Reykjavlkur. Þar skall hurö nærri hælum. Hin hófsam- ari öfl sem vildu láta listræna og leiklistarlega starfsemi ráöa rlkjum i leikhúsinu buöu fram i formannskjöri Jón Sigurbjörns- son leikara, en á móti buöu þeir, sem vUja gera þetta borgarleik- hús, sem rekiö eraö mestu fyrir almannafé, aö predikunarstól fyrir kommúnisma. Formanns- efni þeirra er jafn mikiö póU- tiskur og hann er Htill leikari og munaöi ekki nema 4 atkvæöum aö þessi öfl næöu yfirhöndinni I leUihdsinu. Þessir menn ættu þó aö vera farnir aö átta sig á, aö almenningur mun aldrei þola þaö, aö hann sé látinn borga hundruö mUljóna tU aö styrkja stjórnmálaskóla Alþýöubanda- lagsins undir því yfirskyni aö um sé aö ræöa menningarmið- stöö höfuöborgarinnar. Þeir veröa þvi trdlega enn skemur I sinni menningarparadls en Adam i þeirri gömlu foröum. Svarthöföi

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.