Morgunblaðið - 24.05.2001, Blaðsíða 6
6 C FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR ÞESS er sérstaklega getið í báð-
um skýrslum Samkeppnisstofnunar,
að lítil bein tengsl séu í íslensku at-
vinnulífi milli eignarhalds og þess
valds sem fylgir því að stjórna fyr-
irtæki. Stjórnendur eigi iðulega lít-
inn eða engan hlut í þeim fyrirtækj-
um sem þeir stjórna. Þrjár
meginskýringar eru nefndar í í
þessu sambandi. Í fyrsta lagi segir
að hið opinbera, ríki og sveitarfélög,
sem sé mjög stór eigandi í íslensku
atvinnulífi, skipi og ráði menn til að
fara með þau völd sem eigninni
fylgja. Önnur skýringin sé að svo-
kallaður „þriðji geiri“, s.s. lífeyris-
sjóðir, sjálfseignarstofnanir og
félagasamtök, hafi mjög aukið hlut
sinn í atvinnulífinu. Menn séu valdir
til að sitja í stjórnum og stjórnunar-
stöðum og fara með þau völd sem
eignarhlutnum fylgir án tillits til
eigin eignarhalds. Samkeppnis-
stofnun segir að þriðja skýringin á
því hvað lítil bein tengsl séu í ís-
lensku atvinnulífi milli eignarhalds
og þess valds sem fylgir því að
stjórna fyrirtæki, sé sú að nær öll
stærstu fyrirtæki landsins, önnur en
þau opinberu, séu almenningshluta-
félög. Þar sé oft langur vegur milli
eignar og valds því eigendur hinna
dreifðu og smáu hluta hirði ekki um
að hafa áhrif í krafti eignarhalds.
Tvær „blokkir“
Tvær „fyrirtækjablokkir“ voru mest
áberandi í íslensku atvinnulífi á
árinu 1993 og þær voru enn til stað-
ar á árinu 1999. Báðar eru þessar
„blokkir“ á sviði trygginga, olíu-
verslunar, flutninga og ferðaþjón-
ustu. Þetta eru annars vegar fyr-
irtækin Burðarás, Eimskipafélag
Íslands, Flugleiðir, Sjóvá-Almennar
og Skeljungur, en þessi „blokk“ hef-
ur verið nefnd „kolkrabbinn.“ Hin
blokkin samanstendur af Olíufélag-
inu, Samskipum, Samvinnulífeyris-
sjóðnum og Vátryggingafélagi Ís-
lands. Þessi „blokk“ hefur verið
nefnd „smokkfiskurinn“.
Eigna- og stjórnunartengsl
í „kolkrabbanum“
Innbyrðis eignarhald og eigna-
tengsl Burðaráss, Eimskipafélags
Íslands, Flugleiða, Sjóvár-Al-
mennra og Skeljungs breyttist lítið
milli áranna 1993 og 1999. Þessi
fimm fyrirtæki eiga hluti í ýmsum
fyrirtækjum á margvíslegum svið-
um atvinnulífsins og varð nokkur
fjölgun þar á milli áranna 1993 og
1999 eða úr 33 fyrirtækjum í 47. Í
báðum skýrslum Samkeppnisstofn-
unar eru þessi fyrirtæki listuð upp
og eignarhluturinn í hverju þeirra
tíundaður.
Burðarás var 100% í eigu Eim-
skipafélags Íslands 1999 eins og
1993. Sjóvá-Almennar var stærsti
einstaki hluthafinn í Eimskipafélag-
inu á árinu 1999 eins og á árinu
1993. Burðarás var næststærsti
hluthafinn í Skeljungi bæði árið
1993 og 1999, næst á eftir The Shell
Petroleum Company. Burðarás var
á árinu 1999 einnig næststærsti ein-
staki hluthafinn í Sjóvá-Almennum,
næst á eftir Sjóvá-Almennum hf., en
var í þriðja sæti 1993. Þá var Burð-
arás stærsti hluthafinn í Flugleið-
um, bæði 1993 og 1999.
Nokkuð er um að stjórnendur
Burðaráss, Eimskipafélagsins,
Flugleiða, Sjóvár-Almennra og
Skeljungs hafi verið í stjórnum fleiri
en eins þessara félaga. Þannig var
Benedikt Sveinsson stjórnarfor-
maður Burðaráss, Eimskipafélags-
ins og Sjóvár-Almennra á árinu
1999. Hann var jafnframt með-
stjórnandi í stjórn Flugleiða auk
þess sem hann sat í stjórnum félaga
sem fyrirtækin áttu hlut í. Einungis
vantaði að Benedikt sæti í stjórn
Skeljungs, en þá hefði hann setið í
stjórnum allra þeirra fimm fyrir-
tækja sem teljast til þessarar
„blokkar“.
Hörður Sigurgestsson var for-
stjóri Eimskipafélagsins, stjórnar-
formaður Flugleiða og meðstjórn-
andi í Skeljungi auk þess að sitja í
stjórnum félaga sem fyrirtækin áttu
hlut í.
Kristinn Björnsson, forstjóri
Skeljungs, var meðstjórnandi í Eim-
skipafélaginu og Sjóvá-Almennum
og sat jafnframt í stjórnum félaga í
eigu fyrirtækjanna fimm.
Aðrir stjórnarmenn í fyrirtækj-
unum fimm áttu flestir sæti í hinum
ýmsu félögum sem voru í eigu fyr-
irtækjahópsins.
Eigna- og stjórnunartengsl
í „smokkfisknum“
Margt er líkt með eignar- og
stjórnunartengslum hinnar „blokk-
arinnar“ í íslensku atvinnulífi, sem
var til staðar bæði 1999 og 1993, í
nokkuð breyttri mynd þó. Stjórn-
endur Olíufélagsins, Samskipa,
Samvinnulífeyrissjóðsins og Vá-
tryggingafélags Íslands sátu margir
í stjórnum fleiri en eins þessara fyr-
irtækja svo og í stjórnum fyrirtækja
sem þau áttu hlut í. Nokkur breyt-
ing varð á samsetningu þeirra fyr-
irtækja sem mynda „smokkfiskinn“
milli áranna 1993 og 1999. Árið 1993
voru Íslenskar sjávarafurðir í þess-
ari „blokk“ en ekki árið 1999, og
jafnframt var þar Samvinnusjóður
Íslands, forveri Samvinnulífeyris-
sjóðsins. Innbyrðis eignarhald og
eignatengsl þessara fyrirtækja
breyttist nokkuð milli áranna 1993
og 1999. Fyrirtækjasamsteypan átti
alls hluti í 14 fyrirtækjum árið 1993
en í 32 fyrirtækjum árið 1999.
Geir Magnússon, forstjóri Olíu-
félagsins, jafnframt stjórnarfor-
maður Samskipa og meðstjórnandi í
Samvinnulífeyrissjóðnum og Vá-
tryggingafélagi Íslands á árinu
1999. Hann sat auk þess í stjórnum
félaga sem fyrirtækin áttu hlut í.
Margeir Daníelsson, forstjóri Sam-
vinnulífeyrissjóðsins, var með-
stjórnandi í Olíufélaginu og í Vá-
tryggingafélagi Íslands auk þess að
sitja í stjórnum félaga sem fyrirtæk-
in áttu hlut í. Ólafur Ólafsson, for-
stjóri Samskipa, var meðstjórnandi
í Olíufélaginu og sat jafnframt í
stjórnum félaga í eigu fyrirtækj-
anna fimm. Þá var Axel Gíslason,
forstjóri Vátryggingafélags Íslands,
meðstjórnandi í stjórn Samskipa og
sat einnig í stjórnum fyrirtækja í
eigu fyrirtækjasamsteypunnar.
Vísir var kominn að þeirri blokka-
myndun í verslun og hátækniiðnaði,
sem Samkeppnisstofnun segir í nýju
skýrslunni um stjórnunar- og eigna-
tengsl í íslensku atvinnulífi, að litið
hafi dagsins ljós.
Baugur varð til í framhaldi af
samruna Hagkaups og Bónuss.
Markaðshlutdeild Hagkaups og
Bónuss á matvörumarkaði á árinu
1993 var um 33%. Baugur hefur nú
rúmlega 60% markaðshlutdeild á
höfuðborgarsvæðinu og ríflega
helming á landsvísu. Þá teygir
Baugur anga sína inn á ýmis svið
verslunar.
Eignarhaldsfélagið Gaumur hf.,
sem er að stærstum hluta í eigu
þeirra feðga Jóhannesar Jónssonar,
sem oftast er kenndur við Bónus, og
Jóns Ásgeirs, var stærsti einstaki
hluthafinn í Baugi með 32,20% hlut.
Baugur átti hlut í alls 13 félögum á
árinu 1999.
Samþjöppun í upplýsingaiðnaði
Hinar nýju „blokkirnar“ tvær í ís-
lensku atvinnulífi, sem Samkeppn-
isstofnun nefnir svo í nýju skýrsl-
unni, eru í hátæknigeira, annars
vegar á sviði margmiðlunar með
ljósvakamiðlun sem burðarás, og
hins vegar í upplýsingaiðnaði. Ekki
er sérstök umfjöllun um „blokk“ á
svið margmiðlunar í skýrslunni.
Hins vegar kemur þar fram vísir að
þeirri „blokkamyndun“ sem verið
hefur að myndast í upplýsingaiðn-
aðinum. Þannig voru á árinu 1999
sterk eignatengsl á milli þriggja af
sex stærstu fyrirtækjunum á þessu
sviði, þegar stærð er metin út frá
veltu. Þetta eru fyrirtækin Tækni-
val, Opin kerfi og Skýrr. Opin kerfi
voru stærsti einstaki hluthafinn
bæði í Tæknivali og Skýrr og Frosti
Bergsson var stjórnarformaður
allra fyrirtækjanna. Hann var jafn-
framt næststærsti hluthafinn í Opn-
um kerfum á eftir Þróunarfélagi Ís-
lands.
Töluverðar breytingar hafa orðið
meðal fyrirtækja í upplýsingaiðnaði
hér á landi frá árinu 1999 og hefur
mikil samþjöppun komið til.
Eignarhald ekki eins
gagnsætt og skyldi
Úr skýrslu Samkeppnisstofnunar
má lesa fjölmargt meira um eigna-
og stjórnunartengsl í íslensku at-
vinnulífi en hér hefur verið nefnt.
Stofnunin segir að fákeppni sé áber-
andi, eitt til fjögur fyrirtæki séu iðu-
lega leiðandi á mörkuðunum og að
eignarhald sé ekki eins gagnsætt og
skyldi. Fyrirtæki og eigendur
þeirra, ekki síst þau sem séu innan
„blokkanna“ hafi flutt eignarhluti til
innlendra eignarhaldsfélaga sinna.
Einnig hafi komið fram vísbending-
ar um að íslenskir aðilar hafi stofnað
eignarhaldsfélög erlendis sem eigi
síðan hlut í íslenskum fyrirtækjum.
Þessi eignarhaldsfélög séu utan lög-
sögu íslenskra stjórnvalda og ýms-
um annmörkum háð að afla upplýs-
inga um eigendur þeirra.
Langur vegur milli eignar og valds
!
"
# ! $% &#
'
( ) *+
!!
,
'-
! .
/ 0
/ '
, / 1
#
23456
7486 9::4:6
7426
394:6
;426
:4<6
8476
594;6
9::4:6
7:4:6
874:6
<<476
:486
=" 374:6 *+
% 234:6
>1 5:4:6
& ?9::4:6@
>1A
?9::4:6@
>1-1 0
?9::4:6@
9::4:6
B
C:476
;;436
1'D 8C4:6
E = !$
C24:6
1 $
1
!
' 53436
*
1
F
. '
G
H!.
?9::4:6@
?;;4C6@?9::4:6@
=
1$ . *
!
?9::4:6@
. ?9::4:6@
-
!B. 284:6
2<436
794:6
9::4:6
9::4:6
! ""
#
$
59456
%&&
' $(
MERKI eru um að í íslensku at-
vinnulífi séu „blokkir“ fyrirtækja,
þar sem fyrirtæki í „blokk“ tengj-
ast eigna- og stjórnunarlega, sam-
kvæmt skýrslu Samkeppnisstofn-
unar. Þar segir að stærstu
fyrirtækin á sviði trygginga, ol-
íuverslunar, flutninga og ferða-
þjónustu tengist með gagnkvæmu
eignarhaldi. Stjórnunartengsl
þessara fyrirtækja séu einnig mikil
þar sem sömu aðilar sitji í stjórn-
um þeirra og veiti þeim forystu.
Samkeppnisstofnun segir að
framangreind lýsing um eigna- og
stjórnunarleg tengsl fyrirtækja,
sem á við um árið 1999, sé lík
stöðunni í þessum efnum eins og
hún hafi verið á árinu 1993, en
stofnunin gaf út samsvarandi
skýrslu um þetta efni á árinu
1994, byggða á gögnum frá árinu
1993. Samkvæmt nýju skýrslunni
hafa nýjar „blokkir“ litið dagsins
ljós. Þrjár þeirra séu mest áber-
andi, ein á sviði verslunar en tvær
í hátæknigeiranum. Önnur „blokk-
in“ í hátæknigeiranum sé á sviði
margmiðlunar með ljósvakafjöl-
miðlun sem burðarás en hin sé í
upplýsingaiðnaði þar sem sam-
þjöppun aukist hröðum skrefum.
Samkeppnisstofnun segir að mikil
samþjöppun í upplýsingaiðnaði á
stuttum tíma veki athygli og að á
þeim markaði virðist gæta sömu
tilhneigingar til fákeppni eins og
víða annars staðar í íslensku at-
vinnulífi.
Ef litið er á einkageirann í ís-
lensku atvinnulífi sérstaklega
kemur fram í skýrslu Samkeppn-
isstofnunar að fyrirtæki tengjast
eignaböndum á ýmsa vegu og þau
eiga oft fyrirtæki í skyldum
rekstri. Þá eru valdatengsl í einka-
geiranum margvísleg.
Skýrslur Samkeppnisstofnunar
um stjórnunar- og eignatengsl í ís-
lensku atvinnulífi frá 1994 og
2001 eru eins uppbyggðar og efn-
istök eru þau sömu. Því má sjá
með samanburði á þeim hvaða
breytingar hafa átt sér stað í
þessum efnum milli áranna 1993
og 1999. Í nýju skýrslunni er hins
vegar eðlilega ekki að finna grein-
ingu á þeim hreyfingum í átt til
„blokkamyndunar“ og samþjöpp-
unar í íslensku atvinnulífi sem átt
hafa sér stað eftir 1999.
Eftir inngang og lýsingu á helstu
niðurstöðum og efnistökum
skiptast skýrslurnar í tvo meg-
inkafla. Í fyrri kaflanum er at-
vinnulífinu lýst eftir mörkuðum.
Gerð er grein fyrir helstu eig-
endum og stjórnendum í stærstu
fyrirtækjunum á hverjum markaði
fyrir sig. Fjöldi fyrirtækja á hverj-
um markaði er tilgreindur og
heildarvelta á markaðnum. Þá eru
sýnd tengsl milli fyrirtækja sem
eru á sama markaði. Í seinni meg-
inkafla skýrslnanna er gengið
skrefi lengra og sýnd eigna- og
valdatengsl í atvinnulífinu milli fyr-
irtækja á mismunandi mörkuðum.
Nýjar blokkir hafa
litið dagsins ljós
Þrjár nýjar blokkir í íslensku atvinnulífi eru mest áberandi, ein á sviði
verslunar og tvær í hátækni, samkvæmt nýrri skýrslu Samkeppnisstofn-
unar um stjórnunar- og eignatengsl.
Í NÝJU skýrslu samkeppnisstofnunar
segir að vísir að blokkamyndun í versl-
un og í upplýsingaiðnaði, sem mest
hafi verið áberandi í íslensku atvinnu-
lífi undanfarið, hafi verið kominn fram
á árinu 1999.
Eignarhald og eignatengsl Baugs í
versluninni, annars vegar, og Opinna
kerfa, Tæknivals og Skýrr í upplýsinga-
iðnaðinum, hins vegar, sýni að svo hafi
verið.
Vísir að blokka-
myndun 1999