Morgunblaðið - 24.05.2001, Side 18

Morgunblaðið - 24.05.2001, Side 18
18 C FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ NETIÐ  FYRSTI vísir að rafrænu kosningakerfi leit dagsins ljós í kosningum um flugvöllinn í Vatns- mýrinni í Reykjavík í vetur og er búist við að farið verði að nota rafrænt kosningakerfi í alþingiskosn- ingum annars vegar og borgar- og sveitarstjórn- arkosningum hins vegar í auknum mæli á komandi árum. eVote er rafrænt kosningakerfi sem Einar Örn Ólafsson, Grétar Karl Guðmundsson og Stefán Jökull Sigurðsson þróuðu fyrir fyrirtækið Tölvu- braut, sem er annað af tveimur fyrirtækjum sem varð hlutskarpast í samkeppni um rafrænt kosn- ingakerfi á vegum dóms- og kirkjumálaráðuneyt- isins. Hitt fyrirtækið er EJS. Einar Örn segir að forsvarsmenn Tölvubrautar hafi komið að máli við sig og aðra í hópnum í vetur og úr hafi orðið að þeir tóku að sér að hanna kerfið eftir að skólanefnd Há- skólans í Reykjavík samþykkti verkefnið. „Við fengum einnig Skýrr í lið með okkur sem útvegaði okkur aðstöðu og verkefnisstjóra, sem var okkur innan handar,“ segir Einar. 1.500 vinnustundir að baki eVote er kosningakerfi í þremur hlutum. Í fyrsta lagi er búið að hanna umsjónarkerfi sem skilgreinir kosninguna, hvort sem hún er sveit- arstjórnarkosning eða almenn kosning s.s. flug- vallarkosning. Í öðru lagi heldur annað umsjón- arkerfi utan um kjörskrá á meðan kjörfundur fer fram, en þar geta umsjónarmenn fylgst með hverj- ir mæta á kjörstað og afhent kjósendum rafrænt kort með örgjörva, sem kjósandi notar til þess að geta gera sér kleift að virkja atkvæðisrétt sinn, en hann greiðir atkvæði sitt á snertiskjá í kjörklefa og er það þriðji hluti kerfisins. Gert er ráð fyrir að tekin verði ákvörðun í sumar um hvort kerfið dóms- og kirkjumálaráðuneytið mun velja og halda áfram að þróa. Einar segir að hópurinn sé nokkuð ánægður með eVote og bíði spenntur eftir því þegar það verði sýnt fyrir starfsmönnum ráðuneytisins á næstu mánuðum. „Við erum búnir að leggja mikla vinnu í verkefnið, en 1.500 vinnustundir eru að baki hjá okkur þremur samanlegt. Það var margt sem við þurftum að hafa í huga þegar við unnum að kerfinu og það má eiginlega segja að það hafi verið í þróun fram á síðustu stundu, enda byrjuðum við nánast með tvær hendur tómar. Kynningin á loka- verkefninu gekk engu að síður vel, en við gerum ráð fyrir að bæta kerfið enn frekar áður en það verður kynnt fyrir dóms- og kirkjumálaráðuneyt- inu í vor.“ Skimað eftir vinum með Buddy Locator Buddy Locator er viðbót við samskiptabúnaðinn iPulse, sem var hannaður af OZ í samstarfi við sænska fyrirtækið Ericsson. iPulse er ætlað að einfalda rafræn samskipti milli tölvunotenda en Buddy Locator-viðbótin gengur skrefi lengra og gerir tölvunotanda kleift að fylgjast með þeim sem skráðir eru í kerfið og nota GSM-síma. Til þess að hafa uppi á GSM-notendum eru notaðar sendar í símstöðvum sem senda skilaboð í tölvu þess sem notar Buddy Locator. Búnaðurinn, sem Jason Kristinn Ólafsson, Ólafur Helgi Rögnvaldsson og Valtýr Gauti Gunnarsson þróuðu, er ekki sagður vera allsherjar eftirlitskerfi heldur er hann ætl- aður tölvunotendum til þess að leita að félögum sínum. „Búnaðurinn virkar á þann hátt að iPulse er tengt við svokallað MPS-kerfi frá Ericsson, en þannig getur GSM-notandi gefið tölvunotanda með iPulse-samskiptabúnaðinn leyfi til þess að stað- setja sig. Við höfum notað ímynduð hverfi til þess að reyna búnaðinn en hins vegar er Buddy Locator ekki komið á það stig að við séum farnir að nota raunveruleg gögn og ekki er búið að tengja bún- aðinn við símstöð,“ segir Jason. Ólafur Helgi Rögnvaldsson, sem vann einnig að verkefninu og starfar í sumar hjá OZ, segir að í upphafi hafi verið lagt upp með að Buddy Locator yrði nokkurs kon- ar frumgerð að staðrænum búnaði fyrir iPulse og líkur væru til þess að slíkum búnaði yrði bætt við kerfið þegar fram liðu stundir. Hópurinn hlaut 9,5 í einkunn fyrir verkefnið. Með GSM-síma að vopni Staðsetningarbundin þjónusta fyrir GSM-síma hefur vaxið fiskur um hrygg en tvö lokaverkefni í kerfisfræði tóku mið af slíkri þjónustu. Annað verkefnið nefndist Mobile Warrior og er skil- greindur sem bardagaleikur milli tveggja eða fleiri GSM- notenda. Leikurinn, sem var þróaður af Atla Þór Hann- essyni, Erlendi Hákon- arsyni, Guðlaugi Gunn- arssyni og Jóni Vigni Guðnasyni, nýtir sér stað- setningartækni og SMS- skilaboð farsímanotenda. Í leiknum, sem er sagður snið- inn að þörfum yngri notenda GSM, er tekið tillit til þess hvar spilendur eru staddir hverju sinni en einnig geta þeir notað Netið. Atli Þór segir að Mobile Warrior byggist að hluta til á hug- myndinni um hlutverkaleiki, en í leiknum er hægt að velja vopn og varnarhlutverk til þess að berjast við aðra GSM-notendur, sem geta staðsett sig hvar sem er innan símakerfisins. „Spil- arinn öðlast meiri reynslu eftir því hversu oft hann tekur þátt í leiknum og um leið aukast líkur hans á að vinna bardaga. Jafnhliða velgengninni stækkar sjóðurinn til þess að kaupa ný vopn og nýjar varnir til áframhaldandi bardaga.“ Atli Þór segir að verkefnahópurinn hafi unnið að hönnun leiksins og kerfinu utan um hann frá því í nóvember. Spurður segir hann að forritunin hafi gengið snurðulaust enda væri ekki mjög frábrugð- ið að forrita staðsetningarbundinn leik fyrir far- síma eða forrita venjulegan hugbúnað í tölvu. Munurinn milli venjulegs hugbúnaðar og leiks hafi aðallega falist í hönnunarferlinu. Spurður hvað varð þess valdandi að hópurinn tók að sér að vinna að staðsetningarbundum leik fyrir GSM-síma sagði Atli að hópurinn hefði óskað eftir að taka að sér verkefni fyrir Trackwell Software (Stefja) og úr varð að hann bjó til leik sem þennan. „Track- Well Software hafði ekki látið búa til leik áður en við höfum fengi góð viðbrögð við honum frá fyr- irtækinu. Þá skilst okkur að hann verði settur á markað hér á landi síðar. Áður en að því kemur þarf að vinna að nokkrum breytingum í honum og við gerum ráð fyrir að sú vinna geti farið fram í sumar,“ segir Atli Þór hróðugur en hópurinn fékk 10 í einkunn fyrir verkefnið. Hann mun starfa hjá Trackwell í sumar. TreasureHunte er staðsetningarleikur fyrir GSM-síma, sem er unninn fyrir Trackwell Soft- ware (Stefja), þar sem markmiðið er að finna falinn hlut, fjársjóð með aðstoð SMS. Er leikurinn eink- um ætlaður fyrirtækjum til þess að kynna vörur og þjónustu en gert er ráð fyrir að hægt verði að bæta leiknum við á Vit-gagnakort GSM-notenda Símans síðar á árinu. Alda Karen Svavarsdóttir, sem vann verkefnið ásamt þeim Arnari Þórarinssyni, Bjarna G. Jónssyni og Ægi Laufdal Traustasyni, segir að fyrirtæki geti óskað eftir að búa til leik í Treas- ureHunt-kerfinu og umsjónarmaður sjái um að setja upp leik á svæði sem er fyrirfram ákveðið. „Þátttakendur geta beðið um vísbendingar eða sent inn leitarorð og fengið svör við þeim, leitarorð geta verið götuheiti, kennileiti eða bara hvað sem er,“ segir Alda sem nefnir að leikurinn sé ætlaður öllum GSM-notendum. Hún benti á að starfsmenn Trackwell Software hefðu reynt leikinn og að tilraunin hefði gengið vonum framar. Miði á tónleika geymdur á þjónustukorti Gert er ráð fyrir að svoköll- uð snjallkort, sem búa yfir ör- gjörva, muni leysa segulrönd greiðslukorta af hólmi á næstu árum. Með snjall- kortum verður hægt að inna af hendi ýmsar smærri greiðslur, svo sem í gjald- mæla og sjálfsala, og til að greiða ýmsan smávarning í söluturnum. Hér á landi er hafin undirbúningur að inn- leiðingu snjallkorta og búist við að öll greiðslukort verði komin með örgjörva árið 2005. SmartValue er verkefni sem byggist á hvernig hægt er að útfæra greiðslumáta fyrir snjallkort á Netinu. Hugmyndin felst í því að notandi slíks þjónustukorts geti heimsótt vefsíður, keypt sér vöru eða þjónustu og borgað hana af reikningi sem er tengdur snjallkortinu. Um leið er hlaðið staf- rænum kóða í kortið sem tryggir að notandi getur notað þjónustuna eða sótt vöruna hvenær sem er, hvort sem keyptur er aðgöngumiði á tónleika eða geisladiskur á vefsíðu plötuverslunar. „Um leið og notandi ákveður að nota þá þjónustu eða vöru sem hann hefur greitt fyrir getur hann framvísað kort- inu og orðið sér úti um vöruna eða þjónustuna,“ segir Kári Halldórsson einn af þremur nemendum sem vann að SmartValue. Hinir sem einnig unnu að verkefninu voru Arnar Freyr Björnsson og Árni Björn Vigfússon. Kári segir að á þjón- ustukortum sé einnig hægt að geyma ýmsar upp- lýsingar, eins og til dæmis aðgang að tónleikum í stað þess að geyma aðgöngumiða að þeim í margar vikur. „Kerfið sem við unnum fyrir Góðar lausnir er ekki komið það langt á veg að það verði notað til að byrja með enda eru engar vefsíður á Netinu sem veita slíka þjónustu. Við höfum hins vegar sýnt fram á að svona lausn er framkvæmanleg og kortin geta geymt slíkar upplýsingar.“ Morgunblaðið /Þorkell Verkefni nemenda á lokaári í kerfisfræði við Háskóla Reykjavíkur voru af ýmsum toga að þessu sinni, allt frá rafrænu kosningakerfi til slagsmálaleiks fyrir notendur GSM-síma. Fær í flestan sjó Rafrænt kosningakerfi, leitarkerfi fyrir iPulse, staðsetningarháður farsímaleikur, bardaga- leikur fyrir GSM og snjallkortavæðing eru meðal verkefna í kerfisfræði við Háskóla Reykjavíkur. „ V i ð b y r j u ð u m á þ v í a ð v i n n a g r u n n v i n n u v i ð v e r k e f n i ð í j a n ú a r o g s e t t u m k r a f t í þ a ð í a p r í l . Þ a ð m á þ v í s e g j a a ð v e r k e f n i ð h a f i g e n g i ð v e l o g e k k - e r t s é þ v í t i l f y r i r - s t ö ð u a ð l e i k u r i n n g e t i k o m i ð á m a r k a ð . “ ÁSTÆÐA þess að fyrirtækið ætl- ar að innkalla kortin er sú að þau hindra aðgang að símanúmerum og SMS-skilaboðum sem eru vistuð á kortunum. Þá hefur gallinn það í för með sér að farsímaáskrift hætti að virka. Kemur fram á vefmiðli Financial Times að gallinn hafi aðeins fund- ist í 30 kortum en fyrirtækið vilji ekki taka neina áhættu og hafi því ákveðið að inn- kalla fyrrnefndan fjölda korta. Janne Vainio, aðstoðarforstjóri Son- era, segir að þessi vandkvæði muni ekki hafa áhrif á aðra þá möguleika sem eru til staðar í farsímaþjónust- unni og að ekki sé hægt að misnota gölluð SIM-kort. Hún benti jafn- framt á að það væri lítil hætta á að viðskiptavinir í farsímaþjónustu Sonera yrðu fyrir óþægindum en fyrirtækið vildi ekki að þeir þyrftu að verða fyrir neinum vandræðum. Sonera bendir einnig á að vandinn sé ekki frá fyrirtækinu kominn. Sonera innkallar SIM-kort Finnska fjarskiptafyrirtækið hyggst láta innkalla um 360 þúsund kort hjá GSM- viðskiptavinum sínum. SIM-kort geymir símanúmer og gögn i farsímum. ◆ HEIMASÍÐA íslensku hönnunar- stofunnar CAOZ hefur verið tilnefnd til verðlauna á norrænu SIME-hátíð- inni fyrir hönnun á Netinu. Á SIME eru fyrirtæki á Norðurlöndum heiðr- uð fyrir hönnun og framleiðslu á gagnvirkri miðlun. CAOZ er meðal tveggja annarra framleiðenda sem er talið skara fram úr á sviði viðskipta og upplýsinga á Norðurlöndunum. CAOZ er eina íslenska fyrirtækið sem er tilnefnt í ár. Magnús Arason, hönnunarstjóri CAOZ, segir það mikinn heiður fyrir fyrirtækið að vera tilnefnt til verð- launa á SIME-hátíðinni. Hann segir að fyrirtækið sé rétt að slíta barns- skónum en það sé greinilega á réttri leið. Samúel H. Jónasson, tæknistjóri CAOZ, er einnig ánægður með til- nefninguna. Hann segir að vefsíðan sé byggð upp í Flash og því farin óhefðbundin leið í framsetningu efnis. „Það hefur gætt ákveðinnar vantrúar þegar kemur að vefsíðugerð sem byggð er á Flash-tækni. Þetta var djörf tilraun af okkar hálfu og því gaman að uppskera árangur erfiðis- ins.“ SIME-hátíðin var fyrst haldin árið 1996 og í ár eru m.a. DR Interactive (Danmörk), Volvo (Svíþjóð), Gulu síð- urnar (Svíþjóð) og Nokia (Finnlandi), tilnefnd til verðlauna á hátíðinni. CAOZ, sem er dótturfyrirtæki OZ.- com, er stafræn hönnunar- og mark- aðssetningarstofa sem leggur áherslu á þjónustu á sviði breiðbands, staf- ræns sjónvarps, margmiðlunar og gagnvirkrar miðlunar. www.caoz.com Heimasíða CAOZ tilnefnd til SIME- verðlauna CAOZ, dótturfyrirtæki OZ, er stafræn hönnunar- og markaðssetningarstofa.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.