Morgunblaðið - 24.05.2001, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 24.05.2001, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2001 C 19 NETIÐ  ÞJÓNUSTAN er án endurgjalds, var tekin í gagnið í kringum áramótin og geta átta starfsmenn, sem sinna símsvörun, tekið þátt í netspjalli við netnotendur í einu. Einar Sigurðsson, vefstjóri hjá Miðlun, sem rekur upp- lýsingaþjónustu Gulu línunnar, segir að búnaðurinn, sem er frá bandaríska fyrirtækinu HumanClick, sé hýstur í Bandaríkjunum, virki á þann veg að þegar netnotandi hafi skrifað inn beiðni til starfsfólks Gulu línunnar hringi bjalla á borði þeirra og í kjöl- farið sé fyrirspurninni svarað. Einar segir að búnaðurinn hafi staðið fyrir sínu og einnig sé starfsfólkið fljótt að svara fyrirspurnum því í kerfinu séu stöðluð svör sem hægt er að smella á svo að þau birtist um leið og leit stendur yfir. „Jafnframt er hægt að senda notanda nýja vefsíðu með lista yfir þau fyrirtæki, sem bjóða þá vöru og þjónustu, sem hann leitar að.“ Ein- ar segir að starfsfólkið hafi tekið því vel að svara fyrirspurnum yfir Netið og að viðskiptavinir Gulu línunnar séu mjög hrifnir af þessari nýjung og eru óhræddir að láta ánægju sína í ljós. Sambærilegri þjónustu ýtt úr vör í Svíþjóð og Póllandi Spurður hvers vegna Miðlun hafi ákveðið að bjóða upp á netspjall á vef- síðu Gulu línunnar segir Einar, einn starfsmaður fyrirtækisins, sem þekkti til tæknilausna HumanClick, hafi bent sér á þennan möguleika. „Þjónusta sem þessi er talsvert notuð erlendis og sem dæmi má nefna að viðskiptavinir HumanClick eru nærri 800 þúsund talsins. Ef þessi þjónusta gengur að óskum hér gerum við ráð fyrir að netspjalli verði ýtt úr vör í Svíþjóð og Pollandi, en þar hefur þjónusta Gulu línunnar einnig verið opnuð. Einar bendir jafnframt á að netspjallið veki forvitni margra og meðal annars hafi útlendingar nýtt sér þjónustuna. „Sendiráð erlendis hafa haft samband við okkur nokkr- um sinnum og beðið okkur að leita að upplýsingum um íslensk fyrirtæki fyrir sig. Við gerum okkur einnig von- ir um að ná til þeirra nokkur hundruð þúsunda erlendra ferðamanna sem sækja landið heim ár hvert.“ Metnaðarmál að veita endanlegt svar Björn Jónsson, framkvæmdastjóri Miðlunar, segir að Netið verði sífellt stærri þáttur í starfsemi Gulu línunn- ar og netspjallið gefi vefsíðu þess mannlegt yfirbragð. Hann segir að Gula línan, sem búi yfir 120 þúsund leitarorðum, fái um þrjú þúsund fyr- irspurnir að meðaltali dag hvern, þar af berist aðeins 10 fyrirspurnir í gegnum netspjallið á dag enn sem komið er. „Netspjallið er hrein viðbót við þá þjónustu sem Gula línan bíður upp á enda er það metnaðarmál okkar að veita viðskiptavinum okkar endan- legt svar við þeim fyrirspurnum sem berast til okkar. Ef við getum ekki gefið svar fáum við uppgefið síma, tölvupóstfang eða símbréf hjá við- komandi viðskiptavini og leitum betur að því sem hann óskar eftir. Þegar við finnum svarið höfum við aftur samb- and með símtali, í tölvupósti, með símbréfi eða með SMS. Við viljum veita viðskiptavinum okkar þá bestu þjónustu sem völ er á hverju sinni því leit að réttu svari er okkar metnað- ur.“ Leitað að rétta svarinu í netspjalli Gulu línunnar Gula línan hefur opnað fyrir netspjall á heimasíðu sinni sem gerir netnotendum, sem eru að leita að vörum og þjónustu, kleift að senda fyrirspurnir til símaþjónustu fyrirtækisins. Morgunblaðið/Sigurður Jökull „Þá veistu svarið.“ Á vef Gulu línunnar er hægt að fá upplýsingar með netspjalli. BANDARÍSKA tæknifyrirtækið Microsoft hefur ákveð- ið að hefja sölu á Xbox-leikjavélinni 8. nóvember í Norður-Ameríku. Forsvarsmenn fyrirtækisins segja að tilkoma Xbox muni hafa mikil umskipti á tölvu- leikjamarkaðnum, á sama hátt og sjónvarpsstöðin MTV breytti nútímapopptónlist á sínum tíma. Jafnhliða útgáfu á vélinni hefur Microsoft kynnt til sögunnar leiki sem eiga að koma út um leið en það er mat Microsoft að þeir muni draga úr skýrum mörkum raunveruleika og ímyndunaraflsins. Meðal leikja sem koma út um leið og vélin eru „Odd- world“, „Halo“, „Dead or Alive 3“, „NASCAR Heat“ og „Mad Dash“, svo dæmi séu tekin. Microsoft kynnti útgáfudag vélarinnar á Electronic Entertainment-vörusýningunni, sem er sögð stærsta tölvuleikjasýningin og haldin í Los Angeles. Þar kom fram að leikjafyr- irtækið Sega ætli að búa til Xbox-útgáfu af íþróttaleiknum „Sega Sports 2K2“ og er með í bígerð fleiri leiki fyrir Xbox, að því er fram kemur á netmiðlinum ZDNet. Einnig kom fram að 27 fyrirtæki eru að vinna að tölvuleikjum sem krefjast breiðbandstengingar fyrir Xbox- leikjavélina. Gert er ráð fyrir að hægt verði að fjárfesta í vélinni í Norður-Ameríku fyrir rúmar 22 þúsund ísl. krónur, en vélinni er stefnt að sömu leikjaáhugamönnum og hafa spilað PlayStation 2 frá Sony. Búast má við talsverðri samkeppni milli leikjaframleiðenda um hylli neytenda því Nintendo ætlar einnig að senda frá sér Game Cube, sem er leikjavél af sama meiði og PlayStation 2 og Xbox. Associated Press Líður að útgáfu Xbox-leikjavélar frá Microsoft ll STUTT ● NÚ eru 10 ár liðin frá því að fyrsti vefþjónninn var tekinn í gagnið, en það átti sér stað í CERN, Evrópsku kjarnorkurannsóknastöðinni í Lausanne í Sviss. Vísindamennirnir Tim Berners-Lee og Robert Caillau áttu stóran hlut að máli en þeir bjuggu til ýmiss konar samskiptaforrit og hugtök sem notuð eru á Netinu í dag. Má þar nefna hugtök eins og url, http og html. Þá bjó Tim Berners-Lee til fyrsta vafrann, en hann var fyrst notaður 17. maí árið 1991. Tim Berners-Lee og Robert Caillau hafa hlotið ýmiss konar verðlaun fyrir frum- kvöðulsstarf sitt. Áætlað er að 30 milljónir vefþjóna séu starfandi í dag, að því er fram kemur í sænska netmiðlinum IDG. Vefurinn er 10 ára ◆ ◆ ● Danska auglýsingastofan BBDO í Kaupmannahöfn hefur sagt starfs- mönnum sínum að gera fimm tíma hlé á tölvupóstsnotkun í starfi, en það er mat yfirmanna BBDO að tölvupóstsnotkun auki álag og dragi úr sköp- unargleði starfsmanna. Haft er eftir Juliane Meulengracht, framkvæmda- stjóra BBDO, að ákvörðun fyrirtækisins að gera hlé á tölvupóstsnotkun sé til- raun til þess að efla sköpunar- og framkvæmdagleði meðal starfsmanna og því verði gert hlé á tölvupóstsnotkun milli 10 og 15 dag hvern. Kemur fram í grein Jyllands-Posten að tölvupóstssýsl geti tekið tíma, aukið álag og stjórn- að starfsdegi fólks. Kemur einnig fram í greininni að samkvæmt könnun bandaríska greiningarfyrirtækisins Gartner Group séu 34% tölvupósts starfs- manna til einkanota en 27% póstsins séu sögð mikilvæg fyrir starfsfólk. Hömlur á tölvupóstsnotkun

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.