Morgunblaðið - 24.05.2001, Blaðsíða 22
22 C FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK
! "
" #
! " $
%
&
'( )*+,-./0-12/33
4
5
36
7
8
! 9
(
: 5
4
;
#<$$6
=
#9
5
&
$ ;
H
VAÐ gerir Intell-
ecta?
Ég stofnaði Intell-
ecta á haustmán-
uðum í fyrra. Það er
alveg ljóst að síbreytilegt við-
skiptaumhverfi kallar á mjög
virka stjórnun en þar þarf fyrst
og fremst að sinna mannauðnum
og rækta enda er það er mannauð-
urinn sem skapar samkeppn-
isforskot í dag. Intellecta er sjálf-
stætt þekkingarfyrirtæki sem
veitir ráðgjöf á sviði stjórnunar,
skipulags og rekstrar fyrirtækja
og stofnana ásamt námskeiðahaldi.
Ég hef það að markmiði að veita
ráðgjöf sem er virðisaukandi og
gagnleg fyrir viðskiptavininn.
Ég tel mikilvægt að hafa góða
yfirsýn í allri ráðgjöf og lít
þannig á að mannauðs- og
þekkingarstjórnun séu ná-
tengdar greinar. Fræði-
menn eru almennt sam-
mála um það að
fjölþætt hæfni starfs-
manna og hátt hæfn-
isstig sé það sem skap-
ar samkeppnisforskot
öðru fremur. Það er því lyk-
ilatriði að stjórnendur sem og aðr-
ir starfsmenn séu valdir með
vönduðum vinnubrögðum.
Hver eru helstu verkefnin?
Ég hef komið að ýmsum verk-
efnum og hef til að mynda að-
stoðað fyrirtæki við mótun starfs-
mannastefnu en það er verkefni
sem krefst þess að skapa sam-
hljóm meðal starfsmanna um þá
stefnu sem vilji er fyrir að hafa í
starfsmannamálum. Það þarf að
leita eftir hugmyndum starfs-
manna og á sama tíma þurfa
stjórnendur að koma að stefnu-
markandi hugmyndum og gildum
sem þeir telja mikilvægt að fylgja.
Önnur verkefni sem ég hef sinnt
eru til dæmis ráðgjöf við upp-
byggingu nýrra fyrirtækja, gerð
skipurita, starfslýsing, verkaskipt-
ing, launastrúktúr og bónusar,
lausn ágreiningsmála á vinnustað
og starfsmat. Síðast og ekki síst
hef ég unnið ýmis verkefni fyrir
fyrirtæki þar sem ég hef leitað
eftir og unnið við að velja og meta
kandídata til æðstu stjórn-
unarstarfa og ýmissa sérfræði-
starfa. Það er einu sinni þannig í
okkar litla samfélagi að margir af
bestu fagmönnunum innan fyr-
irtækja og stofnana sækja ekki
um störf. Góðir fagmenn sem
áhuga hafa á því að skipta um
störf eru oft ekki tilbúnir til að
opinbera sig með svörun við at-
vinnuauglýsingum. Það þarf oft að
finna hæfustu kandídatana til mik-
ilvægra embætta eftir öðrum leið-
um en með auglýsingu. Þetta eru
oft viðkvæm mál sem þarf að
vinna af varkárni og í miklum
trúnaði.
Hver eru helstu áhugamálin?
Við fjölskyldan höfum haft gam-
an af því að ferðast og nánast far-
ið utan á hverju ári. Við höfum í
nokkur skipti farið á frönsku rí-
víeruna en það er heillandi staður.
Við bjuggum lengi í New York og
nágrenni og það er alltaf jafn
gaman að koma á þær slóðir.
Ég á þó von á því að ferðast
meira um Ísland í sumar og er
stefnt að því að fara í gönguferð
um Hornstrandir. Við höfum jafn-
framt leikið tennis með kunn-
ingjum í frístundum en ég náði
nokkrum tökum á þeirri íþrótt
þegar ég var við nám í Bandaríkj-
unum.
Það er mannauðurinn
sem skapar forskot
Þórður S. Óskarsson fæddist árið
1950. Hann lauk Ph.D.-prófi í vinnu-
og skipulagssálfræði frá Hofstra Uni-
versity í New York árið 1984. Hann
starfaði um árabil sem sérfræðingur
og ráðgjafi hjá einkafyrirtækjum og
opinberum stofnunum í New York. Ár-
ið 1992 varð Þórður framkvæmda-
stjóri KPMG Sinnu ehf og 1997 var
hann ráðinn framkvæmdastjóri
starfsmanna- og stjórnunarsviðs
Norðuráls hf. Í ársbyrjun 1999 tók
hann síðan við stöðu framkvæmda-
stjóra KPMG á Íslandi sem hann
gegndi þar til Intellecta hóf starfsemi.
Maki Þórðar er Hanna Dóra Birg-
isdóttir og eiga þau tvö börn.
SKÖTUSELURINN er ljótastur fiska og var kallaður kjaftagelgja hér
áður fyrr. Mörgum finnst hins vegar enginn fiskur ljúffengari. Skötu-
selurinn er, eins og svo margir aðrir fiskar, mjög hentugur á grillið
en vafalítið hafa margir landsmenn nú dustað rykið af grillinu og
hugsa sér gott til glóðarinnar. Í réttinn sem boðið er upp á í dag, og
fenginn er af heimasíðu Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins
(www.rf.is), er kjörið að nota 500–800 grömm af skötusel en hann
fæst í öllum helstu fiskbúðum og stórmörkuðum. Skötuselurinn er
síðan borin fram með rósapiparsósu og soðnum kartöflum. Verði
ykkur að góðu.
Rósapiparsósa:
1 stór laukur
2 msk smjör
1 dós 200 g sýrður rjómi 36%
1 dl rjómi
3 msk chilisósa
½ msk soja
2 hvítlauksrif
2 msk rósapipar
2 msk dill, saxað
Kryddblanda á skötusel:
1 msk sykur
½ tsk salt
3 msk rósapipar
2–3 dillkvistir
olía til að pensla með
Saxið lauk smátt og kraumið í smjöri. Blandið saman í skál sýrðum
rjóma, rjóma, chilisósu, soju og pressuðum hvítlauk. Hellið blöndunni
síðan í pönnuna og látið sjóða í 3–5 mín. Blandið muldum rósapipar og
dilli saman við. Berið fram með glóðuðum skötusel og soðnum kart-
öflum.
Kryddblanda:
Blandið saman sykri, salti og muldum rósapipar, saxið dillið og bætið út
í. Látið skötuselinn í ílát, stráið kryddinu yfir og lokið. Látið bíða í 2–3
klst. Penslið með olíu áður en glóðað er.
Glóðaður skötuselur
með rósapiparsósu
Teikning/Jón Baldur Hlíðberg
UPPSKRIFTIN
AÐFERÐIN
S O Ð N I N G I N
Stimpildælur
Þrýsti- og magnstýrðar
PV,PVT
Stærðir: 14 — 100 cm3/sn.
Spilverk ehf.
Skemmuvegi 8, 200 Kópavogi,
sími 544 5600, fax 544 5301
Morgunblaðið/Þorkell
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
flísar