Morgunblaðið - 03.07.2001, Side 29

Morgunblaðið - 03.07.2001, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001 C 29HeimiliFasteignir SUÐURBRAUT - FRÁBÆRT ÚT- SÝNI Vorum að fá í sölu fallega 92 fm 3ja herbergja íbúð á góðum ÚTSÝNISSTAÐ. FALLEG EIGN MEÐ FRÁBÆRU ÚTSÝNI. Verð 10,2 millj. MIÐVANGUR - FRÁBÆRT ÚT- SÝNI Falleg 88 fm 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í góðu nýlega viðgerðu og máluðu fjöl- býli á frábærum ÚTSÝNISSTAÐ VIÐ HRAUN- JAÐARINN. Suðursvalir. Gufubað og frysti- geymsla. RÓLEGUR OG GÓÐUR STAÐUR. Verð 10,4 millj. ÖLDUTÚN - EFRI SÉRHÆÐ Falleg 73 fm 3ja herbergja efri hæð í tvíbýli, ásamt 38 fm bílskúr. Tilboð. MARÍUBAKKI - RVÍK Góð 84 fm íbúð á 1. hæð á góðum stað. Stutt í alla þjónustu, barnvænt umhverfi. Verð 9,9 millj. 2JA HERB. MIÐVANGUR - LYFTUHÚS Falleg 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í LYFTUHÚSI með HÚSVERÐI. SÉRINNG. af svölum. Nýlegt park- et. FALLEGT ÚTSÝNI. Verð 7,5 millj. (3049) SUÐURGATA - SÉRHÆÐ Mikið end- urnýjuð 58 fm jarðhæð með sérinngangi. Ný- legt gler og gluggar, hiti og rafmagn. Parket á gólfum. Verð 7,3 millj. ÁLFHOLT - FALLEG OG BJÖRT Falleg 67 fm 2ja herb. íb. á 2. hæð í góðu ný- lega máluðu fjölbýli. Stórar suðursvalir. Fallegt útsýni. FAGRAHLÍÐ - NÝLEG OG FALLEG 71 fm 2ja herbergja íbúð í nýlegu fjölbýli á góðum stað. Opin og björt eign. Stór- ar suð-austursvalir. Verð 9,2 millj. HVERFISGATA - RVÍK Frábær og mikið endurnýjuð 2ja herbegja 64 fm RIS- ÍBÚÐ. Sjón er sögu ríkari. Verð 8,8 millj. KLAPPARSTIGUR - RVÍK. Flott íbúð í gamla stílnum á 2. hæð. Góð lofthæð, rósett- ur í kverkum og ofnum, falleg gólfefni. Eignarlóð í Skuggahverfinu. Verð 6,6 millj. TJARNARBRAUT - LAUS STRAX Falleg 75 fm 2ja til 3ja herbergja íbúð á jarð- hæð í góðu fjórbýli á góðum stað við TJÖRN- INA. LAUS STRAX. Verð 8,2 millj. ATVINNUHÚSNÆÐI HVALEYRARBRAUT - GOTT BIL Mjög gott fullbúið 60 fm bil með snyrtingu, kaffiaðstöðu og fl. Verð 4,8 millj. FORNUBÚÐIR - NÝLEGT OG GOTT Vorum að fá gott 96 fm bil á þessum FRÁBÆRA STAÐ við HÖFNINA. Neðri hæð er einn salur og á efri hæð er eldhús, snyrting m. sturtu og geymsla og stórt skrifstofa með út- sýni yfir höfnina. SKÚTAHRAUN - GOTT BIL Gott 60 fm bil með góðum innkeyrsludyrum. Lofthæð upp í 4,60 m. Malbikað plan. GÓÐ STAÐSETN- ING. SUMARBÚSTAÐIR BJARKARBRAUT 27 - GRÍMS- NESI GLÆSILEGUR 50 fm súmarbústaður á góðum stað í landi Bjarkar við Minni-Borg í Grímsnesi. Bústaðurinn sem er S.G. hús stendur á 7000 fm “EIGNARLÓГ Rafmagn, vatn, “HITAVEITA”. Ca. 60 fm timburverönd með HEITUM POTTI. Verð 6,5 millj. LÆKJARFIT - GARÐABÆ - LAUS STRAX Talsvert ENDURNÝJUÐ 62 fm SÉRHÆÐ með SÉRINNGANGI á jarðhæð í góðu STENI-KLÆDDU húsi á góðum og rólegum stað við LÆKINN. Verð 7,6 millj. LAUS STRAX HERJÓLFSGATA - FALLEGT ÚTSÝNI Falleg 68 fm NEÐRI SÉRHÆÐ í góðu fjórbýli. Sérinngangur. Gott útsýni út yfir sjóinn. Verð 8,2 millj. Á LÓÐINNI þar sem Ísa- foldarhúsið stóð í Aust- urstræti 8, var fyrst byggt árið 1824 þegar Clement C. Thoroddsen skraddari reisti sér þar hús. Þá voru takmörk lóðarinnar að norðan Langa „Forto- ved“, að vestan garður G. Petersen, að sunnan Austurvöllur og lóð Robb og P.C. Knudtsson. Húsið stóð við Austurstræti og snéri framhlið þess að Austurvelli með garði fyrir framan. Það var grindarhús með tígulsteinum í hluta grindarinnar, borðaklætt og tjargað á þrjá vegu en suðurhliðin var mál- uð. Skúrbygging var við norðurhlið þess og kamar við austurgaflinn. Í júlí 1831 kaupir Guðlaugur Sívertsen kaupmaður eignina. Í júní 1834 er húsið selt á uppboði og kaup- ir það Wejl & Gerson í Kaupmanna- höfn. Margrét Andrea Knudsen, ekkja Lars Knudsens kaupmanns, verður eigandi þess 1836, en þá var húsið í daglegu talið kallað Skraddarahús. En eftir að ekkjan eignaðist það var það oftast nefnt Maddömuhús og stundum Sýslumannshús eftir að tengdasonur ekkjunnar, Þórður Guðmundsson sýslumaður í Gull- bringu- og Kjósarsýslu, fluttist þangað, en hann átti þar heima í nokkur ár. Árið 1846 keypti J. J. Billenberg skósmiður íbúðarhúsið og ári síðar reisti hann á norðurhluta lóðarinnar pakkhús 10 x 12 álnir að grunnfleti. Hann seldi Toft beyki austurhluta lóðarinnar árið 1855, sem þá var kallaður eldhússgarðurinn. Toft reisti sér þar hús sem síðar var núm- er 10 við Austurstræti. Í október 1856 selur Billenberg O. Guðjónssen eignina. Í maí árið 1860 er eignin komin í eigu G. Lambersen sem fær leyfi til að lengja íbúðarhúsið til austurs og byggja við það skúr. Nýtt hús 1886 Árið 1886 kaupir Björn Jónsson ritstjóri eignina. Hann lét rífa húsið og sama ár reisti hann annað hús á lóðinni, sem enn stendur og hefur verið flutt í Aðalstræti. Á meðan húsið var í smíðum var gerð á því brunavirðing. Samkvæmt henni er það tvílyft grindarhús á kjallara, borðaklætt með járn- klæddu mansardþaki, 21 x 16 álnir að grunnfleti. Þegar virðingin var gerð var búið að fullgera neðri hæð- ina. Í henni voru fjögur herbergi þilj- uð með borðum og með tvöföldum loftum, öll máluð. Kjallari var undir húsinu öllu, í honum voru átta her- bergi og voru veggir múrsléttaðir. Þegar þessi virðing var gerð var hvorki búið að innrétta efri hæðina né risið. Í nóvember sama ár var húsið næstum fullgert. Þá var það tekið aftur til virðingar og segir þar að kjallari og neðri hæð séu óbreytt frá fyrri virðingu að öðru leyti en því, að bætt hefur verið í kjallarann einum innmúruðum vatnspotti, og á fyrstu hæð þremur ofnum. Uppi á lofti eru herbergin fullbú- in, tvö af þeim eru með veggjapappír og eitt þiljað með borðum; öll með tvöföldum loftum og máluð. Fjórða herbergið er þiljað og málað en með einföldu lofti. Á þessari hæð er ein eldavél og þrír ofnar til upphitunar. Á efsta lofti eru fimm herbergi, þilj- uð með einföldum loftum. Eitt her- bergið er málað, hin ómáluð, þar eru tveir ofnar til upphitunar. Fjölskylda Björns Jónssonar bjó á efri hæðinni og þaklyfti hins nýja húss og á neðri hæðinni var Ísafold- arprentsmiðja sem stofnuð var 1877. Björn Jónsson fæddist í Djúpadal í Gufudalssveit 8. október 1846. Son- ur Jóns Jónssonar bónda þar og konu hans Sigríðar Jónsdóttur frá Látrum. Björn Jónsson varð stúdent frá Reykjavíkurskóla 1869. Hann fór ut- an 1871 og stundaði nám í lögum við Háskólann í Kaupmannahöfn. Björn stofnaði vikublaðið Ísafold árið 1874 og var ritstjóri þess til ársins 1909. Hann lagði mikla rækt við íslenska tungu og var skörulegur ræðumað- ur. Kona hans var Elísabet, dóttir séra Sveins Níelssonar á Staðarstað. Börn þeirra voru: Guðrún, Sigríður, Sveinn fyrsti forseti landsins og Ólafur, sem tók við ritstjórn Ísafold- ar af föður sínum. Eftir Björn Jóns- son liggur mikið af rituðu máli bæði þýddu og frumsömdu. Einnig Ís- lensk stafsetningarorðabók og dönsk orðabók. Fyrsta tölublað Ísafoldar kom út 9. september 1874 og var prentað í prentsmiðju Einars Þórðarsonar sem áður var Landsprentsmiðjan. Á fyrstu árum blaðsins virðist það hafa verið á hálfgerðum hrakólum; fyrst í Túngötu 1, síðan á Túngötu 2 eða þar til húsið í Austurstræti 8 var byggt. Einar seldi prentsmiðjuna ásamt bókum og öðru sem henni tilheyrðu Birni Jónssyni ritstjóra sem samein- aði hana Ísafoldarprentsmiðju. Upphaf þessarar prentsmiðju var prentsmiðja Jóns Arasonar biskups á Hólum en prentsmiðjan hafði víða verið sett niður og má þar nefna Breiðabólstað í Vesturhópi, Núpa- fell, Skálholt, Hlíðarenda í Fljótshlíð og nokkra staði í Borgarfirði. Síðast áður en prentsmiðjan var flutt til Reykjavíkur, var hún í Viðey. Langur ferill Á þessum langa ferli prentsmiðj- unnar sem spannar yfir 425 ár var hún smám saman endurnýjuð. Prentsmiðjan hafði eignast hrað- pressu þegar hún sameinaðist Ísa- foldarprentsmiðju, sem var þó á engan hátt eins hraðvirk og pressa sú sem Ísafoldarprentsmiðja hafði keypt frá Englandi. Árið 1894 lét Björn rífa geymslu- húsið á lóðinni og byggði annað í staðinn, 19 x 9 álnir að grunnfleti og var hluti þess notaður fyrir geymslu, hinn undir fjós og hlöðu. Vísaði vest- urgafl þess að Vallarstræti og voru kýrnar reknar um sundið sem var á milli fjóssins og íbúðarhússins og var það nefnt Beljusund. Um 1939 var þetta pláss tekið undir bókband. 1896 var geymslu- húsið lengt til norðurs jafnlangt hús- hliðinni. Þau skilyrði voru sett að hækka eldvarnarvegg á milli geymsluhússins og næsta húss við svo að hann næði 6 þumlunga upp fyrir þak geymsluhússins. Í þessari viðbyggingu var afgreiðsla og bók- band. Árið 1906 var byggður prentvéla- skúr, 21 x 7 álnir að grunnfleti aust- an við húsið. Skúrinn náði jafn langt í norður og aðalhúsið. Þau skilyrði voru sett að ef færa þyrfti íbúðar- húsið innar vegna breikkunnar á Austurstræti skyldi skúrinn færður jafn langt inn og það. Árið 1919 voru blaðaafgreiðslan og skrifstofur til húsa í þessari byggingu og 1959 var þar verslun. Prentvélaskúr var byggður úr steinsteypu Austurvall- armegin við húsið árið 1919. Ísafoldarprentsmiðja var raflýst árið 1899. Vél sem gekk fyrir olíu framleiddi rafmagnið og sá ná- granninn, Eyjólfur Þorkelsson, úr- smiður, um framkvæmdina. Eyjólf- ur leiddi einnig rafmagn frá vél þessari í úrsmíðavinnustofu sína í Austurstræti 6. Þegar Björn Jónsson varð ráð- herra flutti hann úr húsinu og seldi það Ólafi syni sínum, sem sá um út- gáfu Ísafoldar allt til dánardags 10. júní 1919. Ólafur Björnsson var einn af stofnendum Morgunblaðsins 1913 og var blaðið prentað í Ísafoldar- prentsmiðju. Afgreiðsla blaðsins var þar og einnig skrifstofur þar til Morgunblaðshöllin í Aðalstræti 6 var byggð. Ísafoldaprentsmiðja var rekin í húsinu til ársins 1942 en þá fluttist hún í Þingholtsstræti 5. Í gegnum tíðina hefur verið ýmiss konar rekstur í þessu húsi og skúra- byggingunum við það. Um árabil var þar bókabúð Ísafoldar og var versl- unin á tveimur hæðum. Bækur á ís- lensku voru niðri ásamt ritföngum en á efri hæðinni voru seldar erlend- ar bækur. Í þessu plássi var síðast verslun með íslenskan ullarfatnað en ýmiss konar starfsemi var þar í millitíðinni. Seinna flutti Bókabúð Ísafoldar í viðbygginguna austan við húsið og þá var gengt inn frá Vallarstræti í gegnum verslunina og út í Austur- stræti. Um árabil var í húsinu skó- verslun. Árið 1962 var verslunar- gluggum á götuhæð breytt. Í viðbyggingunni Vallarstrætis- megin var til margra ára rekið nota- legt kaffihús „Nýja - kökuhúsið.“ Í nokkur ár var verslað með antík- muni á götuhæð hússins og á síðustu tímum hússins á upphaflega staðn- um var skartgripa- og gjafavöru- Gamla Ísafoldarhúsið, sem áður stóð við Austurstræti, var flutt að Aðalstræti 12 og er eitt fallegasta hús borgarinnar. Trégrind hússins, sem tekin var í sundur fjöl fyrir fjöl og hver þeirra merkt. Síð- an var grindin sett upp aftur nákvæmlega eins á nýja staðnum, Aðalstræti 12. Ljósm./Magnús Ólafsson, Ljósmyndasafn Reykjavíkur Þessi mynd af Ísafoldarhúsinu við Austurstræti 8 var tekin á síðustu öld. Ísafold- arhúsið Í Ísafoldarhúsinu hóf Morgunblaðið göngu sína og það er talið vera fyrsta raflýsta húsið á landinu. Freyja Jóns- dóttir rifjar upp sögu hússins. SJÁ SÍÐU 31

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.