Morgunblaðið - 29.07.2001, Síða 4
4 B SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Sælkerar á sunnudegi
Steingrímur Sigurgeirsson Álfheiður Hanna Friðriksdóttir Áslaug Snorradóttir
BORDEAUX-vín hafa veriðmikið í fréttum undanfariðvegna ótrúlegra verð-hækkana. Það vill því
gjarnan gleymast að nær öll fram-
leiðsla þessa þekktasta vínfram-
leiðsluhéraðs Frakklands er á við-
ráðanlegu verði.
Ekki spillir það heldur fyrir
ánægjunni að sumir af bestu fram-
leiðendum héraðsins eru farnir að
einbeita sér að venjulegum vínum
ekki síður en ofurvínum. Eitt
stærsta nafnið í vínheiminum í
Bordeaux er Jean-Michel Cazes,
sem nýlega dróg sig í hlé sem
stjórnandi víndeildar AXA-
samsteypunnar. Hann heldur þó
áfram um taumana á fjöl-
skyldubúgarðinum Lynch Bages
og nokkrum öðrum af þekktustu
vínhúsum héraðsins.
Lynch-nafnið notar hann einnig
á línuna Michel Lynch sem kom
fyrst á markað á síðasta
áratug. Michel Lynch var
borgarstjóri Pauillac á
tímum frönsku bylting-
arinnar og hann varð ansi
stórtækur í vínrækt hér-
aðsins og hann byggði
upp orðstír Bages-
víngerðarhússins.
Það er einmitt vín-
gerðarliðið frá Lynch
Bages sem sér um
framleiðsluna á þessu
víni og gefur það ansi
mikið fyrir vín sem
kostar einungis 990
krónur í reynslusölu.
Vissulega ekki bolti
en fyrir peninginn
alveg geysilega gott.
Ég smakkaði nýlega
þá tvo árganga sem
nú eru á mark-
aðnum:
Michel Lynch Bordeaux
Rouge 1998 ilmar af sedrus-
viði (vindlakassa) og mildri
eik. Dökkur berjaávöxtur í
munni, ljúft með mildu
vindlatóbaki og súkkulaði.
Ljúffengt vín og mjög
góð kaup.
1997-árgangurinn
nokkuð ólíkur, þrosk-
aður og reykmikill,
blýantur í nefi og dökkur
ávöxtur. Í munni vel bal-
anserað og vandað.
Tvö þýsk hvítvín eru nú
í reynslusölu. Moselland
Classic Riesling Spätlese
1999 hefur ágætan Ries-
ling-karakter, grænn ilmur,
nokkuð sætt í munni með
áberandi möndlubragði.
Louis Guntrum Schäurebe
Kabinett 1998 er selt í
bleikri flösku en er í raun
hvítvín. Ilmur af berjasafa og
rifsberjum.
Allsætt og nokkuð bragð-
mikið.
Steingrímur Sigurgeirsson
Michel Lynch
Sá sem borðar fisk og kjöthann frændur sína étur…En gott er að borða gul-ræturnar, grófa brauðiðsteinseljuna o.s.frv…
kyrjaði Lilli klifurmús í Dýrunum í
Hálsaskógi. „Úti er alltaf að snjóa,
ekki gráta elskan mín þó þig vanti
vítamín, ávexti eigum við nóga,
melónur og vínber fín“ er annar
texti margfrægur orðinn þar sem
hollusta grænmetis og ávaxta er
ítrekuð á skemmtilegan hátt.
Hvorki er ætlunin að predika
hér um frændsemi manna og að-
skiljanlegra dýra né að það sé sið-
laust eða ógeðfellt að leggja sér
þau til munns, síður en svo. Þessi
pistill er hins vegar helgaður
ávöxtum að öllu kjöti og fiski ólöst-
uðu. Það verður að játa að ávextir
og grænmeti hafa einhvern veginn
mun ljóðrænna gildi en kjötmeti
og bera af sér nautnafyllri þokka.
Ýmis ávaxta- eða grænmetisheiti
eru t.d. notuð yfir hinn elskaða eða
elskuðu í ýmsum tungumálum og
nokkur dæmi um það eru: hin
enska „peach“ (ferskja), hin ís-
lenska rúsína og hið ítalska „la mia
fragolina“ (litla jarðarberið mitt).
Ítalirnir sækja reyndar slík gælu-
nöfn einnig mikið í dýraríkið sbr:
„la mia gazzella“ (gasellan mín), „il
mio cucciolo“ (hvolpurinn minn) og
„la mia coccinella“ (maríubjallan
mín).
Það er gaman að velta fyrir sér
hvort hin einu og sönnu Adam og
Eva hafi haft slík ávaxta-, græn-
metis-, eða dýragælunöfn um hvort
annað. Líklegra einhvern veginn
að þau hafi þá verið úr jurtaríkinu
finnst manni. Í Gamla testament-
inu er þó ekki kveðið á um, hvers
konar ávextir uxu á skilningstrénu
en listamenn seinni tíma hafa
gjarnan séð fyrir sér epli, þennan
rauða, freistandi, safaríka ávöxt…
Vel er því hægt að gera því skóna
að undir seiðmagni freistingarinn-
ar hefðu þau Adam og Eva vel get-
að hugsað eitthvað svipað og Erica
Jong í eftirfarandi smáljóði:
því ávaxtabragðið
er draumur tungunnar
og roði eplisins
ástríða augans.
Í öðru ljóði lýsir Erica samruna
tveggja einstaklinga af gagnstæðu
kyni. Sú lýsing gæti jafnframt átt
prýðilega við Adam og Evu í ald-
ingarðinum:
Bless, veifaði hann, á leið inn í eplið,
álfkonuna rauðu.
Hold hennar dökknar
leiki of lengi um það loft
og hún opnaði fullkomnar kinnarnar
til að bjóða honum inn.
Hún tók við honum.
Garðurinn hringsnerist
Í mjúkri holdslikju hennar.
Bless.
Eftir þetta ástríðuþrungna ljóð
vindum við okkur yfir í ávaxtasalöt
af ýmsum toga.
ÁVAXTASALAT MEÐ GÚRKU
Að mati undirritaðrar eiga eftir-
réttir að vera léttir og frískandi.
Of saðsamir eftirréttir geta eyði-
lagt heilu matarboðin; öll orka
gestanna fer þá í að melta, og þeir
sitja sljóir til augnanna og geta
fregnað af fáu. Þetta salat er létt í
maga og sáraeinfalt í undirbúningi.
Uppskriftin er handa fjórum.
200 g gúrka
2 epli
2 appelsínur
2 msk jarðarberjasulta
Þvoið gúrkuna, skerið hana í
tvennt eftir endilöngu, síðan í litla
bita, gjarnan dálítið óreglulega.
Afhýðið ávextina og skerið í litla
bita. Blandið gúrku og ávöxtum
saman í skál, hrærið sultuna var-
lega saman við og kælið salatið áð-
ur en það er borið fram.
MELÓNUSALAT MEÐ MYNTU
OG KAMPAVÍNI
Þetta hentar bæði sem ljúffengur
og svalandi „fordrykkur“ og er þá
sett meira af víni en minna af
ávöxtum í melónuhelmingana, eða
sem frískandi eftirréttur.
Fyrir 4:
2 cantaloupemelónur
1 búnt fersk mynta
4 tsk sykur
þurrt kampavín
Skerið melónurnar í tvennt og
skafið melónukjötið innan úr berk-
inum með sérstakri melónuskeið
þannig að úr verði litlar kúlur.
Komið kúlunum fyrir í melónu-
helmingunum og stráið sykri yfir.
Merjið myntulauf (magn eftir
smekk) í mortéli og blandið saman
við melónukúlurnar. Berið fram.
Hellið kampavíni ofan í melónu-
helmingana (magn eftir smekk)
fyrir framan gestina (það er mun
áhrifameira).
Þegar menn eru orðnir mettir af
nautakjöti eins og oft gerist á grill-
andi sumardögum þessa lands er
fátt eins frískandi fyrir bragðlauk-
ana og hvetjandi fyrir blóðrásina
og ferskt ávaxtasalat, t.d. á borð
við það sem hér fer á eftir. Upp-
skriftin er fyrir fjóra, undirbún-
ingstími er u.þ.b. 15 mín.
Gætið þess aðeins að hráefnið sé
vel kælt áður en þið hefjist handa.
FERSKT ÁVAXTASALAT
4 bananar
2 appelsínur
3 msk romm (má sleppa)
3 dósir af hreinni jógúrt
u.þ.b. 6 msk strásykur
Afhýðið ávextina, sneiðið niður
bananana og skerið appelsínurnar
í litla bita. Hellið rommlögginni
yfir. Setjið jógúrtina og sykurinn í
salatskál, gjarnan glerskál og
hrærið hressilega í. Setjið ávaxta-
bitana saman við og berið fram.
TUTTI FRUTTI ÁVAXTASALAT
Þetta krúttlega nafn „tutti frutti“
er ítalska og þýðir „allir ávextir“.
Það er notað sem heiti á salötum
eða ís sem er búinn til úr mörgum
ávaxtategundum. Hér á undan
voru hugmyndir að ávaxtasalötum,
en möguleikarnir við að setja sam-
an hressandi ávaxtasalat eru
óþrjótandi og um að gera að gefa
hugmyndafluginu lausan tauminn.
T.d. má bita eða sneiða niður app-
elsínur, greipaldin og banana, og
skreyta salatið með rúsínum. Ekki
spillir að bragðbæta salatið með
ögn af pastís. Einnig má blanda
saman bönunum, eplum, greipald-
ini og skreyta með söxuðum val-
hnetum. Verði ykkur að
góðu!
Álfheiður Hanna.
Létt í lund með
létt í maga
Morgunblaðið/Áslaug Snorradóttir
STÓRHÖFÐA 21
sími 545 5500
RÝMINGARS
ALA